Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.10.1959, Síða 3

Verkamaðurinn - 09.10.1959, Síða 3
Föstudaginn 9. október 1959 VERKAMAÐURINN 3 Alþýðubandalagið er, sem kunnugt er, stofnað árið 1956 að tilhlutan Alþýðusambands ís- lands, sem stjórnmálasamtök er gæta skyldu hagsmuna verka- lýðsins. Árin þar á undan höfðu fært öllum verkalýð heim sann- inn um, að kjarabaráttuna yrði að heyja innan veggja Alþingis, þar eð þeim kjarabótum sem verkalýðurinn hafði komið fram, var jafnan eytt með efnahags- ráðstöfunum ríkisvaldsins. — Mönnum hafði smám saman skil- izt, hve mótsagnakennt það er að berjast fyrst innan sinna stétt arfélaga fyrir bættri afkomu, jafnvel með löngum verkföllum, en ganga síðan að kjörborðinu og styðja þá flokka til valda, sem við fyrsta tækifæri taka það aft- ur, sem áunnizt hefur, og þurfa reyndar ekki nema eina handa- uppréttingu til þess að eyðileggja árangur langrar og fórnfrekrar baráttu. VINNUDAGURINN ER OF LANGUR. Á síðastliðnum vetri setti rík- isstjórnin lög, er lækkuðu launin um 13,4%. Var með þessu riftað með valdboði löglegum samning- um og þar með gengið freklega á samningsrétt verkalýðsfélaganna. Það eitt var jafnvel enn alvar- legra en sjálft kaupránið, sem flestum mun þó hafa reynzt full erfitt. Því var heitið, að á móti kauplækkuninni skyldu koma tilsvarandi verðlækkanir, en það reyndist markleysa ein, enda voru þær mestmegnis fram- kvæmdar með niðurgreiðslum, sem vitanlega kemur svo á al- menning að greiða, og ennfrem- ur er alkunna, að almennt verð- lag hefur farið hækkandi með öðru móti, það er sannast að segja, að lækkanirnar hafa ekki náð að vega upp nema brot af því, sem hefur verið skert, enda eru þessi bjargráð einungis fólg- in í því, að það sem rænt er úr vasa Iaunþega, rennur yfir í vaxa atvinnurekenda. Kaupráninu reyndu verka- menn að mæta með aukinni eft- irvinnu og sýndist þó mörgum sem hún væri ærin fyrir. Við mættum gjarnan minnast þess, er við að hætti okkar, státum af hinni almennu velmegun hér á landi, að þessi góðu lífskjör út- heimta langan vinnudag. Ef verkamenn ynnu aðeins átta stundir á dag, er hætt við að af- koman breyttist nokkuð til hins lakara og lífskjörin yrðu tæplega til þess að stæra sig af. Þetta getur engan veginn kallazt eðli- legt ástand. Það liggur í augum uppi, að verkamenn eiga að hafa það gott kaup ,að þeir geti séð sér og sín- um farborða með átta stunda vinnudegi einum saman. Þess má geta, að víða erlendis er eitt helzta baráttumál cerkalýðssam- takanna einmitt það að stytta vinnutímann úr átta stundum, svo að hér má segja, að við séum orðin á eftir. Það hlýtur því að verða eitt af helztu verkefnum verkalýðsfélaganna hér að knýja fram þær kjarabætur til handa verkamönnum, að þeir geti lifað sómasamlegu lífi af átta stunda vinnu á dag. Fari svo, að Al- þýðubandalagið komi sterkt út úr kosningunum, mun það verða verkalýðnum mikilsverður stuðn ingur í sókninni fram til bættra lífskjara.. LAUNAMAL KVENNA. Þá má ekki gleyma því, að í launamálum er hlutur kvenna iðulega fyrir borð borinn. Á mörgum sviðum atvinnulífsins hefur ekki ennþá náðst launa- jafnrétti á við karla og ennfrem- ur munu vera nokkur brögð að því, að í atvinnugreinum, þar sem konur hafa rétt á sömu launum og karlar, er víða sá annmarki á í framkvæmidnni, að þær eru síður ráðnar, ef völ er á karlmanni í starfið. Þá geta kon- ur minnzt þess, er þær ganga að kjörborðinu innan skamms, að á síðastliðnum vetri sáu kaupráns- flokkarnir sér ekki fært að sam- um á brott, segjum okkur úr Atlantshafsbandalaginu og lýs- um að nýju yfir ævarandi hlut- leysi íslands. Ennfremur, að við, sökum ofbeldisaðgejrða Breta í íslenzkri landhelgi, slítum stjórn málasambandi við þá, unz þeir hafa tekið upp háttu