Voröld - 16.04.1918, Blaðsíða 3
Winnipeg, 16. apríl, 1918.
VORÖLD
Bls. 3
ir p^ska—7.
noröangarö.
. ÁriS 1917.
Skoðanir manna um undanfar-
iö og yfirstandandi árferði eru
oft mjög skiftar. Þannig hefi
eg nýlega lesiö i blöðunum mis-
munandi álit um þetta. Á öðrum
staðnum er því haldið fram, að
undanfarið ár hafi verið velti ár,
en í hinu blaðinu er sagt, að ár-
ferðið hafi verið slæmt, og að í
slikum árum mundi oft hafa orð-
ið fellir á fénaði fyr meir. Mun
það rétt álitið, enda lá við felli
hér og varð nokkur, bæði 1914
og 1916.
Um árið sem leið hygg eg að
segja megi, að það hafi verið að
ýmsu leyti erfitt. Og það sem
valdið hefir sérstökum erfiðleik-
um þetta ár, er endasleppur
heyskapur í sumum héruðum
landsins, haustharðindin og dýr-
tíðin.
Veturinn frá nýári og fram að
páskum eða til 8. apríl mátti
heita góður. Þó var allhart um
Suður og Austurland, eða frá
Hellisheiði að Vaðlaheiði um
þriggja vikna skeiö, frá því um
nýjár og fram að Þorra. En í
fyrstu viku Þorra gerði góða
hláku, og hélst. úr því góð tíð
frameftir. Um Vesturland og
meginhluta Norðurlands var vet-
urinn talinn góður, jafnvel með
þeim beztu, er komið hafa lengi.
Bjuggust margur við heyfyrn-
ingum með meira móti. En
reynslan varð önnur.
Síðari hluta laugardagsins fyr-
apríl—gerði aftaka
Stóð óslitin stór-
hríð eða bilur víða um land í 3—
6 daga. Veðurhæðin mikil og
frostíð að sama skapi. Mest varð
frostið á Grímstöðum um 20o C.
í Borgarfirðinum var það um 20o
C. og undir Eyjafjöllum 15o C.
Urðu þá og skaðar á húsum og
fénaði. Fé hrakti, fenti og fórst
í ám og vötnum. Kvað einna
mest að þessum fjársköðum á
Síðunni og í Fljótshverfi. Sömu-
leiðis urðu og töluverðir fjár-
skaðar í A.-Skaftafellssýslu,
einkum á Mýrum og í Suðursveit.
Á Vesturlandi fórst og eitthvað
af fé. Ennfremur á tveimur
bæjum í Miðfirði, og í Forna-
hvammi í Mýrasýslu.
Þessi harðindakafli hélst svo
fram yfir sumarmál og enda
lengur.—Hey gáfust þá mjög
upp hjá mörgum, og nokkrir—
fleiri og færri nálega í hverri
sveit sunnanlands og víðar —
urðu heylitlir og heylausir. Fyrn-
ingar aðeins hjá einstaka manni,
og miklu minni en við var buist
um veturinn.
Vorið var kalt og spratt seint.
Frost á hverri nóttu, þegar heið-
skýrt var. Á Jónsmessunótt,
aðfaranótt 24. júní, lagði á poll-
um. Hét ekki að vera að hagar
fyrir stórgripi kæmu fyr en í lok
júnímánaðar. Sauðfé gefið víða
inni þar til 4—5 vikur af sumri.
Nálægt mánaðarmótum júní
og júlí, eða um 11. sumarhelgina
breytti til. Gerði þá hlýindi og
góða tíða. Tók þá fyrst að
spretta. Var því seint tekið til
að slá. Byrjuðu flestir heyskap
um 13. sumarhelgina, og nokkr-
ir enn seinna.
Með sláttarbyrjun brá til ó-
þurka hér súnnanlands, og héld-
ust þeir í 3—4 vikur. Fór gras-
vexti þá mj ög fram, og mátti svo
heita, að hann yrði góður á end-
anum.
Fyrstu dagana í ágústmánuði,
einkum 3. —4. ágúst—í 16. sum-
arvikunni—ringdi feikilega mik-
ið. Hljóp þá vöxtur í allar ár,
eins og í mestu vorleysingum.
Olli vatnavöxturinn sumstaðar
allmiklu tjóni. Hey flæddi t. d.
