Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.10.1959, Page 1

Verkamaðurinn - 09.10.1959, Page 1
VERKflmfiÐim XLII. árg. Akureyri, föstudaginn 9. október 1959 34. tbl. HVORT VILL ÞJÓÐIN HELDURí Nýja vinslri sljórn eSa samsljórn hernámsllokkanna og hverskonar Úr ræðu Páls Kristjánssonar á Akureyri s. 1. sunnudag í þeim alþingiskosningum, sem fram eiga að fara í þessum mán- uði, eru kjósendur beðnir að segja til um það, eða öllu heldur að ákveða það, hvaða stjórnar- stefna skuli verða ráðandi á ís- landi á næstu árum og hvaða stefna skuli verða ráðandi í efna hags- og viðskiptalífi þjóðarinn- ar, það er að segja við hvaða skilyrði almenningur á íslandi skuli heyja sína lífsbaráttu. Og ekki vantar það, að kjósendur eigi kost á víðtæku vali, hvað pólitíska flokka snertir, þar sem hvorki meira né minna en fimm flokkar bjóða nú fram. Tvö meginöfl. Þessi fjölbreytni, hvað flokk- ana snertir, haggar þó ekki þeirri staðreynd, að nú eru það aðeins tvö meginöfl, sem takast á í íslenzkum stjórnmálum. Ann- ars vegar íslenzkt auðvald í tengslum við enn voldugra er- lent auðvald og hins vegar ís- lenzk verkalýðssamtök og stjórn málasamtök alþýðu á fslandi, Alþýðubandalagið. Og þessi tvö meginöfl hafa verið ráðandi í okkar stjórnmálum til skiptis á tímabilinu frá síðustu heims- styrjöld, og staðreynd er það, að á þessu tímabili hefur íslenzk Útvarpsumræður Á miðvikudags- og fimmtu- dagskvöld í næstu viku fara fram almennar stjórnmálaum- ræður fyrir Norðurlandskjör- dæmi eystra frá útvarpsstöðinni í Skjaldarvík. Koma þessar um- ræður í stað framboðsfunda, sem tíðkaðir voru áður en kjör- dæmaskipuninni var breytt. Hver stjórnmálaflokkur, sem hefur menn í kjöri, fær til um- ráða 40 mínútna ræðutíma hvort kvöld, og skipta flokkarnir ræðu tíma sínum milli frambjóðenda eftir því, sem þeim þykir ástæða til hverjum um sig. verkalýðshreyfing og flokkur hennar, fyrst Sósialistaflokkurinn og nú Alþýðubandalagið, verið megin framfaraflið í átökunum um þróun efnahagsmála þjóðar- innar. Þess vegna hafa kjör al- sýðu versnað og lifsbarátta al- mennings orðið örðugri, þegar áhrif verkalýðshreyfingarinnar á jróun efnahagsmálanna hafa minnkað á þessu tímabili, en efnahagslegar framfarir og af- koma almennings batnað, þegar verkalýðshreyfingin og hennar stjórnmálasamtök hafa ráðið stefnunni. Af þessu leiðir það að einmitt þetta tímabili, frá síðustu heims- styrjöld og til þessa dags, gefur fullkomna reynslu um það, hvor leiðin hefur reynzt bæði þjóðinni allri og sér í lagi vinnandi fólki til sjávar og sveita betur: leið auðvaldsins eða leið alþýðu- samtakanna. Þessa reynslu ættu kjósendur að hagnýta sér, þegar þeir velja milli hinna mörgu flokka, sem um er að velja við næstu al- þingiskosningar. Hvað hefur gerzt í efnahagsmálunum á þessu tímabili, þegar sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar hafa mótað stefnuna, og hvað hefur gerzt, þegar verkalýðshreyfing- unni og hennar stjórnmálasam- tökum hefur verið bolað frá áhrifum? Nýsköpunarstjómin. Tímabil það, sem eg hér hef nefnt, hefst með nýsköpun- arstjórninni 