Verkamaðurinn - 20.04.1956, Page 4
' 4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 20. aprfl 1956
Alþýðubandalagið á miklu og
dagvaxandi fylgi að fagna
á Vestfjörðum
Margir forustumenn Alþýðuflokksins á Vest
fjörðum hafa sagt sig úr flokknum
- Hvers konar stjórn
kjósum við
(Framhald af 3. síðu.)
arnir og foringjarnir, sem neyddu
verkalýðsstéttina til sjálfsvarnar í
verkföllum undangenginna ára,
skelfist og sjái alls staðar rautt,
þegar launastéttirnar eru nú að
rísa upp og beita sama samtaka-
mættinum á stjórnmálasviðinu og
þær hafa áður beitt á faglega svið-
Hannibal Valdimarsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, hefur að
undanförnu ferðast um Vestfirði
og haldið þar fundi víða. I viðtali
við Þjóðviljann í gær kemst
Hannibal m. a. svo að orði um
för sína:
„Eg hef farið marga stjórnmála-
leiðangra fyrir Alþýðuflokkinn á
undanförnum árautgum, en sjald-
an hef eg farið ánægjulegri ferð
og fengið betri undirtektir en á
Isafirði og í Norður-ísafjarðar-
sýslu undanfarna" daga, sagði
Hannibal Valdimarsson við Þjóð-
viljann í gær, en hann var þá ný-
kominn að vestan. Fyrir vestan er
mikill og dagvexandi áhugi fyrir
Alþýðubandlaginu, og fjölmargir
forustumenn Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum hafa þegar sagt skilið
við hægri mennina og fylgja ein-
dregið samvinnu vinstri mahna
um baráttumál verkalýðshreyfing-
arinnar.
„Fundurinn á Isafirði er einhver
mesti og glæsilegasti stjórnmála-
fundur, sem eg hef verið á,“ sagði
Hannibal um fund sinn á Isafirði
og gat þess síðan að fjöldi Alþýðu-
flokksmanna, þ. á. m. tveir af for-
ustumönnum Baldurs, þeir Pétur
Pétursson og Guðmundur Eðvarðs
son, styddu Alþýðubandlagið ein-
dregið.
„í Bolungavík ræddi eg við for-
ustumenn Alþýðuflokksins og
verkalýðshreyfingarinnar og þeir
standa einhuga með Alþýðubanda-
laginu; má þar t. d. nefna Pál Sól-
mundsson, formann verkalýðsfé-
lagsins, Benóný Sigurðsson, Haf-
liða Hafliðason; einnig aðalfor-
- Kosninganefnd
(Framhald af 1. síðu).
Jón Hafsteinn Jónsson,
menntaskólakennari,
Jóhann Indriðason, formaður
Sveinafél. járniðnaðarm.,
Jóhannes Hermundss., form.
Trésmiðafél. Akureyrar,
Jónína Jónsdóttir, frú,
Margrét Sigurðardóttir, frú,
Óskar Gíslason, byggingam.,
Stefán Magnússon, verkam.,
Þorsteinn Jónatanssonð vara-
form. Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar.
ustumann Þjóðvarnarflokksins á
staðnum. Er alþýðufólk mjög ein-
huga, og varð tveimur sendlum
Hræðslubandlasins, sem þangað
komu á undan mér, ekkert ágengt.
I Hnígsdal hafa þau tíðindi gerzt,
að formaður Alþýð,uflokksfélags-
ins, Helgi Björnsson, og gjaldkeri
Alþýðuflokksfélagsins, Ingólfur
Jónsson, hafa báðir sagt sig úr Al-
þýðuflokknum til að mótmæla
svikum hans við málstað verka-
lýðshreyfingaripnar og beita sér
fyrir sigri Alþýðubandalagsins.
Eg hef aldrei fengið betri við-
tökur á pólitískum fundi, en eg
fékk í Súðavík. Var fólk mjög
langt að komið, m. a. frá Alfta-
firði, Seyðisfirði og Vigur, og hús-
fyllir. Vottuðu fundarmenn allir
Alþýðubandalaginu fygi sitt, nema
tveir íhaldsmenn sem klöppuðu
hvor fyrir öðrum og létu í ljós
mikinn ótta við þessi nýju samtök
alþýðunnar. Oddvitinn í Súðavík,
Albert Kristjánsson, hefur sagt sig
úr Alþýðuflokknum og lét hann
svo ummælt, að viðhorf alþýðu
manna þar um slóðir sé gerbreytt
eftir að málin hafa skýrst.“
Telpa
11—12 ára óskast til að
gæta barna.
