Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 25.01.1963, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 25.01.1963, Qupperneq 1
Fullkomnasta bílaverk- stæði Akureyrar Éekið lil starfa við Morðnrgötn Við Norðurgötu utarlega er tekið til starfa nýtt bílaverkstæði, sem byggt hefur verið í haust og fyrrihluta vetrar. Gafst frétta- tnönnum tækifæri til að skoða verkstæði þetta fyrir nokkrum dögum og sannfærðust þeir um, að miðað við það sem hér í bæ hefur tíðkast er verkstæði þetta sérstak- lega vel skipulagt og áberandi hetur búið að tækjum, en hér hef- ur þekkzt. Er raunar furðulegt, hve seint tækninni hefur gengið að halda innreið sína á bílaverk- stæðin hér á landi. En eigendur þessa nýja bílaverkstæðis, sem Baugur nefnist, fara vel af stað í þessum efnum og verður fordæmi þeirra trúlega einnig til þess, að önnur verkstæði fari að huga að tækjabúnaði sínum. Tækjobúnaður Mesta athygli vekur vél ein, sem er eins konar radar fyrir gangverk hifreiða. Þegar hún hef- ur verið réttilega tengd við bif- reiðina má af vélinni lesa, í hvernig lagi einstakir hlutar raf- kerfis eða gangverksins yfirleitt eru og bilun er auðfundin, sé um hana að ræða. En flestir þekkja, hversu langa leit getur kostað að finna bilun, þar sem ekki eru önn- ur tæki til staðar en eyra viðgerð- armanns og handverkfæri. Þá eru mælitæki fyrir stýris- gang, hjól, öxla, millibil, grind. Tæki er til að finna skekkju á þyngdarpunkti hjóla, tæki til að mæla nýtingu brennsluefnis o. fl. Leitarstöðvar þessar þyrftu að vera á hverju verkstæði og verða vonandi áður langt líður. Þá er það nýjung hér, að settur hefur verið upp e.k. veltistóll fyrir smærri bifreiðar, þar sem hægt er að vinna við undirvagn án þess að skríða í gólfinu, eins og yfirleitt tíðkast. Loks er vert að nefna þvottavél til að sápuþvo jafnt verkstæðið sjálft sem bíla í heilu lagi eða einstaka hluta þeirra. Allt er verkstæðið mjög þrifa- legt og þannig frágengið, að auð- velt verði að halda því hreinu, þótt mikil óhreinindi berist inn, svo sem jafnan verður á slíkum verkstæðum. Baugur h.f. Eigandi bílaverkstæðisins Baugs er samnefnt hlutafélag, sem stofn- að var 19. ágúst s.l., en hluthafar eru þessir, sem allir vinna á verk- stæðinu: Birgir Stefánsson, Odd- eyrargötu 26, Hörður Adolfsson, Melgerði, Jósef Kristj ánsson, Við- arholti, Sigurður Bárðarson, Grenivöllum 30 og Þorsteinn Jóns- son, Grenivöllum 26. Er Hörður framkvæmdastjóri, en Þorsteinn verkstæðisformaður. Símar fyrirtækisins eru 2875 og 2876. (Framhald á 8. síSu.) Husiíkin&far 1678 Húsavík í morgun. Óvenjugóðar gæftir hafa verið hér allt frá áramótum og róið hvern dag, þar til í dag, að land- lega er. Afli hefur verið allt upp í 5Yz tonn í róðri. Fyrri helming mánaðarins, eða frá 1. til 15. janú- ar tók Fiskiðjusamlagið á móti 230 tonnum fiskjar frá bátunum. Lokið er við að setja jarðborinn upp á Höfðanum, og borun eftir heita vatninu hefst um helgina. Talið er víst, að árangur verði góður. Samkvæmt síðustu manntals- skýrslum var íbúatala kaupstaðar- ins 1. des. s.l. 1678 og hafði fjölg- að um 94 miðað við næsta ár á undan. Fjölgunin kallar á aukið húsnæði, og margir hafa í hyggju að hefja byggingar