Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Page 2

Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Page 2
28 VERZLUNARBLAÐ ÍSLANDS ist gifurlega þau 14 ár, er hann heflr veitt hon- um forstöðu. Hefir hann ávalt látið sér vera mjög umhugað um hag bankans, og verið þarf- asti styrktarmaður hans á alþíngi. Auk þess hefir Tryggvi gengist fyrir nær öllum framfara- fyrirtækjum Reykjavíkur, síðan hann fiuttist hingað, »íshúsfélaginu«, sem er hið arðsamasta hlutafélag bæjarins, og fjölda annara hlutafélaga, og hefir venjulegast verið formaður þeirra. í almennum málum hefirhannogáttmikinnþáttl. Alþingismaður hefir hann verið á 16 þingum, 1869,1875—1885, 1894—1907, og oítast verið form. fjárlaganefndar þingsins. Hefir hann jafnan verið hinn nvtasti þingmaður. í bæjarstjórn Reykja- víkur átti hann lengi sæti, og gegndi mörgum störfum í bæjarins þarfir. Forseti Þjóðvinafélagsins hefir hann verið alla stund, síðan Jón Sigurðsson andaðist (1879). Margt gott mætti um mann þennan rita, og geta þess, að mörgum mannvirkjum hefir hann staðið fyrir, og má þar meðal annars nefna Ölfusár- lirúna og Landsbankahúsið, sem er eitt hið feg- ursta hús bæjarins. Sízt má gleyma því, hvern jiátt hann hefir átt í þilskipaútvegnum við Faxa- ilóa. Um hann hefir hann manna inest látið sér ant, og gert alt til að gera hann sem arð- vænastan; enda má óefað þakka Tryggva hinar miklu framfarir, er átt hafa sér stað í þessari atvinnugrein landsins. Það má óefað telja Tryggva bankastjóra Gimnarsson einhvern hinn mesta framkvæmdarmann landsvors; munu allir kunna honum þakkir fyrir hans fjölbreyttu og ósér- hlífnu starfsemi í þarfir lands vors og þjóðar. Væri vel, ef margir landsmenn létu sér jafn ant um alt, er horfir hinni íslenzku þjóð til gagns og sóma, sem hann. Skipasmíðar 1908. A síðustu skýrslum frá »Lloyds Register af Shipping« sést að á yfirstandandi ári er sífeklur afturkippur í skipasmíðum, á móts við það, sem var í fyrra. Þannig voru við lok júnímánaðar siðastl. aðeins 386 skip með 799, 178 tonna rúm- máli í smíðum, en um sama leyti í fyrra var, 564 með 1, 250, 318 t. rúmmáli. Pannig nemur aptur förin síðan í fyrra 178 skipum með 451,000 t. rúmmáli samtals. Afturförin, síðan síðasta ársfjórðung nemur rúmum 48,000 tonnum. Af þessum 386 skipum voru 349 gufuskip og 37 seglskip. Af allri skipatölunni lenda 352 hjá »Lloyds« og af þeiin eru 206 byggð í ensk- um skipasmiðjum handa Englandi sjálfu eða þá til sölu o. s. frv., en 77 eru byggð fyrir erlent fé, en 69 skip eru byggð í öðrum löndum og fyrir erlent fé. Bresku nýlendurnar eru stærsti viðskiftavinurirín, því þær láta samtals byggja 31 skip. Þar næst kemur Brasilía með 15 gufu- skip, J)á Frakkland með 13, Argentína með 10 og Noregur og Svíþjóð með síu 9 skipin hvort. A listanum yfir smíðarnar í erlendu skipa- smiðjunum sést, að mest hefir verið unnið í Pýzkalandi, sem sé byggð 41 skip, þar næsl koma Bandaríkin með 34, flolland með 30 og Noregur með 29 skip. Frídagur verzlunarrnanna. Þegar útséð var um það, að engin þjóðhátíð yrði í sumar, tóku verzlunarmenn sig' saman um það, að halda nokkurskonar þjóðhátíð, og völdu þeir til þess miðvikudaginu 19. ágúst. Þeir höfðu og haldið slíka skemtun áður en þjóð- hátíð var farið að halda hér 2 ágúst sem hefir verið síðan 1897 á hverju ári nema í fyrra og nú. Kaupmenn tóku þessu vel, og lokuðu allir búðum sínum. Staðinn völdu þeir í Kópavogi þar sem islendingar sóru konungi einveldi 1662. Er liann miðja vega milli Reykjavikur og Hafnar- fjarðar og klukkutíma gangur þangað. Skemt- unin var mjög I jölsótt bæði af Reykvíkingum og Hafnfirðingum, og mundu þó hafa orðið enn fjöl- mennari ef hún’hefði verið lialdin nær Reykjavík. Veður var ekki sem bezt um morguninn, og leit út sem regn mundi verða um daginn, en })að varð ekki, og þegar leið á daginn gerði bezta veður. Gengu menn úr bænum undir merki félagsins kl. 10 árdegis og var lúðraflokkurinn í broddi fylkingar. Hátíðarsviðið var mjög vel skreitt, og blöktu þar fjöldi fána. Tryggvi bankastjóri Gunnarsson setti sam- komuna, á hádegi og gat þess um leið liver stefna verzlunarmanna var síðari hluta næstlið- innar aldar. Fram yfir 1850 liefði fáum hænd-

x

Verslunarblað Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunarblað Íslands
https://timarit.is/publication/217

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.