Verkamaðurinn - 19.06.1964, Blaðsíða 1
Verkamaðurinn
tJtsvörin á Akureyri 1964
Azhhenasy
Á miðvikudagskvöldið verður
sá atburöur á Akureyri, nánar
tiltekið í Borgarbíó, að þar leika
tveir af færustu og frægustu pí-
anóleikurum, sem nú eru uppi
í heiminum.
GREINARGERÐ Framtalsnefndar Akureyrar varðandi
útsvarsólagningu 1964
Samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar fyrir árið 1964
bar að jafna niður í útsvörum á árinu 1964 kr. 36.992.100.00, auk
5—10% álags vegna vanhalda. Jafnað var niður kr. 40.412.000.00.
Gjaldendur eru alls 3072. Þar af eru 88 félög, sem greiða alls
kr. 2.323.000.00 í útsvar. Gjaldendum hefur fjölgað um 196 frá 1963.
Utsvörum var jafnað niður samkvæmt lögum nr. 69/1962 um
tekjustofna sveitarfélaga og lögum nr. 16/1964 um breytingu á
þeim lögum.
Útsvarsskyldar tekjur eru hreinar tekjur til skatts samkvæmt lög-
um og reglugerð um tekju- og eignarskatt, að frádregnu:
1. útsvari álögðu 1963, enda hafi það verið greitt að fullu til
bæjarsjóðs fyrir árslok 1963,
2. persónufrádrætti samkvæmt 6. gr. laga nr. 16/1964, þ. e. kr.
25.000.00 fyrir einstakling, kr. 35.000.00 fyrir hjón og kr.
5.000.00 fyrir hvert barn undir 16 ára aldri.
3. öllum bótum almannatrygginga og sérlífeyrissjóða, þó ekki
af umframellilífeyri eða eftirlaunum umfram almennan líf-
eyri frá Tryggingastofnun ríkisins,
4. veikindakostnaði,
5. menntunarkostnaði eftir matsreglum framtalsnefndar.
Lagt var á útsvarsskyldar tekjur samkvæmt framangreindu sam-
kvæmt útsvarsstiga 7. gr. laga nr. 16/1964, en samkvæmt honum
greiða einstaklingar og hjón 20% af fyrstu 40.000.00 kr. og 30%
af tekjum þar fram yfir. Síðan voru öll útsvör lœkkuð um 5% frá
þessum útsvarsstiga.
Skró yfir hæstu útsvarsgreiðendur ó Akureyri úrið 1964
Einstaklingar (yfir kr. 60.000.00):
Tryggvi Gunnarsson, Víðimýri 10 ................. kr. 127.000.00
Eyþór H. Tómasson, Ásvegi 32 ...................... — 126.400.00
Guðmundur K. Pétursson, Eyrarlandsvegi 22 .... — 93.700.00
Helgi Skúlason, Möðruvallastræti 2 ................ — 80.100.00
Baldur Ingimarsson, Hafnarstræti 107B.............. — 78.800.00
Jóhann Þorkelsson, Ránargötu 19 ................... — 70.300.00
Baldvin Þorsteinsson, Langamýri 10 ................ — 67.400.00
Olafur Guðbj örnsson, Grænugötu 8 ................. — 66.100.00
Sigurður Ólason, Munkaþverárstræti 31 ............. — 65.800.00
Snorri Kristjánsson, Strandgötu 37 ................ — 64.600.00
Bjarni Rafnar, Ásabyggð 5 ......................... — 62.800.00
Jónas H. Traustason, Ásvegi 29 .................... — 62.200.00
Þorsteinn Magnússon, Byggðavegi 92 ................ — 61.200.00
Friðrik Magnússon, Aðalstræti 15 .................. — 60.500.00
Félög (yfir 100.000.00):
Slippstöðin h. f......'........................ kr. 395.100.00
Kaupfélag Eyfirðinga .......................... — 273.800.00
Amaró h. f..................................... — 182.500.00
Fatagerðin Burkni h. f......................... — 105.200.00
— Síldin —
Síldveiðin í síðustu viku nam
154.262 málum, en á sama tíma
í fyrra hafði engin síld borizt
á land. Fyrsta síldin veiddist þá
að kvöldi 17. júní.