1944, en stefna þeirrar stjórnar var mótuð af verkalýðshreyfingunni og Sósí- alistaflokknum. Sú stjórnarstefna var í því fólgin, að nota hinar erlendu innstæður þjóðarinnar þá til ný- sköpunar atvinnulífs á Islandi. Þá voru keypt hin miklu at- vinnutæki, nýsköpimartogararn- ir, og þá fyrst fengu hinar dreifðu I byggðir slík tæki í sína þjónustu, en áður hafði togaraútgerð verið bundin við byggðir Faxaflóa, nær eingöngu. í tíð nýsköpunarstjórnarinnar var það, fyrir tilstilli sósíalista, að lánuð voru 85% af stofnverði Páll Kristjánsson. slíkra tækja sem togara, ekki sízt til að auðvelda hinum dreifðu byggðum að komast yfir tækin. Á eg þar við stofnlánadeild sjáv- arútvegsins. Slíkt hafði ekki áður gerzt á fslandi. í tíð nýsköpunarstjórnarinnar kom og fjöldi báta og vinnslu- stöðva. Þetta tímabil verkalýðsáhrifa á stjórn þjóðarinnar, markaði al- ger tímamót í atvinnumálum þjóðarinnar. Sósíalistaflokkurinn og verka- lýðshreyfingin mótuðu stefnu nýsköpunarstjómarinnar, en sú stjórn hóf fyrstu ráðstafanir sam kvæmt fyrirfram gerðri áætlun Frambjóðendur Alþýðubanda- lagsins í Norðurlandskjördæmi eystra hafa að undanförnu efnt til funda á nokkrum stöðum í kjördæminu. Voru þeir í fyrri viku á Raufarhöfn, Húsavík og Dalvík, en sl. sunnudag á Akur- eyri og á þriðjudagskvöldið í Ól- afsfirði. Á fundinum á Akureyri og í Ólafsfirði töluðu fjórir efstu menn G-listans, þau Björn Jóns- son, Páll Kristjánsson, Ingólfur Guðmundsson og Soffía Guð- mundsdóttir. Á Akureyrarfundin um talaði auk þess Magnús Kjartansson ritstjóri. um efnahagsþróun íslands, sam- kvæmt lögum um Nýsköpunar- ráð frá 27. nóv. 1944, en hlutverk Nýbyggingarráðs var að búa til heildaráætlun — fyrst um sinn miðaða við næstu 5 ár — um ný- sköpun íslenzks þjóðarbúskapar. Nýsköpunarstjórnin sat skamma hríð, því að innan skamms hófu amerísk auðvaldsáhrif að láta til sín taka með aðstoð hinna ís- lenzku hernámsflokka. Og í stað skipulegrar uppbyggingar ís- lenzks atvinnulífs kom varanlegt hernám og hernámsvinna og öll þau ókjör önnur, sem því fylgdu. Þegar nýsköpunarstjórnin fór frá völdum 1947 hófst stjórnar- tímabil hinna þriggja hernáms- flokka á fslandi, sem stjórnuðu í skjóli hins ameríska auðvalds, en beinum áhrifum stjórnmálasam- taka verkalýðshreyfingarinnar var lokið að sinni. Kyrrstaða og hnignun. Og hvað gerðist svo á valda- tímabili hinna þriggja hernáms- flokka, á tímabilinu frá því er nýsköpunarstjórnin fór frá völd- um og þar til vinstri stjórnin tók við, eða hátt í 10 ára tímabil? Svo skammt er síðan, að flestir minnast þess, hver þróun at- vinnumálanna varð á þessu tímabili. Framhald á 4. siðu. GUSTINN er listi Alþýðubandalagsins Aðsókn að fundunum hefur verið nokkuð misjöfn, en alls staðar sæmileg og sums staðar ágæt. Ræðumönnum hefur alls staðar verið ágætlega tekið og þess orðið mjög vart, að mikill áhugi er ríkjandi hjá Alþýðu- bandalagsmönnum í kjördæminu fyrir því að gera sigur Alþýðu- bandalagsins mikinn í kosning- unum í þessum mánuði og tryggja það, að úr þessu kjör- dæmi komi tveir Alþýðubanda- lagsmenn á