Verkamaðurinn - 19.05.1963, Qupperneq 7
Kringsjó
vikunnar
Messað verður í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 2 e. h. (almennur
bænadagur). Sólmar: 374, 376,
378, 1. — B. S.
MesscS í Lögmannshlíðarkirkju ó
sunnudaginn kl 10,30 e. h. Al-
mennur bændagur. Ferming. —
Sólmor 645, 590, 594, 648, 596,
603, 591. — Strætisvagninn fer
kl. 10 f. h. frá Glerárhverfi, yztu
leið til kirkjunnar. -— P. S.
Matthíasarhús verður opið alla sunnu-
daga, kl 1—3 e. h., þar til öðruvísi
verður ákveðið.
ÞaS eru vinsamleg tilmæli frá Iþrótta-
ráði Akureyrar að ekki sé farið inn
á grasvöllinn á íþróttasvæðinu, þar
sem völlurinn er mjög blautur og
viðkvæmur á þessum tíma árs. —
Þá skal það tekið fram, að allar
æfingar eða keppnir eru bannaðar
á svæðinu, nema að fengnu leyfi
íþróttaráðs.
Mæðradagurinn. — Sunnudagurinn
.19. maí er Mæðradagurinn. Þá
verða seld blóm á götum bæjarins.
Ennnfremur selur Blómabúð KEA
afskorin blóm til styrktar málefn-
inu frá kl. 10—14. Vinsamlegast
styrkið starfið með því að kaupa
mæðrablómin. - Mæðrastyrksnefnd
Akureyrar.
Stuðningsmenn Alþýðubandaiagsins.-
Hafið samband við kosningaskrif-
stofuna í Strandgötu 7 og veitið
allar þær upplýsingar, er að gagni
mega koma í kosningabaráttunni.
Athugið um, að þeir, sem ekki
verða heima á kjördag, kjósi áður
en þeir fara úr bænum.
Kvenfélag Akureyrarkirkju heldur
aðalfund sinn miðvikudaginn 22.
maí kl. 8,30 í kirkjukapellunni. -
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi og
skemmtiatriði að loknum fundar-
störfum. Félagskonur fjölmennið á
25 aðalfund félagsins. Nýir félagar
velkomnir. — Stjórnin.
^ermingarbörn í Lögmannshliðar-
kirkju sunnudaginn 19. mai
kl. 10.30 f. h.
Drengir:
Eyþór Gunnarsson, Steinkoti.
^riðrik Árni Friðriksson, Kollugerði II.
Jósep Sigurjónsson, Ási.
Sigurður Gíslason, Lögmannshlíð 21.
S'gurður Hinrik Hjörleifsson, Lynghóli
Sverrir Hallgrímur Sveinsson, Banda-
gerði II.
Stúlkur:
Ánna Jóhanna Guðmundsdóttir,
Hjarðarholti.
Gyða Vilborg Jóhannesdóttir, Stíflu.
S'gríður Ása Harðardóttir, Melgerði.
Svala Sigurðardóttir, Ásláksstöðum.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar-
fcr
Oddnýjar Hjartardóítur,
Norðurgötu 41.
Vandamenn.
ATVINNA
Vantar menn ti! starfa á smurstöð vorri
nú þegar.
ÞÓRSHAMAR H.F. — SÍMI 2700
CIUCCATJAIDAEÍHI
„ D I O L E N "
með pífum,
n ý k o m i ð
Vefnaðarvörudeild
Ámi bvirtir undan ihaldiau
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar á þriðjudaginn flutti Árni
Jónsson að venju flestar og lengst-
ar ræður. í eitt skiptið kvaðst
hann hafa staðið á fætur „til að
vekja eftirtekt á, hve lítið bærinn
leggur til gatnagerðar". Fór hann
um þetta mörgum orðum og ræddi
málið ýtarlega, m. a. benti hann
réttilega á, að af 40 km. götulengd
Akureyrar eru aðeins 3 km. mal-
bikaðir og nær ekkert hefur verið
malbikað um árabil. Sagði Árni
þetta ekki geta gengið lengur.
Ymsir bæjarfulltrúar urðu til
að taka undir þetta með Árna og
bæjarstjóri upplýsti, að með sama
áframhaldi myndi varla taka
skemmri iíma en mannsaldur að
fullgera þær götur, sem þegar eru
til.
En svo gerðist það, að Ingólfur
Árnason spurði Árna, hvernig á
því stæði, að hann eða þeír íhalds-
mennirnir hefðu ekki flutt tillögu
um aukna fjárveitingu til gatna-
gerðar, þegar fj árhagsáætlun bæj-
arins var til umræðu í vetur, eða
hvernig stæði á því, að þeir hefðu
oft lagzt gegn slíkum tillögum,
þegar þær hefðu verið fluttar.
