Voröld - 24.07.1918, Page 3
Winnipeg, 23. júlí, 1918.
YORÖL^
BIs. 3
TIRES
32x4 FISK
Non - Skid
$30.00.
BREEN MOTOR CO.r LTD.
704 Broadway Sími Sherbr. 657
Business Course
er heróp nútímans—Allir keppast við
að hafa meiri eða minni þekkingu á
verzlunarmálum.
TÆKIFÆRIN VIDA
Alstaðar skortir menn og stúlkur með
reynslu«og þekkingu, þó hvergi eins
og I verzlun^rhúsum og á skrifstofum
GÖDAR ST(jDUR BIDA
þess sem aðeins undirbýr sig.
Marga langar til að fara á verzlunar-
skóla, sem eiga við erfiðleika að
stríða. þeim býður “Voröld”
FYRST—10 prósent afslátt af sex
mánaða námsgjaldi á einhverjum
af þremur beztu verzlunarskólunum
hér I Wínmpeg.
ANNAD—pægilega borgunar skil-
mála.
pRIDJA—Tækifæri til að vinna af
sér námsgjaldið.
SKRIFID TIL VORALDAR
petta er aðeins fyrir áskrifendur.
Stofnað 18663.
Talslml G. 1671
pegar þér ætlið að kaupa áreið-
anlegt úr þá komið og finnið oss.
Vér gefum skrifaða ábyrgð með
öllu sem keypt er af oss.
Mitchell & Co., Ltd.
Gimsteinakaupmenn I Stórum
Smáum Stfl.
og
486 Main Str.
Winnipeg.
V_
HEYRID GÓDU FRÉTTIRNAR. .
Enginn heymarlaus
þarf að örvænta hver-
su margt sem þú hefir
reynt og hversu marg-
ra sem þú hefir leitað
árangurslaust, þá er
enginn ástæða fyrir
þig til írvæntingar.
The Megga-Ear-Phone
hefir oft gert krafta-
verk þegar þeir hafa
átt í hlut sem heyrn-
arlausir voru og allir MBGA-eAR-
töldu ólæknandi. PHOME
Hvernig sem heyrnarleysi þitt er;
ft hvaða al'dri sem þú ert og hversu
oft sem' laakning hefir mistekist á þér,
þft verður hann þér að liði. Sendu taf-
arlaust eftir bseklingi m«ð myadum.
Umboðssalar I Canada:
ALVIN SALES CO., DEPT. 24
P. O. Box 56, Winnipeg, Man.
Verð I Canada $12.50; póstgjald borg-
að af oss.
BÚJÖRD TIL SÖLU
Einn landsfjórðungur til söiu
nálægt Luadar í Manitoba. Land-
ið er inngirt. Uppsprettuiind ná-
lægt einu hominu. Verð $2,400.
Landið er S. W. qr. 10, 20, 4 W.
principal meridian.
Héraðið umhverfis Lundar er
ágætt gripaland, og einnig til yrk-
ingar. Gott vatn. Landið yfir
höfuð slétt með miklu af góðum
aldiviðarskógi (poplar).
Skilmálar.- $500 út í hönd.
Sanngjarn tími á það sem eftir
Btendur.
Snúið yður til auglýsendans að
902 Confedfcration Life Building,
Wiunipeg.
I
‘P0WDRPAINT’
Nýtt mál til notkunar inni og
úti fyrir minna en hftlfvirði af
olíumáli, og endist helmingi lengur.
Auðvelt að blanda það með vatni.
pað gjörir harða húð líka sementi.
Sérstaklega hentugt til þess að
mála með húsveggji að innan, því
auðvelt er að þvo þá á eftir. Skrif-
ið eftir lita prufum og verðl. Skrif-
ið einnig ef þér þurfið við sement,
plastur eða línsterkju. Einnig
vagnhlöss af salti.
McCollum Lbr. & Supply Co.
MERCHANTS BANK, WINNIPEG
I SKIFTUM
320 ekrur af landi; 70 ekrur
ræktaðar; umgirt; fjörgra her-
bergja hús, $1,500 virði. Verð
$20 ekran; 50 mílur frá Winni-
Peg.
110 ekrur ai, landi; 50 ekrur
ræktaðar , gott fjós; 15 mílur frá
Winnipeg; skuldlaust. Verð
$50 ekran.
Tek aðrar eignir í skiftum, ef
þær eru í Winnipeg. Hef einnig
heilmikið af bújörðum með allri
áhöfn, sem ég get látið í skiftum
fyrir góðar eignir ef saman kem-
ur.