Uppl. í Aðalstr. 14
(eða síma 1516.)
BAZAR
Skógræktarfélag Tjarnar-
gerðsi heldur bazar að Vöru-
bílastöðinni Stefni, sunnu-
daginn 22. apríl kl. 4 síð-
degis.
Nejndin.
inu og neita að láta lengur hafa sig
i þann hráskinnaleik að kjósa
stéttarandstæðinga á þing, sér til
höfuðs, til þess að þurfa síðan að
berjast gegn árásum þeirra í lang-
vinnum vinnudeilum.
I skelfingu sinni sitja foringj-
arnir, sem svikið hafa allar sínar
stefnuyfirlýsingar eftir hverjar
kosningar, við fínar reiknimaskín-
ur og leggja saman atkvæðatölur.
Þeir reyna að lifa í þeirri trú, að
fólkið sé bara atkvæði, sem unnt
sé að kaupa og selja, atkvæði, sem
lúti lögmálum reiknivélanna eins
og dauðir hlutir. En þeir múnu
sanna það 24 .júní, að það verður
lifandi og hugsandi fólk, sem
gengur þá að kjörborðinu og velur
og hafnar í samræmi við hagsmuni
sína og skoðanir.
V innuvettlingar
kr. 10.00 parið
Vinnubuxur kr. 80 00
Sjóstakkar kr. 150.00
Vöruhúsið h.f.
Skemmtiklúbbur Iðju
heldur ársjagnað sinn í Al-
þýðuhúsinu n. k. laugardag
(annað kvöld) kl. 9 síðdegis.
Skemmtiklúbbnr Iðju
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sxna ungfrú Birna Guð-
mundsdóttir, Ytri-Skál, Köldu-
Kinn, S.-Þing., og Svan Jörensen,
Ægissíðu 111, Reykjavík.
Gleðilegt sumar!
Þökk fyrir veturinn!
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS
Var kjöri nefndarinnar fagnað
mjög af fundarmönnum, enda er
skipan hennar í fullu samræmi við
þá hreyfingu sem fer dagvaxandi
meðal vinstri manna og verkalýðs-
sinna úr öllum flokkum hér í bæn-
um fyrir því að gera sigur Alþýðu-
bandalagsins sem mestan og glæsi-
legastan í komandi kosningum.
FRAMKVÆMDANEFND.
Að loknum stuðningsmannafund-
inum hófst fundur kosninganegnd-
arinnar og kjöri hún Jón B. Rögn-
valdsson formann sinn og með
honum í framkvæmdanefnd þá
Baldur Svanlaugsson, Hjörleif
Hafliðason, Guðrúnu Guðvarðar-
dóttur og Björn Jnósson, en til
vara Stefán Magnússon og Jón
Ingimarsson.
Gleðilegt sumar!
Þökk fyrir veturinn!
ALÞÝÐUSAMBAND NORÐURLANDS
Gleðilegt sumar!
Þökk fyrir veturinn!
FULLTRÚARÁÐ VERKALÝÐSFÉLAGANNA
Píanóhljómleikar
Hin unga og vinsæla listakona
Þórunn S. Jóharuisdóttir hélt pí-
anóhljómleika í Nýja-Bíó síðast-
liðið föstudagskvöld. Aðsókn var
mikil, og var mikil hrifning meðal
áheyranda.
Viðfangsefni voru mjög fjölbreytt
og ágætlega valin — nokkrar af
fegurstu perlum hinna miklu
meistara tónlistarinnar. Og Þórunn
flutti þessi fögru og áhrifamiklu
listaverk á þann hátt, að auðfund-
ið er, að hún er þegar orðin stór-
brotin listakona, sem sameinar
fullkomna tækni, djúpan skilning
og eldlegt skap. Og haldi hún
áfram að þroskast og fullkomnast
jafn markvíst hér eftir sem hing-
að til, þá er ég fullviss þess, að
ekki líða mörg ár, þar til hún
verður komin í fremstu röð pxanó-
snillinga heimsins.
Hljómleikarnir hófust með
þrem litlum Sónötum eftir Scar-
latti. Og Þórunn leiddi fram feg-
urð, hreinleika og göfgi þessara
yndislegu tónverka, þó að hljóð-
færið væri mjög örðugt viðfangs
og drægi talsvert úr áhrifunum.
