Verkamaðurinn - 09.05.1958, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 9. maí 1958
Skíðamól Norðurlands i Hlíðarfjalli
in i«»
lírt
'íiið
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemur kl.
2 e. h. — Hinn almcnni bænadag-
ur. — Sálmar nr. 374, 376, 378 og
1. — P. S.
Fermingarmessa í Lögmanns-
hlíðarkirkju n.k. sunnudag kl. 2
e. h. — Sálmar nr. 590, 111, 594,
591, 596, 599, 603 og 232. — K. R.
Oddeyrarskólanum verður slit-
ið laugardaginn 10. maí kl. 5
síðdegis. Þá verður til sýnis
skólavinna barnanna, einnig
sunnudaginn 11. maí kl. 1—4 síð-
degis.
Mænusóttarbólusetningin. —
Þriðju umferð mænusóttarbólu-
setningar fyrir fullorðna lýkur í
dag. Sjá augl. í síðasta blaði.
Dónardægur. 2. þ. m. lézt að
Kristneshæli Hermann Jakobs-
son. Hann hafði verið sjúklingur
þar um margra ára skeið, en átti
áður heima í Aðalstræti 54. Hans
verður nánar minnst í næsta
blaði.
Sextugur er í dag Jón Svein-
bjarnarson, verkamaður, Aðal-
stræti 13.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
heldur fund í Alþýðuhúsinu kl.
8.30 í kvöld.
Til mannsins, sem missti hend-
ina. Mótt. á afgreiðslu blaðsins:
Þ. kr. 50.00. — Þ. G. H. kr.
100.00. — S. V. kr. 100.00.
Verkamaðurinn fæst í Reykja-
vík í Söluturninum, Hvergisg. 1.
Vinnumiðlunarskrifstofa Akur-
eyrar hefur síma 1169.
Ferðafélag Akureyrar hefur
keypt skíðaskála Bamaskóla Ak.
og hyggst endurbyggja hann og
reisa sem sæluhús í Herðubreið-
arlindum. Þeir meðlimir F.F.A.,
sem vildu leggja fram sjálfboða-
vinnu við að rífa skálann og að-
stoða félagið við þessar fram-
kvæmdir, tali strax við Karl
Hjaltason, Jón Sigurgeirsson eða
Karl Magnússon.
Aðalfundur Ásgarðs h.f. verður
haldinn í húsakynnum félagsins
í Hafnarstræti 88 næstk. sunnu-
aag kl. 4 e. h.
Frá Slysavamafélagi kvenna,
Akureyri. Fundur verður í Alþ.-
húsinu þriðjud. 13. þ. m. kl. 9 e.h.
Sagðar verða fréttir af lands-
fundi og síðan flutt skemmtiatr-
iði. Takið kaffi með. — Stjórnin.
Mikill snjór, skíðafæri gott og glampandi sól
Skíðamót Norðurlands var háð
í Hlíðarfjalli við Akureyri um
síðustu helgi á vegum Skíðaráðs
Akureyrar, svo sem auglýst hafði
verið. Hófst það klukkan 4,30 á
laugardag með setningarræðu
Hermanns Stefánssonar, form. S.
K. í. Mótstjóri var Svavar Otte-
sen.
Gestir mótsins voru: Haraldur
Pálsson, Marteinn Guðjónsson og
Ásgeir Ulfarsson, Reykjavík. —
Bærinn kaupir af
Kristni
Það mál, sem mestar umræður
hefur vakið í bæjarstjórn á undan-
förnum mánuðum, að undantekn-
um málefnum Útgerðarfélagsins,
mun vera tilboð Kristins Jónssonar
forstjóra, þar sem hann bauð bæn-
um til kaups fjórðu hæð hússins
Hafnarstræti 81.
Fyrst hafnaði bæjarstjórn tilboð-
inu hinn 25. febrúar. En á fundi 18.
marz var aftur á móti samþykkt að
kaupa húseignina, en þó með því
skilyrði, að undanþága fengist frá
lögum um afnot ibúðarhúsa i kaup-
stöðum.
