Voröld


Voröld - 26.03.1918, Blaðsíða 3

Voröld - 26.03.1918, Blaðsíða 3
Winnipeg, 26. Marz, 1918 VORÖLD -Bls. 3 I A I i Fuglinn þinn. Um litinn fugl þú ljóöar milt og ljúfa sönginn hans, er læöist hann um lyngið stilt, og laufa-fagran krans. Þú segir hann uni sæll á grein, og syngi hrygö á braut, og bugi sorg og bæti mein og burtu nemi þraut. En fuglinn þessi frjálsi þinn, svo friöarsæll og dýr, hann óöar lítur óvin sinn, ef óvart að þér snýr. Hann flýgur yfir fjalliö þá og felst í skógar borg, þig mæddan hrelldan minnir á hve mörg er lífsins sorg. Hve yfirgefinn einn og sár, og oft ei skilinn rétt. Meö viðkvæmt hjarta og votar brár þitt vart mun brjóstið létt. Ei litla fuglinn líttu á ef létta viltu hug, hann flýgur burtu þá og þá, og þínum rænir dug. En líttu’ á kaldan klettinn þar þó kunni ei sýngja milt, hann barns-röddina bergmálar svo blítt og skýrt og stillt. Hann ei þig flýr en festu og þrótt hann flytur þér með þögn. í dimmu’ og björtu dag né nótt hann deyfa ei veðra-mögn. Ef kærleiksorð þú kletti ber, þótt kalt sé hjartað hans, með sömu oröum ansar þér, já, eins og tunga manns. Ef við hann segir: “vinur minn, hve vinarlaus eg er, eg þrái’ að vera vinur þinn, æ, vertu nú hjá mér.” Hann segir við þig sömu orð, er síst þú mundir fá hjá vinum flestum vítt um storð þó værir þú þeim hjá. Æ, flýt þér vinur, flý þú hel! og fáðu hjá mér skjól, og aldrei eg það eftir tel þó aftri kulda’ og sól. 1 skjóli kletts þín kvíldin býr, en hvar er fuglinn þinn? Hann hræðist þig og hreldur flýr, sem helzta óvin sinn. Æ, syng þú næst um kaldan klið, um karlmennsku og þrótt, óg hjarta, sem að finnur frið, án fugla. Góða nótt. i I » T ♦% ♦*♦ f í 10. sept. 1895. J. Briem. -•^♦.•-•^♦.•-•^♦••-•^♦•••••^♦^..•.♦♦♦.•..•^♦..„,^J,.#..#^ Samkvæmt sveitarstjómar lögunum. Það er hérmeð opinberlega tilkynt að aukalög nr. 1 hafa verið samþykt af fulltrúum Lundi skólahéraðs, nr. 587 er heimila lántöku fimtán þúsund dala, ($15,000) ; þannig að útgefin séu verðbréf og skal greiðslu slíkra verðbréfa ásamt vöxtum skift niður í tuttugu ára jafnar borganir. Lánið er tekið til þess að byggja nýjan 4 herbergja skóla, og verður löglega atkvæðisbærum mönnum og konum leyft að greiða atkvæði með eða móti þessum fyrirhuguöu aukalögum, samkvæmt ákvæðum sveitastjórnarlaganna er þetta atriöi snerta. Þessi atkvæðagreiðsla fer fram iaugardaginn 6. apríl 1918, í Lundi skólahúsi í Riverton. Tuttugu og einum degi fyrir atkvæðadaginn um ofangreind aukalög útnefnir oddviti sveitarinnar Bifröst skriflega, og undirritað meö eigin hendi, tvo menn til þess að telja atkvæðin og einn mann til þess að vera á atkvæðastaðnum fyrir hönd þeirra sem hlut eiga að máli, og ant láta sér um þetta efni, annaðhvort vilja styðja það eða andæfa því að aukalögin nái fram að ganga. Skrifari ofangreindrar sveitar reiknar saman atkvæðin í Lundi skólahúsi sjötta dag apríl mánaðar, 1918, milli klukkan fimm og sex eftir hádegi, og skýrir frá því hversu margir hafa verið með, og hversu margir á móti aukalögunum. Dagsett að Arborg, áttunda dag marzmánaðar, 1918. I. INGJALDSSON, Fjármálaritari Bifröst sveitar. Fullnaðar úrslit kosninganna. •?* *?• *?• W. T. O’Connor, aðalumsjónarmaður atkvæðanna við síð- ustu kosningar hefir nýlega gefið skýrslu um úrslitin, og eru þau þannig: Fylki | Liberals Un. Lib j Conserv.