(Þetta hljóðfæri er ekki boðlegt
píanósnillingi. Það þarf bráðrar
aðgerðar og endurbótar, en getur
þó varla orðið verulega gott.)
Næst kom svo eitt af mei$tara-
verkum Bachs: Chaconne í d-moll
(samin fyrir einleiksfiðlu) í píanó-
útsetningu ítalska meistarans
Ferruccio Busoni. Þetta er afarerf-
itt verk og meðal þess fegursta,
sem samið hefur verið af tónlist,
varla talið annarra meðfæri en
fullþroskaðra snillinga. En Þórunn
hafði slíkt vald á því, að það var
sem leikur í höndum hennar, og
hún töfraði fram fegurð þess, tign,
lofgerð og tilbeiðslu.
Þriðja viðfangsefnið var Sónata
í e-moll eftir E. Grieg, stórfagurt
verk og snildarvel leikið.
A síðari hluta efnisskrárinnar
voru þessi lög:
Etude eftir Henselt, Impression
eftir Jóhann Tryggvason, (Um
þjóðsöguna Dansinn í Hruna),
mjög vel samið lag og táknandi,
Impromptu í F eftir G. Fauré,
Waldesrauschen (Skógarþytur) eft-
Fr.Liszt, Impromptu í Fis-dúreftir
Fr. Chopin og Ballade No. 1 í g-
moll eftir sama höfund.
Oll voru þessi lög flutt með
miklum ágætum, og komu ein-
kenni hvers lags og höfundanna
svo skýrt fram og eftirminnilega,
að segja mátti, að hvert lag væri
lifandi persónuleiki.
Það er Þórunni höfuðatriði að
leiða fram tónskáldin sjálf, hug-
sjónir þeirra og tilfinningar. En
hún er eins og allir beztu hljóð-
færaleikarar laus við þá tilfinn-
ingasemi, sem stafar oft af því, að
hljóðfæraleikarinn er uppteknari
af sjálfum sér en tónlistinni, sem
hann á að túlka. Minnir hún að
þessu leyti á Harald Sigurðsson.
En þótt öll lögin á þessum
hljómleikum væru vel og snilld-
arlega flutt, þá báru þó lög
Chopms af, einkum hið síðlara:
Ballade. Það var fullkomið á allan
hátt, og áhrif þess ógleymanleg.
Að síðustu lék Þórunn tvö auka-
lög.
Við erum með réttu stoltir, ís-
lendingar, af löndum okkar, sem
vinna afrek í íþróttum, tafli o. s.
frv. En hve miklu fremur megum
við fagna yfir þeim, sem vinna af-
rek í hinum æðri listum: bók-
menntum, myndlist, tónlist. Þeir,
sem leggja út á þá braut, leggja
sjálft lífið að veði. Og það er þeim
að þakka, að heimurinn lítur á
okkur sem menningarþjóð. Þeir
eru okkar eina varnarlið og rétt-
læting tilveru okkar sem sjálf-
stæðrar þjóðar gagnvart umheim-
inum. Og það er líka skylda þjóð-
arinnar að standa trúlega að baki
slíkra listamanna og láta þá finna
það við öll tækifæri, að við skilj-
um og metum störf þeirra. Það er
þeim meira virði en flestir gera
sér grein fyrir. En á þann stuðning
fólksins að baki listamannanna
hefir oft skort átakanlega, því
miður. Þegar þjóðin fylgist eins
vel með öllum hljómleikum ís-
lenzkra tónlistarmanna erlendis
eins og hún fylgist með afrekum
íþróttamanna, þá má vænta mik-
illa afreka, og þá mun íslenzka
þjóðin njóta aukinnar virðingar og
vinsælda.
A. S.
Kjörskrá
fyrir Alþingiskosningarnar 24. júní 1956 liggur frammi,
almenningi til sýnis, á bæjarskrifstofunum frá og með
fimmtudeginum 24. apríl til og með fimmtudagsins 21.
maí n. k.
Kærur vegna kjörskrárinnar þurfa að hafa borist á
bæjarskrifstofurnar fyrir 3. júní n. k.
, Akureyri, 20. apríl 1956.
BÆJARSTJÓRI.
Hólmarnir
verða seldir til leigu á bæjarstjómarskrifstöfun-
um 21. apríl n.k. kl. 2 e.h.
Akureyri, 16. apríl 1956.
BÆJARSTJÓRI.