Árni stóð þá upp aftur og
kvaðst oft hafa talað um það við
sína menn, að þetta þyrfti að
hækka og 1961 hefði hann lagt til
við þá, að þeir beittu sér fyrir 10
ára áætlun um gatnagerð í bæn-
um. En Árni hafði bara ekki feng-
ið þessu framgengt í íhaldshópn-
um. Þeir vildu ekki hækkun. Þeir
vildu ekki áætlun. Það var bara
Árni sem vildi. Og hann rak sig
illa á íhaldssemi íhaldsins. En
kannski verða þeir eitthvað skárri
viðureignar næst, fyrst Árni er
farinn að kvarta undan þeim op-
inberlega. Og a. m. k. ætti að vera
tryggt, að hér eftir leggist Árni
ekki gegn auknum framlögum til
gatnagerðar.
Erf rétt er um leið að geta þess,
að jafnframt því, sem Árni vildi
hækka framlög bæjarins, talaði
hann um að taka yrði gjöld til
gatnagerðar af þeim, sem fá lóðir
til að byggja. En óþokkalegur
skattur yrði það, ef íhaldið fengi
því framgengt, að hver, sem bygg-
ir sér íbúð, verði fyrst að greiða
svo sem 50 þúsund krónur í gatna-
gerðargjald til bæjarins. Það er
nauðsynlegt að yera vel á verði
gegn því, að íhaldinu takizt sú
fyrirætlun sín. Nógir eru erfið-
leikar húsbyggjenda samt.
Rit send blaðinu
Sjómannablaðið Víkingur, 4.
tbl. 1963. Vandað, fjölbreytt. M.
a.: Flýtur meðan ekki sekkur. —
Slysavika á sjó og lofti. Sjóslysin.
Upphaf vélvæðingar í Vestmanna-
eyjum. Herferðir og landafundir
víkinganna. Hvernig fáum við
fleiri vélstjóra. Svipmyndir úr
starfi vitaskipsins Árvaks. Meira
rabb. Spjall um Radar. S. 0. S.
Framhaldss. Hrakningar í Norð-
ur-íshafinu. Athyglisvert skóla-
skip. ísbrjótarnir og þróun þeirra.
Frívaktin o. fl. — Gott rit Víking-
ur.
Ægir. 1. maí flytur m. a.: Út-
gerð og aflabrögð. Á línuveiðum
við Grænland eftir Rasmus Er-
vik. Skýrsla um vítamínsinnihald
í norskum fiski og fiskiafurðum.
Erlendar fréttir.
Heima er bezt, maí-hefti: Frjáls
hugsun eftir ritstj. Guðmundur
Benediktsson skrifar um Júlíus
bónda í Garpsdal. Svipleiftur af
söguspjöldum framh. Ljóð eftir
Hallgrím frá Ljárskógum. ísöld
og gróður eftir Steindór Steindórs
son. Mála Davíð eftir Sigurð
Bj örnsson. Frá Norðuthjara fram-
h. eftir Jón Sigurðsson. Menn,
sem ég man, eftir Stefán Jónsson.
Dægurlagatextar og ljóð. Fram-
haldssögurnar. Bókahillan o. m.
fl. — Forsíðumynd er af Júlíusi
Björnssyni í Garpsdal.
NýiR Ævextir
APPELSÍNUR Jaffa
EPLI argentísk, ný uppskera.
SÍTRÓNUR Sunkist
Nýlenduvörudeild og útibú
Prentum
BÆKUR
BLÖÐ
TÍMARIT
Hvers kenar
SMÁPRENT
LITPRENTUN
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.f.
Sími 1024.
TIL SÖLU
Vegna brottflutnings verða
ýmsir munir til sölu næstu
daga, t. d. þvottavél (Hoover),
hitari, skápar, þvottabalar
eldhúsborð með 6 kollum,
útvarpsgrammofónn
og margt fleira.
BJÖRN GRÍMSSON
Aðálstræti 17. Sími 2534
Verkamaðurinn
Vikublað. — Útgefendur: Sósíalista-
félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
götu 5, Akureyri, simi 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og
Kristján Einarsson frá Djúpalæk. — Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. —
Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. — Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. —
Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f., Akureyri.
BÚSÁHOLD
Kökukefli
Rjómasprautur
Hitabrúsar
Buffhamrar
Kaffibox
Þvottabalar,
3 stærðir
Bollapör
Búrvogir
Dósahnífar
Nestisbox
HAFNARBÚÐIN
Skipogötu. Sími 1094.
Plíseruð
pils
margir nýir litir
Verzl. Ásbyrgi h.f.
töstudagur 17. maí 1963
Verkamoðurinn — (7