Var síðan sótt um undanþágu
frá lögunum fyrir Akureyrarkaup-
stað. Formlegt svar frá ráðherra við
þeirri beiðni hefur ekki borizt, en
á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag
skýrði bæjarstjóri svo frá, að ráð-
herra hefði tjáð sér, að undanþágu
gæti hann ekki veitt, nema fyrir
lægi skýlaus yfirlýsing frá bæjar-
stjórn um, að húsnæðisskortur væri
ekki til staðar í bænum. Slika yfir-
lýsingu treystist bæjarstjórn ekki til
að gefa, þar sem öllum mun kunn-
ugt, að húsnæðisskortur er mikill.
Flutti þá Jakob Frímannsson til-
lögu um að bærinn keypti hæðina,
þó að engin undanþága væri fyrir
hendi. Var sú tillaga samþykkt með
10 samhljóða atkvæðum. Kaupverð-
ið er 440 þús. kr., sem greiðist á 10
árum með jöfnum afborgunum og
7% vöxtum.
Er þetta mikla vandamál bæjar-
stjórnar þar með úr sögunni i bili
að minnsta kosti, og Akureyrarbær
verður væntanlega eigandi að um-
ræddri húseign og hún sennilega
leigð út til ibúðar fyrst um sinn, en
hugmynd bæjarfulltrúa mun vera,
að hún verði síðar tekin til afnota
fyrir söfn bæjarins.
NÝ SENDING:
HATTAR
STUTTJAKKAR
BABY-DOLL NÁTTFÖT
HÁLSFESTAR
EYRNALOKKAR
MARKAÐURINN
SIMI 1261.
Gestirnir náðu góðum árangri í
mótinu. Haraldur varð 4. í stökki
og svigi, Marteinn varð 2. í stór-
svigi og Ásgeir Úlfarsson 1. í
svigi. Marteinn og Ásgeir eru B-
flokksmenn.
Úrslit urðu sem hér segir:
Stórsvig. Norðurlandsmeistari
Magnús Guðmundsson A. 1.10.9
min.
B-flokkur: 1. Hákon Ólafsson
S. 1.05.7 mín.
C-flokkur: 1. Hallgrímur
Jónsson A. 51.3 sek.
4x5 km. boðganga: 1. Sveit
Akureyringa 1.35.32 klst.
í sveit Akureyringa voru:
Guðmundur Þorsteinsson, Hauk-
ur Jakobsson, Stefán Jónasson,
Kristinn Steinsson.
Skíðastökk. Norðurlandsmeist-
ari: Kristinn Steinsson A. 209.8
stig.
15—16 ára flokkur: 1. Jón
Halldórsson E. 208.2 stig.
Svig. A-flokkur. Norðurlands-
meistari: Hjálmar Stefánsson A.
226.5 sek.
B-flokkur: 1. Hákon Ólafsson
S. 125.7 sek.
C-flokkur: 1. ívar Sigmunds-
son A. 78.6 sek.
Frá Kvennasambandi Akureyrar
Aðalfundur Kvennasambands
Akureyrar var haldinn 29. f. m.
Eftirfarandi samþykktir fundar-
ins hafa blaðinu borizt til birt-
ingar:
Kristnes.
„Aðalfundur Kvennasambands
Akureyrar, sem haldinn var þ.
29. apríl ,mælir eindregið á móti
því, að Kristneshhæli verði lagt
niður sem berklahæli.
Álítur fundurinn, að því miður
muni enn ekki fengin örugg vissa
fyrir því, að berklaveikin í land-
inu sé það mikið í rénun, að
tímabært sé að leggja niður
berklahæli á Norðurlandi.“
Nonnastyttan.
„Aðalfundur Kvennasambands
Akureyrar, sem haldinn var þ.