íbúðarhúsa með vorinu. Mislingar ganga nú víða um sveitir, sérstaklega hefur mikið borið á þeim í Lj ósavatnshreppi. Þeir virðast hafa breiðzt ört út í sambandi við samkomur um hátíð- arnar, jól og áramót. Fært er um allt hérað hverju farartæki eins og á sumardegi væri. HEYRT Á GÖTUNNI AÐ Framsókn birti framboðslista sinn i kjördæminu í næstu viku og efstu sætin skipi: Karl Kristjónsson, Gísli Guðmunds- son, Ingvar Gislason, Hjörtur E. Þórarinsson. AÐ Halldór Blöndal, blaðamaður við Mogga, muni senn koma til Akureyrar og gerast ritstjóri við Islending. AÐ enn sé tíðinda von í sjoppu- mólinu, íhaldið hafi sett J. Frím. tvo kosti: annaðhvort opnun gluggahlera eða lokun hjó Þórshamri. Eigendur Baugs hf.: Fró Vinstri: Hörð- ur, Birgir, Jósef, Þorsteinn, Sigurð- ur. Eining samlwkh someiningu Verkakvennafélogið Eining hélt aðalfund sinn s.l. sunnudag. Þar vor einum rómi samþykkt samhljóða tillogo og samþykkt var fyrir nokkru ó oðalfundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar um someiningu þessara tveggja félaga. Formoður Verkakvennafélagsins Einingar er nú frú Margrét Magn- ósdóttir, en stjórnarkjör fór ekki fram ó þessum aðalfundi, þor sem 9ert er róð fyrir, að umædd someining félaganna komist í fram- hvoomd ó næstu vikum. Eélagar í Einingu eru nú 245. Rekstrarhagnaður félagsins ó siðasta ®r'< allir sjóðir meðtaldir, varð kr. 46.436.12, en bókfærðar eignir í ^fslok 213 þúsund kr. AÐALFU N D U R Sjálfsbjargar, félags fatlaðra a Akureyri, var haldinn s.l. sunnu- dag. Formaður félagsins var kjör- inn Sigvaldi Sigurðsson rakari, en aðrir í stjórn eru: Magnús Krist- insson, ritari, Hermann Larsen, gjaldkeri, Líney Helgadóttir og Heiðrún Steingrímsdóttir. Yara- formaður er Adolf Ingimarsson. Félagið hefur nú í byggingu all- mikla viðbót við hús sitt, Bjarg við Hvannavelli, og eiga þar að koma vinnusalir fyrir væntanlegar vinnustofur fatlaðs fólks á Akur- eyri. Verkamaðurinn Myndin var tekin 13. janúar, er íþróttafélagið Þór efndi til hótiðar ó Glerór- eyrum. Konungur ólfa og drottning sitja i hósæti sínu. í hlutverkunum eru Eiríkur Stefónsson og Erla Hólmsteinsdóttir. Fimm prósent kauphœkkun Svo sem skýrt var frá í síðasta blaði hafa að undanförnu staðið yfir samningaviðræður milli nokkurra verkalýðsfélaga á Akureyri og atvinnurekenda. S.l. laugardag náðist samkomulag um það milli samninganefnda, að frá og með mánudeginum í þessari viku skyldu allir kauptaxtar við- komandi félaga hækka um 5 prósent og sú hækkun vera í gildi þar til annað yrði ákveðið. Samningar félaganna eru eftir sem áður lausir og þetta samkomu- lag ekki bundið til neins ákveðins tíma. Samningaviðræðum aðila verður því haldið áfram síðar, en ekki ákveðið að svo stöddu hvenær fundir hefjast á ný. Framangreind kauphækkun er ekki bundin með neinum skriflegum samningi, heldur er aðeins um að ræða munnlegt samkomulag. Þau félög, sem hér eiga hlut að máli og fengið hafa áður greinda hækkun á kauptaxta sína til bráðabirgða eru: Verkamannafélag Akur- eyrarkaupstaðar, Verkakvennafélagið Eining, Iðja, félag verksmiðju- fólks, Bílstjórafélag Akureyrar og Félag verzlunar- og skrifstofufólks.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.