|kjördæmi Prince Edæard Island I 2 0 1 2 1 4 Nova Scotia -1 4 3 1 9 16 New Brunswick -1 4 4 1 3 i 11 Quebec -1 62 1 1 2 1 65 Ontario -1 3 12 1 62 1 82 Manitoba -1 1 6 1 8 1 15 Saskatchewan -1 o 7 1 9 1 16 Alberta -1 1 4 1 7 1 12 British Columbia -1 0 1 1 12 1 13 Yukon -1 0 o 1 1 1 I 1 1 82 38 1 1 115 1 1 235 Þetta sýnir að kosnir eru 82 Liberals, 38 Union Liberals, 115 Conservatives; meirihluti stjórnarinnar 71 ef allir Union Liberals verða með henni. Liberals og Union Liberals kosnir, 120. Skýrsla sú sem hér fer á eftir sýnir hversu mörg atkvæði stjórnin fékk, og hversu mörg hinir; bæði af heimaborgurum, hermönnum í Canada, á Bretlandi og Frakklandi.. r " I U-i Prince Éd. Island Nova Scotia...... New Brunswick... g & o g 2 ö a m <D xo & > •+J £ « c3 cö bO to | JS C CQ ■ ro Ö cS <D ffi p r* •4—> u cS a c _ c g g :S, E ■+j a> m ,c XO æ > cS bo : C 5 •» pj jj | co E •o C Ö 2 03 ,C YD $ >1 cí •3, œ Cn c3 10,450) 12-224 2-775l 434l 13-225 40,9851 49,831 10,699|1,474[ 51,684 35,8711 32,397 9,934] 919) 54,805 Quebec ............j 61,808)240,504| 14,206)2,927 ) 76,014 Ontario ..........|419,928|263,300|95,212|5,793)515,140 Manitoba ...... ...j 83,469| 26,073]23,698|1,157|107,167 Saskatchewan .... | 68,424) Alberta .......j 60,399] British Columbia | 59,944| Yukon........ |. 666, 30,829112,996]2,672| 81,420 48,865|19,575|1,055| 79,974 40,050|26,461|2,059| 86,405 766| 293] 32] 959 5© > cS bo P 50 J •a k> C 33 ci cS Samtals .........]841944|744849|215849|18522|1057793|763371 Y •*. 12,658 51,305 33,316 243,431 269,083 27,230 33,501 49,920 42,109 808 Eftirmæli eftir Mrs. Sigurey Goodman v í Dána að Gimli, 12. ágúst, 1917 Fædda 11. marz, 1885. Nú húmar yfir bygð og bæ og bráðum alt er hljótt, hin þunga rödd með banablæ mér boðar hinstu nótt. Eg fel þér herra húsið mitt og hjartkær börnin smá, með von á líknar ljósið þitt sem lifir öllum hjá. Svo hneigði móðir höfuð þreytt í himins náðar barm, en nálín var á beðinn breitt og blundur lukti hvarm. En börn og maka beygir hrygð því burt er vinur kær, í minning lifir dagsins dygð sem dáið aldrei fær. O hvíl nú systir sæl við frið það söknuð fær oss létt, þú hafðir æ það mark og mið að mæla og breyta rétt. Frá æsku tíð að bana blund þú brostir trygg og hrein, með hjartans yl að lyfta lund og létta þjáðra mein. Já, því skal bera böl og kíf og brosa hverju mót, vor trú á annað æðra líf er allra harma bót. Fyrir hönd bróður hinnar látnu. M. Markússon T Í í ♦*♦ V \ t t t i IbeilbvigbL Ljós. “Myrkrið fæöir uglur einar, ekkert blóm í myrkri grær.” H. Hafstein Sólin er viöhald alls lífs; ljósið er tákn allrar fegurðar, en myrkrið einkenni deyfðar og dauða. Hver stund sem þú lifir undir hæfilegum áhrifum ljóss og birtu styrkir þig og veitir þér þrek. en hvert augnablik sem þú ert í myrkri færir þig nær gröfinni og dauðanum. Lj ós og myrkur hafa meiri áhrif á heilsu manna en flest annað.. Fjölda margir sjúkdómar or- sakast af of litlu Ijósi og of miklu myrkri, ef ekki beinlínis, þá ó- beinlínis Þaö er sýnt og sannað að sum- ar sóttkveikjur deyja ef sólin skín á þær varnarlausar um nokkrum tima, en að þær magn- ast og margfaldast séu þær í myrkrinu. Tæringar sóttkveikja er ein þeirra. Tilraunir hafa verið gerðar þannig að hráki með tær- íngar gerlum í hefir verið látinn þar sem sólarljósið skín á hann óhindrað og þegar hann var svo skoðaður í smásjá eftir nokkum tíma voru sóttkveikjurnar dauð- ar. Hafi hrákinn aftur á móti verið geymdur þar sem dimt var (helzt ef einnig var rakt) þá margfölduðust sóttkveikjurnar og leið einstaklega vel. Af þessu er það auðséð hversu áríðandi er ljós og birta. Glugg- um í húsum manna þarf að vera þannig hagað að þeir séu sem lengstan tima dags á móti sól, þessvegna eru bogagluggar (Bay Windows) heilsusamlegri en aðrir gluggar, auk þess sem þeir eru fallegri. Ljósböð eru nú orðin svo tið að þau eru eitt hinna helztu at- riða í læknisfræðinni. Eru nú bygðir í sambandi við sum sjúkra hús stórir ljósbaðskálar þar sem sjúklingar baða sig og baka eftir vissum