í Borgarfirði og víðar, eða varð
leiri orpið.—Mestan skaða gerði
úþurkurinn hér syðra, einkum
austan fjalls. Taðan hraktist
meira og minna. í Borgarfirði
og um Vesturland voru ekki eins
mikil brögð að óþurkinum. Náðu
þar margir töðu sinni lítt skemd-
ri.
Norðanlands var tíðin betri um
þetta leyti, og í Þingeyjarsýslum
var góð tíð framan af, en sprett-
an lakaril
Laust fyrir miðjan ágúst—í
17. sumarvikunni—gerði þurk og
beztu heyskapartíð, er hélst fram
yfir réttir. En þá um sama leyti
brá til óþurka á norð-austur-
landi, og varð heyskapur þar
mjög endasleppur og ekki góður.
Einna lakastur varð hann á Út-
Héraði, í Þingeyjarsýslum og á
Ströndum. En annarsstaðar
mun hann hafa verið í meðallagi
og sumstaðar betur.
Haustið var afarslæmt, eitt
það versta er komið hefir í
manna minnum. Skifti alger-
lega um upp úr réttunum, eða 23.
—25. seftember. Eftir mánað-
armótin seftember og október,
eða 24 vikur af sumri, gerði stór-
hríð um alt austur, norður og
vesturland, og setti niöur mikinn
snjó. Héldust svo hríðarbyljir
látlítið út mánuðinn og fram í
nóvember. Frostið oftast 6—11
C, og mest 14—15C á Grímsstöð-
úm. Gerði þá haglaust víða og
varð að taka skepnur í hús og á
hey. Syðra varð snjókoman
mikið minni, og austan Hellis-
heiði—um Suðurlandsundirlend-
ið—varð lítill eða enginn snjór.
Þó snjóaði töluvert á Reykjanes-
skaga, og í Selvogi varð nálega
haglaust, og er það sjaldgæft þar
um það leyti árs.
Víða um norður og austurland
og eins í N. ísafjarðarsýslu og
Strandasýslú urðu menn fyrir
heysköðum. Heyið fauk og
fenti, eða varð úti undir snjón-
um. Viku fyrir vetur, 18.—20.
okt. gerði sunnanátt og rigning-
ar. Leysti þá töluvert. f Þ ing-
eyjarsýslu var þá sumar-þýðvindi
Náðu þá sumir þar, oð víöar um
norður og austurland, nokkru af
því heyi, er úti var, en sumt náð-
ist aldrei.—En batinn varð
skammvinnur.
Um veturnætur gerði aftur
norðanátt með frosti og fjúki.
Hlóð þá niður smám saman mikl-
um snjó um mestan hluta lands
og gerði haglaust. Frostharkan
var mikil síðari hluta nóvember
og íram í miðjan desember; var
frostið oft 12—20o c. og stund-
um meira. Var fönnin víða orð-
in þá svo mikil, t.d. í Stranda-
sýslu, að ekki varð komist bæja
á milli nema á skíðum.—Héldust
þessi harðindi, svo að segja um
land alt nálega óslitin fram að
jólum. En þá gerði sunnannátt
og hláku og leysti mesta snjóinn
milli jóla og nýárs—er oröimi
var sumstaðar jafnvel meiri en
el.stu menn mundu eftir.
Einna lakast mun tíðarfariö
haf . verið, eiiís og reyndar oft
er, á útkjálkum landsins. Norð-
an úr Arneshreppi er t.d. mcr
skrifað, að þar hafi tíðin ver'ð
afar slæm, svo að segja frá því
um réttir. 8ífeld snjókoma og
harðviöri. Þar uröu hey viða
úti, t.d. á Fínnbogastöðum um
eöa j'fiv 300 hestar.
Eins var tíðin mjög slæm a’t
haustið um Norð-austurlaud,
bæði á út-Uéraði, Borgarfirð’ og
nor'>an 8? .jtrvatnsheiði. ]>ar
voru ejimig stöðugir óþurkar,
eins og áður er getið, allan síðari
hiuta heyskapartímans. Hey-
fengur var þar því rýr og nýting
slæm.
Uppskera úr kálgörðum varð
víða lítil og sumstaðar meira og
ninna skemd. Olli því, hvað hún
var rýr, meðal annars það, hvað
seint var sett niður og sáð, og
svo nætui-frostin, er leið á sumar-
ið. En ekki minstan hnekki og
skemdir gerði það, hvað mönnum
alment varð naumt fyrir að ná
upp úr görðunum. Tíðin spilt-
ist snemma, miklu fyri en venja
er til. Hörku frost og hríðar
komu svo að segja óvörum og
áður en menn ugðu að sér. Áttu
þá margir ótekið upp úr þeim.
