Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 21.04.1961, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 21.04.1961, Qupperneq 1
Kirkja — Félaggheimili Ekki er það algengt hér á landi, að kirkjnr gangi kaupum og sölum, en þannig hefur það þó verið með kirkjuna, sem sést á þessarri mynd. Hún var upphaf- lega byggð sem guðshús Sjöundadags-aðventista, og yfir turni hennar standa stafirnir S.D.A. En trúflokk- ur aðventista þreifst ekki vel í bænum, og um langt skeið hefur kirkjan verið notuð í þágu læknislistar- innar og hefur Torfi Maronsson nuddlæknir haft þar aðsetur. En á síðasta ári flutti hann lækningastofu sína þaðan og kirkjan stóð um sinn auð og ónotuð. Þá fengu Karlakór Akureyrar og Lúðrasveit Ak- ureyrar áhuga fyrir að kaupa kirkjuna og gera liana að œfingastað fyrir söng og hljóðfæraslátt, og fyrir nokkru síðan tókust samningar um þau kaup. Karla- kórinn og Lúðrasveitin hafa nú að mestu lokið breyt- ingum á innréttingu kirkjunnar og þar er kominn hinn vistlegasti æfingasalur. Komið hefur til orða, að útvarpið fái jafnframt afnot af honum sem upp- tökusal. Ekki er ennþá ákveðið, hvort útliti byggingarinn- ar verður breytt að svo stöddu eða hvort kirkjulagið verður óbreytt um sinn, en œtlunin mun, að þessu nýja félags- og æfingaheimili við Laxagötu 5 verði fljótlega gefið nafn, svo að það verði ekki um alla framtíð nefnt aðventistakirkjan. Aðdlfuniliir Sósíafistafélags Ahureyrar var haldinn í ÁsgarSi síðastliðiS föstudagskvöld. Varaformaöur, Þorsteinn Jónatansson, flutti skýrslu stjórnarinnar. I upphafi minntist hann látins félaga, Jón- asar Hallgrímssonar netagerðar- manns. Síðan skýrði hann í stuttu máli frá störfum félagsins á liönu ári og ræddi einkum um undir- búning að stækkun Verkamanns- ins, sem er stærsta átak, sem fé- lagið hefur tekið sér fyrir hendur um langa hríð. Þeim undirbún- ingi er nú það langt komið, að stækkunin mun koma til fram- kvæmda um næstu mánaðamót. Talsvert hefur miðað í söfnun nýrra áskrifenda, en aðalátakið á því sviði er þó ennþá eftir og hlýt- ur að gerast um leið og blaðið stækkar. Þá er unnið að því að Ingólfur Árnason. tryggja fjárhaginn með því að fá sem flesta áskrifendur til að greiða blaðið nú þegar með kr. 200.00, eða 120 kr. hærra verði, en áskriftarverðið er. Til þessa hafa margir flokksfélagar og nokkrir aðrir orðið við þessarri ósk, en miklu fleiri þurfa hér að hlaupa undir bagga og hjálpa til við það mikla átak, sem verið er að gera. Sósíalistafélagið hefur ráðið til sín nýjan starfsmann, Hjalta Kristgeirsson hagfræðing. Jafn- framt störfum fyrir félagið mun hann, eftir að stækkun Verka- mannsins kemur til framkvæmda, annast ritstjórn blaðsins, ásamt Þorsteini Jónatanssyni, sem nú mun eingöngu snúa sér að störf- um fyrir blaðið. Hjalti er ungur maður, 27 ára, og lauk á síðast- liðnum vetri hagfræðinámi í Búdapest. Telur Sósíalistafélagið, að það hafi verið mikið happ fyr- ir félagið og blaðið, að fá hann hingað til starfa, en Hjalti er fyrsti Islendingurinn, sem lokið hefur námi í hagfræði í hinum sósíalistisku ríkjum Evrópu. Fráfarandi formaður Sósíalista- félagsins, Eyjólfur Árnason, flutti úr hænum í vetur til Reykjavíkur, þar sem hann réðist til starfa sem framkvæmdastjóri MIR. I stað hans var kjörinn formaður Ing- ólfur Árnason rafveitustjóri, og aðrir í stjórn félagsins voru kosn- ir: Rósberg G. Snædal gjaldkeri, Þórir Daníelsson ritari, Þor- steinn Jónatansson varaformaður, Björn Jónsson, Tryggvi Helgason og Hlín Stefánsdóttir meðstjórn- endur. I varastjórn eiga sæti Jón Hafsteinn Jónsson, Rögnvaldur Rögnvaldsson, Jóhannes Her- mundarson, Sigtryggur Helgason og Friðrik Kristjánsson. 