W.LKing
208 Mclntyre Block, Winnipeg
Lög frá Alþingi.
9. TJm viðauka við lög nr. 6, 8.
febr. 1917, um heimild handa lands-
stjórninni til ráðstafana til trygging-
ar aðflutningum til landsins. — 1 gr.
Við 1. gr. laga nr. 6, 8 febr. 1917, bæt-
ist: Enn fremur veitist ráðaneyti
íslands heimild til þess, að taka eign-
arnámi til útflutnings ísienzkar af-
urðir hjá kaupmönnum, félögum,
framleiðendum eða öðrum, gegn fullu
endurgjaldi, að frádregnu lögboðnu
útflutningsgjaldi. Endurgjald skal
ákveða eftir mati þriggja óvilhallra
manna; skai einn þeirra livaddur af
Landsyfirréttinum, annar af bæjarfó-
getanum í Reykjavík ogx þriðji af
stjórnarráðinu. peir kjósa sér odd-
vita. Matsgerðir þeirra eru fulnað-
armatsgerðir. Eignarnemi þarf ekki
að taka hið numda strax í sínar vörzl-
ur, að matsgerð lokinni, en greiða
skal hann eiganda eða umráðamanni
hins numda hæfilegan geymslukost-
nað eftir mati matsmanna. Að öðru
leyti fer um framkvæmd eignarnáms-
ins eins og greinir í lögum nr. 61, 14.
nóv. 1917, um framkvæmd eignar-
náms. — 2. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.
10. Um bráðabirgðarútfl.gjald. —
1 gr. Meðan norðurálluófriðurinn
stendur og ráðaneyti fslands fer
með verzlun innlendra vörutegunda,
fleiri eða færri, eða sér um útflutning
þeirra, er því heimilt að leggja með
reglugerð ,eða reglugerðum útflutn-
ingsgjald, auk þess útflulningsgjalds,
sem nú er lögboðið, á vörutegundir
þessar, eftir því sem nauðsynlegt er,
til xþess að landsjóður bíði ekki
skaða af afskiftum sínum af þeim.
Gjaldi þessa skal hagað þannig, að
ekki konpii á néina vörutegund hærra
gjald en sem svarar til þeirrar fjár-
hæðar, sem landssjóður verður að
leggja fram vegna verzlunar með eða
umsjónar á þeirri tegund. Vörurna'r,
andvirði peirra og vátryggingarupp-
hæð, er að veði fyrir gjaldinu. í
reglugerð má kveða á um innheimtu
gjaldsins, hver skuli greiða það, sekt-
ir fyrir brot á henni og meðferð mála
út af slíkum brotum — 2. gr. Lög-
þessi öðla.it þegar gildi.
þingsáliktunartillögur.
32. Um skipun launamálanefndar.
Flm. Pj. J., þór. J. Matth. 61., að
skipuð verði 7 mánna nefnd til að
íhuga erincii þau frá ýmsum embætt-
ismönnum og starfsmönnum lands-
ins um launabætur, sem komið hafa
til alþingis.
33. Um styrkauka til tveggja
skálda. Flm. Bjarni frá Vogi, Jör.
Brynj. og þorst. J. — Alþingi álykt-
ar að heimila stjórninni að greiða
Guðm. skáldi Guðmundssyni og Guð-
mundi skáidi Magnússynj 1200 —
tólf huhdruð — krónur hvorum, til
viðbótar við skáldstyrk þann, sem
þeim hefur verið veittur þetta ár.
34. Um landsverzlunina. Frá bjarg
ráðanef^id n. d. — Alþingi ályktar
að skora á landstjórnina: 1. Að
kpma á þeirri meginreglu í lands-
verzluninni, að kaupmenn og kaup-
félög hafi á hendi afhending og út-
sölu á vörum hennar. 2. Að sjá lanÖ-
inu fyrir nægilegum lánum th
rekstrar landsverzlunarmnar og tll
annara þarfa landsins, mcð sem hag-
kvæmustu vaxtakjörum og nægum
greiðslufresti.
355. Um rannsókn símleiða Flm.
Hák. Krist. — Neðri deild Alþingis
ályktar að skora á stjórnina að hlut-
ast til um, að rannsakað verði á yfir-
standandi sumri, hvar heppilegast
muni að leggja síma frá Patreksfirði
til Saurbæjar í Rauðasandshreppi og
Breiðuvíkur í sama hr'eppi.
