Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 25.01.1963, Side 7

Verkamaðurinn - 25.01.1963, Side 7
SKRJÁF í SKRÆÐUM L=- Helför Jóns i Keldunesi. Hinn 20.—21. ágúst árið 1700, kom aftaka hríð á Norðurlandi og setti þá niður svo mikinn snjó á fjallvegum og í afdölum að eng- inn mundi þvílíkan nema um vetur. Sérstaklega urðu þó fanna- lög mikil í Þingeyjarsýslum, og þar, eða á Húsavík urðu miklir skaðar á bátum og skipum, og segir í einni heimild, að 90 sjóskip brotn- uðu í spón. Um þessar mundir bjó að Keldu- nesi í Kelduhverfi Jón Arnason, Björnssonar, ásamt konu og nokk- uð uppkomnum börnum. Eitt barna þeirra hjóna var Oddný móðir Skúla landfógeta. Sonur þeirra einn, Gunnar að nafni, þá ungfullorðinn, tók um sumarið ein- kennilega veiki með flogum og óviti. Var álitið að illur andi hefði tekið sér bólfestu í honum, eða galdri væri um að kenna. Fátt var um læknisróð og dugðu þau lítt, sem reynd voru. Þá bjó að Skógum í Fnjóska- dal Indriði Pétursson. Hann var talinn læknir góður og ráðsnjall. Sagt er að kona Jóns í Keldunesi hafi lengi nauðað á manni sínum, að vitja Indriða og fá ráð hjá hon- um við sjúkdómi drengsins, en Jón jafnan svarað því til að það yrði sín síðasta ferð, ef farin væri. Þó kom þar, að Jón býst á fund Indriða og ríður vestur að Skóg- um. Varð það úr að Indriði fór tneð honum austur til að athuga sjúklinginn. Þeir lögðu upp i þá ferð hinn 20. ágúst og unglings- piltur í fylgd með þeim, sem ekki er nafngreindur. Þeir voru allir velríðandi og bændurnir taldir hraustleikamenn. En þegar þeir eru komnir upp á Reykjaheiði, skellur óveðrið á þá með fádæma veðurhæð og fannkyngi. Varð strax þungt fyrir fæti og illt að rata, enda veðrið beint í fang þeim. Þegar þeir voru komnir austur á heiðina, þar sem heita Höfuðreiðar, villtust þeir eða hrakti af leið og lentu suður í hraunið. Þá var veðurhæðin slík að þeir réðu sér ekki og hestarnir komust ekki áfram fyrir ófærð. Létu þeir þar fyrirberast um hrlð og grófu drenginn I fönn, því hann var þá örmagna af þreytu og kulda. Jón var einnig mjög dasað- ur og miður sín. Dokuðu þeir þarna við nokkra stund, en þá vildi Ind- riði freista þess að halda áfram. Jón latti þess og sagði þetta vera kyngiveður og honum ekki ætluð lengri ferð. Indriði reyndi á allan hátt að telja kjark I hann og hjálpa honum á hestinn, en Jón var þá svo máttfarinn að hann gat naum- ast staðið óstuddur. Þó tókst Ind- riða að reisa hann upp við hest- inn, kom öðrum fæti hans I ístaðið og bað hann reyna að vega sig upp. Sjálfur hélt hann I stigreipið hinum megin, til þess að hnakk- urinn snaraðist ekki. En þegar Jón ætlaði að vega sig upp, steig hann niður úr ístaðinu og féll til jarðar. Indriði lét hann reyna öðru sinni og sneri klárnum við, en er til átaka kom, fór á sömu leið, il- járnið brotnaði og Jón féll aftur yfir sig. Varð þá laus handfylli hans úr faxi hestsins. Eftir þetta var Jóni öllum lokið og fól hann sig guði á vald, bað Indriða að reyna að komast til byggða með drenginn og skyldu þeir halda vestur af, niður í Aðaldal, því það væri styttri leið. ,,Segið Bergþóri bróður mlnum (Hann bjó I Haga.) að sækja lík- ama minn hingað á morgun, þvi þá mun ég sofnaður, flytja hann til Múla og jarða hann þar." Indriði skildi svo við hann þarna, en tók áður staf hans eða atgeir, eins og annálar segja, og stakk honum niður við háan hraunklett til að auðkenna stað- inn. Síðan gróf hann piltinn úr fönninni og þeir héldu vestur af. Náðu þeir að lokum I Klömbrusei, sem þá var óbyggt, skriðu þar inn I kofa og biðu morguns. Þá slot- aði veðrinu skyndilega og náðu þeir þá niður I Aðaldal, mjög þrek- aðir og langt leiddir, en ókalnir. Var svo gerð leit að Jóni og fannst hann eftir tilvlsan Indriða og at- geirsins, en var þá látinn. Sagt er að tveggja metra djúpur snjór væri þá ofan á líkinu og gefur það nokkra hugmynd um fannfergið. Lik Jóns var flutt að Múla og greftrað þar, eins og hann hafði fyrir mælt. ORÐSENDING frá Iðju, félagi verksmiðjufólks, Akureyri Samkvæmt samningum Iðju, við vinnuveitendur, ber að láta fara fram læknisskoðun á