Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 19.05.1963, Qupperneq 8

Verkamaðurinn - 19.05.1963, Qupperneq 8
Hjörtur'ekki ú ping Verkamaðurinn SAGT OG SKRIFAÐ Þegar Brennu-Flosi flúði frá Al- þingi til vígis í Almannagjá, stóð Snorri goði þar fyrir honum meS fylktu iiði. Flosi spurði, hvers vegna sér væri varnað vígisins. Snorri kvaðst ekki vera þess vald- andi, heldur væru það menn í iiði Flosa sjálfs. Snorri átti við það, að þeir menn, er hefðu slæman máistað og sekir væru við þjóð sína og þjóðfélag, ættu ekki rétt á að njóta vígis í Almannagjá á flótta sínum af Alþingi. Framsóknarflokkurinn getur ekki unnið neinn stórsigur í kosn- ingum að þessu sinni, gott, ef hann tapar ekki. Þetta er ekki vegna þess, að hann eigi ósigur skihð í stríði sínu við „Viðreisn- ar“-flokkana, heldur vegna þess, að hann er tvískiptur og óheill í baráttu sinni. Hann vill engar yf- irlýsingar gefa um það, hvort hann ætlar að vinna með „Við- reisnar“-flokkunum eða til vinstri eftir kosningar. Þetta er af tvennu: hann er óheill og gerir sér ekki von um meira en það að mega mynda stjórn með „Sjálfstæðis“- flokknum eftir kosningar, og fá það, er hann kallar „stöðvunar- vald“ í „Viðreisninni14 og um að- ild að Efnahagsbandalaginu. I herstöðvarmálinu hyggst hann ekki gerar neinar kröfur á hend- ur „Sjálfstæðis“-flokknum. — Þetta vita „Sj álfstæðismenn" til fullrar hlítar. Þeir segja að vísu, að þeir taki alls ekki Eystein og Hermann í stjórn, en hitt má hver sem vill hjá þeim heyra, að þeir geti vel hugsað sér að taka Olaf Jóhannesson og Jón Skaftason. Þeir myndu líka þiggja Ingvar Gíslason, ef hann hefði traust Framsóknarmanna, en því trúa þeir, að þess njóti hann ekki, þó að forframaður sé í Nató. Þetta veldur því, að Þjóðvarn- armenn greiða ekki veg Framsókn arflokksins til vígis í Almannagjá í kosningunum í vor. Þeir hafa líka allt annað en góða reynslu af Framsóknarflokknum. Fyrir kosn- ingarnar 1959 beittist Framsókn- arflokkurinn fyrir því á Alþingi, að „hervarnar“-samningnum við Bandaríkjamenn væri sagt upp og fyrir það veittu margir þeirra Framsóknarflokknum stuðning í þeim kosningum. Eftir kosning- arnar þá fól Framsóknarflokkur- inn Guðmundi I. utanríkismálin ♦-----------------------------<» VÍSA VIKUNNAR Þeir hafo lótið nótt sem nam, nú er dýr hver skúti. Viðreisnar í veðraham verður margur úti. K. S. 4-----------------------------4 til að ómerkja uppsögn „hervarn- ar“-samningsins og gera hana að engu. Framsóknarflokkurinn hef- ur reynt að láta svo sýnast, að hann vildi þvo hendur sínar af þessu, en hann hefur ekki svo mik- ið sem reynt að þvo þær, er til al- vörunnar hefur komið, enda ber hann ábyrgð á hvoru tveggja ráð- herravaldi Guðmundar í í utan- ríkismálum og stefnu þeirri, er hann hefur haldið. Enn er Fram- sóknarflokkurinn sama sinnis í herstöðvarmálinu. Um það ber samþykkt hans á nýloknu flokks- þingi ótvírætt vitni. „I samræmi við þá stefnu, sem lýst var yfir, þegar varnarsamn- ingurinn var gerður, vill Fram- sóknarflokkurinn vinna að því, að varnarliðið hverfi úr landi, svo fljótt sem auðið er, og leggur jafnframt á það áherzlu, að það er á valdi íslendinga sjálfra, hvort hér dvelur varnarlið og hvernig vörnum landsins er fyrir komið“. í samþykkt þessari hljómar fyrst bergmálið af blekkingum Sj álfstæðisflokksins að kalla her- setu Bandaríkjamanna „her- vernd“, þó að af henni stafi ein- vörðungu siðferðilegur háski og lífsháski íslenzku þjóðarinnar. Þar á eftir