36. Um vppgjöf á eftirstöðvum af
láni úr landsjóði til Fiskifélags ís-
lands til steinolíukaupa. Fim.: Matth.
61. — Alþingi ályktar að heimila
landstjórninni að veita Fiskifélagi
íslands uppgjöf á kr. 2988.60 eftir-
stöðvum af láni, sem landstjórnin
veitti félaginu árið 1915 til steinolíu-
kaupa.
Feld frumvörp
5. Um skipamiðla. — Neðri deild
afgr. það frumv. með svohlji. rök-
studdri dagskrá: Deildin væntir þess.
að stjórnin athugi, hvort tigi sé þörf
á lagaákvæðum um verzlunar- og
siglingamiðla, og ef hún telur slíka
þörf fyrir hendi, að hún leggi þá
fyrir næstl reglulegt Alþingi frv. til
laga í þá átt. f von um þetta tekur
deildin fyrir næsta mál á dagskrá
I, -—7. Um skipun nefnda.
8. Um söia ölafscvallar.
9. Um stofnun útibús á Siglufirði
frá Landsbankanum.
10. Um Rauðfjárbaðan;r.
II. Um 1-olanám í Gunnarssaða-
gróf í Dragsnesslandi, svohljóðandí:
Alþingi ályktar að heimila lands-
stjórninni að styrkja kolanóm í Gunn-
arsstaðagróf í Drangsnesslandi í
Strandasýslu með 2000 kr. fjárfram-
lagi úr landssjóði, til þess að gera ak-
færan veg frá námunni til sjávar og
til áhaldakaupa. Enn fremur eru
Strandsýslu heimil námuréttinda
landsins i Drangsnesslanai ókeypis
til ársloka 3919.
,12. Um stofnun útibús í Vest-
mannaeyjum frá Landsbaukanum.
13. Um útsæði, svohljódandi: 1.
Að vekja athygli sveitar- og bæjal-
félaga á‘ því a.ð sjá sér fyrir nægi-
legu útsæði í haust og tryggri
geymslu þeas í vetur. 2. Að annast
um, að gefin verði út leiðarvísir til
almennings um trygga geymslu úf-
sæðis yfir veturinn. 3. Að afla inn
lends eða útlends útsæðis af bestu
tegundum til geymslu, til frekari
tryggingar } ví, að ekki verði útsæðis-
skortur í Jandinu.
14. Um aukinn styrk og lánsheim-
ild til Flóabáta. Alþingi áiyktar að
heimila landsstjórninni: 1. að hækka
styrk þann sem ákveðinn er I gild-
andi fjárlögum til Langanessbáts.
um alt að 12 þúsund kr. á ári, og
gangi 1 eða 2 bátar frá Sauðárkróki
til Seyðisíjarðar, með viðkomu í
Grímsey, er séu eigi minni til samans
en 80 smál. og haldi uppi ferðum til
miðs nóvembers, og ennfremur
hækka styrkinn til bátsferða um ísa-
fjarðardjúp upp í alt að 9 þús. kr.
á ári. 2. að veita 8500 kr. lýðbóta-
styrk til Breiðafjarðarbáts, vegna
vetrarferða 1917—1918. 3. að lána alt
að 90 þús. kr. til kaupa á Húnaflóa-
bát.
15. Um reglugerð fyrir sparisjóði.
Neðri deild Alþingis ályktar að skora
á landástjórnina að veita þeim spari-
sjóðum, sem hafa ekki vfir 100,000
kr. til ávöxtunar I undanþágu, að
meira eða minna leyti, frá bókfærslu
þeirri, sem fyrirskipuð er í reglu-
gerð fyrir sparisjóði 5 maí 1917, ef
sjóðir þessir sanna fyrir stjórnarráð-
inu, að bólifærsla þeirra sé þannig
háttað, að trygt sé.
16. Um bátaferðir á Faxaflóa. —
Alþingi skarar á landsijórnina að
stuðla að því, að Eimskipafélag fs-
lands tak að sér rekstur á bátaferð-
um um Faxaflóa, eða hlutist til um,
að ferðir þessar komist á annan hátt
sem fyrst í hentugt og trygt horf.
Heimilast stjórninni jafnframt að
hækka að nokkru styrk til Faxaflóa-
ferða ef brýn nauðsyn krefur.
