Verkamaðurinn - 20.01.1967, Blaðsíða 3
Nýr bœjarstjóri
á Akureyri
Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar, í maí sl.,
lagði Alþýðubandalagið á Akureyri sérstaka áherzlu
á að bundinn yrði, að kosningum loknum, endir á þá
stjórnunaraðferð, sem hvergi viðgengst í öðrum kaup-
stöðum á landinu, að ekkert ábyrgt flokkasamstarf
stæði að baki bæjarstjói’a og hefði forustu. um lausn
vandamála bæjarfélagsins. Það sýndi fram á, að slíkt
fyrirkomulag, slík „happa- og glappaaðferð“, um
stjórn bæjarfélagsins væri í hæsta máta óheppileg og
leiddi til glundroða og stjórnleysis. í kosningabafátt-
unni sl. vor var mjög tekið undir þessa skoðun Alþýðu-
bandalagsins, sérstaklega af Alþýðuflokknum.
Eftir kosningar beittu bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins sér fyrir samstarfi um bæjarmálin, en áhugi
hiima flokkanna reyndist enginn, þegar til kastanna
kom, fyrir samkomulagi um annað en embætti bæjar-
stjóra og kosningar forseta bæjarstjórnar og voru
hrossakaup um þessi embætti gerð milli „sigurvegar-
anna“ í kosningunum, Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks, en Sjálfstæðisflokkurinn, lamaður eftir ósig-
ur sinn, lét sér lynda að dingla aftan í þessum flokk-
um án þess að fá nokkuð í sinn hlut.
Afleiðingar þess ábyrgðarleysis að láta málefni
bæjarfélagsins víkja fyrir hrossakaupum um embætti
og titla, hafa síðan reynzt mjög að spám Alþýðubanda-
lagsins og mun varla um það deilt meðal óbreyttra
borgara bæjarins, að stjórn hans hafi sjaldan eða aldrei
■■■■■■■■■■■■HHHIIHHHHPIB
farið öllu vei'r úr hendi en á nýliðnu ári, en atvinnu-
leg og fjárhagsleg vandamál hrannast upp.
Við brottför Magnúsar Guðjónssonar úr embætti
bæjarstjóra, skapaðist á ný tækifæri til þess að mynda
flokkasamstai'f á málefnagrundvelli um þau brýnu
vandamál, sem úrlausnar bíða og skapa þannig nýjum
bæjarstjóra nauðsynleg starfsskilyrði og húsbónda-
vald byggt á skoðun og stefnu. Og enn reyndu bæjar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins samstarfsleiðina með
því að leggja fyrir ALLA hina flokkana málefnagrund-
völl í atvinnumálum, hiisnæðismálum og fjármálum
bæjarfélagsins. Þessum samstarfsgrundvelli hefur nú
verið hafnað af þessum flokkum og enn valin sú leið
að láta kaupskap um bæjarstjóraembættið og forseta
bæjarstjórnar nægja sem starfsgrundvöll, en ýta verk-
efnum og vandamálum til hliðar.
Alþýðubandalagið lítur enn á þessi vinnubrögð
hinna flokkanna sem fullkomið ábyrgðarleysi og vilja-
Leysi til þess að gegna þeim skyldum, sem á bæjar-
stjórn hvíla gagnvart bæjarfélaginu í heild og bæjar-
búum. Fyrir því eru sjálf málefnin aðalatriði og und-
irstaða, sem mannval í embætti eigi að byggjast á.
Afstaða bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins til bæj-
arstjórakjöi’sins og þeiri'ar kosningar á Braga Sigur-
jónssyni sem forseta bæjai'stjórnar, sem í kjölfarið
mun fylgja, er rökrétt afleiðing þessarrar skoðunar
Alþýðubandalagsins, eftir að málefnasamstarfi hefur
verið hafnað. I þessarri afstöðu felst að sjálfsögðu
enginn fyrirfram dómur um hæfni Bjarna Einarsson-
ar, hins unga reykvíska framsóknarmanns, til þess að
gegna. embætti bæjarstjóra, né heldur neinn óvilji á
því að eiga við hann samstarf um bæjarmálin eftir því
sem efni gefast til. I því, sem öðru, munu fulltrúar Al-
þýðubandalagsins láta málefnin ein í'áða. — b.
iHiniHiiiiuuuniPiuiiiiiiiun
Álfodans
Á sunnudaginn kemur efnir
íþróttafélagið Þór til Álfadans
og brennu á eyrunum norðan
Glerór, en félagið hefur alla tíð
síðan 1926, og reglulega annað
hvort ár síðustu áratugi, annast
slíka framkvæmd.
Hafa bæjarbúar ætíð fagnað
og haft mjög mikla ánægju af
þessarri framkvæmd, enda er
þetta mikil tilbreyting í skamm-
deginu í skemmtanalífi bæjar-
búa.