kemur á Framsóknar- blekkingarvoð yfirlýsing um það, að eins og herinn hefur að þarf- lausu en til siðferðilegs tjóns fyr- ir þjóðina okkar setið hér í 12 ár samfleytt í trausti þess, að hann „hverfi úr landi svo fljótt sem auð ið er“, skuli hann og sitja hér á- fram, meðan Framsóknarflokkur- inn leggur á það áherzlu, að það sé á valdi íslendinga sjálfra, hvort hér dvelur „varnarlið“, — og að flokkurinn vill ekki að „varnarlið- ið“ fari, heldur vill hann aðeins lýsa því yfir, að hann vilji, að það geti farið, ef íslendingar vilja, en að það fari ekki Það er vegna þessa tvískinnungs og óheilinda Framsóknarflokks- ins, að Þjóðvarnarmenn kjósa ekki Hjört Eldjárn á þing, þó að hann hafi eitt sinn verið Þjóðvarn armaður, fyrst hann hefur geng- ið í Framsóknarflokkinn undir stjórn þess flokks og aga, eins og Dagur skýrði frá 13. febr. í vet- ur. Þjóðvarnarmenn trúa því enn, að Hjörtur sé hjartagóður dreng- ur, þó að Framsóknarflokkurinn hafi ginnt hann inn í sína Dofra- höll og bundið á hann gyllt skott og sýni honum þá óvirðingu að vilja nota hann sem sinn smala- hund á Þjóðvárnarmenn á austan- verðu Norðurlandi. En Þjóðvarn- armenn eiga sinn vilja og sína stefnu og vilja ekki kjósa Hjört sem sinn fulltrúa eftir að hann hef- ur gengið Framsóknarflokknum á hönd og látið þann flokk binda' á sig hið gyllta skottið. Þess vegna kemst hann ekki á þing að þessu sinni nema vegna andláts Karls, Gísla eða Ingvars, en svo kald- rifjaðir eru Þjóðvarnarmenn ekki, að þeir óski andláts þeirra góðu manna, þó að þeir deili ekki við Drottin, ef hann vill kalla þá. Þjóðvarnarmenn hafa við þess- ar kosningar skipað sér í fylkingu með Alþýðubandalagsmönnum. Það er ekki af fjandskap við Framsóknarflokkinn, heldur til að reyna að vernda hann fyrir því að ganga í ríkisstjórn með Sjálf- stæðisflokknum og skapa honum úrkosti lil að stjórna landinu í viijstri samvinnu. Ef Alþýðubanda laginu vegnar svo vel við þessar kosningár að það og Framsókn- arflokkurinn nái meiri hluta á Al- þingi, mun það hiklaust bjóða Framsóknarflokknum samvinnu um ríkisstjórn. En ef eigi tekst svo vel, að slíkur meiri hluti náist, gerir Þjóðvarnarflokkurinn sér þó vonir um að geta magnað Alþýðu- bandalagið svo, að verðið á Fram- sóknarflokknum hækki ofurlítið, þegar Sjálfstæðisflokkurinn fer að bjóða í hann. Arnór Sigurjónsson. Frd TóiÉtorléldsi Ahureyror Það er nú ákveðið, að einn af frægustu orgelleikurum Ameríku leiki á orgel Akureyrarkirkju fyr- ir áskrifendur Tónlistarfélagsins og aðra, sem hug hafa á að hlýða á þennan konsert, sunnudaginn 19. maí kl. 9 e. h. Þá hefur og rætst úr með kon- sert Sigurveigar Hjaltested, sem frestað var vegna veikinda henn- ar. Hann verður i Borgarbíói laug ardaginn 25. maí kl,- 5 síðd. Aðgöngumiðar að báðum þess- um konsertum eru sendir út þessa dagana gegn greiðslu hálfs ár- gjaldsins eða alls og eru áskrif- endur vinsamlegast beðnir að greiða fljótt og vel sendimannin- um. Hægt er að bæta við nokkrum áskrifendum og eru menn beðnir að snúa sér í því tilefni til gjald- kerans, Haralds Sigurgeirssonar. Þar sem húsrúm er mjög takmark- að, ættu þeir, sem áhuga hafa ekki að draga það að tryggja sér fé- lagsréttindi. Samningar standa til með mjög góða listamenn næsta haust og ó- væntir atburðir geta fært okkur heimsfræga listamenn fyrr eða síð ar. Að því verður unnið nú í til- efni af 20 ára afmæli félagsins. Minningaspjöld Sjálfsbjargar fást í Véla- og raftækjasölunni, Járn og gler- vörudeild