næsta Alþingi. Ekki er ennþá ráðið um fleiri fundi af hálfu Alþýðubandalags- ins. FÍNIR MENN - og veizluhöld Eitt af afreksverkum ríkis- stjómar Alþýðuflokksins, þeirr- ar frægu stjórnar, sem nú situr að völdum í landinu, er, að hún á sl. sumri seldi eitt af fáum at- vinnutækjum, sem hér hafa ver- ið í eigu ríkisins og rekin beint af því. Þetta atvinnutæki var Fiskiðjuver ríkisins, sem á sl. ári skilaði nokkuð á fimmtu milljón króna í rekstrarhagnaði. Blessaðir kratarnir höfðu ekki áhuga fyrir að ríkið ætti lengur slíkt fyrirtæki og seldu það því, svo að þeir þyrftu ekki lengur að hafa áhyggjur eða amstur af rekstri þess. thaldið í Reykjavík var fegið að fá fyrirtækið á hag- stæðu verði og með góðum greiðsluskilmálum. En Alþýðuflokkurinn hefur nú lengi haft þjóðnýtingu á stefnu- skrá sinni, og eðlilega vildu ekki Alþýðuflokksráðherrarnir láta það á sannast, að þeir bæru enga virðingu yrir stefnuskránni. Þess vegna ákváðu þeir skömmu eftir að þeir seldu Fiskiðjuverið, að kaupa annað fyrirtæki í þess stað. Það skyldi svo sem ekki fækka ríkisfyrirtækjunum í þeirfa stjórnartíð, nei, ónei. Það skyldi bara keypt annað skemmti legra fyrirtæki í stað Fiskiðju- versins, ekki neinn leiðindastað- ur, þar sem ráðherraskór ötuðust í fiskislori, ef komið var inn fyr- ir dyr. Og hæstvirtir ráðherrar voru ekki lengi að komast að niður- stöðu um það, hvers konar fyrir- tæki skyldi keypt í staðinn. Það skyldi vera fínt veitingahús, þar sem hægt væri að halda fjöl- mennar og ánægjulegar veizlur fyrir innlenda og erlenda gesti hins opinbera, svo að enginn þyrfti að kvarta undan því, að ráðherrarnir væru ekki gest- risnir. Einmitt slíkan stað sáui ráðherrarnir, að ríkið vantaði, og það helzt sem fyrst, nefnilega áð- ur en þeir færu úr ráðherrastól- unum, svo að þeir gætu sýnt, hversu vel þeim færi að standa fyrir veitingum og mannfagnaði. Það var því enginn tími til að láta ríkið byggja, það varð að fá eitthvert veitingahús, sem þegar væri til, keypt. Og ráð kunna kratar við öllu. Þeir ákváðu, að ríkið skyldi kaupt LIDO (fallegt nafn), stærsta veitingahúsið í Reykjavík. Til þess að þetta gengi fyrir sig þurfti ekki annað en láta eigandann fá leyfi til að byggja annað og stærra hús. Það kom sér hvort tveggja vel fyrir hann, að ganga fyrir öðrum um leyfi til hótelbyggingar og fá frá ríkinu nokkurt fé til að hefja framkvæmdir. Og segi menn svo, að kratar kunni ekkert fyrir sér í viðskipt- um og hugsi ekki vel um ríkisins hag og velferð. Nú hafa þeir los- að ríkið við þetta leiðinda- frystihús og niðursuðu, sem skil- aði nokkrum milljónum í hagn- að. f staðinn hafa þeir ákveðið kaup á fínu veitingahúsi, sem væntanlega skilar vænu tapi fyrir utan þann beina kostnað, sem verður af veizluhöldunum. Frá kosningaskrifstofunni Stuðningsmenn Alþýðubandalagsins eru beðn ir að tilkynna Kosningaskrifstofunni STRAX um þá kjósendur, sem eru fjarveamdi eða verða fjarverandi á kjördegi. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ VEL HEPPNAÐIR FUNDIR ALÞÝÐUBANDALAGSINS

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.