Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 09.08.1963, Qupperneq 8

Verkamaðurinn - 09.08.1963, Qupperneq 8
Kirkjuhvoll. — Minjasafnið á Akureyri. MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI Minjasafnið á Akureyri var formlega opnað 17. júlí s.l. að við- staddri bæjarstjórn, sýslunefnd og öðrum „aðstandendum", ásamt nokkrum gestum, sem mest hafa borið velgengni þess fyrir brjósti. Ber þar fyrstan að nefna þjóð- rninjavörð, Kristján Eldjárn, er flutti þarna vinsamlega ræðu og lýsti ánægj u sinni yfir því, sem hér væri að gerast. Sveinbjörn Jónsson færði safninu árnaðarósk- ir og enn loforð um góðan grip. Hann hefur verið því betri en ekki. Eyfirðingafélagið í Reykjavík sýndi áhuga og fórnarlund með fjárframlagi, einnig Snorri Sig- fússon f.v. skólastjóri sendi pen- ingagjöf og sýndi enn hug sinn til safnsins. Þarna kom og Ragnar Asgeirsson, ötull vinur slíkra stofnana, og mætti enn telja góða gesti og gjafir, að auki óskir um heillir. Jópas Kristjánsson sam- lagsstjóri, formaður safnstj órnar, og eiginlegur fósturfaðir Minja- safnsins, stýrði þessu hófi og ræddi fortíð þess og framtíð. Við- staddir skoðuðu svo safnið, undir stjórn safnvarðar, Þórðar Frið- bjarnarsonar, og er það almæli að Þórður hafi unnið alveg sér- staklega mikið og gott starf á þess- um undirbúningstíma. Hann er smekkvís og handlaginn, og sem mestu varðar, fullur áhuga á mál- efninu. Munir eru nú nær 2000. Kirkjuhvoll, hús safnsins, er fögur bygging í dýrðlegum reit gróðurs og hlýinda. Kjallari og miðhæð húsins geyma hið eigin- Jega minjasafn, þ. e. hina gömlu .nuni, sem safnað hefur verið úr ♦—--------------------------- VÍSA VIKUNNAR Kyssti meyja mig í Eyjafirði. Þó varð fegið þeffa grey, þegar ég eigi sagði nei. x. byggð og bæ. Á efstu hæð hefur verið komið fyrir Sögusafni Akur- eyrar, sem vonandi mun þar auka sig og sögu sína samkvæmt eðli og tilgangi sínum. Þess má geta, að á miðhæðinni er ofurlítið her- bergi, Sólstofa, þar sem safngest- ir geta tyllt sér niður. Fyrir glugg- um hennar eru heimaofin forláta gluggatjöld, sem Kvenfélagið Ald- an í Ongulstaðahreppi lét gera og gaf safninu. Því bera beztu þakk- ir. Minjasafninu ber að fagna. Það er mikill menningarauki í bæn- um. Hver hlutur þar er helgaður af anda liðinna kynslóða og arfi kynslóðanna má ekki glata. Það er heilög skylda þeirralf sem eiga Hinn fimmta dag júlímánaðar var opnað nýtt veitinga- og sam- komuhús á Akureyri, Sjálfstæðis- húsið. Stendur það á horni Geisla- götu og Gránfélagsgötu og er hin myndarlegasta bygging. Húsa- kynni eru einnig vistleg innan og samkomusalur rúmgóður, eftir því, sem Akureyringar hafa átt að venj ast. Eigandi hússins er Akur h.f., en stjórnarformaður þar er Eyþór H. Tómasson. Framkvæmdastjóri hússins er Þórður Gunnarsson, en veitingamaður Sigurður Sigurðs- son. Samkomusalurinn, ásamt vín- bar og eldhúsi er á annarri hæð hússins, en á efstu hæðinni verður lítill fundasalur ásamt skrifstofu- herbergjum. Inngangur og for- stofa er vestast á neðstu hæð, en meginhluti þeirrar hæðar er nú ónotaður eða allt það húsnæði, sem hin fræga verzlun Kjörver hafði til umráða. Hús þetta er sem stendur glæsi- legasta samkomuhús bæjarins og bætir verulega úr þeim skorti á húsnæði til sarakomuhalds, sem "*lengi hefur verið hér í bæ. Rekstr- eða vita af gömlum munum að koma þeim á minjasafn, nema þeir sjálfir geti ekki af þeim séð vegna tengsla við munina og ábyrgist þá varðveizlu þeirra til þess tíma, er engan varðar um þá lengur í þeim stað, sem þeir eru helgir nú. Safnið er góð viðbót við það, sem fyrir var í bænum, gestum og gangandi til fróðleiks og yndis- auka. Safnið er opið alla daga frá 2—4, utan mánudaga og er að- sókn mikil, því margt ferðafólk er í bænum á þessum sumarmánuð- um. Þessari stofnun óskum við allra heilla. argrundvöllur