Verkamaðurinn - 19.05.1963, Blaðsíða 3
Hvað vilia margir fara um borð?
Fyrir alþingiskosningarnar
1959 kom út bæklingurinn
„Atökin um landhelgismálið“
eftir Magnús Kjartansson rit-
stjóra. Þar var brugöið upp
skýrri mynd af vinnubrögðum
tveggja óvinsælustu stjórnmála-
manna landsins í landhelgismáli
íslendinga, þeirra Bjarna Bene-
diktssonar og Guðmundar í.
Guðmundssonar.
Eftir að núverandi ríkisstjórn
ákvað vegna annarlegrar þjónk-
unar við NATO að hleypa Bret-
um á ný inn í landhelgina og
gera stórsigur íslands í landhelg-
Honniba! Valdimarsson
\
ismálinu undir farsælli forustu
Lúðvíks Jósefssonar að engu, fór
fram útvarpsumræða um málið.
Þá komu að hljóðnemanum tveir
íhaldsþingmenn utan af landi,
þeir séra Gunnar Gíslason í
Glaumbæ og Jónas Pétursson á
Skriðuklaustri, og sögðu báðir
innfjálgum rómi, að við yrðum
að fórna einhverju fyrir vest-
rœna samvinnu. Síðan hamaðist
Morgunblaðið í margar vikur
og sagði landsfólkinu að Lúðvík
Jósefsson væri vondur maður,
sem ynni fyrir þá í Moskvu og
heimskommúnismann.
Sá atburður, sem nú hefur
gerzt í samskiptum landhelgis-
gæzlunnar við Breta mun vissu-
lega leiða athygli almennings í
landinu að því, hvernig íslenzk
stjórnarvöld hafa haldið á mál-
um fyrir okkar hönd, og um leið
vaknar spurningin um það, hvað
Gunnar í Glaumbæ og Jónas á
Ski'iðuklaustri telja hæfilegt að
fórna miklu, ef svo ógæfusam-
lega færi, að sú ríkisstjórn, sem
þeir styðja, fengi aðstöðu til að
koma fram vilja sínum og fara
með okkur um borð í risaskip
Efnahagsbandalags Evrópu.
Alþingiskosningarnar 9. júní
n. k. skera úr um það, hvort ís-
lendingar vilja heldur fylgja for-
kólfum stjórnarflokkanna um
borð í herskip Adenauers og de
Gaulle eða vera áfram á sinni
eigin kænu, eins og forfeður
okkar hafa gert í þúsund ár og
þolað bæði súrt og sætt, en kusu
þó aldrei að gerast óaðskiljan-
legur hluti Danaveldis.
Það hefur áður skeð í Islands-
sögunni, að óbreyttir erfiðis-
menn í landinu hafa þurft að
bera vit fyrir innlendum höfð-
ingjum og svo mun enn fara.
Kosningabandalag Alþýðu-
bandalagsins og Þjóðvarnar-
flokksins hefur vakið gremju í
herbúðum hernámsflokkanna,
eins og sjá má af blöðum þeirra.
Hernámsandstæðingar! Vinstri
menn! Við göngufn sameinaðir
og sókndjarfir til orustu við her-
námsstefnuna og hrekjum stríðs-
menn NATO á undanhald í öll-
um kjördæmum landsins.
Haustið 1959, þegar kosið var
í fyrsta skipti eftir núverandi
kj ördæmaskipun, fékk Alþýðu-
bandalagið kj ördæmakosna þing
menn í 5 af 8 kjördæmum lands-
ins. Nú setjum við markið hærra
og keppum að því að fá kjör-
dæmakosna þingmenn í öllum
kjördæmum landsins.
í höfuðstaðnum er Eðvarð
Sigurðsson, formaður Dags
brúnar, í þriðja sæti á lista A1
þýðubandalagsins. Áttundi mað
ur á lista lhaldsins er stórat
vinnurekandinn Sveinn í Héðni
Þar mætast fulltrúi vinnuaflsins
annars vegar og fulltrúi peninga
valdsins hinsvegar. í öðru sæti
á lista Alþýðuflokksins er mað
urinn, sem valdi sér stöðu við
hliðina á Pétri Sigurðssyni á
40 ára afmæli 1. maí-hátíða
halda í Reykjavík.
