Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Side 5

Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Side 5
VERZLUNARBLAÐ ISLANDS 31 lögum gegn »hringjuni«, því þau lög veitist þeim hægt að fara í kringum, — heldur styðst hann (o: »hringurinn«) miklu fremur við brot á járn- brautarlögunum, því þau fyrirskipa skírt og skor- inort, að fara skuli eingöngu og undantekning- arlaust eftir einni og sömu flutningaverðskrá, þannig að ekki fái einn fluttar vörur fyrir lægra iðgjald, en annar. En járnbrautarfélög þau, er »Standard ()il« hafði á sínu bandi iðkuðu slíkar ívilnanir, og það óteljandi oft og þau voru þannig verkfæri í hendi »hringsins«, til þess að útiloka alla samkepni og afla honum einkayfirráð svo að hann gat orðið einvaldsherra yfir allri stein- olíuverzlun. Ef nokkurntíma hefði átt að vinnast sigur með hjálp laganna þá var það i þetta sinn. Það var og álit undirdómarans. Hann kemst að þeirri niðurstuðu, að 1500 sinnum hefði »hringurinn« brotið lögin, og með það sem aðal- ástæðu dæmi hann Standard Oil »hringinn« í dávæn útlát, sem sé 29,400,000 dollara sekt. Efasemdarmennirnir, sem alt til þessa hafa verið vantrúaðir á kraft laganna, hafa nú fengið átyllu fyrir efasemdir síuar, því dóminum er hrundið þegar fyrir öðrum dómstóli án þess, að verjendur Standard Oil »hringsins« hafi þurft að leggja sig í neina sérstaka framkróka. Og rök- stuðningin, sem er synjunardóminum samfara, sýnir ljóslega að ekki er unt að fara þessa leið til að klekkja á St. 0. »hringnum«, þótt mál væri höfðað á móti houum á ný. Hinn mildi dómari, sem ekki vill láta stjórn- ast af »tilfinningu« eins og starfshróðir hans undirdómarinn, byggir á þessum skoðunum: I fyrsta lagi: Þeir sem vörur senda geta ekki lagt sig niður við að rannsaka reikninga þá, er em- bættismenn járnbrautanna gefa út. (Því, geti Stand. Oil. »hringurinn« ekki gert að því þótt járnbrautirnar llytji olíu hans fyrir lægra verð en aðrir. Ójá, embættismenn járnbrautanna vita máski ekki að herra Rochefeller á alt saman bæði járnbrautirnar og »hringinn« — og svo lítur út sem dómarinn vili þetta ekki cða byggi ekki mikið á því, þótt það sé á allra vitorði). í öðru lagi, má ekki meta hverja einstaka vagn- hleðslu sem sérstakt atvik og þess vegna geta sakartilfellin ekki orðið 1500, heldur aðeins 50, og það þykir ekki hlýða, að heimfæra þau undir þýngstu hegningu. (Dómarinn getur sem sé enga hugmynd haft um, að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem St. O. »hringurinn« er ákærður eða dæmdur því þess er ekki getið í málsskjölunum!!). í þriðja lagi — og þá kastar hún tólfunum — er ekki eftir dómarans áliti, Standard Oil Company í Yersey (sem á 100 milljónir dollara stofnsjóð) brotlegt gegn járnbrautalögunum, en þar á móti Standard Oil Company i Indíana sem ekki á nema 1 milljón dollara stofnsjóð og þvi ekkert gæti borgað þótt það yrði dæmt til þess. Standard Oil »hringurinn« notar þannig einnig í þessu máli sína alþektu brelli: að vei'ja alla málstöðu sem fyrir verður, með aðstoð Rochefeller-miljónanna, en vera gagnvart rétfvis- inni ofurlítið félagskríli, sem ekkert getur látið af hendi rakna, jafnvel ekki hina lítilfélegustu sekt. Réttvisin getur nú í makindum átt i höggi við »lepp« oliuhringsins; Rochefeller sakar ekld neitt. Þvert á móti. Illutabréf St. O. þ. e. hins reglulega St. O. & Co. af New-Yrsey, hækkar nú óðum aftur í verði. Arið 1897 giltu þau að- eins 295, árið 1900 voru þau komin upp í 825, árið 1907 féllu þau niður í 390, en nú eru þau aftur stigin upp í 625. Og þessi verðhækkun er ekki eingöngu að þakka úrslitum dómsins, heldur einnig að mestu leyti fregnum sem hafa haft mikil áhrif á kauphöllina og sem hljóða þannig, að félagið — auðvitað hinn virkilegi St. 0. »hringur«, hafi í hyggju að auka starfsfé sitt gífurlega, svo að sjóður þess í einu stökki vaxi úr 100 miljónum d. upp í 500 eða jafnvel 600 miljónir dollara. Það gæli nú heitið að setja kórónuna á alt saman samtímis, og málinu er haldið áfram gegn litlu Standard, sem ekki á nema eina inilljón dollara. Bankavextii' voru þann 20. þ. m., sem hér segir: 1 Kaupmannahöfn 6—672% - Amsterdam 3°/o - Rerlin 4°/o - Rrússel 4°/o - Kristjaníu 572°/o - Stokkhólmi 572°/o - St. Pétursborg 572°/o - Madrid 47*7» - Wien 4°/o - Paris 3°/o - London 272°/° í Reykjavík voru vextir á sama tíma sem í Kaupmannahöfn.

x

Verslunarblað Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunarblað Íslands
https://timarit.is/publication/217

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.