Verkamaðurinn - 19.02.1960, Qupperneq 3
Föstudaginn 19. febrúar 1960
VERKAMAÐURINN
3
LEIKFÉLAG M. A. 1960
EFTIRLITSMAÐUR
Höfundur: Nikolai Gogol
Þýðandi: Sigurður Grímsson
Leikstjóri: Karl Guðmundsson
Állalíu þúsund larþegar
Árið 1959 fluttu flugvélar Flugfélags íslands h.f. rúmlega
áttatíu þúsund farþega, í áætlunarflugi milli landa, innan-
lands og í leiguflugi.
Eitt hundrað og fjórtán ár eru
liðin frá því að leikrit Gogols,
Eftirlitsmaður, var fyrst sett á
svið. Þá í heimalandi höfundar, í
höfuðborginni Pétursborg. Sjálfur
zarinn var viðstaddur og skemmti
sér vel. En það voru ekki allir
ánægðir með verkið. Það vakti
þegar mikla andúðaröldu, svo
sterka, að höfundurinn sá sér þann
kost vænstan að flýja land. Og
hver var ástæðan? Hún var sú, að
með leikriti þessu var stungið á
viðkvæmu kýli. Þar var umbúða-
laust drengin fram í dagsljósið
spilling embættismannastéttarinn-
ar, mútuþægni og heimskuhroki.
Embættismönnum rússneska keis-
araveldisins þótti nærri sér höggv-
ið, enda ekki vafi, að svo var til
ætlast frá höfundar hálfu.
Já, spillt hefur hún verið emb-
ætitsmannastéttin í Rússíá, segja
menn nú, þeir hafa vissulega átt
það skilið að fá á baukinn. Og
viðbrögð embættismannanna eftir
sýningu Ieiksins sanna réttmæti
þessarra orða: „Sannleikanum
verður hver sárreiðastur.“
En hefur þá ádeila leiksins
misst gildi sitt á þessum 114 ár-
um? Eða finnast ennþá heimskir
og hrokafullir embættismenn, sem
hegða sér eins og fólkið sé til fyrir
þá en ekki þeir fyrir fólkið? Finn-
ast þess ennþá dæmi, að lögunum
sé hagrætt, ef peningar eru annars
vegar eða gjafir góðar? Er það
alltaf manngildi og hæfileikar,
sem úrslitum ræður, þegar valið
er í ábyrgðarstöður? Það er bezt
að hver svari fyrir sig.
En þegar horft er á leik þennan,
nú 114 ára gamlan, verður þess
alls ekki vart, að hann hafi misst
af gildi sínu, gamanið og ádeilan
nýtur sín til fulls, og það þó að
við eigum heima hér á íslandi, en
leikurinn sé miðaður við íbúa
Rússaveldis á keisaratímanum. —
Þetta er sígilt verk.
Búningar og framkoma er að
visu nokkuð á annan veg. en við
eigum að venjast, en það gerir að-
eins þá mynd, sem við fáum
sterkari, og afkáraháttur og
heimska embaettismannanna er
eðlilega ýkt. Það eru góðar skop-
myndir alltaf.
Það er nemendur Menntaskól-
ans, undir stjórn Karls Guðmunds-
sonar leikara, sem nú hafa sett
þennan sígilda gamanleik á svið
hér á Akureyri. Og þeim hefur
tekizt það vel, svo vel, að með
ólíkindum er.
Frumsýningin var á sunnudags-
kvöldið. Það var ekki aðeins, að
hún tækist slysalaust, heldur var
hún stór sigur fyrir það unga fólk,
sem þarna kemur fram, flest í
fyrsta skipti á leiksviði. Og frum-
sýningin bar þess einnig vitni, að
leikstjórinn hefur unnið sitt verk
ag vandvirkni og alúð.
Fremst á sviðinu í Samkomu-
húsinu má venjulega á leiksýning-
um sjá kúlu dálitla, eða réttara
hálfkúlu upp úr gólfinu. Leik-
hússgestir vita, að undir þessarri
kúlu situr hvíslarinn, sá, sem á að
minna leikendur á, ef þeir muna
ekki, hvað þeim ber að segja,
kunna ekki hlutverk sitt nógu vel.
En á sýningunni á sunnudags-
kvöldið var þessi kúla horfin. Það
hafði verið settur hleri í gólfið,
þar sem hvíslarinn er vanur að
leynast. Svo mikið var öryggi
þessarra ungu leikenda, svo vel
kunnu þau hlutverk sín, að hvísl-
aranum hafði verið sagt upp. Það
var ekki þörf fyrir þann starfs-
mann.
