Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.12.1963, Side 8

Verkamaðurinn - 06.12.1963, Side 8
Félogsbúskapur bœnda Alþingismennirnir Lúðvík Jós- efsson og Hannibal Valdimarsson hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um Stofn- lánadeild landbúnaðarins, þess efnis, að bætt verði inn nýjum kafla um lánveitingar til félags- búskapar. Hér er vakið máls á merku ný- mæli og þykir Verkamanninum því rétt að kynna frumvarp þetta, og birtum það hér orðrétt ásamt greinargerð. 1. gr. Á eftir VII. kafla laganna (52. gr.) kemur nýr kafli, er verður VIII. kafli, með fyrirsögninni: Urn félagsbúskap, og breytist kafla- og greinatala samkvæmt því: a. (53. gr.) Nú vilja tveir eða fleiri bændur stofna til félags- búskapar á jörð í stað þess að stofna á henni nýbýli eða reka félagsbúskap í byggðahverfi, sem landnám ríkisins hefur undirbúið, og skal það þá til- kynnt nýbýlastjórn, er veitir til þess samþykki sitt, að full- nægðum eftirtöldum skilyrð- um: 1. Landstærð og önnur skil- yrði til búrekstrar séu að dómi nýbýlastjórnar nægi- lega góð til að fullnægja þeim fjölda heimila, sem til skal stofnað. 2. Fyrirhuguð sé eigi minni bústærð en 20 kúgildi (400 ær) fyrir hvert heimili. 3. Hver fjölskylda hafi sér- íbúð. 4. Vélar allar og verkfæri til ræktunar, fóðuröflunar og annars, er tilheyrir hinum sameiginlega rekstri, séu sameign búsins. 5. Gerður verði samningur um fyrirkomulag hins sam- eiginlega félagsrekstrar og sé hann þinglesinn. Skulu þar tilgreind eignarhlutföll aðila í jörð, húsum og bú- vélum, mannvirkjum jarðar og bústofni. Enn fremur sé tilgreint, hvemig reiknings- haldi, arðskiptingu og ú- hættu sé fyrir komið. í samningi skal og fram tek- ið, hvaða meðferð skal hafa, ef einn eða fleiri aðilar ganga úr félagsrekstrinum. Skylt er þó, ef nýr aðili tek- ur við réttindum og skyld- |----------------------------4 VÍSA VIKUNNAR Ég lit til sólarlagsins og lifið í brjósti hlær. I dag er ég hetja dagsins en dæmdur moður í gær. J. R. Th. 4----------------------------1 um fráfaranda, að það sé tilkynnt nýbýlastjórn og leitað samþykkis hennar á breytingunni. Heimilt er þó þeim, sem eftir eru í félag- inu, að kaupa hlut þess, er úr gengur, ef samkomulag verður um endurgreiðslu á framlögum landnáms ríkis- ins. b. (54. gr.) Að fullnægðum skil- yrðum 53. gr. skulu stofnendur félagsbúsins hafa rétt til hærri lúna úr Stofnlánadeild land- búnaðarins til ræktunar og úti- húsabygginga en gildir um einstaklingsbúskap. Nemi sú hækkun 20% af kostnaðar- verði, þannig að til fram- kvæmda, er njóta ekki fram- lags samkvæmt jarðræktarlög- um, sé hámarkslánsfj árhæð 80% af kostnaðarverði. Til þeirra framkvæmda, er fram- lags njóta samkvæmt jarðrækt- arlögum, skal einnig greiða 20% hærra framlag, svo að lán og framlag nemi samtals 80% af kostnaðarverði við- komandi framkvæmdar. Enn fremur skulu þau lán, sem veitt eru til framkvæmda í félagsbúskap samkvæmt þess- um reglum, veitast til allt að þriðjungi lengri lánstíma en önnur sambærileg lán. Að öðru leyti skulu stofnendur félags- búskapar njóta sömu réttinda og aðrir nýbýlastofnendur, þegar um fjölgun býla er að ræða. c. (55. gr.) Auk nýbýlastj órnar skulu bæði Búnaðarfélag ís- lands og búreikningaskrifstofa ríkisins aðstoða stofnendur félagsbúskapar í öllum þeim atriðum, er við koma starfsemi þessara stofnana. d. (56. gr.) Onnur atriði, er mál þetta varðar, skulu fram tekin í reglugerð. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargerð. Um nokkurt skeið hefur mjög verið rætt um vandamál hins ís- lenzka landbúnaðar. Er það sízt að ástæðulausu, því að allmjög kreppir að honum, e. t. v. mest í þeim héruðum, sem styttra eru á veg komin hvað tækniframfarir snertir eða markaðaðstöðu hafa lakari. Sú staðreynd blasir þó við, að síðustu tvo áratugi hefur þessi at- vinnuvegur tekið gagngerðum stakkaskiptum. Fólki, sem við hann vinnur, hefur mjög fækkað, en samt heíur framleiðslan mjög vaxið. Nefnd skulu þau dæmi, að árið 1940 voru íbúar sveitanna taldir vera 37300, en allur fólks- fjöldinn í landinu 121400. Hafa þá ca. 31% allrar þjóðarinnar átt heima í sveitum. Nú er hins vegar allur fólksfj öldinn kominn yfir 180000, en íbúar sveitanna örugg- lega komnir niður fyrir 30000 og líklega ekki orðnir nema 16— 17% af þjóðarheildinni. Þannig hefur neytendaf j öldinn, sem kaupa þarf landbúnaðarvörur, aukizt um 50% á ekki lengri tíma, en þeim, er við framleiðsluna vinna, fækk- að a. m. k. um 25%. Um framleiðsluaukninguna nægir að benda á það, að 1947 var innvegin mjólk til mjólkurbú- anna 29 530 000 kg, en 1962 var hún 80 000 00 kg og hafði því vaxið um 58770 þús. eða þre- faldazt. Kj ötmagn sláturhúsanna nam 1947 ca. 5 664 000 kg, en var 1962 11 þús. tonn, eða nærri tvöfaldað. Sú fullyrðing, sem áður er fram sett, að nú kreppi að land- búnaðinum, gæti verkað sem öfugmæli ú hvern þann, er les þessar tölur án frekari athugunar. Þó er hún viðurkennd, og skal gerð grein fyrir helztu ástæðum. Sem kunnugt er, hefur orðið mjög mikil tæknibylting á þessum árum. Stórvirkar framræsluvélar hafa þurrkað mikil landflæmi. í kjölfar þeirra hafa komið ámóta stórvirkar jarðvinnsluvélar, sem unnið hafa landið til ræktunar í margföldum mæli við það, sem nokkru sinni hefur gerzt áður. Jafnframt þessari auknu ræktun hefur bændastéttin fengið mjög mikið magn af bæði heyvinnu- vélum og öðrum tækjum, er nú- tímabúskap tilheyra. Allt hefur þetta valdið hinni miklu fram- leiðsluaukningu og komið í veg fyrir það, að skortur yrði á inn- lendum búnaðarvörum til neyzlu, en án hennar hefði áreiðanlega mátt eyða ósmáum gjaldeyris- fúlgum til að greiða innflutning slíkra vara. Þessi tæknibylting hefur kostað mikið fé. Veðtryggt lánsfé í land- búnaðinum var hverfandi lítið fyrir tveim áratugum. En um s.l. áramót var útistandandi fé í lána- deildum landbúnaðarins 559.9 millj. kr. Eru þar saman taldar skuldir bændanna sjálfra við deildirnar og fyrirtækja, er úr af- urðum hans vinna. Af þessu láns- fé greiðir landbúnaðurinn nú á þessu ári 56.1 millj. kr. í ársgjöld, þ. e. samanlagðar greiðslur vaxta og afborgana. Ýmsum, sem sjá þessar tölur, kann að þykja sem hér sé um óhæfilega háar fjárhæðir að ræða, er landbúnaðurinn hafi þannig fengið í lánsfé. Svo getur þó ekki talizt. Býlin á landinu eru talin milli fimm og sex þúsund. Væri um jafna skiptingu að ræða, næmi meðaltalið aðeins 100—120 þús. kr. á býli, þar með talið það, sem liggur í vinnslufyrirtækjum. Verkamaðurinn En auðvitað er hér einnig um mj ög mikla misskiptingu að ræða, eins og á stærð og framleiðslu- tækni hinna ýmsu búa. Er sú mis- munur e. t. v. ein af meiri háttar vandkvæðum landbúnaðarins nú. T. d. mun því ekki verða neitað, að vegna þess, hve mörg búin eru of lítil, hefur hinn nýi vélakostur, er kostað hefur mikið fé, bæði í stofni og rekstri, ekki notazt alls staðar svo vel sem skyldi. Skal þá vikið að fólksfækkun- inni. Sú þróun, sem lýst hefur ver- ið, hefur gert það að verkum, að vinnufólk á sveitaheimilum, eins og títt var í fyrri daga, er ekki lengur til. Sömuleiðis má alveg heita horfið aðkeypt verkafólk um vissa tíma ársins, hið svo- nefnda kaupafólk, er mjög var algengt um heyskapartímann víð- ast hvar um land. Sveitabúskapur- inn er orðinn einyrkj abúskapur, þar sem hjónin hafa annaðhvort enga vinnuaðstoð eða börn sín misjafnlega stúlpuð. Jafnframt þessu hafa störfin orðið marg- brotnari, að sumu leyti vegna vél- tækninnar, og