siðaðra manna í samskiptum sínum við okkur. Nú er liðið á níunda ár síðan amerískum her var laumað inn í landið eina vornótt, er þjóðin svaf, enda var hún aldrei að spurð. Hér hefur herinn svo setið síðan okkur til stórskaða og skammar og höfum við ekki far- ið varhluta af afleiðingunum, hermangi, smygli, hvers kyns braski, röskum á efnahagskerfi landsins, er íslenzkt vinnuafl beindist að byggingu hernaðar- mannvirkja og þjónustustörfum í þágu hersins, en ekki að arð- bærum störfum í þágu íslenzkra atvinnuvega og síðast, en ekki um við að kalla yfir okkur geig- vænlega hættu. Það sér hver og einn, að her- stöðvar hljóta að verða skotmark í stríði og auðvelt er að gera sér í hugarlund þann hlut, sem biði okkar í slíkum átökum. Hersetan verndar okkur ekki gegn árás, heldur kallar hún yfir okkur atómdauðann, ef til stríðs kemur. Hver einasti heilvita maður veit fullvel, að með tilkomu lang- drægra, kjarnorkuhlaðinna eld- flauga, er drápstæknin komin á þvílíkt stig, að ekki nær nokk- urri átt að tala í fullri alvöru um herliðið sem varnarlið. Aftur á mótí væri okkur hollt að hug- leiða hvaða tilgangi herstöðvar þjóna. í sjálfu sér eru þær liður í stríðsundirbúningi og hljóta að skapa spennu í alþjóðasamskipt- um og ala á köldu stríði, enda kann saga mannkynsins að greina frá því, að slíkt hefur allt- af leitt til stríðs. Allir hernámsandstæðingar hljóta a5 sameinast um að EFLA ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Ræða Soffíu Guðmundsdóttur á fundi Alþýðubanda- lagsins í Alþýðuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 4. þ. m. sætt sig við, að lögbrotin og óhæfuverkin skyldu hulin slæðu aagnarinnar. Segja má þó, að minnstu máli skipti, þótt manna- skipti verði í svokallaðri varnar- málanefnd, því að aðilar að henni munu allir vera sama sinnis og jafn áfjáðir í að hafa hér her, svo að bröskurum skuli áfram tryggð aðstaða til að hagn ast á smán íslands. Hefur hér ófagur leikur blasað við, er her- námsflokkarnir hafa frammi fyr- ir alþjóð átt í innbyrðis deilum um lykilinn að hernámsgróðan- um. En menn spyrja: er afsiðun ís- lendinga orðin slík, að eftir at- burði síðustu vikna sé þeim nægilegt að láta lýsa því yfir, að sökudólgum verði refsað og sendir burtu og þetta skuli aldr- ei koma fyrir aftur? Og getum við sætt okkur við þá ráðamenn, sem virðist vera það sjónarmið efst í huga, að vinátta Islendinga til þessarra bandamanna kólni ekki og meta það framar íslenzk- um málstað, í stað þess að sýna þann manndóm, að bregðast við á þann eina veg sem kæmi að haldi, sem sé að vísa öllum hern- um úr landi, hverjum einasta manni. Islendingum ber vissulega að gera sér grein fyrir hve alvar- legir þeir atburðir eru, sem ný- lega hafa átt sér stað á Keflavík- urflugvelli. En eru þeir ekki fyrst og fremst smækkuð mynd af því ástandi, sem við höfum búið við í mörg ár? Höfum við ekki, eða réttara sagt ráðamenn okkar, legið flatir í duftinu fyrir erlendum her, sem hleypt var inn í landið eftir vafasömum leiðum að þjóðinni fornspurðri? þykkja tillögu Alþýðubanda- lagsins um að lægsta kvenna- kaupinu skyldi hlíft við lækkun- inni, og voru þær hæstlaunuðu þó sízt of sælar af kaupinu áður. Með því að styðja Alþýðu- bandalagið eru konur beinlínis að vinna að auknum réttindum sínum á þeim sviðum sem úrbóta er þörf og ennfremur því, að þeim verði skapaðar aðstæður til að fá notið þeirra réttinda, og því aðeins er árangurs að vænta af kvenréttindabaráttunni, að hún sé háð á stjómmála- sviðinu við hlið þeirra afla, sem sækja fram til almennra fram- fara og réttlátara þjóðskipulags. Ollu vinstri sinnuðu fólki ber að vinna ötullega að því að efla Alþýðubandalagið, svo að það komi sem sterkast út úr kosn- ingunum og tryggja með því að mynduð