Verslunarblað Íslands - 01.08.1908, Qupperneq 8
34
VERZLUNARBLAÐ ISLANDS
á leiðinni. Ákaílega mekið af smjöri hefði komið
á enska markaðinn frá Síberiu frá 7.—14. þ. m.,
en samt sem áður segja ensk blöð, að smjörverð
fari enn hækkandi.
G. Davidssen konsúll í Leith heíir skýrt frá
því, að smjör, er hann féklc héðan með »Lauru«
24. f. m. hafi selst þannig:
14 kv. 100 pd. kr. 87,55 nettó, 94,78 brutto
8 — — — — 87,23 — 94,80
12 — — — — 86,85 — 94,52
10 — —---------- 85,50 — 93,00
5 — —---- 84,26 — 91,52
6 — — — — 83,83 — 91,36
En smjör með »Sterling« 28. f. m. seldist þannig:
3 kv. 100 pd. kr. 87,44 nettó, 95,04 brutto
10 - 87,40 94,76
8 — — 87,26 94,63
5 — — — — 87,21 89,39
í kostnaði við smjörsöluna er innifalið eldsvoða-
ábyrgð á höfn og í geymsluhúsum, ogsjóábyrgð,
bæði gegn algerum skiptapa og væntanlegum
skemdum, 3°/o af smjörverðinu. Landsbankinn
borgar fyrirfram til rjómabúanna 50 kr. fyrir
hver 100 pd. gegn afhending farmskrár.
(Pjóðólfur).
Ull í Ástralíu 1907—08. Yerzlunarárið 1907—
1908 sem endaði 30. júní siðastl. voru íluttir út
frá Ástralíu 1,631,000 ballar af ull og frá Nýja-
Sjálandi 437,000 ballar, samtals 2068,000 ballar.
Næsta verzlunarár á undan, 1906—07, voru töl-
urnar þessar, 1,663,000 b. frá Ástr. 427,000 frá N.
S. og samtals 2,090,000 1).
Þannig hefir flutst 32,000 b. minna út frá
allri Astralíu (að N. S. meðtöldu) síðastliðið
verzlunarár, en fluttist árið þar áður.
Hér við er einnig það að athuga, að hall-
arnir voru þeim mun léttari síðara árið, að
reikna verður að útflutningurinn hefir í raun og
veru þorrið um 90,000 b. i stað 32,000 b.
Að svo miklu leyti, sem enn verður nokkuð
sagt um hið nýbyrjaða verzlunarár, má heldur
gera ráð fyrir að enn þverri útílutningurinn,
])ótt lítið kunni að verða.
Banatilræðið í Málmey.
Yegna hinnar miklu vinnuteppu meðal
verkamanna, er að upp- og útskipun vinna, liöfðu
verið fengnir til Málmeyjar frá Englandi 81
mcnn; aí þeim voru 74 óbreyttir verkamenn,
4 verkstjórar, 1 bryti og 2 matsveinar. Mönnum
þessum var komið fyrir í »Amalthea« og áttu
þeir að vinna að affermingu kolaflutningsskipa.
Aðfaranótt sunnudagsins (þess 21. júlí) varð
skyndilega tundursprenging, er drap einn af hin-
um ensku verkamönnum, W. (ilose að nafni,
og limlesti sex aðra og liggja þeir nú á »Almána
sjukhus« í Málmey. Gustav konungur vitjaði
hinna limlestu síðari hluta sunnudagsins og gerð-
ist frumkvöðull að því, að eflt var til samskota
fyrir þá. Verkamaðurinn, sem bana beið átti
heima í Hull, hafði kvongast fyrir þrem missir-
um og lætur eftir sig ekkju og fimm vikna gam-
alt barn.
Ódæði þetta hefir mælst afarilla fyrir í Málm-
ey og alment sýna menn innilega hluttekningu
hinum særðu, ekkjunni og munaðarleysingjan-
um, bæði í Svíþjóð og annarsstaðar.
Deild »eyrarvinnufélagsins« i Málmey lýsti,
á fjölmennum fundi þ. 13. f. m„ einbeittlega
yfir viðbjóði sínum á þessu hryðjuverki og kvað
félagið alls engan þátt hafa átt í því.
Maður nokkur, 22 ára að aldri, var tekinn
fastur þ. 11. f. m. þegar hann ætlaði að koma
sér i skip, sem átti að fara 3rfir til Iíaupmanna-
hafnar; mælt er að maður þessi tilheyri flokki
jafnaðarmanna.
Yfirvöldin hafa heitið þeim manni 2000 kr.
verðlaunum úr rfkissjóði, sem geti ljóstað upp
hver valdur sé að verkinu.
Yerzlunarblað Islands
kemur út minst einu sinni i mánuði, minst 12 siður.
Verð innanlands 3 kr., er borgist fyrir lok október-
mánaðar. Erlendis 5 sh. Borgist fyrirfram.
Uppsögn skrifleg, sé komin tit útgefenda fyrir 1. maí.
Afgr. Kirkjustræti 8. Talsími 180.
Eigendur og ábyrgðarmenn:
GRÍMÚLFUR ÓLAFSS0N og ÓLAFUR ÓLAFSS0N
Prcntsmiðjan Gutenberg.