reglum. (Frh.) GÖMUL SAGA Einu sinni fyrir löngu, löngu var til borg sem hét Pollur, þar var maður skipaður til þess að sjá um matvæli; líta yfir að þau skemdust ekki, o.s.frv. 15. febr. eitt ár kom þessi maður inn í vöruhús og sá að verið var að hrúga saman fugla- skrokkum. “Hvað eruð þið að gera hér,” spurði hann. Við erum að skoða þetta fugla- kjöt. Vatn hefir komist inn í kælirúmið og við höldum að fugl- arnir séu skemdir. Vilt þú skoða þá og segja mér þitt álit á þeim” Vistaskoðunarmaðurinn leit á fuglana, skoðaði þá í krók og kring, þuklaði þá og þefaði af þeim. “Eg held þeir séu ekkert skemdir,” sagði hann, og svo fór hann burt. En yfirmaðurinn í vöruhúsinu hafði vit á því að fuglarnir voru skemdir, fór með 8,000 pund af þeim og lét brenna þau á brenslu- stofnun borgarinnar. f byrjun marzmánaðar kemur skýrsla frá brenzlustofnunni til heilbrigðisráðsins í bænum; var þar frá því skýrt að brend hefðu verið 8,000 pund af fuglakjöti Nú er hlaupið upp til handa og fóta og látið mikið af röggsemi borgarráðsins; það hafi með miklum dugnaði skipað auðfélagi einu í bænum að brenna 8,000 pund af kjöti. Síðan er skipuð rannsóknar- nefnd í málið og var ekki hægt að finna neinn hæfari til þess starfs en sama manninn sem hafði upphaflega skoðað fuglana og ekki haft vit á því að þeir voru skemdir. Eitthvað væri sagt um borgar- stjórnina okkar hér í Winnipeg ef þetta hefði skeð hérna núna. THERES MONEY IM A BUSINESS EDUCATIOM! START NOW! /Ti\ Það er með því að gæta beggja hliða sem hamingan er vissust. Eintóm erviði gagnar lítið. Það einstaka atriði sem mestu ræður í velgengni manna; það sem helzt veldur því að þeim hepnast fyrirtæki sín er æfing. Þó þú hafir áhuga, eldmóð, skarpleika og þrá til þess að bæta hagi þína, þá er það ekki einhlítt. Aukin velgengni leiðir af góðum undirbúningi og sért þú ekki fús að eyða dálitlum tíma og þei mpeningum sem nauðsynlegir eru til þess að fá þá æfingu sem þú þarft þá miðar þér seint áfram. Starfræksluæfing á verzlunar skóla tryggir þér góða stöðu fyrir góð laun. Þú getur byrjað hvenær sem þér sýnist. þú hefir skrifborð út af fyrir þig, ókeypis bækur til afnota og aðstoð góðra kennara. Komdu og sjáðu hvernig starfið gengur á verzlunarskóla þar sem mikið er að gera; skólastjórin mun með ánægju skýra fyrir þér reglur vorar og aðferðir. Æfin- lega er mikil eftirsókn eftir þeim sem útskrifast frá okkur. Munið eftir að nefna “Voröld” þegar þér farið eftir þessari auglýsingu. Önnur Gömul Saga. í sama bænum, Polli, var ein- hverju sinni stórt mjólkursölu- félag; í því félagi var maður sem Agnar hét. Deila reis upp í bænum milli félagsins og þeirra manna sem áttu kýr og seldu fólkinu mjólk. Skipaður var roaður til þess að rannsaka málið og komast þar að sanngjarnri niðurstöðu. Og til þess að rannsaka var skipaður Agnar, hluthafinn í stóra félag- inu. Við sem núna erum uppi og erum vön sanngirni í skipun rannsóknarnefnda, mundum hafa sagt eitthvað ef þetta hefði skeð í Winnipeg. ALMANAKS PENNA OG BLYANTS KLEMMA. Ágæt klemma fyrir lyndar- penna eða blýant, með mánaðar- dögum. Kleman ver pennum og blýöntum að týnast úr vasanum. Auðvelt að breyta mánaðanöfn- um; vel tilbúin klemma með nik- kelhúð, nett, hentug og falleg og ódýr. Aðeins 15c; tvær fyrir 25c. Sent með pósti, og burðar- gjald borgað af oss. Segið hvort klemma eigi að vera fyrir penna eða blýant. Verðbók með myndu maf alls- konar smávegis og útsæði, send ókeypis. ALVIN SALES COMPANY Dept. 24, P.O. Box 56, Winnipeg Til Ritstjora Voraldar. Vönd eru spor um vegleysur valda sorans skæða; sendu’ oss Voröld Sigurður; sannleik þorum ræða. Iðunn.

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.