verði, að kosningum loknum, framfarasinnuð vinstri stjórn. Alþýðubandalagið er eini verkalýðsflokkurinn í landinu og eini flokkurinn, sem launastétt- irnar geta treyst til að halda á málum sínum af festu og einurð. BURT MEÐ HERMENN BRETA OG AMERÍKUMANNA. Alþýðubartdalagið er sá flokk- ur, sem berst fyrir þeirri einu utanríkisstefnu, er við getum sætt okkur við, ef viljum heita menn, að við vísum hern- sízt, þverrandi trú margra á möguleika og framtíð Islendinga í landinu sínu. Á hinn bóginn er það kunnara en frá þurfi að segja, að jafn- skjótt og ameríski herinn var stiginn hér á land, hófust and- mæli gegn slíku atferli, þrátt fyrir það, að látlausum áróðri var haldið uppi um vernd þá sem við nytum af dvöl hersins og með því að leyfa slíkt værum við að draga úr stríðshættunni, jafn- framt því sem við ykjum stór- lega öryggi okkar. Þetta voru gð vísu fáránlegar staðhæfingar þá, en síðan er mikið vatn til sjávar runnið. — Margir atburðir hafa gerzt, sem sanna okkur áþreifanlega fánýti hersetunnar og nægir þar að minna á, að þrátt fyrir ítrekuð lögbrot og ofbeldisverk Breta í íslenzkri landhelgi, þá hefur ameríski herinn ekkert aðhafst okkur til verndar, eins og honum ber þó skylda til samkvæmt sgmningi. HERSTÖÐVAR BJÓÐA HÆTTUNNI HEIM. Þó kemur sú staðreynd, sem hlýtur að verða þyngst á metun- um, æ skýrar fram, að hersetan er ekki einungis fánýt, heldur háskaleg lífi okkar og tilveru. — Með því að leyfa hér herstöð er- Ef við vísuðum hernum á brott og lýstum yfir algeru hlut- leysi í átökum stórveldanna, værum við ekki einungis að losa okkur undan fargi hersetunnar, heldur legðum við þar fram okk- ar skerf til að draga úr ófriðar- hættunni og viðsjám á alþjóða- vettvangi. Það væri ótvírætt framlag í þágu þeirra afla sem óska mannkyninu friðar og lífs og væri slíkt giftusamlegra fyrir okkur að ljá þeim öflum lið en að skipa okkur vopnlausum á bekk með stríðsmönnum og leyfa erlendu herveldi, gráu fyr- ir járnum, að hreiðra hér um sig með drápsvélar sínar. SKAPLEYSI STJÓRNARVALDA. Nú er svo komið, að upp á síð- kastið hefur af hálfu hersins hvert óhæfu -og ofbeldisverkið rekið annað. Ekki hefur það þó ýtt við íslenzkum stjórnarvöld- um að reka þennan ófögnuð af höndum sér, heldur gætir þvert á móti hjá þeim undanlátssemi og jafnvel afsökunar á framferði herliðsins, sem sézt bezt á því, að jafnskjótt og amerískum hers- höfðingja er vísað brott í hegn- ingarskyni, þá þarf einnig að víkja íslendingum úr starfi, svo að jafnt megi yfir báða ganga. Var þá að sjálfsögðu vikið þeim fulltrúum, sem einna sízt gátu TAKA VERÐUR FYRIR RÆTUR MEINSINS. Það er mál til komið, þótt fyrr hefði verið, að taka fyrir rætur meinsins, svo að unnt væri fyrr en síðar að bæta það siðferðilega tjón sem við höfum beðið. Minnumst þess, að til er sam- þykkt frá Alþingi, sem almenn- ingsálitið knúði fram á sínum tíma. Alþýðubandalagið er eini flokkurinn, sem vill láta þessa samþykkt koma til framkvæmda. Hinir flokkarnir hafa alltaf skot- ið sér undan aðgerðum í málinu og borið við staðleysum einum og falsrökum. Allir einlægir hernámsand- stæðingar þurfa að gera sér ljóst, að þeir mega ekki standa sundr- aðir, ef árangur á að nást, heldur sameinast um að efla Alþýðu- bandalagið til aukinna áhrifa á Alþingi, þann flokk, sem staðið hefur heill og óskiptur gegn her- setu og erlendri ásælni. Enginn hernámsandstæðingur má kasta atkvæði sínu á glæ með því að kjósa dauða flokka. Þeir Islendingar, sem vilja líta þann dag, er allt erlent herlið hverfi af íslenzkri grund og ís- lendingar öðlist að nýju full og óskoruð yfirráð yfir landi sínu, fylkja sér fast um Alþýðubanda- lagið og tryggja sigur þess í kosningunum 25. október.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.