Verkamaðurinn - 13.05.1960, Page 1
VERKflttlflÐM
HAPPDRÆTTI ÆF.
Þeir, sem starfa að sölunni,
eru beðnir að gera sem fyrst
skil fyrir selda miða. —
Verum dugleg við söluna.
Tökum fleiri miða. ÆFA.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 13. maí 1960
19. tbl.
ISLANDSKLUKKAN
Um síðustu helgi auglýsti
Leikfélag Akureyrar síðustu
sýningar á íslandsklukkunni eft-
ir Halldór Kiljan Laxness. Hús-
fyili var á þeim sýningum.
Nú hefur það ráðist, að leikur-
inn verði sýndur ennþáeinusinni
næstk. sunnudag. Var það eink-
um vegna þess, að Laxness, sem
dvalið hefur erlendis í vetiu-, er
nú kominn heim og ætlar að
koma hingað norður til að vera
viðstaddur þessa síðustu sýningu
fslandsklukkunnar hér, fyrst
hann gat ekki verið viðstaddur
frumsýningu.
Leiksýning þessi verður því
eins konar viðhafnarsýning og
trúlega ráðlegt fyrir þá, sem
ætla að vera viðstaddir hana að
reyna að tryggja sér aðgöngu
miða í tíma.
Þessar myndir voru tekn-
ar fyrir nokkrum árum í
niðursuðuverksmiðju K.
Jónsson & Co. Á mynd-
inni til hægri eru Krist-
ján Jónsson framkv.stj.
og Hjalti Eymann verk-
stjóri að skoða nýveidda
síld, sem á að fara að
vinna úr. — Nú á að stór-
auka afköst verksmiðj-
unnar. Nýtt hús er í
byggingu og nýjar vélar
væntanlegar. Og í Tékkó-
slóvakíu býður mikill
markaður.
SPEIDEL-MYNDIN
verður sýnd í Alþýðuhús-
inu kl. 9 í kvöld. — Eina
almenna sýningin á Akur-
eyri.
Flugdreki á Ráðhústorgi
Allmiklar umræður urðu á
síðasta bæjarstjórnarfundi um
framkvæmdirnar á Ráðhússtorgi,
einkum um það, hvemig gengið
skyldi frá útlínum Torgsins. Eins
og frá var sagt hér í blaðinu á
föstudaginn, er ætlimin að koma
fyrir bílastæðum norðan Torgs-
ins og austan og verður sniðið af
því til þess að koma stæðum
þessum fyrir, en bílunum á að
leggja þar þvert við götuna. Á
þrem hornum Torgsins eiga svo
að koma geirar út úr því til að
afmarka bílastæðin. Verður þessi
blettur þannig mjög ankannaleg-
ur í laginu, ekki ólíkur flug-
dreka, eins og Jón Ingimarsson
komst að orði á bæjarstjórnar-
fundinum, aðeins vantaði spotta
með nokkrum bréfslaufum í eitt
hornið.
Nokkrir bæjarfulltrúa bentu á
það, að auk þess, hvað Torgið
ljókkaði við að vera gert svona
einkennilegt í laginu, þá skapað-
ist af þessum bílastæðum mjög
aukin slysahætta, þar sem jafn-
an yrði að aka bílunum af stæð-
unum annað hvort aftur á bak
eða beint inn í umferðina og
væri það allt annað, en ef bílum
er lagt samhliða útlínum Torgs-
ins eins og nú er gert að sunnan
og norðan.
Jón Ingimarsson og Gísli Kon-
ráðsson fluttu tillögu um, að út-
línur Torgsins yrðu réttar af og
gengið frá þeim í líkingu við
það, sem áður var. Sú tillaga var
felld með 6 atkvæðum gegn 4,
en hornótta skipulagið með slysa-
hættunni samþykkt með 6 at-
kvæðum gegn 3 (Jón Ingimars-
son, Jón B. Rögnvaldsson og
Gísli Konráðsson).
Eftir þessi úrslit geta bæjarbú-
ar reiknað með því, að innan
tíðar verði gengið frá flugdreka-
myndinni á Ráðhússtorgi, en því
miður mun sú mynd ekki verða
mörgum til sannrar ánægju.
