Verkmannablað - 01.05.1913, Qupperneq 2

Verkmannablað - 01.05.1913, Qupperneq 2
VERKMANNABLAÐ 2 T~ Petta verðum við að gera fyrir sjálfa okkur sem nú erum á lífi, til þess að forða okkur frá líkamlegum og andiegum hungurdauða. Við verðum að gera það fyrir eftirkomendur okkar svo þeim vegni vel, svo þeir viti og finni að þeir eru frjálsra manna synir og dætur, en ekki þræla, svo þeir neyðist ekki til að bölva okkur dauðum. Við verðum að gera það fyrir þjóðfélagið, virðingu þess og vellíðan í nútíð og framtíð. Því þjóðin er dauðadæmd, ef vinnulýðurinn úr- kynjast, ef andlegur og líkamlegur kyrkingur nær að gagntaka fjölmennustu stéttina. Verkmannafélagið »Dagsbrún« ríður á vaðið með ofurlitla tilraun í þessa átt — þetta Iitla blað. Það er undir verkmönnum sjálfum komið hve langlíft það verður eða áhrifamikið. Hvort þeir lesa það og kaupa, hvort þeir nota það til þess að ræða í því sameiginleg hagsmunamál verk- manna. * * í 22. tbl. »Lögréttu« ritar Tryggvi Gunnarsson grein með fyrirsögninni: »Atvinnuvegirnir og Dagsbrún*. Það skín berlega út úr grein þessari að T. G álítur kaup það, sem verk- mannafél. heimtar til handa meðlim- um sínum svo hátt, að atvinnuveg- irnir þoli það ekki, einkum sjávar- útvegur og landbúnaður. Þeir gangi saman og menn verði neyddir til að flýja land sökum atvinnuskorts. Þessu til sönnunar setur hann fram allmargar spurningar og mælist til aðleiðtogar verkmannafélagsins svari þeim. En tekur fram um leið hvaða vítum það varðar, ef svörin verða ekki fullnægjandi, — að hans áliti. Það er auðséð á spurningum T. G. að hann er harla ófróður um starfsemi verkmannafélagsins. Hann vænirfélagið um skaðræðisverk, eyði- legging atvinnuvega svo til land- auðnar horfi, en hefir þó ekki hug- mynd um reglur þær, sem félagið hefir sett sér og fer eftir, hefir hvorki heyrt þær eða lesið. Er slíkt furðu mikið forsjáleysi af svo gömlum og reyndum manni, óvenju mikið kæru- leysi fyrir sönnu og réttu máli. Af þessu leiðir að margar af spurn- ingunum eru út í bláinn gerðar, koma verkmannafél. ekkert við og eru ekki svara verðar að öðru leyti en því, að leiðrétta rangar hugmynd- ir um félagið hjá þeim mönnum, sem — eins og T. G. — þekkja lítið eða ekkert til þess. Ákvæði þau sem félagið hefir gert um kaupgjald ná aðeins til þeirra félagsmanna, sem stunda algenga daglaunavinnu. Þannig hefir þetta verið orðaö í lögum félagsins frá því það var stofnað. Með algengri daglaunavinnu er auðvitað átt við þá vinnu, þar sem verkamanni er borgað ákveðið kaup fyrir hverja klukkustund, sem hann vinnur, en enginn samningur gerður um atvinnutímann. Tr. G. spyr hvort leiðtogar Dagsbr. þori að leigja þilskip til fiskiveiða (1. sp.) eða 5 manna far (!), (2 sp.) eða taka bújörð og afla heyja, (5. sp.) að hirða kýr, sauð- fé og hesta yfir veturinn, (6. sp.) og ráða menn til ailra þessara verka fyrir 35 aura um kl.t. í 10 kl.t. á dag og 45 aur.um kl.t. fyrir þá kl.t, sem fram yfir eru. Ef Tr. G. hefði lesið lög Dagsbr., er óhugsandi að honum hefði orð- ið á, að setja fram þessar spurn- ingar. Hann er víst naumast þeim mun vitgrennri, en allir aðrir heil- vita menn, að hann teiji