17. Um ueimild fyrir landstjórnina
til að greiða Gísla Guðmundssyni
meiri laun tn heimilað ev í fjárlög-
unum. — Alþingi ályktar að heimila
lahdstjórninni að greiða Gísla Guð-
mundssyni, gerlafræðingi, 600 kr. a
ári af launum þeim, sem 1 fjárlögun-
um er ætluð- forstöðumanni efna
rannsóltnarstofunhar í Reykjavík,
meðan hanu gegnir þeim störfum.
188. Um námsstyrk til háskóla-
sveina. — Alþingi ályktar að heim-
ila stjórnirni að hækka náms- og
liúsaleigustyik háskólanema 1917 —
19188 um 50 ’pró cent frá því, er í gíld-
andi fjárlögum segir.
19. Um fjárveiting til.þess að fá
Röntengenstofnuninni ný áhöld. —- Al-
þingi ályktar að heimila stjórninni
að verja 6500 — sex þúsund og fimm
hundruð — krónum til þess að út-
vega Röntgenstofnuninni r-ý áhöld, til
viðbótar við þær Télar, sem keyptar
voru þegar stofnunin hófst 1914.
20. Um að fela fjár.veiiingarnefnd
n. d. að taka til athugunar erindi þau
frá ýmsura embættismönnum og
starfsmönnum landsins um launa-
bætur, sem komið hafa t.il alþingis
og gera tillógur þeim viðvlkjandi.
Enginn Meðalvegur
Með þessari yfirskrift birtist rit-
gjörð í Voröld 16. april s.l. Rit-
gjörðin er stutt. Oss líkar hún ekki,
samt er hún spor í áttina. Einn kafli
ritgjörðarinnar hljóðar svo: “Svo
framarlega sem ekki verður þröngv-
að svo að lcosti hinna svo-kölluðu út-
lendinga í þessu landi, að þeir verði
neyddir til varnar gegn hinum, sem
hér búa, þá er það rétt og heillavæn-
legt að þeir renni saman í eina heild.”
“En þarf þetta að ské svo fljótt, eða
er enginn meðalvegur?” spyr höf-
undurinn.
Áður en lengra er farið skal bent á
hvert það væri úr vegi að líta til ann-
arra þjóðar brota hér með oss. Hvað
ætla Norðmenn og hvað ætla Frakkar
að gera? Munu þeir ætla að kasta
frá sér þjóðerni sem útslitinni og ó-
viðeigandi flík?
Jón Jónsson, Sagnafræðingur segir
oss: “Fyrir tíu liundruð ðrum var
íslenzkan—ylhýra málið — sameigin-
legt mál allra norðurlanda. Vér fs-
lendingar einir vernduðum málið, en
hinir töpuðu því!” í átta hundruð ár
höfum vér íslendingar viðhalóið mál-
inu. J>að er sem vér heyrum hljóm-
inn hreimfagra berast til vor frá
tungu mikil mennisins; það er sem
vér sjáum hverja taug komast við af
þjóðarmyndinni, er þetta fslands óska
barn vort segir oss: “í átta hundruð
ár höfum vér verndað málið okkat,
íslenzkuna.” Gæti þetta ekki verið
oss bending? v
Nú, ef vér lítumst um hjá oss vest-
ur íslendingum. Hvað? Já, hvað
teljum vér tíma okkar hér í landi;
má slcé 45 ár? Hvernig leitumst vér
nú við að geyma þennan fjársjóð vorn,
foóðarmyndina sjálfa? Um það mætti
nú smíða langt mál, eií því skal slept
hér.
pað er að voru áliti að eins tvær
leiðir fyrir höndum: Sú er önnur að
taka tíman í makindum, leggja niður
öll vopn og ^j-enna inn í strauminn
hérlenda. pað þýðir að falla með
óútmálanlegri vanvirðu. Hin er
önnur leiðin að hervæðast þeim vopn-
um, sem likust eru til sigurs, stanöa
sem fastast og halda velli með sæmd.
Parker & Son
Beint á móti pósthúsinu, selja alt sem
drengir þarfnast.
í einni setningu sagt mentast sem
allra bezt að kostur er á.
"Orðin eru til alls fyrst,” er gömul
sögn. Svo langt hefir verið farið að
bent hefir verið á að koma á fót einu
allsherjar félagi er hefði fyrir mark-
mið viðhald íslenzkrar tungu og
þjóðernis. Nauðsýn á þannig lag-
aðri stofnun ætti að vera sameigin-
legt áhuga mál allra; enginn fslend-
ingður hér vestra ætti að neita slíkri
stofnun um fylgi sitt.
f laga . samþykt þeirri, sem samin
yrði fyrir þetta alsherjar félag finst
oss að ætti að standa, jafnvel efst á
baugi íslenzkan: að íslenzkan ein-
ungis ein yrði gerð að húsmáli allra
meðlima. Enn fremur að sagan
yrði gerð að máttarstoð við kenslu
unglinga. Sagan ætti að vera sögð
munnlega, einkum meðan börnin eru
ekki orðin læs á íslenzka tungu.
