Verkamaðurinn - 09.08.1963, Page 7
AMERÍSKU
ILIIE BEIL VIHHUFÖTIH
margeftirspuðu komin aftur.
Frabær gæði eins og allir þekkja.
NÝKOMIÐ
SÓFASETT, 2 gerðir
STAKIR STÓLAR
SVEFNBEKKIR, 1 og 2 metra
BORÐSTOFUSTÓLAR
SKRIFBORÐSSTÓLAR
SAUMAKASSAR
SNYRTIKOMMÓÐURNAR
margeftirspurðu o. m. fl.
AXMINSTER GÓLFTEPPI, 50 mynstur
Allt fró Gluggum.
GLUGGAR h. f.
Kynnið yður verð og greiðsluskilmóla
SKRJÁF
í SKRÆÐUM
EITT sinn var verið að draga seðla
um húsdýr á tombólu, var þá hróp-
að upp: „Nr. 13 — feitt svín“. —
Þá gellur við digur slátrarakona:
„Það er ég“. —
RIMMAN var hroðaleg, orrustan
hörð, og Jónas bóndi skriðinn und-
ir lausarúmið.
„Komdu fram undan rúminu, svín
ið þitt, raggeitin, lyddan, ef þú
þorir“, öskraði konan á gólfinu
með rúmfjölina reidda.
„Nei, kerla mín, ekki gjöri ég það
fyrr en mér sýnist, ég ætla að sýna
þér það, að ég er húsbóndi á mínu
heimili, og læt ekki ógna mér til
að gjöra annað en ég sjálfur vil“,
anzaði bóndi.
UR gamalli hjónavígsluræðu, þegar
laggari giftist:
„Ég er enginn beykir, en guð er
góður beykir, þess vegna bið ég
hann að reka á ykkur botngjörð,
elskurnar, með hamri tryggðarinn-
ar og drifholti heilags anda. —
Amen“.
„ÞAÐ er nú eins og annað núna“,
mælti karl nokkur, „að allir góðir
siðir eru aflagðir. Nú er aldrei rif-
ist við kirkju. Oðruvísi var það í
mínu ungdæmi, þá bar margur blátt
auga og brotið nef frá kirkju
sinni“.
„NÝTT er mér þetta“, kvað karl
einn, „að mér sé borin óráðvendni
til handanna. Það var, ef ég man
rétt, einu sinni í fýrra, tvisvar ár-
ið þar áður, þrisvar hitt árið, einu
sinni enn og svo núna, og nýtt er
mér þetta“.
EITT sinn þjónustaði prestur kerl-
ingu. En er því var lokið, biður
hún hann að gefa sér tóbak upp í
sig. Prestur gjörði það. Kerling-
unni þótti vænt um og mælti: —
„Þetta var nú góður viðbætir, prest
ur minn“.
KERLINGAR tvær áttu einu sinni
tal saman, höfðu þær lengi lifað á
vergangi og víða farið.
Nú var önnur orðin svo hrum, að
hún gat ekki flakkað lengur og hugð
ist mundi eiga skainmt eftir ólif-
að. Hin var ernari og bjóst til
ferða. Ráðgerði hún að kanna á
ferð þeirri ókunna stigu. En er hin
heyrði það, segir hún: „Blessuð
mín, ef þú kannt að koma í himna-
ríki, þá skilaðu kveðju minni til
hennar Sankti Máríu og segðu henni
að ég sé nú orðin mesti aumingi
og hefði verið nær henni, hefði ég
beðið hana að gefa mér smjörklípu
í munninn eða tóbakslauf í nösina“.
»Nei, hættu“, segir hin. „Það er
ekki neitt á það að ætla, að ég
komi þangað, ég kann að fara þar
annað hvort fyrir ofan garð eða
neðan“.
ÞAÐ er sögn, að Bjarni sýslumaður
Oddsson á Burstafelli (f. 1585, d.
1664) stæði eitt sinn að greftri þar
í kirkjugarðinum. Komu þar upp
úr gröfinni mannsbein furðu mikil
og mældi Bjarni legg af þeim við
sig og tók hann honum undir mitt
læri, var Bjarni þó kallaður manna
mestur að vexti á sinni tíð.
Um nóttina dreymdi Bjarna, að
honum þótti maður að sér koma og
mæla svo: „Þú mt&ldir bein mín í
dag, nafni, og skaltu vita, að ég
þótti maður á minni tíð, sem þú á
þinni“. En Bjarni Oddsson þótti
hið mesta afarmenni og afbragð ann
arra manna að burðum.
Það ætluðu menn, að þetta hefði
verið Víga-Bjarni Brodd-Helgason.
Qctum við orðið
200 ára?
Prófessor Boris Goldstein í
Kiev, vinnur að því að rannsaka
möguleika manna til að ná háum
aldri, og hann kemst að þeirri nið-
urstöðu, að ekkert mæli á móti
því að maðurinn geti orðið 150
ára jafnvel 200.
