Verkamaðurinn - 29.06.1956, Page 2
2
*
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 29. júní 1956
VE«MÐUKÍI1II
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
liitnefnd: Björn Jónsson (áb.), Einar Kristjánsson, Jakob Árnason.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. Sími 1516. Pósthólf 21.
Áskriftarverð 40 krónur árg. Lausasöluverð 1. kr. eintakið.
Akureyri. — Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Hvað verður gert?
Niðurstöðutölur í alþingis-
kosningunum liggja nú fyrir
og eru raktar annars staðar
hér í blaðinu. Þær sanna svo
ljóst sem verða má að Alþýðu-
bandalagið hefur staðizt sína
fyrstu eklraun með prýði og
kemur út úr kosningunum
sem sigurvegari með 20%
meira atkvæðamagn en Sósíal-
istafl. hafði 1953.
Hræðslubandalagið hefur
tapað fylgi, eða nærri 10%,
miðað við kjósendafjölgun.
Þjóðvarnarflokkurinn hefur
þurrkast út og útséð um að
saga hans í íslenzkum stjórn-
málum er nú öll.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
tapað í Iheild um alla lands-
byggðina, en jók fylgi sitt í
Rvík og Gullbr.- og Kjósar-
sýslu, svo að heildaraukning
v^rður á fylgi hans, sem nem-
ur 5% miðað við kjósenda-
fjölgun. Er sýnilegt að allir
landshlutar utan hernáms-
svæðisins fordæma hernaðar-
stefnu flokksins, en að nokk-
ur hluti kjósenda í nábýli
hersins, er tekinn að sýkjast
af hernámsspillingunni. Er
það greinileg og alvarleg vís-
bending um það að herinn
verður að fara strax og upp-
sagnarákvæði hernámssamn-
ingsins leyfa, ef spillingar-
áhrif hans eiga ekki að skilja
eftir spor, sem ekki verða af-
máð.
Úrslit kosninganna sýna að
yfirgnæfandi meirihluti kjós-
enda gerir þá ófrávfkjanlegu
kröfu, að iherinn verði látinn
víkja úr fandi. Yfirgnæfandi
meirihluti kjósenda hefur lýst
fylgi sínu við stefnu alþýðu-
samtakanna í atvinnumálum
þjóðarinnar og efnahagsmál-
um, sem bæði Alþýðubanda-
lagið og Hræðslubandalagið
gerðu að sinni stefnu í kosn-
ingabaráttunni. — Vaxandi
hluti kjósenda hefur látið þá
skoðun í ljósi, að Alþýðu-
bandalaginu sé bezt treyst-
andi til að framkvæma þessa
stefnu í samstarfi við önnur
vinstri öfl í landinu. Kjósend-
ur hafa sjálfir ákveðið að eng-
in vinstri „tjórn verði mynd-
uð án þáíttöku Alþýðubanda-
lagsins.
Allir spyrja nú: Hvað verð-
ur gert? Svörin við því munu
birtast næstu vikurnar og
skal því engum getum að því
leitt Iiver þau verða af hálfu
Alþýðuflokksins og Eramsókn
ar.
En afstaða Alþýðubanda-
lagsins er þegar mörkuð: Það
hefur gert kröfuna um sterka
vinstri stjórn að sínu höfuð-
baráttumáli og hlotið traust
og fylgí alþýðustéttanna við
þá kröfu. Og það mun halda
áfram að leggja allt sitt lið
fram tii að gera hana að veru-
leika og tryggja áhrifavald al-
þýðustéttanna og alþýðusam-
takanna á stjórnarstefnuna og
stjórnarfarið í landinu.
Foringjar Hræðslubanda-
lagsins eiga enn eftir að
standa við stóru orðin. Von-
andi hefur sigur Alþýðu-
bandalagsins sannfært þá um
að þeim verður ekki stætt á
öðru en að láta fara saman
orð og athafnir.
Röð uppbótarmann-
anna á þingi
Uppbótarmenn flokkanna taka
sæti á þingi í þessari röð:
1. Alfreð Gíslason (Alþ.b.).
2. Karl Guðjónsson (Alþ.b.).
3. Gylfi f>. Gíslason (Alþ.fl.).
4. Finnubogi Rútur Valdimarsson
(Alþ.b.).
