Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.01.1965, Page 3

Verkamaðurinn - 22.01.1965, Page 3
Leikfélag Akureyrar: Hátíðarsýning Munkarnir á Möðruvollum ★ í gærkvöld var hátíðarsýning í leikhúsinu á Akureyri. ÞaS voru 70 ár liSin síSan þjóSskáld iS frá Fagraskógi kom í þennan heim, og Leikfélag Akureyrar heiSraSi minningu þess meS fyrstu sýningu á Munkunum á MöSruvöllum, eftir aS þeir hafa ekki komiS á sv.iSiS í 37 ár. Er þaS raunar furSu langur tími, sem þessir ágætu munkar hafa legiS utangarSs. ÁSur en sýning hófst bauS einn af stjórnarmönnum Leikfé- lagsins, Björn ÞórSarson, hátíS- argesti velkomna og tilkynnti um leiS, aS LeikfélagiS hefSi á fundi í fyrri viku ákveSiS aS gefa tíu þúsund krónur í söfn- un þá, er nú stendur yfir til kaupa á húsi DavíSs skálds. Þórarinn Björnsson skóla- meistari veitti gjöfinni móttöku fyrir hönd söfnunarnefndarinn- ar og flutti því næst snjalla ræSu í minningu DavíSs. Hófst síSan leiksýningin. AriS 1316 — „brann klaustr oc kyrkia at Mödruvöllum í Hörgárdal, meS klukkum oc öll- um skrúda, höfdu brædr komit lieim um nóttina druknir af Gás eyri og farit óvarliga med lios.“ Svo segir í Árbókum Espó- líns, og þarna mun aS finna þá f októbermánuði síðastliðnum voru hátíðahöld mikil í Kína i tilefni af þvi, að 15 ár voru liðin frá stofnun Alþýðulýðveld- isins. Fjölmennasta þjóð jarð- arinnar tók að koma sósialisku skipulagi á þjóðarbúskapinn. Mest voru hátíðahöldin að sjálfsögðu áberandi i höfuðborg inni, Peking, og þá hófust sýn- ingar á miklu verki, er segir sögu byltingarinnar með söngv- um og dönsum. 3000 listamenn koma fram á sýningu þessarri, leikarar og söngvarar, og hefui sýningin stöðugt verið endur- tekin síðan. Myndin, sem hér fylgir með, var tekin yfir sviðið á gamlárs- kvöld. „Austrið er rautt" heitir þessi míkla byltingarsaga. sögulegu heimild, sem Davíð hef ur notað að uppistöðu í þetta mikla ádeiluleikrit, en leikritið er frá upphafi til enda snörp ádeila á skynhelgi og yfirborðs- trú, sem notuð er til að dylja hin verstu fólskuverk og ólifn- að. En skynhelgi og yfirborðs- trú hafa lengi verið vel þekkt fyrirbæri í sögu kirkjunnar, og þá einkum meðal kaþólikka, en hvers konar spilling viðhöfð og ræktuð í skjóli trúarblæjunnar. Þannig lifa enn í sögum frá- sagnir af spillingu og ólifnaði sumra þeirra, er hér á landi gengu í munka- eða nunnuklaust ur og töldust vera heilagir. Jafn- vel er frá því sagt, að tíðkast hafi gagnkvæmar heimsóknir milii munka- og nunnuklaustra, og hafi þá lítið verið gert með heitið um afneitun allra hold- legra lystisemda. En kirkjunnar menn hafa svo sem ekki verið einir né eru um skynhelgi og yfirborðsmennsku. Slíkt hefur marga aðra hent, sem verið hafa á einhvern hátt hærra settir eða í betri aðstöðu en allur fjöldinn. Hefur þá oft farið svo, að þeir hafa talið sig mega gera það, sem öðrum ekki leyfðist, já, jafnvel að allt væri þeim leyfilegt, ef þeir bara létu ekki lýð.inn fá að fylgjast með. Gegn spillingu mannanna beinir skáldið brandi sírium af fullri einurð. Hann tekur munka lifnaðinn sérstaklega fyrir, enda er þar um að ræða eitt heimsku- legasta fyrirbærið, sem kristin kirkja hefur alið við brjóst sér. Ovíða mun mannvonzka hafa komizt á hærra stig, enda eðli- legt að illar hneigðir brjótist upp á yfirborðið, þegar horfið er svo langt frá eðlilegu mann- lífi, og þeim gjöfum, sem menn- irnir hafa beztar þegið, er varp- að út í yztu myrkur. Og svo á þetta allt að vera gert Guði til dýrðar! Þannig er boðskapur sá, sem skáldið flytur næsta alvarlegs eðlis, en það hefur jafnframt hugsað til þess, að leikrit þarf að vera spennandi og skemmti- legt. Báða þessa eiginleika hafa Munkarnir á Möðruvöllum, eða hver skyldi ekki brosa að munk- unum á fylliríi og kvennafari. Ekki verður annað sagt, en þessi sýning Leikfélags Akureyr- ar hafi heppnast vel. Þar á auð- vitað enginn einn allar þakkir skildar, heldur allir þeir, sem að hafa unnið, og þeir eru marg ir, sem lagt hafa hönd á plóg- inn áður en svo heilsteypt sýn- ing er að fullu undirbúin og æfð. Á hverjum og einum, sem þar að vinna hvílir mikil ábyrgð en þó mest á leikstjóranum, sem hafa verður auga með öllu, smáu sem stóru. Og tvímælalaust er, að með þessari sýningu hefur Agúst Kvaran bætt enn við