samkomuhúsa sem þessa mun þó ekki of öruggur, en eigendur þessa húss munu byggja allar afkomuvor.ir á áfengissölu. Svo mikið lá á að fá leyfi til dag- legrar áfengissölu í húsinu, að aukafundur var haldinn í bæjar- stjórn Akureyrar til að gefa með- mæli með slíku leyfi húsinu til handa. Er það út af fyrir sig hneyksli, að bæjarstjórn skyldi láta hafa sig til slíks, því að ekki er hún alltaf öf viðbragðssnör, þegar meira áríðandi mál éru á döfinni en opnun nýrrar brenni- vínsútsölu. Og skömmin af þessu máli er öll bæjarstjórnarinnar, því að eigendum hússins, sem ætla að byggja afkomu þess á brenni- vínssölu, var vissulega ekki láandi þótt þeir sæktu fast að fá leyfi t.il sölunnar. íbúð óskast frá . 1. okt. Prerttsmiðja Björns Jónssonar Sími 1024. iamkomnhns Verkamaðurinn Shipolflgssamheppnin Kunngerð hafa verið úrslit í verðlaunakeppni þeirri um hug- myndir að skipulagi miðbæjar Akureyrar, sem ákveðið var á hundr- að ára afmæli bæjarins að efna til. Alls bárust 15 uppdrættir og eru þeir þessa dagana til sýnis í Gagnfræðaskólanum. Dómnefndin varð sammála um að veita fyrstu verðlaun arkitekt- unum Gunnlaugi Halldórssyni og Manfreð Yilhjálmssyni fyrir þeirra tillögu. Önnur verðlaun hlutu Helgi Hjálmarsson cand. arch. og Haukur Viktorsson stud. arch. En þriðju verðlaun Sigurður Thor- oddsen stud. arch. Fyrstu verðlaun voru 100 þúsund krónur, önnur 50 þúsund og þriðju 25 þúsund. Auk verðlaunauppdráttanna voru keyptir tveir uppdrættir, annar fyrir 15 þúsund krónur, en hinn fyrir 10 þúsund. I dómnefndinni áttu sæti: Zophonías Pálsson skipulagsstjóri, skip- aður af skipulagsnefnd ríkisins, Stefán Stefánsson bæjarverkfræð- ingur og Stefán Reykjalín bæjarfulltrúi, skipaðir af Akureyrarbæ og arkitektarnir Gunnlaugur Pálsson og Bárður Isleifsson, skipaðir af Arkitektafélagi íslands. Blsiðamenn dagblaðanna í Reykjavík hafa verið í verkfalli frá mánaðamót- um, og er almennt gert ráð fyrir, að verkfallið standi svo sem hálf- an mánuð ennþá meðan prentar- ar eru að Ijúka sumarleyfum sín- um. Telja blöðin sér ekki hag- kvæmt að semja fyrr en prent- smiðjurnar geta aftur unnið af fullum krafti. Verkfallið nær ekki til viku- blaðanna almennt, þar sem Blaða- mannafélagið hefur að undan- förnu útilokað aðra en blaða- menn dagblaðanna frá inngöngu í félagið. Nýr prestur í Húsavík Prestkosning fór fram í Húsa- vik í tyrra manuöi, en llusviking- ar eru nu larmr aö íá nokkra æi- mgu í slikum kosninguin. Umsækjendur voru tveir, sr. Björn H. Jónsson áður prestur í Arnesi á Ströndum, Skagtirðingur að ætt, og cand. theol. Hreinn Hjartarson, Snæfeliingur. Kosning varð eigi iögmæt. Sr. Björn fékk 245 atkvæði, en Hreinn 134. Mun biskup hafa mælt með því við kirkjumálaráðuneytið, að sr. Birni verði veitt embættið. Umferðobrot og óhöpp Samkvæmt upplýsingum bæjar fógetaembættisins í gær hafði það í júlímánuði og það sem af er ágúst alls fengið til meðferð- ar skýrslur um 43 bifreiðaárekstra og 4 vegna útafaksturs. — Á sama tíma höfðu 4 ökumenn ver- ið teknir fyrir ölvun við akstur og 10 fyrir of hraðan akstur. N ÝTT S K I P Nýtt stálskip bættist í flota Dal- víkinga um miðjan júlí. Nefnist það Loftur Baldvinsson, EA 124, en aðaleigandi er Aðalsteinn Loftsson útgerðarmaður. Skip þetta er 225 tonn að stærð, byggt í Noregi. Lister-vél, 660 hestafla. Ganghraði 11.7 sjómílur. Loftur Baldvinsson er nú á síld- veiðum. Skipstjóri er Kristján Jónsson frá Dalvík. Skemmlíjerð Einingar Verkalýðsfélagið Eining efnir til skemmti- ferðar í Herðubreiðarlindir og e. t. v. Dyngju- fjöll, um aðra helgi, eða 17.—18. þ. m. Allarnánari upplýsingar varðandi ferðalagiS verða gefnar á skrifstofu félagsins, Strandgötu 7, sími 1503. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir n.k. miðviku- dagskvöld. Stjórnin.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.