En það er ekki aðeins, að leik-
endurnir kunni „rullurnar". Þær
eru ekki fluttar fram sviplaust og
tilfinningalaust, heldur af lifandi
áhuga og leikfjöri, og víða af þeim
tilþrifum og sannri list, að hvaða
leikarar sem væru gætu talið sig
fullsæmda af. Þessir kátu og fjör-
ugu menntaskólanemendur skila
áhorfendum því, sem framast er
hægt að ætlast til af þeim, sem
ekki hafa numið leiklist eða
stundað hana árum saman.
Leikendur í Efitrlitsmanni eru
alls 20 í 22 hlutverkum. Það er
ástæðulaust að fara að reyna að
telja upp kosti og galla á leik
hvers um sig, en ekki verður hjá
því komizt að nefna sérstaklega
þá tvo, sem með stærstu hlutverk-
in fara. Þeir voru báðir í Mennta-
skólaleiknum í fyrra, en hafa nú
enn aukið við hróður sinn. Það er
Jón Sigurðsson, sem leikur borgar-
stjóra í rússneskum smábæ, og
Pétur Einarsson, sem leikur ungan
skrifstofumann' á ferðalagi, en
embættismennirnir í þorpi borgar-
stjórans taka hann fyrir eftirlits-
mann frá stjórninni, og af því
verður gaman mikið, en áhyggjur
hjá embættismönnum þorpsins,
sem óttast eftirlitsmanninn. Það
er mikill þróttur í leik Jóns, og
vex eftir því, sem á líður, og hon-
um tekst ágætlega í síðasta atrið-
inu, en einmitt þá reynir mest á
getu hans og hæfileika til túlkun-
ar. Pétur er næstum að segja eins
og fæddur í það hlutverk, sem
hann fer þarna með, og tekst
prýðilega sá skapbrigðaleikur, sem
hlutverkið krefst. Af öðrum leik-
endum er sérstök ástæða til að
nefna Iðunni Steinsdóttur. Hún
segir ekki margt á sviðinu með
orðum, en þeim mun meira með
snjöllum svipbrigðum, sem hljóta
að vekja eftirtekt. En þó að ekki
sé fleiri leikenda sérstaklega getið
hér, er þó almennt prýðilega með
hlutverkin farið.
Það hefur mikið verið hlegið í
Samkomuhúsinu í þessarri viku,
og þannig verður það áfram á
meðan sýningar á Eftirlitsmanni
standa. Þetta er gott innlegg af
hálfu menntaskólanema til leik-
listar- og skemmtanalífs bæjarins.
Þ.
Leikendur og hlutverk
í Menntaskólaleiknum
Jón Sigurðsson, borgarstjóri.
Aðalbjörg Jónsdóttir, kona hans.
Iðunn Steinsdóttir, dóttir þeirra.
Þröstur Ólafsson, fræðslufulltr.
Margrét Erlendsdóttir, kona
hans.
Þorleifur Pálsson, héraðsdóm-
ari.
Þorsteinn Geirsson, heilbrigðis-
fulltrúi.
Jón Sæm. Sigurjónsson, póst-
meistari.
Gunnar Sólnes, jarðeigandi.
Guðmundur Sigurðsson, jarð-
eigandi.
Pétur Einarsson, ritari í stjóm-
arráðinu.
Karl Grönvold, þjónn hans.
Ola Aadnegard, lögreglustjóri.
Hreinn Pálsson, Svistúnov.
Gunnar Árnason, kaupmaður.
Magni Steinsson, kaupmaður.
Kristinn Jóhannesson, kaupm.
Kristin Halldórsdóttir, járn-
smiðskona.
Margrét Eggertsdóttir, liðsfor-
ingjaekkja.
Laufey Þorbjarnardóttir, vika-
stúlka.
Magni Steinsson, veitingam.
Barði Þórhallsson, lögreglu-
þjónn.
Flugvélar félagsins fóru samtals
6181 flugferð á árinu og voru á
lofti 8585 klst. Áætlunarflugi var
haldið uppi til sömu staða erlend-
is og innanlands. Fargjöld héldust
þau sömu allt árið. Fleiri leigu-
ferðir voru farnar en nokkru sinni
fyrr, einkum til Grænlands, fyrir
aðila sem þar hafa atvinnurekst-
ur. Ennfremur voru farnar fimm
leiguferðir til ‘Ikateq á austur-
strönd Grænlands með skemmti-
ferðafólk íslenzkt og erlent. Engin
slys urðu á farþegum eða flug-
áhöfnum félagsins á árinu.