5. Benedikt Gröndal (Alþ.fl.).
6. Gunnar Jóhannsson (Alþ.b.).
7. Guðmundur í. Guðmundsson
(Alþ.fl.).
8. Björn Jónsson (Alþ.b.).
9. Ólafur Björnsson (Sjálfst.fl.).
10. Pétur Pétursson (Alþ.fl.).
11. Friðjón Þórðarson (Sjálfst.f 1.).
sjálfvirku olíubrennararnir fást í
eftiríöldum stærðum:
Model GCS — 0.75— 2.00 gall. ca. 5 m2
Model GCl = 1.50— 3.00 gall. ca. 9 m2
Model GC2 = 3.00— 4.50 gall. ca. 13 m2
Model GC3 = 3.00— 7.50 gall. ca. 22 m2
Model GC4 = 7.50—13.00 gall. ca. 38 m2
Model GC5 = 12.00—21.00 gall. ca. 60 m2
Model GC6 = 20.00-33.00 gall. ca. 90 m2
Yfir helmingur allra olíukyndingar-
tækja, sem flutt eru til landsins, er
G I L B A R C O.
Leitið nánari upplýsinga hjá oss.
Birgðir fyrirliggjandi.
Varahlutir einnig ávallt til.
(tsso)
DLIUSOLUDEILD KEA
Akureyri.
SÍMAR: 1700 og 1860.
V erðlaimagetraunin
Við athugun á getraunaseðlum
þeim, sem Héraðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins gaf út í sambandi við
kosningarnar, kom í ljós að fru
Guðrún Guðmundsdóttir, Skóla-
stíg 3, reyndist getspökust. Var
tilgáta hennar um atkvæðamagn
Alþýðubandalagsins 829, eða ná-
kvæmlega hin rétta.
Sfórbreyiing á
orðin óhjákvæ
krafi um i
mgaiogunum
mileg réífiætis-
Ml' I ■ r
I sambandi við kosningaúrslitin
verður mönnum úr öllum flokkum
æ ljósara, að kosningalögin eru
orðin algerlega óviðunandi og stór
breyting á þeim orðin óhjá-
kvæmileg nauðsyn, ef skipun Al-
þingis á ekki í framtíðinni að
verða skrípamynd af vilja kjós-
enda og jafnrétti á að ríkja í sam-
ræmi við grundvallarreglur lýð-
ræðis.
Svo er nú komið, að minnsti
flokkur þjóðarinnar, Framsóknar-
flokkurinn, Sem hefur 15,6% at-
kvæða að baki sér, fær 17 þing-
menn kjörna, en næst stærsti
flokkurinn, Alþýðubandalagið,
með 19,2% atkvæða fær aðeins 8
þingmenn.
Ef Alþýðubandalagið þyrfti
jafnfá (760) atkvæði á bak við
hvern þingmann, ætti það að hafa
2 1 þingmann.
Ekki verður misréttið minna, ef
litið er til einstakra kjördæma. —
Þannig jafngildir atkvæði eíns
Seyðfirðings atkvæðum 17 kjós-
snda í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Þannig mætti tengi telja, en allt
ber að þeim brunni, að réttlætis-
kennd manna tekur af öll tvímæli
um að slíkt misrétti, bæði milli
kjördæma og flokka á ekki og get-
ur ekki gengið lengur, ef réttar
lýðræðisreglur eiga ekki að troð-
ast í svaðið.
Ný og réttlátari kosningalög
,og kjördæmaskipun verða að
fyrirbyggja að hugsanlegur
geti orðið sá mögúleiki, sem
nú lá nærri að yrði að veruleika,
að meirihluti Alþingis sé skipaður
eftir vilja lítils minnihluta kjós-
enda í landnu. ,
Vélritunarstúlku
vantar á Landsímastöðina á Akureyri frá 1. júlí eða
síðar, eftir samkomulagi. — Byrjunarlaun kr. 2800.00
á mánuði.
SÍMASTJÓRINN.