af- rekaskrá sína á sviði leiklistar- innar. En það sama má einnig segja um fleir.i og þá ekki sízt aðal- leikendurna: jóhann Ogmunds- son, sem leikur yfirmann klaust- ursins og spillingarmeistara, og Olaf Axelsson, er leikur ung- bróðurinn, sem er of heiðarleg- ur, of mikill maður til að láta ánetjast svínaríinu. Akureyringar eru ekkert óvan ir því að sjá Jóhann Ögmunds- son á sviðinu. Hann hefur ver- ið þar flestum bæjarbúum oft- ar. Og þótt hann hafi oft áður gert vel, þá er því ekki að neita, að honum hefur ekki alltaf tek- izt að skapa nógu sjálfstæðar persónur á sviðinu, þær hafa dregið um of keim hver af ann- arri. Og sú er auðvitað alltaf hættan fyrir þá, sem leika í hverju leikritinu af öðru. En að þessu sinni hefur Jóhann kom- izt yfir þetta, hann hefur „vax- ið frá sjálfum sér“ og vaxið í augum áhorfenda sem mikill leikari. Ölafur Axelsson er ungur maður, sem ekki á langa sögu að baki á leiksviði, en sýnir nú, að hann er ekki bara hæfileik- um búinn og efnilegur, heldur hefur einnig kjark og dug til að nýta hæfile.ikana. Leikur hans er allt í gegn mjög snurðu- lítill og sannferðugur, hvergi yfirdrifinn, en heldur ekki dauð- ur. Þetta verður vonandi ekki í síðasta sinn, sem hann sést á fjölunum. Leikendur eru margir í allt og hér ekki rúm til að ræða mik ið um frammistöðu hvers og eins. Sumir eru vanir, úr hópi okkar beztu leikkrafta, aðrir eru viðvaningar og standa sig mis- jafnlega, eins og við er að bú- ast, en enginn þó áberandi illa, þannig að það spilli heildarsvip leiksins. Munkar eru margir að von- um, en aðhafast misjafnlega mik iíþ sumir ekki annað en drekka brennivín og flangsa utan í kon- um. En í þau hlutverk, sem mest ber á, hafa verið valdið tveir a\ oKkar þekktustu leikurum, Jót, Ingimarsson og Eggert Olafsson. Eru þeir báðir hinar skemmti- legustu „týpur“, enda þarf varla annað en að brytanum (Eggert) bregði fyrir til að ósjálfrátt fæð ,ist bros á andlit hvers áhorfanda. Þá er ekki hægt annað en nefna þá Arna Böðvarsson og Kjartan Olafsson í hlutverkum ölmusumanna. Þeir fara mjög vel með hlutverk sín og gerf- in eru sérstaklega góð. Raunar má segja það um gerfi leikenda almennt, og hefur sérstaklega verið vandað til búninga. Kvenhlutverk eru að vonum færri og minni en karla í munka leik þessum, en þó fimm talsins. Það veigamesta annast Þórey Aðalsteinsdóttir af smekkvísi. Jakobína Kjartansdóttir fer einn ig þokkalega með lítið hlutverk. Og þrjár gamalkunnar leikkon- ur bæjarins bregðast ekki í litl- um en fremur óvenjulegum hlut- verkum, en þær eru Björg Bald- vinsdóttir, Ingibjörg Rist og Þór halla Þorsteinsdóttir. Otaldir eru enn leikendurnir Guðmundur Magnússon, Hall- mundur Kristinsson, Karl Tóm- asson, Jón Ingólfsson, Hafsteinn Þorbergsson, Bjarni Aðalsteins- son, Jón Kristinsson, Hreinn Pálsson og Tryggvi Aðalsteins- son. I heild er þetta álitlegur hóp- ur og vel samæfður. Einhver kann að segja, að hér sé hóli of lítið í hóf stillt og vafalaust mætti að ýmsu finna. En hvað sem skoðunum manna líður í þeim efnum, þá er mála sannast, að leikstjóri, leikendur og Leikfélagið eiga meira hól skilið fyrir þessa sýningu en flestar aðrar um árabil. Og ekki má gleyma að þakka skáldinu fyrir að hafa eftirlátið okkur þetta ágæta verk, sem einkenn- ist af ást á heilbrigðu og heið- arlegu mannlífi, en fyrirlitn- ingu á tvískinnungshætti og sýndarmennsku. Og svo er það leiktjaldamál- arinn. Við megum vera stoltir af því, Akureyringar, að eiga slíkan listamann sem Aðalstein Vestmann á meðal okkar. Að lokum örfá aðfinnsluorð: Leiksýningar hér hafa yfirleitt byrjað nokkuð stundvíslega. Að þessu sinni var óstundvísin meiri en góðu hófi gegndi. Slíkt má ekki verða að venju. Það verður allt að vera tilbúið á réttum tíma, og leikhúsgestir verða líka að vera komnir í sæti sín á rétt- um tíma. Allt annað er óviðun- andi. Og í öðru lagi. Myndarleg og falleg blómaskreyting var ann- ars vegar framan við leiksviðið á þessarri hátíðarsýningu. Það var ágætt svo langt sem það náði, en það vantaði við hlið blómanna stóra mynd af mann- inum, sem sýningin var helguð og hefði orðið sjötugur í gær, ef líf hans hefði enzt svo lengi. Þ. Föstudagur 22. janúar 1965. Verkamaðurinn (3

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.