fiskidráit, skipsverk, sjóróðra, heyskap í sveit, fjósaverk, smalamensku og hrossa- hirðing, sem algenga daglauna vinnu. Tr. G. spyr ennfremur hvort þeir þori að ryðja móa og mela til kál- og kartöflu-ræktar (3. sp ), eðá slétta og þekja nokkrar dag- sláttur í túni »eftir nútíðar máta«, og greiða verkamönnum 35 aura um kl.st. meðan á verkinu stend- ur (4. sp.). Þar sem jörö er sæmilega fallin til ræktunar er vafalaust aöjarðrækt ber sig með þessu kaupi. En svo getur jörð verið illa fallin til rækt- unarað ekki beri ræktunarkostnaðinn, þóít kaupgjald væri 20 aur. um kl.t. Þótt T. G. hafi reynslu fyrir því að slíkt fyrirtæki beri sig ekki, þótt kaup sé miklu lægra en 35 a. um kl.st. er það engin sönnun í málinu. f þessu dæmi geng ég auðvitað út frá því sem almennu skilyrði, að sá sem Iætur vinna verkið hafi til að bera alt að því meðalmanns verk- stjórnarhæfileika. í 7. lið spurninganna veður T. G. sama reykinn. Gengur hann út frá því, að foringjar Dagsbrúnar þori ekki að reka þær atvinnugreinar, sem hann nefnir í fyrri spurningunum og þá sé það þar með sannað, að 35 a. kaupgjald félagsins geti at- vinnuvegir til sjós og lands ekki borið og menn verði því að flýja landið. Dagsbrún hafi með þessum kaupgjaldskröfum fyrirbúið útflutn- ingsagentum ágæta uppskeru í sumar »Fyrir framan lá hafnarvinnan og álitleg tíð fyrir verkamenn hefðu leiðtogarnir haft vit og vilja til að leiða skoðanirnar og kröfurnar í rétta átt«; segir T. G. Rökfærsla T. G. er þessi, dregin saman í fá orð: Ef alment kaupgj. hefði verið 25—30 aur. um kl.st. við hafnarv. og aðra vinnu þá hefði ver- ið góð tíð fyrir verkamenn, þá hefðu þeir unað hag síntim og farið hvergi. En af því að kaupið er 35 aur. um kl.st. þá verða þeir óánægðir og flýja undan því fári til Ameríku. Það er varla óma'.sins vert að taka það fram, að foringjar Dagsbrúnar I eru á gagnstæðri skoðun. Ég ætla ekki aö líta svo smáum augum á vitsmuni íslendinga, að gera ráð fyrir að óreyndu, að hér á landi séu tveir menn eða fleiri sem fylgja skoð- un T. G. Því er ekki til að svara að atvinnugreinarnar rýrni hér fyrir sakir kauphækkunar þeirrar, sem varð í vetur. Kauptaxti félagsins var saminn í samráði við alla helztu atvinnurekendur t bænum. Þeir halda áfram atvinnurekstri eftir sem áður og borga 35 aur. um kl.st. Hafnar- vinnan heldur áfram eftir sem áður og forráðamaður hennar borgar 35 aur. um kl.st. Þá spyr T. G. í 8. lið: »Hafið þið leiðtogar Dagsbrúnar tekið eftir því, að vinnan er drýgri fyrir vinnu- veitendur á vorin og sumrin, heldur en á jafnlöngum tíma haust og vetur. Sé svo, að þið hafið séð þetta, — því heimtið þið og ykkar menn þá jafnt kaup um kl.st. sumar og vetur?« Já, við höfum tekið eftir því og miklu meiru. Við höfum tekið eftir því að haust og vetur er veðráha verri en að vor- og sumarlagi. Verkamaðurinn afkastar oft minni vinnu um kl.st. og kostar þó miklu meiru til. Slítur fötnm meira, slít- ur kröftum meira, spillir heilsunni meira í vosbúð og kulda, færist

x

Verkmannablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkmannablað
https://timarit.is/publication/216

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.