Félagið mun vanda til þessa
fagnaðar eins og jafnan áður.
Kl. 8 e. h. verður kveikt í
brennunni. Álfakóngur og drottn
ing hans aka til hátíðasvæðisins
kl. 8.30. Þeim fylgir frítt föru-
neyti: Glæstir riddarar, dansálf-
ar, ljósálfar, púkar, tröll og alls
konar skrípi, samtals um 70 ver-
ur.
Frú Margrét Rögnvaldsdóttir
stj órnar fj ölbreyttum dönsum.
Danssvæðið verður skrautlega
lýst og flugeldum skotið.
Dansleikur verður í Sjálfstæð
ishúsinu um kvöldið fyrir fé-
laga og gesti þeirra.
Auglýsið
í Verkamanninum.
m monnfólkinu veoinn
Aðvoro 0(|
Blaðið náði tali af nokkrum
nemendum M. A., sem fara með
veigarnestu hlutverkin í leikriti
því, sem L. M. A. sýnir um þess-
ar mundir, — „Biederman og
brennuvargamir“ — eftir Max
Frisoh.
— Hvenœr byrjaði M.A. leik
sýningar?
— Veturinn 1936—’37 með
leikritinu „Andbýlingar“ eftir
Hostrup, leikstjóri var Ámi
Jónsson, kennari. L. M. A. er því
30 ára í vetur.
— Þið hafið oftast sýnt létt
gamanleikrit, hvers vegna breytt-
uð þið lil og völduð þetta nú-
tíma ádeiluverk?
— Gamanleikir Holbergs og
Moliers, og léttar og hraðar
stofukómedíur hæfa kannski
ungu fólki bezt til flutnings. —
Kostulegar persónur og öfga-
kennd tilþrif gefa byrjendum
meira svigrúm til að breiða yfir
vankantana.
Þó hefur oft borið á góma hjá
L. M. A. að reyna að breyta til,
en ekki hefur orðið að því fyrr
en nú. Nú var margt það fyrir
hendi, sem áður skorti, svo sem
vel menntaður leikstjóri í nú-
tíma leiklist, og leikrit, sem
bæði við og hann höfðum áhuga
á. Svo teningnum var kastað, og
tíminn mun leiða í ljós, hvort
við erum fær um að túlka þetta
verk á þann veg, sem því hæfir.
— Er leikritið háalvarlegt?
— Okkur óx í fyrstu í augum
þetta erfiða verkefni. En þegar
á leið og form tók að myndast
á uppsetningunni, óx okkur held
ur ásmegin.
Leikritið, sem blandað er
grófu gamni, brennuvargarnir ó-
svífnir og ísmeygilegir, Bieder-
man hin lítilsiglda sál, bruna-
liðskórinn hin opinbera menn-
ingarvitund, gripu hug okkar.
Nýstárleg leikstjórn Erlings Hall
dórssonar átti og stærstan þátt í
þessu og var okkur ný reynsla
og ómetanlegur skóli.
— Hverhig hafa svo leikhús-
gestir tekið sýningum ykkar?
—Aðsókn hefur verið góð
og margir látið í ljós ánægju
sína. En skemmtilegast er, hvað
leikritið sjálft hefur vakið mikl-
ar umræður og þar eru sannar-
lega ekki allir sammála.
— Að lokum: Finnst ykkur
ekki, eftir að þið hafið kynnzt
þessu merkilega verki, að það
eigi nokkurt erindi til samtíðar
okkar?
— Alveg tímælalaust. Góðir
lei'kritahöfundar sjá lengra, að-
vara og vísa mannfólkinu veginn
ekki síður en önnur skáld.
Um leið og blaðið þakkar
þessum efnilegu, ungu leikurum
fyrir einarðleg og skýr svör, vill
það hvetja bæjarbúa til að sjá
þetta merka verk og getu þessa
unga fólfcs til listtúlkunar. —
Næstu sýningar verða föstud.,
laugard. og sunnud. kl. 20.30.
Miðasala er í Samkomuhúsinu
kl. 4—7 e. h.
Þessi eftirtektaverða tafla er úr fræðslu-
riti Krabbameinsfélagsins "Tóbak og áhrif
þess" eftir próf. Niels Dungal.
Allir skólar, félög og foreldrar geta
fengið rit þetta eftir þörfunx og að kostn-
aðarlausu, með því að sírna eða skrifa til
Krabbameinsfélags fslands að
1AR. 5AR, 10 AR, 20 AR,
Hér getið þið séð, hvað það kostar að
reykja eimt sfgarettupakka til jafnaðar á
dag, miðað við verð hans nu.
Föstudagur 20. janúar 1967.
Verkamaðurinn (3