INNANLANDSFLUG.
Farþegar á innanlandsflugleið-
um urðu 51.271, en voru 56.045
árið áður, og nemur fækkunin
8.5%. Fluttar voru 1140 lestir af
vörum og minnkuðu þeir flutning-
ar um 22.9%. Póstflutningar juk-
ust hins vegar verulega, fluttar
voru 183 lestir, og er aukningin
26.3%. Famar voru 4478 flugferð-
ir innanlands og flugvélar félags-
ins voru 3967 klst. á lofti á innan-
landsflugleiðum. Nýting innan-
landsflugvélanna er betri en í
fyrra sökum færri flugtíma. Til
flutninga innanlands voru notaðar
flugvélar af gerðunum DC—3,
Katalina, DC—4 og Vickers Vis-
count.
MILLILANDAFLUG.
I áætlunarferðum milli landa
fluttu „Faxarnir“ 23.156 farþega,
en 19.350 árið áður. Þessi glæsi-
lega aukning, sem nemur 19.7 af
hundraði, á m. a. rætur sínar að
rekja til stóraukinna flutninga fé-
lagsins á flugleiðum milli staða er-
lendis, t. d. milli Glasgow og
Kaupmannahafnar. Póstflutningar
og vöruflutningar milli landa juk-
ust einnig að mun. Fluttar vom
55.2 lestir af pósti á móti 47.1 í
fyrra, aukning 17%, og 251 lest af
vörum á móti 234 sl. ár. Aukning
nemur 7.2%. Með tilkomu 55%
yfirfærzlugjaldsins, sem kom til
framkvæmda á miðju ári 1958,
dró allmjög úr ferðalögum og bera
skýrslur um flutninga þess ljósan
vott. Af þeim sökum var ákveðið
að fjölga ekki ferðum milli landa
sumarið 1959 frá því sem var árið
áður. Þrátt fyrir færri ferðir er um
mjög verulega aukningu á flutning-
unum að ræða, sem að ofan grein-
ir, árið 1959. Liggur í augum uppi
að nýting millilandaflugsins er
mjög góð.
Alls fóru flugvélar Flugfélags
íslands 1300 flugferðir á árinu í
áætlunarflugi milli landa og voru
á lofti í þeim ferðum 3287 klst.
Til áætlunarflugs notaði félagið
Viscount skrúfuþotur, auk þess
sem Sólfaxi fór nokkrar ferðir.
LEIGUFLUG.
Sem fyrr segir voru farin fleiri
leiguflug á vegum félagsins á ár-
inu en nokkru sinni fyrr. Flest
voru leiguflugin farin til Græn-
lands, en einnig til nokkurra staað
á Spáni, til Frakklands og Norður-
landa. Flugferðir vegna þessa voru
403 á árinu og fluttir voru 6339
farþegar, en fyrra ár voru farþegar
í leiguflugi 4839. Aukning nemur
29.6%. Flugtímar í leigufluginu
voru 1256. Flest leiguflugin voru
framkvæmd með Skymastervél,
en Viscount skrúfuþotur, DC—3
og Katalina fóru nokkrar ferðir.
Dóttir
borgarstjór-
ans (Iðunn
Steinsdóttir)
og
„eftirlitsmað-
urinn“
(Pétur
Einarsson).
TILKYNNING
frá Félagsmálaráðuneytinu
Að marggefnu tilefni tilkynnist hér með, að heimild til
endurgreiðslu úr sparimerkjabókum er bundin við gift-
ingu eða að menn hafi náð 26 ára aldri. Undanþágur
þær sem skattayfirvöldum er heimilt að veita eru yfir-
leitt aðeins veittar frá þeim degi að um þær er beðið,
eða frá þeim tíma að aðstaða hefir skapazt til þess að
verða undanþágunnar aðnjótandi.
10. febrúar 1960.
F élagsmálaráðuney tið.
AÐALFUNDUR
AKUREYRARDEILDAR K.E.A.
verður haldinn að Hótel KEA þriðjudaginn 23. þ. m.
og hefst kl. 8.30 e. h.
Kosnir verða á fundinum 2 menn í deildarstjórn til
þriggja ára og 2 varamenn til eins árs, 1 maður í fé-
lagsráð og 1 til vara, 83 fulltrúar á aðalfund Kaupfélags
Eyfirðinga og 28 til vara.
Listum til fulltrúakjörs ber að skila til deildarstjóra
í síðasta lagi laugardaginn 20. þ. m.
DEILDARSTJÓRNIN.