29. apríl, lýsir ánægju sinni yfir
tillögu Menntamálaráðs og und-
irtektum bæjarstjórnar Akur-
eyrar, um að gerð verði mynda-
stytta af pater Jóni Sveinssyni
(Nonna) og hún staðsett á Ak-
ureyri.
Vill fundurinn beina þeirri til-
lögu til hæstvirts bæjarráðs, að
styttunni verði valinn staður á
bernskustöðvum Nonna, sem
nænst Nonnahúsinu. Einnig að
gamla kirkjulóðin verði girt og
lagfærð, sem allra fyrst.“
- Ræða Rósbergs
(Framhald af 3. síðu.)
Við erum ríkari í dag, en
nokkru sinni áður — og við eig-
um næga möguleika til áfram-
haldandi sóknar, betri lífskjara,
bjartari framtíðar.
En seint og snemma skyldum
við minnast þess, að hér eigum
við að búa og hér verðum við að
búa við það sem landið gefur —
og þjóðin vinnur.
Lítil íbúð óskast
TVENNT I HEIMILI.
Vil taka á leigu nú þegar
litla íbúð (2 lierb. og eld-
hús). Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. — Afgr. vísar á. —
Húnvetningafélagið
hefur
SKEMMTIKVÖLD
fyrir félagsmenn sína og gesti
þeirra, í Landsbankasalnum
n. k. laugardag, 10. maf, kl.
8.30 e. h.
Sfnluð verður regnbogavist
og dansað til kl. 2 e. m.
Fjölmennið.
STJÓRNIN.
TILKYNNING
um bótagreiðslur lífeyrisdeildar almanna-
trygginganna árið 1958.
Bótatímabil lífeyristrygginganna er frá 1. jan. sl. til ársloka. Lífeyrisupp-
hæðir á fyrra árshelmingi eru ákveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af bót-
um síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjur að ræða til skerðing-
ar bótarétti, verður skerðing lífeyris árið 1958 miðuð við tekjur ársins 1957,
þegar skattframtöl liggja fyrir.
Sækja þarf á ný um bætur samkvæmt heimildarákvæðum almannatrygg-
ingalaga fyrir 25. maí n. k., í Reykjavik til aðalskrifstofu Tryggingarstofn-
unar ríkisins, en úti um land til umboðsmanna stofnunarinnar.
Til heimildarbóta teljast hækkanir á elli- og örorkulífeyri, hækkanir á
lífeyri til munaðarlausra barna, örorkustyrkur, ekkjulífeyrir, makabætur og
bætur til ekkla vegna barna.
Þeir, sem nú njóta hækkunar elli og örorkulífeyris, þurfa ekki að endur-
nýja umsóknir sínar fyrr en um næstu áramót, þar sem hækkunin er þegar
úrskurðuð til þess tíma.
Áríðandi er að örorkustyrkþegar sæki fyrir tilsettan tíma, þar sem ella er
óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til greina, vegna þess að fjárhæð sú, er
verja má í þessu skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja umsóknunum,
hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru
til lífeyristrygginga, skulu sanna með kvittun innheimtumanns eða á annan
liátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil geta varðað skerðingu
eða missi bótaréttar.
Norðurlandaþegnar, sem búsettir eru hér á landi, eiga samkvæmt sainn-
ingi um félagslegt öryggi bótarétt til jafns við Islendinga, ef dvalartími
þeirra og önnur skilyrði, sem samningarnir tilgreina, eru uppfyllt.
íslendingar, sem búsettir eru í einhverju Norðurlandanna, eiga gagn-
kvæman rétt til greiðslu bóta í dvalarlandinu.
Athygli skal vakin á því, að réttur til bóta getur fyrnzt. Er því nauðsyn-
legt að þeir, sem telja sig eiga rétt til bóta og óska eftir að fá þær greiddar,
dragi eigi að leggja fram umsókn sína.
Munið að greiða iðgjöld til lífeyristrygginga á tilsettum tíma, svo að þér
haldið jafnan fullum bótaréttindum.
Reykjavík, 6. maí 1958.
Tryggingustofnmi ríkisins.