Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.12.1963, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 06.12.1963, Blaðsíða 4
- IIM BÆKUR OG Það er eitt helzta tilhlökkunar- efni bókvina nú síðustu haustin, að von er á einhverju frá þeim Jónasi Árnasyni og Stefáni Jóns- syni, fréttamanni. Þessir eru ekki alveg fjarskyldir. Þeir eru báðir gæddir skopskyni í ríkara mæli en aðrir, stíll þeirra er oft hlát- urmildur og þeir hafa mjög næmt auga fyrir sérkennilegum persónuleika. Þeir hafa báðir valið sér, enn sem komið er, öllu fremur að vera túlkandi lista- menn, en skapandi, og myndu hvar sem er teljast „hljóðfæra- leikarar" í fremstu röð. En væri ekki slíkum einnig fært að skapa? Það er of lítið af skap- andi list á markaði haustsins. Við höfum nóg af höfundum, sem ekki gera annað en blása lífsanda í sögur hrakfallabálka og slysamanna. Þessir hafa nú báðir sent frá sér bækur, er þeir hafa skráð eftir öðrum. Þær eru um flest ólíkar, enda vart til fjarskyldari sálir en Ragnhildur í Fannardal, sem Jónas skrifar fyrir, og svo Hoffmann Stefáns. Reyndin er líka sú, að þar sem bók Jónasar er öll í „moll“, þá er Stefáns í „dúr“. En báðar hafa mikið til síns ágætis. Skulum við nú at- huga þær betur. Bók Jónasar Þulan góða í Fannardal. Ragnhildur og Jónas Árnason rithöfundur. UNDIR FÖNN, frásagnir Ragnhildar í Fannardal, um dýr og menn, sem Jónas færir í letur, er ein þokkafyllsta bók hausts- ins. Ragnhildur Jónasdóttir, sem mun Vopnfirðingur að ætt, er af raunbetra eðli en flestir landar hennar. Ást hennar og skilningur á dýrum er langt fyrir ofan allar þessar búralegu nota- gildishugmyndir, sem hafa alltaf verið undirstaða skepnuhalds. Hún hélt dýrin meir af vin- áttu og bróðurþeli. Líf þeirra í návist hennar var veizla, sam- ræða, söngur. Svo gagnkvæmur skilningur, mjúklát samræða og algert jafnrétti, veit ég ekki að ríki í neinu forsetaboði. Ragnhildur bjó langan hluta ævi sinnar í Fannardal inn af Norðfirði, fyrst með bónda sín- um öldruðum, síðan ein manna. Bókin er mest um dýr. Ekki aðeins hin æðri, músin, rottan og silungurinn voru einnig við háborðið með hundi og lambi. Menn koma og margir við sögu, en meir sem gestir en heima- gangar. Hún Ragnhildur metur dýrin snöggtum meir, þótt hún líti aldrei niður á mann í nám- unda eins og venjulegt fólk lítur niður á dýr. Kannske er Jónas Ámason eini maðurinn, sem þessi góða kona hefur metið jafnmikils og t. d. veikburða kálf, hvolp, eða lóu. Hún sýnir honum a. m. k. MENN- fullkominn trúnað eins og þeim, talar við hann eins og jafningja sinn og þeirra. Og Jónas bregst ekki þessum trúnaði. Vafamál hvort nokkur annar hefði getað fært fannardalstungu yfir á venjulega íslenzku af jafnmikilli kurteisi, enda hefur Jónas áður skrifað bezt um börn og dýr. Margar myndir prýða bókina. Ægisútgáfan gerir hana fallega. En nafnið er ekki vel valið. Eng- in lifði fjær „fönn“, en þessi elskulegi dýravinur, Ragnhildur í Fannardal. K. hefði látið eitt víxileyðublað vekja sér ógleði. Annars er hin sérstæða sögu- skoðun Péturs mjög skemmtileg og efni í nokkrar doktorsrit- gerðir. Þökk báðum. En hver las próförk ? K. Bók Stefáns ÞÉR AÐ SEGJA — veraldar- saga Péturs Hoffmanns Saló- monssonar. Stefán Jónsson fréttamaður skráði. Útg. Ægis- útgáfan, o. s. frv. En hvað sagði Pétur, hvað Stefán? Báðir eru fyndnir fugl- ar. Einhvern veginn þykja mér þó beztu setningamar meir af ætt Heydæla en Geiteyinga. Bezt að segja það strax, að myndin eftir Atla Má, utan á kápu, er einstakt listaverk og fjöldi mynda prýðir bókina, flestar af Pétri í skarti eða við störf. Er það bókarprýði. Bókin er í stórum dráttum hin ytri ævisaga Péturs Hoff- manns, hrjúf, grobbin og stór- karlaleg. Þótt hann tali mjög um ættir sínar, einkum Mýra- menn, Egil og þá frændur, svip- ar honum meir í allri gerð til Þorgeirs Hávarðssonar og þeirra garpa, var þó Egill enginn skap- deildarmaður, þér að segja. Fyrsti þriðjungur bókar er um æsku Péturs, annar um enda- lausar sjóferðir, allar meir og minna sögulegar og ívaf slags- mál og drykkjur. Síðari hluti um atvinnurekstur, umsvif og stórmannleg fyllerí og meiri garpskap í orrustum og er sá beztur. Ekki virðist þó garpi þessum hafa tekizt að sálga nema einum manni og það ósannað, en mörgum var hlaðið og spýttu nokkrir rauðu. Ekki hefði Agli blöskrað, frænda hans. Öll þykir mér þessi bók vera mikill skemmtilestur. Hún er mjög vel skrifuð yfirleitt, og víða Ijómar upp af hreinustu snilld, enda leggja tveir góðir saman. Kaflafyrirsagnir og undirskrift mynda, eitt fyrir sig, getur verið gráthlægilegt, t. d. á bls. 234. „An: 1 st. Þórólfur Skallagrímsson.