krefjast því raun- verulega meiri verkaskiptingar í stað minni, sem verður í reynd: Einyrkjabóndinn þarf að vera jafnvígur á öll þau störf, sem nú- tímabúskapur krefst. Reynslan er líka sú, að þótt vélarnar hafi leyst vel það hlutverk að auka fram- leiðsluna, þá hafa þær ekki fækk- að vinnustundum bændanna. Þvert á móti mun allur þorri ís- lenzkra bænda vinna nú fleiri vinnustundir heldur en áður var. Kemur þar mjög til greina, að við ýmsar greinar landbúnaðarins, t. d. mjólkurframleiðsluna, er aldrei frídagur. Líklega má telja á fingr- orlofsfrí, þótt ekki væri nema um sér þá bændur, sem geta tekið nokkra daga ár hvert. Þetta ástand er að verða mjög mikið vandamál og vaxandi með ári hverju. Úr því verður ekki bætt nema með því að gera búin stærri, svo að þau þoli að greiða vinnukraft fleiri manna og þá jafnframt framfærslu fleiri fjöl- skyldna. Á þann eina hátt getur skapazt eðlileg verkaskipting og möguleiki á hvíldartíma og þann- ig losað nokkuð um þá vinnu- fjötra, sem einkenna einyrkjabú- skapinn. Enn fremur mundi skap- ast grundvöllur fyrir bætta nýt- ingu véltækninnar. I því sambandi skal á það bent, hve mjög hún færist í aukana á þann hátt, að vélar sömu tegundar verða sífellt stærri og jafnframt dýrari, bæði hvað snertir stofnkostnað og rekstur, og krefjast því meira verkefnis, ef notkun þeirra á að byggjast á hagrænum grunni. Þetta tvennt, sem hér hefur verið bent á, kallar því beinlínis á stærri búseiningar en við rekum almennt nú. Þá vaknar spurningin: Á hvern hátt getur þetta gerzt? Þar er í raun og veru ekki nema um tvær leiðir að velja. Ýmsir kynnu að vilja tiltölulega fá stórbú í eign einstaklinga, er eingöngu væru rekin með aðkeyptu verkafólki. Yrði þróunin slík, mundi hinum eiginlegu bændum fækka mjög mikið. Sterkar líkur eru til, að slíkt sé bændastéttinni ekki að skapi, auk þess sem litlar líkur eru til, að þessi leið sé framkvæm- anleg við okkar þjóðfélagsaðstæð- ur. Gerðar hafa verið tilraunir í þessa átt af örfáum einstaklingum, en yfirleitt ekki borið góðan ár- angur. Þá er hin leiðin, sú sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, að beina þróuninni í átt til félags- búskapar, þannig að hann leysi smátt og smátt einyrkj abúskapinn af hólmi. Auðvitað mundi það taka sinn tíma og máske seint gert að fullu. Því hefur einatt verið haldið fram, ekki sízt af ýmsum stjórn- málaleiðtogum, að bændastéttin væri of rík af einstaklingshyggju til að vilja sætta sig við slíkan fé- lagsrekstur. Um þetta má auðvit- að endalaust deila. En margt bendir til, að vegna þeirra að- stæðna, sem hér hefur verið lýst, sé að skapast hið gagnstæða við- horf. Á opinberum vettvangi, t. d. í blaðaviðtölum við bændur víðs vegar um land, heyrast nú ætíð fleiri raddir í þá átt, að einyrkja- búskapurinn sé ekki skipulag framtíðarinnar, heldur sé það að sýna sig betur og betur, að finna verði annað rekstrarform í sam- ræmi við kröfur tækninnar. Og hefur niðurstaða flestra orðið sú, að félagsreksturinn einn komi til. greina. Með frumvarpi þessu er svo til ætlazt, að ríkið komi nokkuð til móts við þá aðila, er reyna vilja félagsrekstrarfyrirkomulagið. Sé það gert með því að veita bæði hærri lán og framlög og veita lán- in til lengri tíma. Slík fyrirtæki. þurfa að byggjast upp á tiltölu- lega skömmum tíma og krefjast því þess, að stofnfjármagn sé þeg- ar fyrir hendi. Hins vegar má vænta þess, að nokkrir fjármunir geti sparazt, ekki sízt í rekstri, við þetta fyrirkomulag, og hagkvæm- ara búrekstrarform. Hér er svo mikið í húfi, að ríkisvaldið verð- ur að styðja þá, sem vilja reyna nýjar leiðir, og hjálpa til að örva þróun í þá átt, sem hagkvæmust reyndist.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.