Niðursuðuverksmiðja í byggingu
K. Jónsson & Co. reisa myndarlegt verk-
smiðjuhús og fá nýjar vélar
Um allmörg ár hefur fyrirtækið K. Jónsson & Co. starfrækt
litla niðursuðuverksmiðju á Oddeyrartanga, sem aðallega hef-
ur fengizt við niðursuðu smásíldar til sölu á innanlandsmark-
aði. Nú hefur fyrirtækið ákveðið að auka mjög starfsemina
með tilliti til útflutningsframleiðslu, hafin er bygging mynd-
arlegs verksmiðjuhúss og fest hafa verið kaup á nýjum vélum.
Blaðið -hafði í vikunni tal af
Kristjáni Jónssyni framkvæmda-
stjóra og fékk hjá honum þessar
upplýsingar:
Hið nýja verksmiðjuhús verð-
ur ca. 500 fermetrar að stærð,
stálgrindahús, en jafnframt
verða gömlu verksmiðjuhúsin
notuð. Allar vélar verða keyptar
nýjar frá Noregi, hefur þegar
verið gengið frá kaupum á þeim
og þær koma til landsins með
fyrstu ferð, sem fellur. Norski
vélaverkfræðingurinn Carl
Sundt-Hansen hefur verið ráðu-
nautur fyrirtækisins um undir-
búning og aðstoð við kaup og
val véla. Hann dvaldist hér á
landi mánaðartíma í fyrra á veg-
um K. Jónsson & Co. og Marz
Trading Co. og kynnti sér þá all-
ar aðstæður. Það er sami verk-
fræðingurinn og nú er að koma
Bygging elliheimilis a Ak. hefsl í sumar
verður eftir uppdráttum Jóns G. Ágústs-
sonar og Sigtryggs Stefánssonar
Á fundi bæjarstjórnúr Akur-
eyrar 10. þ. m. var cndanlega
samþykkt, að bygging elliheimil-
is í bænum skuli hefjast á þessu
sumri. Jafnframt var samþykkt,
að byggt verði eftir tillöguupp-
dráttum þeim, sem Jón G.
Ágústsson og Sigtryggur Stef-
ánsson, starfsmenn bæjarins,
gerðu í vetur og greint var all-
nákvæmlega frá hér í blaðinu
13. f. m. Bygginganefnd elliheim-
ilisins hafði áður samþykkt til-
lögur þessar fyrir sitt leyti.
Samkvæmt þessu verður elli-
heimilið þannig, að íbúðir vist-
manna verða í mörgum smáhús-
um, en í allstórri aðalbyggingú
verður miðstöð fyrir allar sam-
eiginlegar þarfir, eldhús og
geymslur, borðsalur, vinnuher-
bergi o. fl. I þessarri aðalbygg-
ingu, eða kjarnahúsi, verða einn-
ig nokkur vistmannaherbergi svo
og íbúð forstöðumanns. Bygg-
ingu smáhúsanna verður þannig
háttað, að í sumum verða litlar
íbúðir með öllu tilheyrandi fyrir
eldri hjón, en í öðrum eins og
tveggja manna vistherbergi.
Byggingar þessar verða reistar
á svæðinu vestan Þórunnarstræt-
is, milli Álfabyggðar og Golfvall-
arins. í þeim byggingum, sem
ákveðið er að hefja vinnu við í
sumar, mun verða húsnæði fyrir
50 vistmenn. En síðar er ætlunin
að auka við byggingarnar þannig
að alls verði rúm fyrir 100 vist-
menn.
Jafnframt því ,að bæjarstjórn
ákvað að hafizt skyldi handa um
framkvæmdir, ákvað hún að fela
bygginganefnd elliheimilisins,
sem starfað hefur að undirbún-
ingnum, að hafa með höndum
stjórn framkvæmdanna. I bygg-
inganefndinni eru: Magús E.
Guðjónsson, Jóhannes Hermund-
arson, Stefán Reykjalín, JónasG.
Rafnar og Ingibjörg Halldórs
dóttir.
til landsins á vegum Iðnaðar-
málastofnunarinnar.