KEA og bókabúð Jónasar Jóhannssonar, Brekkugötu 3. STJ ÓRN MÁLA FLOKKA RNIR keppast við þessa dagana að halda fundi víðs vegar um kjördœmið og reyndar um land allt. Alþýðu- maðurinn segir í síðasta blaði frá þremur fundum, sem þeir krat arnir hafa haldið að undanförnu: í Húsavík, á Akureyri og Dalvík. Ekki getur Alþm. um fjölda fund- armanna á hverjum stað, en segir í lokin, að alls hafi sótt „fundina og flokkskaffin á 4. hundrað manns“. Hið sanna er, að fundinn í Húsavík sóttu 34, fundinn á Ak- ureyri 109, og á Dalvík komst tala fundarmanna í 60. (Á meðan Friðjón Skarphéðinsson talaði héldust þó aðeins 20 manns við í fundarsalnum). Samanlagt gera töiur þessar 203. Þá skakkar a. m. k. hundrað miðað við tölu Alþm., en sennilega bœtir hann við þeim, sem fengu sér kaffi á eftir. Mega kratar vel við una með an þeir þurfa ekki nema að tví- telja hausa sína til að fá út sœmi- lega tölu. Eftir kosningar er hætt llunt og dátar hans Hinn 27. þessa mánaðar klukk- an 11.30 að morgni verður opnuð í Lundúnaborg alþjóðleg sýning helguð fiskveiðum og fiskiðnaði. Sýninguna opnar frú Tweedsmuir þingmaður frá Aberdeen, en heið- ursvörð við opnunina standa liðs- foringjar og óbreyttir hermenn af H. M. S. Palliser, undir stjórn Hunts sjóliðsforingja, en hið drottningarlega fiskveiðiverndar- skip verður einmitt um þetta leyti í heimsókn í höfuðborg Bretaveld- is. Heyrzt hefur, að allmargt fyrir- manna á íslandi muni sækja þessa sýningu. Það verður ánægjulegt fyrir þá að ganga fram hjá Hunt sjóliðsforingja og dátum hans við opnun sýningarinnar. _____-u við, að þeim dugi ekki minna en að þrítelja. SAGT ER, að miklar þrenging- ar séu nú hjá „óskabarni“ íhalds- ins við Gránufélagsgötuna, Kjör- veri. Til þessa hafa íháldsforkólf- arnir haldið því fram, að þeir kynnu öðrum betur að reka verzl- un og hvers konar viðskipti. Svo virðist, sem þeir séu nú sjálfir að afsanna þessa kenningu sína, enda hefur almenningi í bœnum lengi virzt íhaldið hér duga bezt við rekstur á „sjoppum“ og sölu- turnum. Áhugi þeirra fyrir slíkum fyrirtœkjum kom líka greinilega í Ijós í sambandi við „sjoppu“- lokunina í vetur. Og vel mun ganga reksturinn á T urninum hans Odds. SPAUGILEGT er að lesa í stjórnarblöðunum þessa dagana skrif þeirra um landhelgismál og baráttu þá, sem háð var fyrir út- fœrslu landhelginnar í 12 mílur. Stjórnarblöðunum ber saman um, að sigurinn í landhelgismálinU hafi ekki verið sá, að það tókst að fœra landhelgina út, heldur hafi afsláttarsamningurinn við Breta, þegar þeim var aftur hleypt inn fyrir línuna, verið aðalsigur- inn. Skrítnir eru kýrhausar! „ ... ég efa, að nokkurn tímu í sögunni hafi verið eins gott að vinna fyrir Alþýðufl. og einmitt nú“. Þannig fórust Guðmundi Ha- konarsyni orð í lok rœðu sinnar a kratafundinum á Akureyri a sunnudaginn. Nœsti rœðumaður a eftir var Friðjón Skarphéðinsson• Hann hóf rœðu sína á því að kvarta undan, að krataflokkurinn vœri minnsti flokkurinn hér a landi, en á Norðurlöndunum vcen hann yfirleitt stœrsti flokkurinn• Þótti Friðjóni þetta undarlegt og Guðmundur Hákonarson skddi það alls ekki. Enda varla von. Orðsending til stuðningsmanna Alþýðubandalagsins Vinsamlegast gefið upp til kosningaskrifstof- unnar í Verkalýðshúsinu, Strandgötu 7, Akur- eyri, ef ykkur er kunnugt um kjósendur Alþýðu- bandalagsins, sem dvelja utanbæjar og ekki er öruggt, að verði heima á kjördegi. Sími skrif- stofunnar er 2965.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.