Verkamaðurinn - 20.01.1967, Qupperneq 7
ff'
hraifnrstibúsanna
RdutrtrofhM
Framhald af 4. síðu.
sér fyrir verkum, sem að dómi
almennings eru neikvæð fyrir
þjóðarheildina á meðan þeirra
er ekki þörf. Fólkið í landinu.
hinir óbreyttu kjósendur, vita að
rekstur hraðfrystihúsanna er lífs
nauðsyn fyrir þjóðina og að það
verður að tryggja rekstrargrund-
völl húsanna. En almenningur í
landinu, sem alltaf er látinn
greiða kostnaðinn til að ná end-
um saman þegar í óefni er kom-
ið á þessu sviði í dag og hinu
á morgun, hann frábiður sér
slíka ævintýramennsku í atvinnu
rekstri, sem ég hef bent á hér
að framan, og hann beinlínis
neitar að greiða kostnaðinn af
slíku brölti.
Þetta hefðu þeir átt að vita
strax í upphafi þessa máls, þeir
sem fyrir bröltinu stóðu og þau
yfirvöld sem leyfðu það. Óneit-
anlega stæði nú Sölumiðstöðin
í dag frammi fyrir almenningi
með hreinni skjöld og meiri til-
trú hins óbreytta kjósanda, ef
hún hefði ekki látið sig henda
slíkt sem að framan greinir og
sem óhjákvæmilegt var að benda
á hér, því óneitanlega eru þessi
mál nú undir smásjá fólksins,
þegar hraðfrystihúsaeigendur
telja að rekstrargrundvöllur hús
anna sé brostinn, en það treysti
ég mér heldur ekki til að ve-
fengja eins og þessi mál horfa í
dag.
Hvoða úrræði eru
tiltækust?
Nú þegar rekstrargrundvöllur
hraðfrystihúsanna er brostinn,
eins og stjórnendur húsanna
segja sjálfir, þá er eðlilegast að
spurt sé: Hvaða úrræði eru til-
tækust? Því að flestir munu vera
á einu máli um, að það sé þjóð-
arnauðsyn að húsin verði starf-
rækt, hvað svo sem núverandi
rekstrargrundvelli líður. Enda er
það staðreynd í nútíma hagræð-
ingarþjóðfélagi, að rekstrar-
grundvöllur eins atvinnuvegar er
meira kominn undir stjórnar-
og þingathöfnum, heldur en bein
um náttúrulögmálum.
Það sem einna tiltœkilegast
er að gera nú. til að rétta hlut
fiskiðnaðarins, það er að lækka
útflutningstollinn á jiskafurðum
t. d. niður í 1%. Þá œtti jafn-
hliða uð lœkka vexti' af rekstrar-
lánum útgerðar og fiskiðnaðar
t. d. um 2%. Þá œtti algjörlega
að afnema toll af fiskiðnaðarvél
um sem mun vera kringum 35%,
það mundi ýta undir aukna véla
notkun og hagkvœmari rekstur
frystihúsanna og annarra fisk-
stöðva.
Allar þessar aðgerðir virðast
hreint og beint sjálfsagðar eins
og á stendur. Það skiptir engu
máli í þessu sambandi, þó hægt
sé að benda á, að útflutnings-
tollurinn gangi til að efla Fisk-
veiðisjóð, sem sé þörf stofnun.
Það eru fleiri leiðir til, sem hægt
er að fara í því efni, og sú sem
liggur beinast við, er að útvega
sjóðnum lán sem gæti staðið
undir aðkallandi uppbyggingu
fiskiflotans.
Þegar svo er komið hag út-
geraðr og fiskiðnaðar eins og
nú blasir við, þá er slík skatt-
lagning sem að framan greinir
hrein vitfyrring.
Komi það á daginn. að þetta
mundi ekki nægja til afréttingar
á rekstrargrundvelli fiskiðnaðar-
ins, sem í þessu tilfelli eru hrað-
frystihúsin, þá verður að sjálf-
sögðu að leita fleiri úrræða, en
þetta er sú fyrsta leið sem ber
að fara, um það eru þeir sam-
mála sem ég hef leitt þetta í tal
við. Til beinna styrkja ætti'ekki
að koma, fyrr en að afloknum
þeim ráðstöfunum sem að fram-
an greinir.
S. K. T.
S. K. T.
Félagsvist
í Alþýðuhúsinu föstudaginn 20. janúar kl. 8.30
Góð verðlaun. — Spilastj.: Rögnv. Rögnvaldss.
Dansað til kl. 1.
Komið og skemmtið ykkur með glöðu fólki
ón ófengis.
Höfum flutt verzlun vora og glerslípun í ný og
bætt húsokynni að GLERÁRGÖTU 20.
Bætt aðstaða — Betri kjör.
Byggingavömverzlun Akureyrar h.f.
N Ý K O M I Ð :
Snjóbomsnr
Stærðir 35—45
S K Ó D E I L D
Vikublað Alþýðubandalagsins í Norð-
urlandskjördæmi eystra. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður Þorsteinn Jónatans-
son. -— Auglýsingar og afgreiðsla:
Rögnvaldur Rögnvaldsson. — Afgreiðsla blaðsins er í Brekkugötu 5, Akureyri,
sími 11516. Áskriftarverð kr. 150.00 árgangurinn. Lausasöluverð kr. 4.00
eintakið. — Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. — Prentað í Prentsmiðju
Björns Jónssonar h.fAkureyri.