Það er enginn eldri en honum
finnst hann vera, segir máltæki.
Þetta er að vísu ekki rétt, segir
prófessorinn, en lífsgleðin er þó
einhver bezta trygging fyrir löngu
og farsælu lífi.
Batnandi lífskjör er ein helzta
trygging fyrir hækkandi meðal-
aldri þjóðfélagsþegna, t. d. segir,
að í Sovétríkjunum hafi meðal-
aldur hækkað hvorki meira né
minna en úr 32 árum 1917 og upp
í 69 ár nú.
Aukin, efnarík fæða og betri
aðbúnaður í klæðum og híbýla-
kosti hjálpa til að auka viðnáms-
þol líkamans. En rannsóknir allar
sýna, að ofát er ein mesta hættan,
og leiðir af sér hrörnun og dauða
fyrir aldur fram. Það mun hafa
komið í ljós, að eftir því sem mað-
urinn eldist, því ver gengur líkama
hans að nýta ýms vítamín og meir
að segja eru þau talin óholl öld-
ungum.
Lífshættulegt er fyrir mann að
setjast í helgan stein. Það kemur
hvarvetna í Ijós, að þar sem menn
hætta störfum m. a. vegna aldurs-
takmarkana við ýms störf, leiðir
það af sér óeðlilega líkamshrörn-
un. Það er eins og hver einstök
sella líkamans leggi árar í bát og
telji sig ekki framar hafa skyldum
að gegna. í „menningarþjóðfélög-
um“ er þetta eitt af vandamálum,
sem leysa verður. Það er að kasta
verðmætum á glæ að senda heim
mann á aldurskeiðinu 60—70 ára,
þótt hann kunni þá að hafa rnisst
eitthvað af þeim viðbragðsflýti og
snerpu, sem aukin notkun marg-
brotinna véla krefst. Honum verð-
ur því að sjá fyrir starfi, sem hæf-
ir hans möguleikum.
I fjallaþorpum Kákasíu verða
bændur og landbúnaðarverkafólk
allt frá 100—150 ára, og halda
margir fullu vinnuþoli fram á þau
„elliár“. Þótt ýms skilyrði til slíks
langlífis sé þar góð, er engin á-
stæða til þess að menn snúi upp
tánum á miðjum aldri, eða um
sjötugt, annars staðar.
Hin mikla rannsóknarstofnun í
Kiev vinnur, ásamt samskonar
Kringsjá
vikunnar
Messaíf verður í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 10.30 f. h. Sálmar 528 —
310 — 317 — 314 — 17. B. S.
St. Georgs-gildið 12 — 8 —
’63 kl. 9 e. h. Hótel K.E.A.
Brúðhjón: Hinn 13. júlí voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Ingibjörg
Árnadóttir stúdent og Hrafn Bragason
stud. jur. Heimili þeirra verður að
Bjarkarstíg 7 Akureyri. Systrabrúð-
kaup: 28. júlí voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju ungfrú
Gunnhildur Jóhannesdóttir Wahle
hjúkrunarnemi og Alfreð Oskar Al-
freðsson lögregluþjónn, og ungfrú
Helga Sigurbjörg Jóhannesdóttir Wahle
starfsst. og Kristinn Eðvarð Haralds-
son matreiðslunemi. Heimili beggja
brúðhjónanna verður að Grænumýri 13
Akureyri. Hinn 3. ágúst voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Anna Mar-
grét Tryggvadóttir símastúlka og
Kristján Óðinn Valdimarsson prent-
nemi. Heimili þeirra verður að Ham-
arsstíg 16, Akureyri.
FerðafélagiS. Þessar ferðir eru eftir
af sumaráætluninni: Sunnudaginn 11.
ágúst: Leyningshólar — Villingadalur.
Sunnudaginn 18. ágúst: Hraunsvatn.
Ekið á bílum að Hrauni og gengið
þaðan upp að vatni. 24.-25. ágúst:
Berjaferð.
RÁÐNINGAR
ó gótum ó bls. 3.
1. Eldspýtan.
2. Penninn, vísast fjaðropenni.
3. Litur og Skuggi.
4. Rokkurinn.
5. Kambarnir.
Léreftstuskur
hreinar og góðar
kaupum við hæsta verði.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar k.f.
stofnunum víða um heim, að því
verkefni að finna leiðir til þess,
að maðurinn geti haldið lífsorku
sinni sem lengst og notið þess að
vera þátttakandi í framþróun
mannkynsins á jörðinni. Allt
bendir til að slík starfsemi muni
bera ríkulegan ávöxt.
Endursagt.
Vikublað. — Útgefendur: Sósíalista-
félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
götu 5, Akureyri, sími 1516. — Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og
Kristján Einarsson frá Djúpalæk. — Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. —
Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. — Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. —
Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f., Akureyri.
Verkamaðurinn
^“studagur 9. ógúst 1963
Verkamaðurinn (7