Hin nýja verksmiðja verður
sérstaklega miðuð við niðursuðu
smásíldarinnar og vélarnar eru
spesíal-vélar fyrir vinnslu henn-
ar. Áætlað er, að hægt verði að
vinna úr 60 til 80 tunnum síldar
á dag, en úr því magni eiga að
fást 30 til 40 þúsund dósir. — I
gömlu verksmiðjunni hefur fram
leiðslan mest orðið 15 þús. dósir.
Starfslið yrði 60—70 manns,
miðað við fullan gang. Dósir
undir framleiðsluna verða ekki
gerðar hér að svo stöddu, en
Kristján kvað það myndi verða
næsta verkefnið að fá dósapressu,
svo að ekki þyrfti að kaupa dós-
irnar tilbúnar.
Útflutningur.
Síðustu tvö árin hafa K. Jóns-
son Co. sent nokkurt magn
riiðursoðinnar smásíldar til
prufu til Tékkóslóvakíu og þar
virðist vera fjyrir hendi mikill
markaður. Strax eftir að fyrsta
prufan var send barst pöntun í 9
þús. ks. ársfjórðungslega eða 900
þús. dósir á ári. Annars staðar
hefur ekki verið athugað ná-
kvæmlega um markaðshorfur, en
verður gert, þegar hægt er að
fara að bjóða vönma til sölu. —
Þess má geta, að í fyrra fluttu
Norðmenn út niðursoðna smásíld
fyrir 50 millj. norskra króna, en
hráefnið hér mun a. m. k. jafn-
gott og sennilega betra.
Góð aðstaða.
Niðursuða smásíldar er hvergi
stunduð annars staðar hér á
landi, enda er aðstaða hér sér-
staklega góð. Engin leið er að
fást við þessar veiðar fyrir opnu
hafi, og síldin, sem fer í niður-
suðu verður að vera átulaus, en
hér er auðvelt að losna við átuna
með því að geyma síldina stuttan
tíma í lásum. En slíks eru auð-
vitað ekki tök, nema þar sem
sjór er kyrr innfjarða.
Bezti veiðitíminn er jafnan yf-
ir sumarið, og einkum fyrri-
hluta sumars, en annars er síldin
hér allt árið, þó að hún leiti
stundum nokkuð út í fjörðinn,
allt út til Hríseyjar, og verði
mismunandi mikið vart. Nú sem
stendur virðist mjög mikið síld-
armagn hér innzt í firðinum.
Framhald á 4. slðu.
'iiiiiiiiiiiiiiiMiiiinmiiiiiitiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimimiiiiH
Þjóðha
gsleg villa
Aðalfundur Kaupfél. Þing-
eyinga var haldinn í fyrri
viku. Þar var m. a. samþykkt
með samhljóða atkvæðum
svofelld tillaga frá stjóm fé-
lagsins:
„Aðalfundur K. Þ., haldinn
í Húsavík dagana 5.—6. maí
1960, mótmælir sem freklegri
frelsisskerðingu og þjóðhags-
legri villu, þeirri ákvörðun
Seðlabankans, er hann hefur
bréflega tilkynnt K. Þ., að
innlánsdeild félagsins skuli
skila bankanum til bindingar
hluta af því fé, er félagsmenn-
imar afhenda um stundarsak-
ir innlánsdeildinni og þar með
sínu eigin félagi til reksturs-
þarfa meðan þeir geta komist
af án þess vegna annarra
nauðsynja sinna.
Valdboðið er fram kemur í
nefndri tilkynningu frá Seðia-
bankanum, telur fundurinn
jaðra við brot á friðhelgi
eignaréttarins, þó að það hafi
stoð í vanhugsaðri heimildar-
löggjöf, og flutning fjárins frá
landsbyggðinni til höfuðborg-
arinnar, þó í ríkisbankann sé,
telur hann öfugstreymi fyrir
jafnvægi í byggð landsins.
Skorar fundurinn því á
stjóm Seðlabankans að end-
urskoða afstöðu sína í þessum
efnum.“
iiKKiiiiiiiiiiiiimini
immmmmmimi