Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.06.1955, Side 4

Verkamaðurinn - 24.06.1955, Side 4
4 V E R K A M A Ð U R I N Is Föstudaginn 24. júní 1955 Bræðslusíldarverðið 70 kr. málið Atvinnumálaráðherra hefur heimilað Síldarverksmiðjum ríkis- ins að kaupa bræðslusíld í sumar föstu verði á kr. 70,00 málið og ennfremur að gefa þeim viðskipta- mönnum verksmiðjanna, sem kynnu að óska, kost á að leggja síldina inn til vinnslu og fá þá greiddar við afhendingu 85% af áætlunarverði, kr. 64,70, þ. e. kr. 55,00 og endanlegt verð síðar þegar reikningar verksmiðjanna hafa verið gerðir upp ,enda til- kynni viðskiptamenn það fyrir 7. júlí ef þeir óska að leggja síldina inn til vinnslu. Tillaga þessi byggist á áætlun framkvæmdastjóra og stjórnar verksmiðjanna og því að niður eru felldar afborganir af nýju verk- smiðjunum á Siglufirði og Skaga- strönd, er nema kr. 2.125.000,00 og ennfremur framleiðslugjald, er nemur 8% af hráefnisverði. í fyrra var bræðslusíldarverðið kr. 60,00 málið og hækkar verðið nú vegna verðhækkunar á síldar- lýsi og síldarmjöli. Þá hefur Síldarútvegsnefnd, í samráði við Verðlagsráð sjávarút- vegsins, ákveðið verð á ferskssíld til söltunar hér norðanlands og austan í sumar. Er það lítið eitt hærra en í fyrra, eða sem hér segir: Uppsöltuð tunna kr. 135 auk 8% gjalds í hlutatryggingasjóð, kr. 145.80. Uppmæld tunna kr. 100.00, auk 8% gjalds í hlutatryggingasjóð, kr. 108.00. í fyrra var verð á uppsaltaðri tunnu kr. 140.40, en á uppmældri tunnu kr. 103.68; og er þá áður- nefnt 8% gjald innifalið í báðum tilfellum. í>á hefur verið ákveðið að leyfa söltun strax, þegar síldin telzt sölt- unarhæf, en áður hefur söltun ver- ið leyfð frá og með vissum degi er ákveðinn hefur verið hverju sinni. Jarðarför HELGA HELGASONAR, Króksstöðum, sem andaðist 16. þ. m., fer fram að Kaupangi miðvikudaginn 29. þ. m. kl. 2 e. h. Börn, tengdabörn og bamaböm. SKR A yfir tekju- og eignaskatt, tekjuskattsviðauka og stríðs- gróðaskatt liggur frammi í Skattstofu Akureyrar, Strand- götu 1, frá 27. júní til 11. júlí að báðum dögum með- töldum. Ennfremur liggja frammi á sama tíma skrár yfir gjöld til almannatrygginga og slysatryggingagjöld. Kasrum út af skránum ber að skila til Skattstofunnar fyrir 12. júlí næstkomandi. Akureyri 26. júní 1955. Skattstjórinn á Akureyri. AKUREYRARBÆR SKRÁ yfir niðurjöfnun útsvara í Akureyrarkaupstað árið 1955 liggur frammi til sýnis á skrifstofu bæjarstjóra í Strand- götu 1, II. hæð, frá mánudegi 27. júní til laugardags 9. júlí n. k., að báðum dögum meðtöldum, venjulegan skrifstofutíma hvern virkan dag. Kærufrestur er til 10. júlí og ber að skila kærum til skrifstofu bæjarstjóra innan þess tíma. Fyrirspurnum um skrána ekki svarað í síma. Bæjarstjórinn á Akureyri, 23. júlí 1955. ÞORSTEINN STEFÁNSSON — settur — Frá garðyrkjuráðunaut Mig verður að hitta fyrst um sinn í Þingvallastræti 1 kl. 10—12 f. h. alla virka daga. — Sími 1497. ÓSKAR EIRÍKSSON. - Landsmót U.M.F.Í. (Framhald af 1. síðu'). m. bringusund karla og 50 m. sund kvenna, frjáls aðferð, 1000 m. sund karla, frjáls aðferð, og 500 m. sund kvenna, frjáls aðferð. Forkeppni verður árdegis í löngu sundunum, ef mikil þátttaka verður. Kl. 21.30: Útifundur, stjórnandi Daníel Agústínusson. Söngur. — Framsöguerindi. — Umræður. Kl. 21.00: Kvikmyndasýningar, dans og leiksýning. Dansað í Varð- borg, Alþýðuhúsinu og á palli Sunnudagur 3. júlí: Kl. 9.00: Skrúðganga frá heima- vist M. A. til leikvallar. Kl. 10—12: Úrslit í frjálsum íþróttum og handknattleik. Kl. 12—13.30: Matarhlé. Kl. 13.30: 1. Guðsjónusta á leik- velli. Prófastur Sigurður Stefáns- son á Möðruvöllum prédikar. Kirkjukór Akureyrar syngur, stjórnandi Jakob Tryggvason. Lúðrasveit Akureyrar leikur. 2. Samkoman sett: Valdemar Oskarsson, formaður UMSE. 3. Lúðrasveit Akureyrar leikur: „Þú vorgyðjan svífur. . . Al- mennur söngur. 