Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 25.01.1963, Side 2

Verkamaðurinn - 25.01.1963, Side 2
♦ .............. ..-♦ Á sjónskífunni Happdrætti Maður gæti haldið á stundum, að happdrætti væri einn höfuð- atvinnuvegur þjóðarinnar. Það eru ekki aðeins hin föstu happ- drætti stórra félagasamtaka, sem njóta ríkisvemdar, eru t. d. skatt- frjáls, heldur er happdrætti eitt höfuð-fj áraflaplan margs konar minni eininga, þar á meðal póli- tískra flokka og blaða þeirra. Ég er ekkert að hafa á móti happdrætti, út af fyrir sig, kann- ske borgar sig að leggja út nokk- urt fé, til þess að hafa til einhvers að hlakka. Og vissulega er alltaf von um „stóra“ vinninginn. En þetta er alltaf óviss fjárfesti/ig, og undarlega margir hafa þá sögu að segja, að þeirra númer, kannski mörg í röð, komi ekki upp árum saman. Aðrir segja frá „happa- miðum“, sem vinnist á mánuð eftir mánuð. Hvernig stendur á þessu? spyrja menn. Rótast ekki nógu vel upp í kössunum? Fer þetta ekki allt hundrað prósent heiðarlega fram? Ég legg engan dóm á þetta spursmál og kenni tilviljan og persónulegri heppni um hverjir fá vinning og hvað oft. En vegna þrálátra fyrirspurna manna um þetta árum saman: Aj hverju koma mín númer aldrei upp? Þá ----------------------♦ myndi ég beina því til forráða- manna stóru happdrættanna, að segja rækilega frá öllu viðvíkjandi framkvæmd þeirrar áhrifamiklu athafnar, þegar dregið er um fj ár- hagslega hamingju miðaeigenda. Getur verið nokkur hætta á, að númer eins eða annars botnfalli og komi því ekki upp í þúsund ár? Og svo vil ég vekja athygli þeirra, sem eiga miða í síðasta happdrætti Þjóðviljans á, að lesa vinningaskýrsluna, sem birt er á öðrum stað í blaðinu og bera númerin saman við miða sína. Vinningarnir hafa ekki allir verið sóttir. Slysafréttir Það setur að manni ugg og ótta í hvert sinn er fréttir nálgast í útvarpi eða þegar maður opnar blað. Stórtjón og slysfarir eru svo yfirgnæfandi í fréttum bæði inn- og erlendum, að undrun og skelf- ingu vekur. Manni liggur við að spyrja: Gerist aldrei neitt nema illt? Stórbrunar á veiðarfærum, frystihúsum og öðru, er að útgerð Iýtur, hefur oft verið mjög áber- andi, jafnvel skipin brenna í stór- um stíl. Að ég nú ekki tali um, hvað bátum hefur gengið hörmu- lega að halda sig ofansjávar s.l. ár. Skaði á skipshöfn togarans Röðuls, er alveg með því átakan- — legasta nú um stundir og þarf ekki útskýringa við hvers vegna. Af brunum er nú áberandi meira í sveitum landsins en fyrr. Er skemmst að minnast stórbrun- ans á Melum í Fnjóskadal, þar sem 9 kýr farast í eldi og heilsu- hilað fólk missir í einu vetfangi aleigu sína. Verkamaðurinn vill leyfa sér að benda á tilkynningar fulltrúa- ráðs verkalýösfélaganna og Sjálfs- bjargar á Akureyri um fjársöfnun handa þessu allslausa fólki. Þær birtast hér í Kringsjánni í dag. Verkamaðurinn veitir með ánægju viðtöku fé í þessa söfnun og hvetur þá, sem enn hefur verið hlíft við því að komast í slysafréttir til að leggja sitt af mörkum. Lands- byggðin dreifða er ávallt kjölfesta bæjarbúanna, bæði í andlegum og efnalegum skilningi. Auglýsið í Verkamanninum. ORÐSENDING frá Framtalsnefnd Akureyrar. Athygli framteljenda á Akureyri er hér með vakin á því, að framtalsskýrslur þurfa að hafa borizt Skattstofunni, Strand- götu 1 (Landsbankahúsinu) 3. hæð, fyrir lok framtalsfrests, ella verða tekjur áœtlaðar. Tekjuáætlun er miðuð við 25% álag á framtaldar nettó- tekjur. Framtalsfrestur einstaklinga er til 1. febrúar. Framtalsfrestur atvinnurekenda er til 1. marz. Sérstök athygli er vakin á því, að launamiöar, sem Skatt- stofunni berast, eru ekki framtöl. Framtalsnefnd Akureyrar. ^AMSKEIÐ Námskeið í Ijósmyndagerð hefst í þessum mánuði. Leið- beinandi verður Hermann Ingimarsson. Upplýsingar í síma 2512 eftir kl. 6. Námskeiösgjald verður kr. 50.00. Námskeið í flugmódelsmíði hefst í þessum mánuði. Kennari verður Dúi Eðvaldsson. Innritun fer fram í Varðborg eða í síma 2600 kl. 5—7. Námskeiðsgjald er kr. 50.00. Námskeið þessi eru auglýst í samráði við Æskulýðsráð. Æskulýðsheimili templara. Prentum BÆKUR BLÖÐ TÍMARIT Hvers konor SMÁPRENT LITPRENTUN Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Simi 1024. Verzlið ¥eljið vörurnar sjálf. Kjörbiíðir KEi í eigin búðum 1963 2) — Verkamaðurinn Föstudagur 25. jonúor

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.