Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Page 1
/,\A N ' H/i/
I S L A » D S
4. BLAÐ
AGUST 1908.
I. ARG.
Tryggvi Gunnarsson.
Þegar rituð verður verzlunarsaga þessa lands,
mun nafn Tryggva bankastjóra Gunnarssonar eigi
gleymast, enda á hann miklar yiðurkenningar
skilið fyrir starfsemi sína í
þarfir þessarar stéttar. —
Áhugi hans á verzlunar-
málum sýnir ræða hans á
»frídag verzlunarmanna«,
er vér birtum hér í blaðiuu,
einna bezt. Rúmlega tví-
tugur (1858) gekst liann
fyrir þvi, að nokkrir menn
fengu nýtt þilskip trá Nor-
egi til að stunda hákarla-
veiðar, og eftir það fjölgaði
óðum þilskipum við Eyja-
fjörð. Um það leyti kom
ýmsum bændum það til
hugar, að senda skip til
Reykjavíkur, því þar var
miklu hetri verzlun en á
Akureyri. Var Tryggvi kjör-
inn formaður ferðarinnar;
reið hann náttfari og dag-
fari til Reykjavíkur, þó leið-
ina hefði hann aldrei farið
áður, samdi við kaupmenn í Reykjavik um
vörukaupin, fór lieim síðan, bjó skip sitt og
hafði meðferðis vörur fyrir 12 þúsund krón-
ur; hrepti ilt veður á leiðinni, en ferðin
gekk þó slysalaust. Var þetta 1 fyrsta sinn, að
vörur voru fluttar frá Norðurlandi til Suðurlands.
Varð hann lofaður af förinni og þótti giftusam-
lega liafa tekist. 1870 gekst hann fyrir þvi, að
bændur norðanlands stofnuðu hlutafélag, keyptu
skip, er Grána hét, og nefndu félagið »Gránu-
félag«. Tryggvi var þegar kjörinn kaupstjóri fé-
lagsins, er var hið fyrsta, er stofnað var hér á
landi. »Bændur vissu að Tryggvi var djarfur og
áræðinn, og lét ekki hlut sinn, þegar þvi var
að skifta, auk þess var
hann manna vinsælast-
ur. Þess vegna varð hann
kaupstjóri Gránufélagsins«.
»Gránufélagið« blómgaðist
mikið, rak verzlun um alt
Norður- og Austurland, og
hafði um hríð um hálfa
miljón króna verzlun á ári.
Síðustu árin, er Trvggvi
veitti því forstöðu, fór verzl-
un félagsins heldur að
hnigna, sem mun mest hafa
stafað af því, að þá risu á
stofn kaupfélög, er verzluðu
við Englendinga, og þótti sú
verzlun hagfeldari. Það var
Gránufélaginn og Tryggva
að þakka, að farið var að
flytja saltfisk frá Norður-
landi til útlanda. 1877
byrjaðiGránufélagið að selja
salt miklu ódýrara en venja
áður, og byggja salthús utarlega á fjörðum,
svo fiskimönnum væri hægara að ná í það. — Brá
svo við, að fiskisala til útlanda fór að verða all-
mikil, og hefir aukizt árlega. Tryggvi gekst og
fvrir þvi, að gufubræðsla á hákarlalifur var byrjuð i
Ejjafirði, og varð lýsið betri verzlunarvaraen áður.
1893 varð Tryggvi bankastjóri Lands-
bankans, og hefur umsetning bankans auk-
Tryggvi Gunnarsson.
var