4. Ræða: Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri. 5. Kórsöngur: Karlakór Akur- eyrar, stjórnandi Askell Jónsson. 6. Ræða: Þórarinn Björnsson, skólameistari. 7. Einsöngur: Guðmundur Jóns- son, óperusöngvari, með undirleik Fritz Weisshappel. 8. Upplestur: Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi. 9. Kórsöngur: Karlakór Akur- eyrar, stjómandi Askell Jónsson. Úrslit í frjálsíþróttum. Glímu- sýning, flokkur Þingeyinga, stjórn- andi Haraldur Jónsson, Einars- stöðum. Þjóðdansar, stjórnandi Björn Daníelsson, íþróttakennari. Fimleikasýning, stjórnandi Hösk- uldur Goði Karlsson, íþróttakenn- ari. Kl. 18—20: Matarhlé. Kl. 20.00: Lúðrasveit Akureyrar leikur við sundlaugina. Sund- keppni heldur áfram. Keppt í 100 m., sundi karla, frjáls aðferð, 4x50 m. boðsundi karla, frjáls aðferð, 100 m. bringusundi kvenna og 4x25 m. boðsundi kvenna, írjáls aðferð. Tilkynnt úrslit í íþróttum og verðlaun afhent. Lokaorð: Formaður UMFI. Kl. 21.00: Skemmtanir í sam- komuhúsum bæjarins. Dans á palli. íslendingar á friðar- þinginu Þrír íslendingar a. m. k. sitja þing Heimsfriðarhreyfingarinnar í Helsinki, Arnfinnur Jónsson skóla- stjóri, frú Sigríður Eiríksdóttir og Skúli Þórðarson sagnfræðingur. Söfnunin undir Vínarávarpið heldur áfram af fullum krafti. — Ættu menn að láta friðarþingið verða sér áminning um að draga ekki lengur að skrifa undir. NÝKOMNIR! Strigaskór á böm og fullorðna. Skódeild KEA. Kaupta: sti IÐJU — félags verksmiðjufólks á Akureyri, samkvæmt hinum nýju samningum er gilda frá 1. júní síðastl. Karlar eldri en 17 ára: Grunnlaun Með vísitölu: Fyrstu 3 mán. kr. 1650.00 kr. 2657.00 Næstu 3 mán. — 1855.00 — 2987.00 Næstu 6 mán. — 1925.00 — 3099.00 Eftir 12 mán. — 2080.00 — 3349.00 Eftir 48 mán. — 2200.00 — 3542.00 Konur eldri en 17 ára: Grunnlaun Með vísitölu: Fyrstu 6 mán. kr. 1205.00 kr. 1940.00 Næstu 6 mán. — 1320.00 — 2125.00 Eftir 12 mán. — 1490.00 — 2399.00 Unglingar yngri en 17 ára: Grunnlaun Með vísitölu: Fyrsta mánuð kr. 845.00 kr. 1360.00 Eftii 1 mán. — 930.00 — 1497.00 Eftir 3 mán. — 1015.00 — 1634.00 Eftir 6 mán. — 1205.00 — 1940.00 Eftir 9 mán. — 1320.00 — 2125.00 Eftir 12 mán. — 1490.00 — 2399.00 Karlar í Sútunarverksmiðju Iðunnar, I. fl.: Grunnlaun Með vísitölu: Fyrstu 3 mán. kr. 1750.00 kr. 2818.00 Næstu 3 mán. — 1955.00 — 3148.00 Næstu 6 mán. — 2025.00 — 3260.00 Eftir 12 mán — 2180.00 — 3510.00 Eftir 48 mán. — 2300.00 — 3703.00 Gefjun — vefarar. Karlar eldri en 17 ára: Grimnlaun Með vísitölu: Byrjunarlaun kr. 1425.00 kr. 2294.00 Eftir 1 mán. — 1600.00 — 2576.00 Eftir 3 mán. — 1755.00 — 2826.00 Eftir 6 mán. — 1980.00 — 3188.00 Eftir 9 mán. — 2150.00 — 3462.00 Eftir 12 mán. — 2215.00 — 3566.00 Eftir 48 mán. — 2335.00 — 3759.00 Vefarar — konur og unglingar yngri en 17 ára: Grunnlaun Með vísitölu: Byrjunarlaun kr. 970.00 kr. 1562.00 Eftir 1 mán. — 1065.00 — 1715.00 Eftir 3 mán. — 1185.00 — 1908.00 Eftir 6 mán. — 1455.00 — 2343.00 Eftir 9 mán. — 1535.00 — 2471.00 Eftir 12 mán. — 1735.00 — 2793.00 Kaup í verksmiðjum KEA er samhljóða sem við á. Nema í Mjólkursamlaginu. En þar er kaupgjaldið þannig: Grunnlaun Með vísitölu: Fyrstu 3 mán. kr. 1765.00 kr. 2842.00 Næstu 3 mán. — 1970.00 — 3172.00 Næstu 6 mán. — 2055.00 — 3309.00 Eftir 12 mán. — 2280.00 — 3671.00 Eftir 48 mán. — 2415.00 — 3888.00 Konur eldri en 17 ára í Mjólkursamlaginu, sem unnið hafa í 12 mán. eða lengur, hafa kr. 1535.00 á mánuði, með vísitölu kr. 2471.00, að öðru leyti sömu laun og gilda í öðrum verksmiðjum. Laun kyndara eru 15% hærri en laun verkamanna. — Vísital- an er 161 stig fyrir júnímánuð. IÐJA — félag verksmiðjufólks, Akureyri. Akureyringar! Eyfirðingar! Saumastofa vor er flutt á Ráðhústorg 7. Saumastofa GEFJUNAR Sími 1347.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.