Og í Vestmanneyjum gerði kar-
töfluveikin mikið tjón. — Þetta
tvent til samans—kartöfluveikin
í Vestmannaeyjum, og að ekki
náðist upp úr görðunum í tæka
tíð—nemur mörgum tugum þús-
unda króna skaða ó öllu landinu.
Laxveiöi í net varð mjög rýr
þetta ár, en dúntekja undir það í
meðallagi.
Göngum eða leitum og þá um
leið réttum—var seinkað um viku
Alþingi átti upptökin að því. Sam-
þykti það áskorun til stjórnar-
innar um aö fá því framgengt, að
fjallgöngur og réttir verði fram-
kvæmdar viku síðar en vant er að
vera. Þetta mæltist misjafnlega
fyrir. Og sagt var, að þessi rétt-
arfærsla hafi sumstaðar valdið
nokkru tjóni.
En fyrir þinginu mun það hafa
vakað, að lengja með þessu slátt-
inn. Og sú var líka reynslan i
sumum héruðum landsiús—Sum-
araukinn átti einnig sinn þátt í
þessari réttarfærslu. En hann
reyndist enginn búbætir að þessu
sinni.
Margir færðu frá í þetta sinn,
er voru hættir því eða höfðu ekki
gert undanfarin ár. Dýrtíðin
rak á eftir með það. “Fátt er
svo með öllu ilt, að ekki boði
nokkuð gott”. Gafst flestum
það vel, og þótti bót í búi.
Til grasa fóru og fleiri en tíð-
kast hefir að undanförnu. Átti
það sér einkum stað í Þingeyjar-
sýslum, sumstaðar á Vesturlandi
Borgarfirði og víðar.
Um verzlun og viöskifti er
svipað ,að segja og árið 1916.
Hátt verð á öllum fénaði innan-
Iands. Á uppboðum og manna
á milli kostúðu meðalkýr 320—
400 kr., brúkunarhestar upp og
ofan 320—400 kr., ær hér syðra
36—40 kr., en norðanlands og
vestan 45—56 kr. og jafnvel
dæmi að ær hafi verið seldar á
60 kr. Útflutningur á hrossum
var enginn þetta ár, og útflutn-
ingur á smjöri bannaður.
Verð á flestum innanlandsaf-
urðum svipað og árið áður, bæði
ull, kjöti o. fl.
En þar á móti hækkar stöðugt
verö á öllum útlendum varningi,
bæði nauðsynjavörum og öðru.
Nemur þessi verðhækkun frá
byrjun ófriðarins, að því er nok-
krar vörutegundir snertir, og þar
til í október í haust, samkvæmt
Hagtíðindunum, því sem hér
greinir:
Tegundir Verðhækkun
síðan í júlí síðan í júlí
1914 1917
Kornvörur .248% 9%
Kaffi 43— 4—
Sykur 117— 0—
Súkkulaði, te, o.fl 87— 13—
Egg, ostur, o.fk... 148— 8—
Matarsalt .225— 73—
Sódi og sápa 192— 73—
Steinolía 144— 10—
Steinkol ..965- 9 6—
Samkvæmt þessu, hafa kolin
hækkað langmest í verði, þarnæst
allskonar kornvörur, þá matar-
salt o.s.frv.
Af innanlands afurðum er það
mjólkin í bæjum og kauptúnum,
er hefir hækkað mjög í veröi, og
er einlægt að hækka.
Seinnipartinn í fyrra vetur var
lagt hámarksverð á smjör, og í
haust var það einnig lagt á hangi
kjöt og kæfu.—Verðið á smjöri
var þá orðið kringum 4 kr. kílóið.
En hámarksverðið var sett 3 kr.
kg. af heimaverkuðu smjöri, en
kr. 3.30 kg. af rjómabúasmjöri.
Verðið á rjómabúasmjörinu frá
Smjörbúasambandi Suðurlands
var seinna hækað upp í kr. 3,80
kílóið.
Út af þessu hámarksverði rete
all-mikil óánægja meðal bænda.
og er frá leið, seldu menn og
keyptu smjör án tillits til þess—
En af hámarksverðinu leiddi þaö
meðal annars, að minna var búið
til af smjöri og selt.en ella hefði
særið gert. Samfara því leiddi
það líka af þessari ráðstöfun, að
miklu færri færðu frá en annars
hefði orðið.