Bæjarstjórn Akureyrar sam- j
þykkti á síðasta fundi, að til- j
lögu hafnarnefndar, að róða ;
Pétur Bjarnason, vélaverkfræð- i
■
ing, tii eftirlits með fyrirhuguð- j
um framkvæmdum við nýju j
dróttarbrautina.
^Brvegorw
undir snjé
Reykjadal 18. jan.
Hér eru nú allir vegir greið-
færir, og hafa engar vegar-
skemmdir orðið í hlákunum und
anfarið. Um áramótin var hér
hins vegar allmikill snjór og
vegir þungfærir, og var þá snjó-
bíll héraðslæknisins á Breiðu-
mýri allmikið notaður og fleiri
snjóbílar voru hér í ferðum.
Snjó tók hér mjög ört í hlák-
unum, og eru bændur nú farnir
að beita fé sínu. Fullskipað er í
Alþýðuskólann á Laugum og
varð að neita mörgum umsækj-
endum um skólavist af þeim sök
um og er þetta óviðunandi á-
stand.
Viðbyggingin við heimavist-
ina er nú orðin fokheld. Þegar
sú bygging verður tekin í notk-
un, leggst heimavistin á lofti í-
þróttahússins niður, enda mjög
úrelt orðin.
Nokkuð er um félagslif, hald-
in eru spilakvöld, og karlakórinn
æfir af kappi og mun halda sam-
söng fljótlegá.
Sagt er-, að skurðgröfuruðn-
ingar við hinn væntanlega „kís-
ilgúrveg“ hafi með köflum verið
í kafi í snjó eftir hlákuna og þyk
ir ekki spá góðu um vegarstæð-
ið. Þ. G.
REIKNINGAR BÆJARINS óriS
1965: — Reikningar bæjarsjóðs
Akureyrar fyrir órið 1965 lógu
fyrir síðasta fundi Bæjarstjórn-
ar Akureryar. Var þeim visað
umræðulaust til annarror um-
ræðu.
KltmSjA
VIKUNNAR
Messað verður í Akureyrarkirkju
kl. 2 e. h. á sunnudaginn kemur.
Upphaf 9 vikna föstu. — Sálmar nr.
140 — 330— 141 —296 — 304.
P. S.
Messað verður í Lögmannshlíðar-
kirkju nk. sunnudag kl. 2 e. h. —
Sálmar nr.: 18 — 338 — 208 —
207 — 684. — Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 1.30. — B. S.
Frá Sjálfsbjörg. — Spilakvöld
verður að Bjargi föstudaginn 20.
janúar kl. 8.30 e. h. — Kvikmynd
á eftir.
Styrktarfélagi vangefinna á Akur
eyri barst stórhöfðingleg gjöf. Á að
fangadag jóla voru mér afhentar kr.
50.000.00 — fimmtíu þúsund —
sem gjöf frá hjónum hér í bæ til
Styrktarfélags vangefinna á Akur-
eyri. Hjón þessi vildu ekki láta nafn
sins getið, en gátu þess að börn
þeirra væru öll vel gefin og það
vildu þau þakka með þessari gjöf.
— Kærar þakkir. Jóh. Þorkelsson.
Tilkynning frá héraðslækni. —
Verð fjarverandi til 1 5. febrúar nk.
Aðrir læknar bæjarins gegna störf-
um mínum hér í bænum þennan
tíma. — Sveitaferðir annast Brynj-
ar Valdemarsson, deildarlæknir á
Kristneshæli, og er sími hans 12509.
Jóhann Þorkelsson.
Þórsfélagar! — Athugið, að fram
vegis verða sundæfingar félagsins
á miðvikudögum kl. 6—7 og á laug
ardögum kl. 6.30—7.30 — Stjórn
andi: Jónas Jónsson. — Þessi holla
og góða íþrótt er gulli betri og eru
félagar kvattir til þess að sækja
æfingarnar vel og stundvíslega.
Næturvaktir lækna á Akureyri
hefjast kl. 17 og standa til kl. 8
morguninn eftir. — Þessir læknar
hafa næturvakt næstu viku: 20. jan.
Halldór Halldórsson, 21. jan. Bald-
ur Jónsson, 22. jan. Baldur Jónsson,
23. jan. Halldór Halldórsson, 24.
jan Sigurður Olason, 25. jan. Bjarni
Rafnar.
Lyfjabúðirnar á Akureyri eru opn
ar sem hér segir: Á virkum dögum
eins og verzlanir, en eftir það er
vakt í annarri lyfjabúðinni til kl. 22.
Á laugardögum er vakt til kl. 16 og
aftur kl. 20—21. Á sunnudögum
er vakt kl. 15—17 og 20—21. —
Vaktir þessa viku hefur Stjörnu-
Apótek, sími 11718, en næstu viku
Akureyrar-Apótek, sími 1 1032.
Minningargjöf: — Sveinn Stefáns
son frá Tunguhálsi, Skagafirði, hef-
ur gefið Elliheimili Akureyrar 10
þúsund krónur tl rainningar um Stef
án Stefánsson, járnsmið, Akureyri.
— ElIiheimiIisstjórn flytur honum
beztu þakkir fyrir gjöfina.
Verkamaðurinn (7
Föstudagur 20. janúar 1967.