“ Frásagnir af orrustum hafa lengi þótt góð lesning á íslandi og ekki alltaf verið heimtað með sannleiks- vottorð. En ekki þarf orrustu til. Kaflinn, sem er helgaður Akur- eyri O'g viðskiptin við Yilhjálm Þór, þá forstjóra K.E.A., endar á ógengisfelldri rúsínu. Varðan, sem Pétur hlóð Húsvíkingum mætti lengi standa vegna þeirrar leiðbeiningar, sem Pétur lætur hér eftir sig: „Þarna var nokkuð af stórgrýti, sem ekki var með- færi venjulegra manna. Það lét ég efst í vörðuna.4 „Og þess bið ég Húsvíkinga, ef varðan hrynur og fætur mínir verða orðnir kaldir, að endurnýja hana þá. Má sem hœgast aka kranabíl upp á fjallið að norð- anverðu til þess að lyfta stóru steinunum á sinn stað.“ (Let- urbr. hér.) Allur síðari hluti er sérlega góð lesning, ef víxlar manns eru komnir á þriðja dag, dýr- tíðin bannar brjóstbirtu og vol- æði heimsins leggst þungt á sál- ina. Þetta gleymist allt og hjaðn- ar í orrustugný þessa afkom- anda Egils Skallagrímssonar. Það ætti einnig að geta minnt okkur á, að einnig við erum af hinum forna stofni, sem ekki Stefón Jónsson fréttamaður. Gull í gamalli slóð Svo nefnist ein þeirra nýju bóka, sem komið hafa á mark- aðinn síðustu dagana. Höfundur bókarinnar er Jón heitinn Har- aldsson, er lengi bjó að Einars- stöðum í Reykjadal, faðir Ein- arsstaðabræðra, er þar búa nú, og þeirra systkina. Jón átti allan sinn aldur heimili að Einars- stöðum, tók þar við búi að föð- ur sínum látnum. Jón lézt í Ein- arsstaðakirkju 18. apríl 1958 nær sjötugur. Auk búsýslu og ýmissa starfa að félagsmálum fékkst Jón Har- aldsson nokkuð við ritstörf um dagana. Bók þá, sem nú er út- komin, Gull í gamalli slóð, ber þó ekki að skoða sem neitt heild- arritsafn þessa ágæta manns, heldur miklu fremur, eins og segir í formálsorðum Karls Kristjánssonar alþingismanns, „sýnishorn af þessari ígripaiðju Jóns Haraldssonar.“ Þarna kennir margra grasa. Það eru stuttar ræður, persónu- legar minningar frá ýmsum tím- um, minningarorð um menn og málefni, ýmist í bundnu eða ó- bundnu máli, fáein Ijóð annars eðlis og loks smásögur eða frá- sagnir, sumar skrifaðar eftir annarra sögn. Allt ber efni þetta vott um skýra hugsun, góða frásagnar- gáfu og mikið vald yfir íslenzku máli. Frásagnir Jóns eru gagn- orðar og skýrar, en bregða upp leiftrandi svipmyndum. Auk þess hafa þær að geyma verulegan fróðleik um þing- eyska byggðasögu, búskapar- háttu og einstaka menn. Munu Þingeyingum sérstaklega þykja þeir kaflar eftirsóknarverðir, en þó hafa þeir gildi fyrir hvern og einn. Ljóðin eru flest ort af sér- stöku tilefni, gerð til að flytja á ákveðinni stundu. En hvergi er þar leitað ódýrra hátta né lág- kúrulegs orðavalds. Myndu mörg þessara ljóða sóma sér vel í bókum þeirra, sem fengið hafa á sig gott skáldaorð. Ekki veit ég, hvort Jón hefur gert tilkall til þess, að vera talinn skáld, en margur hefur gert það, sem af minnu hefur haft að státa. En ótalið er enn, það sem mest er um vert og flestum hef- ur sennilega verið lítt kunnugt áður. Gullið í hinni gömlu slóð Jóns eru smásögur hans. Flestar munu þær byggjast á sannsögu- legum atburðum og sumar skráðar eftir frásögnum ann- arra, en umgerð og ívaf, orða- val og setningaskipan er Jóns. Hér er ekki teygður lopinn að óþörfu, en mikið sagt í fáum orðum, og í gegn finnast slög góðs hjarta, sem spilltur heim- ur hefur lítt megnað að vinna á. Fyrsta sagan segir frá ein- stæðri fórn Helga bónda að Hólum í Laxárdal, og af yfir- skrift hennar dregur bókin heiti sitt: Gúll í gamalli slóð. Þar er Framhald á 7. síðu. 4) — Verkamaðurinn Föstudagur 6. desember 1963

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.