Hámarksverðið hefir að þessu
íeyti og ýmsu öðru, ékki haft
nema ilt eitt í för með sér.
Alþingi í sumar reyndi að fá
hámarksverðinu aflétt, en tókst
ekki þá. En í haust var það af-
numið.
Kaup verkalýðs og vinnufólks
fer -sífelt hækkandi. Kaupa-
mönnum var goldið í surpar um
vikuna 30—40 kr. og kaupakon-
ur fengu 16 — 20 kr. og sumar
meira.—Kaupgjaldið hefir hækk-
að síðan stríðið hófst um 125—
150%.
Smjörbúin eða starf þeirra
varð bæði rýrt °g endaslept að
þessu sinni. Aðalástæðurnar að
því voru útflutningsbannið á
smjöri og hámarksverðið. Af 18
búum í Smjörbúasambandi Suð-
urlands störfuðu aðeins 11, og
flest þeirra mjög stuttan tíma
smjörframleiðslan varð því miklu
minni en að undanförnu. Mun
hún hafa numið alls—frá öllum
smjörbúum, er störfuðu—25,000
kg. í mesta lagi. Mest af smjör-
inu var selt í Reykjavík.
Þetta sumar voru haldnar tvær
héraðssýningar á hrossum, ein
stórgripasýning fyrir Hóla- og
Viðvíkurhreppa i Skagafjarðar-
sýslu, og 40 hrútasýningar, sem
mér er kunnugt um. — Önnur
hrossasýningin var haldin að
Sveinsstöðum fyrir báðar Húna-
vatnssýslur, en hin að Garði í
Hegranesi fyrir Skagafjörð. Á
Sveinstaðasýningunni voru sýnd-
ir 14 hestar, 4 vetra og eldri, 10
folar 3 vetra, og 18 hryssur.
Fyrstu verðlaun voru ekki veitt,
en 5 hestar fengu önnur verðl.
og aðrir 5 þriðju verðl. Af 3.
vetra folunum fengu 3 önnur
verðl. og 3 þriðju verðl.
Á sýningunni í Garði voru
sýndir 14 hestar 4 vetra og eldri,
4 folar 3 vetra og 30 hryssur.
Fyrir 5 hesta voru veitt önnur
verðl. og 4 þriðju verðl. Af 3
vetra folunum fengu 2 önnur
verðl.
Hrútasýningarnar voru haldn-
ar um sambandssvæði Búnaðar-
sambands Austurlands, og í Eyja
fjarðar og Skagafjarðarsýslum.
Kynbótafélögin störfuðu flest
hin sömu og árið á undan.
Nautgripafélögih voru í árs-
byrjun 31, með um 3300 full-
mjólkandi kýr. Styrkurinn frá
Búnaðarfélaginu til þessara fél-
aga nam 4731 kr.—Félög þessi
eru, 2 í V. Skaftafellssýslu; 8 i
Rangárvallasýslu; 8 í Árnessýslu
2 í Borgarfjarðarsýslu; 2 í Mýra-
sýslu; 1 í Barðastrandarsýslu; 2
i Húnavatnssýslu; 1 í Skagafjarð
arsýslu; 2 í Eyjafjarðarsýslu; 2
í S.Þingeyjarsýslu", og 1 í V. ísa-
fjarðarsýslu.
Hrossaræktarfélögin eru 10
alls, 1 í V. Skaftafellssýslu; 3 í
Rángárvallasýslu; 5 í Árnessýslu
og 1 á Fljótdalshéraði.
Búnaðarnámsskeið, sem haldin
voru, urðu fjögur alls. Eitt
Simi G. 1626 Heimili S. 4211
McLEAN & CO.
Electrical and Mechanical
Engineers
We repair: Elevators, Motors,
Engines, Pumps and all other
kinds of Machinery
and all kinds of Machine Work
Acytelene Welding
54 Princess Street, Winnipeg
Keep in Perfect Health
We’re open day and night.
Phone G. 868
TURNERS TURKISH BATHS
Turkish Baths with sleeping
accomodation.. Plain Baths.
Massage and Chiropody.
Cor. King and Battatyne
Travellers Building Winnipeg
Talsími Garry 3286
RELIANCE ART STUDIO
616 Main Street
Vandvirkir Myndasmiðir.
Skrautleg mynd gefin ókeypis
hverjum eim er kemur með
þessa auglýsingu.
Komið og finnið
oss sem fyrst.
Winnipeg, Manitoba
Gleymið ekki
þið farið eftif
blaðinu.