Ingi R. Helgason
1 Vesturlandskjördæmi sækir
Ingi R. Helgason að ritstjóra
Alþýðublaðsins, sem einnig er
formaður útvarpsráðs. Fyrir
nokkru hlaut Gröndal áminn-
ingu frá húsbændum sínum, þar
sem hinum var tj áð í ritstj órnar-
grein í Morgunblaðinu, að betra
væri fyrir Alþýðuflokkinn að
fremja pólitíska kviðristu þegar
í stað en að vera að rifja upp
gömul stefnumál í Alþýðublað-
inu. Eftir þetta vildi Gröndal
sýna yfirboðurum sínum, að
hann væri til einhvers brúklegur
og gekk fram fyrir skjöldu í út-
varpsráði til að koma í veg fyrir
að rödd alþýðusamtakanna
heyrðist í útvarpinu á hátíðis-
degi verkamanna.
í Vestfjarðakjördæmi vann
Hannihal Valdimarsson stærri
persónusigur en nokkur fram-
hjóðandi á landinu í síðustu al-
þingiskosningum, og skorti hann
aðeins 23 atkvæði til að verða
kj ördæmakosinn. Vestfirðingar
munu trúlega ekki láta þessi 23
atkvæði vanta nú.
í Norðurlandskjördæmi vestra
er í framboði ungur glæsilegur
fulltrúi æskunnar, Ragnar Arn-
alds, sem staðið hefur framar-
lega í samtökum hernámsand-
stæðinga. Afi hans, Ari Arnalds
fyrrv. sýslumaður, vann frægan
og eftirminnilegan sigur í al-
þingiskosningunum 1908, þegar
kosið var um „uppkastið“, er
hann ungur og þá óþekktur mað-
ur fór í framboð í Strandasýslu
og lagði að velli gamlan og rót-
gróinn þingmann Strandamanna,
Guðjón frá Ljúfustöðum. -—
Vinstri menn í þessu kjördæmi
ættu að íhuga, hvort Björn á
Löngumýri verði nokkuð þarfur
vinstri pólitík á Alþingi. Þeir á
ritstjórnarskrifstofum Tímans
myndu trúlega finna jarð-
skjálftakipp frá þessum lands-
hluta, ef Björn á Löngumýri
fengi ámóta byltu og Guðjón á
Ljúfustöðum forðum.
Ragnar Arnolds
Nú hefur Tíminn sent út neyð-
arkall frá manni nokkrum í
Svarfaðardal, sem kveðst vera
mikill hernámsandstæðingur.
Ekki skýrir sá góði maður frá
því, hvernig á því stendur, að í
sæti Garðars heitins bónda frá
Rifkelsstöðum er ekki bóndinn
og hernámsandstæðingurinn
Hjörtur á Tjörn, heldur hægri
maðurinn og hersetuvinurinn
Ingvar Gíslason. Þessu ættu
bændur og hernámsandstæðing-
ar í Eyýafirði og öðrum sveitum
Norðurlandskjördæmis eystra
að svara með því að stuðla að
kosningu hins merka og mæta
manns Arnórs Sigurjónssonar,
sem er annar maður á lista Al-
Arnór Sigurjónsson
þýðubandalagsins og hefur unn-
ið bændastétt landsins meira
gagn en Ingvar Gíslason.
Á Austurlandi fá hinir fjöl-
mörgu hersetuandstæðingar úr
röðum framsóknarmanna tæki-
fyri til að gera upp reikningana
við Eystein Jónsson. Það gera
þeir bezt með því að efla Alþýðu-
bandalagið. Þá kynni svo að
fara, að Eysteinn færi eftirleiðis
meira að vilja kjósenda sinna.
Sjómenn á Austfjörðum þekkja
áreiðanlega störf Lúðvíks Jósefs-
sonar fyrir íslenzkan sj ávarút-
veg betur en kögursveinar þeir,
sem nú ritstýra Morgunblaðinu.
í Suðurlandskjördæmi hefur
Karl Guðjónsson átt vaxandi
vinsældum og fylgi að fagna.
Hann er einn af dugmestu þing-
niiönnum Alþýðubandalagsins.
í Reykjaneskjördæmi fer
Þjóðvarnarmaðurinn Gils Guð-
mundsson til höfuðorustu gegn
borg hernámsflokkanna á Mið-
nesheiði, þar sem Framsóknar-
þingmaðurinn Jón Skaftason
stendur á varðbergi með þremur
ráðherrum viðreisnarstj órnar-
innar. Sú borg er íslenzku þjóð-
inni framandi og ekki hluti af
henni sjálfri. Það eru trúlega af-
vegaleiddir þjóðmálaleiðtogar,
sem hjálpað hafa til að byggja
þá borg. Um borgarhlið hennar
fara asnar gulli klyfjaðir.
Eitir Halldór Þorgrímsson
Kosningaskrifstofa Alpýðubandolagsins
er í Verkaiýðshúsinu Strandgotu 7
Opin alla daga frá kl. 1-7 e. h. og kl. 8.30-10 á kvöldin.
Föstudagur 17. mai 1963
Varkamaðurinn — (3