starfsfólki verksmiðjanna í febrúar- tnánuði. Er hér með skorað á hlutaðeigendur, að sjá um að læknisskoðun verði framkvæmd á tilsettum tíma. Enn fremur skal það fram tekið, að óheimilt er að hefja starf í verksmiðj- unum án undangenginnar berklaskoðunar. Stjórn Iðju. NÝKOMIÐ Fronskir KVENSKÓR 5 teg, með lágum hæl, á kr. 545.00 til 585.00. Franskir KARLMANNASKÓR 4 teg. —- á kr. 340.00 til kr. 362.00. Franskir DRENGJASKÓR 4 teg. — á kr. 280.00 til kr. 298.00. UNGBARNASKÓR 4 teg. — með linum sóla, á kr. 75.00 til 124.00. Tékkneskir KVENKULDASKÓR úr gúmi Tékkneskir KARLMANNAKULDASKÓR, — allar stærðir — Tékkneskar SNJÓBOMSUR, — allar stærðir — Tékkneskar LÁGAR SKÓHLÍFAR frá nr. 39 til 45 UD9RVÖRQR H.F. Strandgötu 5 — Sími 2794. KflUPTAXTAR Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, Verkakvennafélagsins Einingar og Bílstjórafélags Akureyrar hafa verið prentaðir og fóst í SKRIFSTOFU VERKALÝÐSFÉLAGANNA Strandgötu 7. UTSALAN er í fullum gangi. KÁPU R O G HATTAR Enn er hægt að gera góð kaup á kjólum, kjóla- efnum, drögtum, morgunsloppum, buxum o. fl. Verzlun B. Laxdal. Kringsjó vikunnar Akureyrarkirkja. Æskulýðsmessa verður n.k. sunnudag kl. 2 e. h. Minnzt verður starfsins fyrir æskulýðinn í bæn- um. Þess er óskað að fermingarbörn n.k. vor og foreldrar þeirra komi í messuna. Sálmar: 18, 372, 647, 304 og 648. — Sóknarprestur. Frá Sálarrannsóknafélaginu á Akur- eyri. Fundur verður haldinn að „Bjargi“ þriðjudaginn 29. jan. kl. 8.30. Flutt verða tvö erindi: 1. Sálarrannsóknirnar og kirkjan (Sr. Benjamín Kristjánsson). 2. Hlutverk sálarrannsóknarfélaganna og horfur (Aðalbjörg Sigurðardóttir). Umræður á eftir erindunum. Stjórnin. Söfnun til Kristrúnar á Melum. Sjálfs- björg á Akureyri hefur ákveðið að beita sér fyrir fjársöfnun til fötluðu konunn- ar, Kristrúnar Guðmundsdóttur frá Melum í Fnjóskadal. Tekið á móti gjöf- um á afgreiðslu verkamannsins. Einnig tekur Hermann Larsen Efnaverksmiðj- unni Sjöfn á móti gjöfum og Sigvaldi Sigurðsson rakari. Frá ÆskulýSsheimili Templara. Bóka- útlán úr Bamabókasafni I.O.G.T. fara fram í Varðborg á miðvikudögum kl. 5—7. Á öðrum stað f blaðinu eru aug- lýst námskeið í jlugmódelsmíði og Ijósmyndagerð. Námskeið í föndri fyrir börn er að hefjast. Fullskipað. Kennari er Indriði Ulfsson. Frá Sjálfsbjörg. Þorrablótið verður að Bjargi laugardaginn 2. febr. n.k. og hefst kl. 20.00. Áskriftalistar liggja frammi í Véla- og raftækjasölunni h.f. til miðvikudagskvölds 30. þ.m. Stjórnin. Fjársöfnun. Stjórn Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna á Akureyri, hefur ákveðið að gangast fyrir almennri fjár- söfnun í bænum, til styrktar fólkinu á Melum í Fnjóskadal sem missti aleigu sína í eldsvoða nú nýverið. Mun Verka- maðurinn fúslega veita gjöfum móttöku. Ennfremur Skrifstofa verkalýðsfélag- anna og skrifstofa Iðju. Menningar- og friðarsamtók íslenzkra kvenna — Akureyrardeild — heldur aðalfund sinn miðvikudaginn 30. þ. m. kl. 8.30 að Hótel K.E.A. (rótarysal). Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundar- störf. 2. Erindi K. f. D. um bækur. 3. Onnur mál. 4. Sameiginleg kaffi- drykkja. — Stjórnin. HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS 50088 — Land-Rover eða bif- reið eftir eigin vali. 7557 — Góðhestur með hnakk og beizli. 61833 — Sófasett fró Hús- gagnaverzlun Austurbæjar. 45987 — Normcndé segul- Vikublað. — Útgefendur: Sósíalista- félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu- bandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku- götu 5, Akureyri, sími 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og Kristján Einarsson frá Djúpalæk. — Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. — Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. ■— Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. ■— Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f., Akureyri. Verkamaðurinn bandstæki. 8335 — Normende útvarps- tæki. 53122 — sama. 70704 — sama. 70531 —Normende ferðatæki. 41644 — sama. F°sfudagur 25. janúar 1963 Verkamaðurinn — (7

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.