1 blað- stjórn Verkamannsins kaus fund- urinn Björn Jónsson og Rósberg G. Snædal. Fulltrúaráð Alþýðu- bandalagsins tilnefnir einnig tvo menn í blaðstjórnina. Auk aðalfundarstarfa var á fundinum nokkuð rætt um stækk- un blaðsins og Björn Jónsson skýrði frá gangi kjarabaráttunn- ar hjá verkalýðsfélögunum, samn- ingatilraunum þeim, sem fram hafa farið og því, hverjar horfur væru um gang þeirra mála. Hjalti Kristgeirsson. Pavel Serebrjokoff. Píanóhljómleikar TÓNFISTARFÉFAG Akureyrar heldur hljómleika nk. laugardag kl. 4 síðdegis í Nýja Bíói. Eru þetta 4. og síðustu tónleikar vegna árgjalds 1960. Vegna breyttra að- stæðna fara nú fram athuganir á áframhaldandi fyrirkomulagi tón- leika félagsins, og verður senni- lega hlé á þeim til næsta hausts. Að þessu sinni er það einn á- gætasti píanóleikari Sovétríkj- anna, prófessor Pavel Serebrja- koff, sem kernur fram á sjónar- sviðið, en hann er forstöðumaður Tónlistarskólans í Leningrad. Hann hefur haldið tónleika í Kanada, Brazilíu, Belgíu, Frakk- landi, íran, Tyrklandi, Austur- ríki, Ungverjalandi, Póllandi, Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu, Japan o. fl. löndum. Hann er fæddur ár- ið 1909 í Stalingrad, hóf konsert- feril sinn 1928, þá 19 ára að aldri. Viðreisnar- jjafifivægi VARLA hefur verið vorpað öðrum eins töfrahjúp yfir nokkurt or3 ís- lenzkrar tungu og orðið jofnvægi. Þetfa orð komst til svo mikilla veg- semda í fyrro, aS viðreisnarstjórnin gerði það að lykilorði tillagna sinna í efnahagsmóium. Hagfræðingar rikissfjórnaiinnar sönnuðu með dæmafórri snilld, að hingað til hefði ekki ríkt neítt jafnvægi í þjóð- crbúskopnum, cg við svo búið niætti ekki lengur stando; þjóðar- búskapurinn kæmist ó kaldan klaka og við kæmumst öll ó vonar- völ, ncma snúið væri við og haldið ó braut jafnvægisins. Það fór hroll- ur um menn of því að hugsd til vönkunar jafnvægisleysisins, og rikisstjórninni vor gefinn kostur ó því oð dansa jafnvægisdansinn. Það ótti að koma ó allsherjarjafn- vægi í þjóðfélaginu, og ouk þess GiIs konar jofnvægi í öllum krókum og kimum mannfélagshallarinnar. Það var bent í þessu sambandi ó framleiðslu og fjórfestingarmól, ó gjaldeyrismól, ó peningamól. Ein- mitt peningamóiunum var talið hættast víð sjúkdómi jafnvægis- leysisins, og fyrir hann ótti nú oð girða í eitt skipti fyrir öil. Þess vegna voru vextir hækkaðir og að mcstu bannað að lóna fé bankanna til atvinnurekstrar. En hvernig hefur svo þessi jafn- vægisdons viðreisnarpostulanna reynzt? Eru nú hin marghrjóðu pen- ingamól loksins komin ó fastan grundvöll og í jafnvægisskorður? Við skulum rétt leiða hugann að staðreyndum lífsins. Peningamólum bankanna er nú svo komið, að Seðlabankinn rakar að sér gróða, hann er orðinn ein mesta blóðsuga þjóðfélagsins, en ýmsir viðskiptabankanna eru í reynd lokaðir vegna fjórskorts. Inn- lón jukust ekkert ó órinu sem leið og gótu því ekki síoðið undir þeirri útlénaoukningu sem varð, þrótt fyrir okurvexti og lónabann. Fram- leiðsla og þar af leiðandi atvinna dregst samcn, vegna þess að heil- brigður atvinnurekstur stendur ekki undir okuilónum þeim, sem kunna að fóst. Og hvernig er peningamólum al- þýðuheimilanna komið? I meira en óratug hefur aldrei verið eins langt fró því að rikja jafnvægi milli þarfa heimilisins cg þeirrar koup- getu, sem tekjurnar skapa. Við- reisnin lækkoði gengið, svo oð ollor nauðsynjar stórhækkuðu í verði. Og samdróttarstefna viðreisnorinn- ar minnkaði fromleiðsluna, svo að atvinnutekjur minnkuðu. Ekkert verkefni er nú eins brýnt og það, oð nó jafnvægi í peninga- mólum olþýðunnar i landinu. Það verkefni verður hún sjólf að onnost með kjarobaróttu sinni, því að sýnt er oð viðreisnarstjórnin færir al- þýðunni ekkcrt annað en minnk- andi atvinnu og kröpp kjör. MÍR ÞEIR FÉLAGAR í Akureyrar- deild MÍR, sem ekki eru í Tón- listarfélaginu, en óska að hlýða á hljómleika rússneska píanó- leikarans á morgun, geta í dag, föstudag, fengið miða af- greidda í gullsmíðavinnustofu Sigtryggs og Péturs.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.