“Voröld” þegar
auglýsingum í
• Til að fá góðar myndir,
komið til okkar.
fD
3
N
3
cö
s BURNS PHOTO STUDIO _
g u
w cT
cx
576 Main Street
Sími Sherbr. 3640.
DOMINION EXPERT
TAILORS AND FURRIERS
Föt búin til eftir máli bæði
fyrir karla ,og konur.
Einnig gerum vér við, hreins-
um og pressum alslags fatnað
J. Friedman, Manager
940 Portage Avenue Winnipeg
Sími: M. 4963 Heimili S. 3328
A. C. JOHNSON
Legir hús, selur fasteignir,
útvegar eldsábyrgðir.
528 Union Bank Bldg.
Einkaleyfi, Vörumerki
Útgáfuréttindi
FETHERSTONHAUGH & Co
36-37 Canada Life Bldg.
Phone M. 4439 Winnipeg
Lloyd’s Auto Express
(áður Central Auto Express)
Fluttir böglar og flutningur.
Srstakt verð fyrir heildsölu
flutning.
Talsimi Garry 3676
H. Lloyd, eigandi
Skrifstofa: 44 Adelaide, Str.
Winnipeg
Phone M. 3013
ALFRED U. LEBEL
Lögfræðingur
10 Banque d’Hochelaga
431 Main Street, - Winnipeg
New Tires and Tubes
CENTRAL VULCANIZING
H. A. Fraser, Prop.
Expert Tire Repairing
Fljót afgreiðsla óbyrgst.
543 Portage Avenue Winnipeg
Vér getum hiklaust mælt með
Fetherstonhaug & Co. Þekkjum
íslendinga sem hafa treyst þeim
fyrir hugmyndum sínum og hafa
þeir í alla staði reynst þeim vel
og áreiðanlegir.
ADAMSON & LINDSAY
Lögfræðingar.
806 McArthur Building
Winnipeg.
ALMANAKS PENNA OG
BLYANTS KLEMMA.
A. S. BARDAL
843 Sherbrooke Street
Selur líkkistur og annast um
útfarir. Allur útbunaður hinn
bezti. Ennfremur selur hann
allskonar minnisvarða og leg-
steina.
Heimilis Tals - Garry 2151
Skrifstofu Tals. G. 300, 375
Talsími Main 3775
Dag og nótt og sunnudaga.
THE “KING” FLORIST
Gullfiskar, Fuglar
Notið hraðskeyta samband við
oss; blóm send hvert sem er.
Vandaðasta blómgerð er
sérfræði vor.
270 Hargrave St., Winnipeg.
ELGIN MOTOR SALES CO.,
Ltd.
Elgin and Brisco Cars
Komið og talið við oss eða
skrifið öss og biðjið um verð-
skrár með myndum.
Talsimi Main 1520
417 Portage Ave., Winnipeg.
J. .1 SWANSON & CO. .
Verzla með fasteignir. Sjá
um leigu á húsum. Annast
lán og eldsábyrgðir o. fl.
504 The Kensington, Cor.
Portage & Smith
Phone Main 2507.
Phone Sh. 2151 Heimili S. 2765
AUTO SUPPLY & ELECTRIC
CO., Ltd.
Starting & Lighting Batteries
Charged, Stored and Repaired
Speedometers of all makes
Tested and Repaired.
Tire Vuncalizing.
W. N. MacNeil, Ráðsmaður
469 Portage Ave., Winnipeg
Framhald á 4. bls.
Ágæt klemma fyrir lyndar-
penna eöa blýant, með mánaðar
dögum. Kleman ver pennum og
blýöntum að týnast úr vasanum.
Auðvelt að breyta mánaðanöfn-
um; vel tilbúin klemma með nik-
kelhúð, nett, hentug og falleg og
ódýr. Aðeins 15c; tvær fyrir
25c. Sent með pósti, og burðar-
gjald borgað af oss. Segið hvort
klemma eigi að vera fyrir penna
eða blýant.
Verðbók með myndu maf alls-
konar smávegis og útsæði, send
ókeypis.
ALVIN SALES COMPANY
Dept. 24, P.O. Box 56, Winnipeg
Hver kaupandi “Voraldar” er
hlekkur í keðju áframhalds og
velgengni blaðsins. Það eru
auglýsingarnar einnig.
CHICAGO ART CO.
543 Main Street, Cor. James St
Myndir teknar af vönduðustu
tegund.
Films og Plates framkallaðar
og myndir prentaðar.
Eigandi: FINNUR JONSSON