Öll sú síld, sem fengizt hefur
til þessa, hefur farið í bræðslu
utan nokkur hundruð tunnur,
sem hafa verið frystar. Allar
þrær hjá verksmiðjunni á Rauf-
arhöfn voru fullar fyrir nokkr-
um dögum og hefur síðan ekki
verið hægt að landa þar nema
jafnt því, sem brætt hefur verið
hvern dag.
Öll veiðin er nú fyrir austan
land, og síðustu tvo daga hefur
mest verið landað á Austfjörð-
unum, einkum í Neskaupstað.
Allur veiðiflotinn er nú fyrir
austan. Gert er ráð fyrir, að um
250 skip muni stunda síldveiðar
í sumar, og eru flest þeirra kom-
in á miðin. Söltun hefur enn
ekki verið leyfð.
Veiðiveður var ekki gott í
gær, en fór batnandi með kvöld-
inu.
Jafnframt útsvarsskrá var lögð fram skrá um aðstöðugjöld í Ak-
ureyrarkaupstað 1964.
Lagt var á 449 gjaldendur:
309 einstaklinga............ kr. 1.394.000.00
140 félög.................. — 8.676.600.00
Samtals kr. 10.070.600.00
Hœstu einstaklingar (yfir 60.000.00):
Valgarður Stefánsson, Oddeyrargötu 28 .......... kr. 153.900.00
Brynjólfur Brynjólfsson, Hrafnagilsstræti 34 .... — 125.000.00
Valtýr Þorsteinsson, Fjólugötu 18 ................... 92.600.00
Hœstu félög (yfir 100.000.00):
Kaupfélag Eyfirðinga........................... kr. 2.513.700.00
Samband íslenzkra samvinnufélaga ............... — 1.500.000.00
Útgerðarfélag Akureyringa h. f................. — 533.500.00
Bílasalan h. f.................................. — 217.200.00
Amaró h. f...................................... — 208.000.00
Súkkulaðiverksmiðjan Linda h. f.............. — 170.900.00
Slippstöðin h. f................................ — 166.200.00
Þórshamar h. f.................................. — 138.600.00
Kaffibrennsla Akureyrar ........................ — 134.600.00
Byggingavöruverzlun Tómasar Björnssonar h. f. — 127.000.00
Bólstruð húsgögn h. f........................... — 102.500.00
Kaupfélag verkamanna ........................... — 101.200.00
Valbjörk h. f................................... — 100.600.00
Það er ósköp einfalt, að bað sé brotið, sem lofað er"
Meðan yfir stóðu kosningar
í nefndir á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar á þriðjudaginn kom
til nokkurra orðhnyppinga jnilli
kratans í bæjarstjórninni og í-
haldsmanna. Hafði þó kratinn
einkum orðið, en íhaldsmenn
sátu þöglir.
Þegar kom að því að kjósa
varamenn í þjóðhátíðarnefnd,
mótmælti Bragi Sigurjónsson
því, að listinn væri eins og hann
ætti að vera. Kvað hann íhalds-
mennina hafa lofað sér kvöldið
áður að krati yrði þar meðal
varamanna, en svo væri kominn
íhaldsmaður í sætið.
Jón G. Sólnes, forseti bæjar-
stjómar, bauð þá að bíða eftir
nýjum framboðslista, en ekki
vildi Bragi það. Sagði Sólnes þá,
að það væri ósköp einfalt, að
þá væru þeir menn kjörnir, sem
á framkomnum lista væru. Svar-
aði þá Bragi: „Já, það er ósköp
einfalt, að það sé brotið, sem
lofað er.“
Urðu nú einhver frekari orða-
skipti hjá hægri armi bæjar-
stjórnarinnar þar til Ingólfur
Árnason kallaði, að heimiliserj-
ur stj órnarliðsins ættu ekki
heima á bæjarstjórnarfundi. —
Þögnuðu þá hægri menn, en
Bragi fékk ekki varamanninn.
Undi hann því greinilega illa,
enda voru fáar mínútur liðnar
frá því hann sjálfur missti af
varaforsetatign.
KROSSANES
í gær hafði alls verið landað
hjá Síldarverksmiðjunni í
Krossanesi 28.883 málum. Skort
ir þá lítið á, að verksmiðjan
hafi strax í upphafi síldarvertíð-
arinnar fengið tvöfalt síldar-
magn á við það, sem hún tók á
móti í allt fyrrasumar.
í gær var skipað út til útflutn-
ings því fyrsta af mjölfram-
leiðslu sumarsins, 375 tonnum.
Meira af mjöli mun fara alveg
á næstunni, og einnig mun lýsi
verða skipað út á næstunni. —
Bæði mjöl og lýsi hefur hækk-
að í verði að undanförnu og
horfur á, að afskipanir á hvort
tveggja gangi greiðlega.
73 stúdentar fró MA
Menntaskólanum á Akureyri
var að vanda sagt upp þann 17.
júní, og voru þá brautskráðir
73 stúdentar, 44 úr máladeild og
29 úr stærðfræðideild.
Hæsta einkunn nýstúdentanna
hlaut Haraldur Jóhannesson frá
Suðureyri 9.29. Næstur varð
Bragi Líndal Ólafsson frá ísa-
firði með 9.08. Báðir voru þeir
í stærðfræðideild. í máladeild
hlaut hæsta einkunn Síesselja
Einarsdóttir frá Akranesi 8.69.
Hæsta einkunn í skólanum
hlaut Steinunn Þórhallsdóttir í
landsprófsdeild, 9.47, og er það
hæsta einkunn, sem náðst hefur
í skólanum á landsprófi.
og Fmger
Annan þeirra, Azhkenasy, þarf
naumast að kynna. Við íslend-
ingar lítum orðið á hann. nán-
ast sem einn af oss. Hann hef-
ur áður leikið hér, og hann á
íslenzka konu, Þórunni Jóhanns-
dóttur, sem ættuð er úr Svarf-
aðardal.
Hinn hefur ekki áður komið
hér. En hann er frá hinu öðru
mesta stórveldi heimsins, Banda-
ríkjunum, og heitir Malcolm
Frager. Ekki er honum ellin að
meini fremur en Azhkenasy, því
að hann er aðeins 28 ára að
aldri. En síðustu árin hefur hann
getið sér orð sem frábær píanó-
snillingur.
Og þótt stjórnmálamenn úr
austri og vestri rífist endalaust
um stefnur og mið, landamæri
og vopnabúnað, þá veldur slíkt
ekki ágreiningi milli lista-
manna þessarra þjóða. Þeir ferð
ast um heiminn þveran og endi-
langan og spyrja hvergi um
landamæri né álit áheyrenda á
sósíalisma eða kapítalisma. —
Enda kváðu þeir Azhkenasy og
Frager vera vinir góðir, svo
sem snillingum sæmir. Þótt ann-
ar komi úr austri og hinn úr
vestri, kunna þeir vel að meta
hvor annan. Og þótt ekki muni
allir Akureyringar komast í
Borgarbíó á miðvikudaginn, er
vonandi, að ekki hljótist nein
illindi eða meyðsl af, heldur
verði allir jafngóðir vinir eftir
sem áður.
HÁTÍÐAHÖLDIN
á Akureyri 17. júní fóru í aðal-
atriðum fram samkvæmt þeirri
áætlun, sem gerð hafði verið og
kynnt var í síðasta blaði. Gekk
framkvæmdin mjög greiðlega og
slysalaust, en þátttaka bæjarbúa
varð minni en vonir stóðu til
vegna leiðindaveðurs. Kalt var
og nokkur rigning framan af
degi, en batnaði heldur eftir því,
sem á daginn leið.
HEYRT A GðTURNI
AÐ á næstunni verði bankastjóra
skipti við útibú Útvegsbank-
ans á Akureyri.
AÐ enn hafi bankaróðið ekki
tekið ókvörðun um, hvor
næstur hljóti embættið, Rögn
valdur Rögnvaldsson eða
Bragi Sigurjónsson.
AÐ hafið sé að móla togorann
Hrímbak, sem liggur ó Ak-
ureyrarpolli, en verkinu sé
ekki lokið.
AÐ bæði ó sjómannadaginn og
17. júní hafi farizt fyrir oð
draga fóno að hún á „flagg-
skipi" Akureyringa, Kald-
bak, sem liggur i höfn.