Oss dylst ekki að hér er fyrir hendi
afar mikið verkefni, en það brínir
fyrir oss kjarkinn, að ef rétt er álit-
ið þá eigum vér hér fyrir vestan eins
góða menn eins og vér höfum átt með
þjóð vorri—minnsta kosti eru þeir
niðjar þeirra. Og það er til þessara
góðu, göfugu drengja er vér heyrum
talandi rödd, hljómfagra, en þó al-
vöru ríka, skora á yður að gæta nú
arfsins og varðveita þjóðar sæmdina.
Til þess neinum vér fyrstan séra
Hjört J. Leo—segir röddin—hann get-
ur verið yður sem þjóðarspekingur-
inn Njáll. Annan nefnum vér séra
Rögnv. Pétursson, hann getur verið
yður í stað Gunnars að Hlíðarenda;
hann hefir heiðrað hólmai n með
heimsókn og mörgum velsögðum orð-
um, er unga kynslóðin hefði gott af
að kynna sér rækilega. priðji er
séra Runóilfur Marteinson, honum
ætlum vér og treystum, að ganga í
spor Síðu Halls. Vér höfum heyrt
hann þruma völdust kjarnyrði um
þjóðmæringa vora með spursmálinu:
megum vér við því að missa þetta úr
tungu vorri. Oss getur ekki annað
en hlýnað er vér virðum fyrir oss ein-
lægnina er liggur á bak við hjá
mannvalinu.
Nú, Sig Júl. Jóhannesson getur
gengið yðar í stað þorgeirs Ljósvetn-
ingagoða—hann getur lagst undir
feldinn. Barnablöðin hans þótt ekki
væri annað, sýna oss að maðurinn er
stór merkur.
Vér 'látum oss nægja að nefna að-
eins þessa fjóra—hollvætti—til fram-
gangs málsins, en vitaskuld má bæta
við eftir' þörfum—jafnvd þrennar
tylftum—nógum er á að skipa.
Vér látum svo staðar numið—
altjenr í bráð. Með alúðar virðingu
fyrir öllura þeim, er vilja styrkja
þetta mál; sarnt þeirri hugheilu ósk,
að árangurinn verði: “Eitt gróandi
þjóðlíf með'þverrandi tár, sem þrosk-
ast á guðsríkis braut.”
G. Thordarson.
32x4 FISK
Non - Skid
$30.00.
BREEN MOTOR CO., LTD.
704 Broadway Sími Sherbr. 657
TIRES
Vatnabygðir.
Kæra Voröid: Héðan er fátt að
frétta en þó ber æfinlega eitthvað til
tíðinda sem sle kynni að mönnum
þyki fróðlegt að lesa um í blöðunum.
Frá Elfros eru þær góðu fréttir að
þangað er nýfiuttur íslenzkur læknir
og var þess full þörf. Dr. Jóhannes
Pálsson heitir hann og var áður um
all langan tíma á Árborg í Manitoba.
Hann er nýlega seztur hér að og því
ekki mikið hægt að segja um það enn
þá hvernig hann reynist, en vel geðj-
ast bygðarbáum að honum og góðar
vonir gera þeir sér um framtíð hans
hér.
Með tíðindum má það einnig telja
að Grímur Laxdal hefir flutt til Moz-
art og tekið þar að sér forstöðu verzl-
unar þeirrar sem þeir Laxdals bræður
eiga, Jón og Thorsteinn. Grímur er
þaulæfður verzlunarstjóri frá Islandi
og þekkir marga þaðan. Auk þess
befir hann kvnst mikið fólki hér
vestra síðan hann kom að heiman;
tekið mikinn og góðan þátt í flestum
félagsmálum og sýnt sérstakan dugn-
að í hvívetua. Með öllum sínum
hæfileikum c; þeirri víðtæku- þekk-
ingu sem ham hefir fengið hér ætti
verzlun hans að verða bæði blómleg
og farsæl.
Tíðarfarið hér I bygð hefir verið ó-
hentugt; of miklir þurkar og mikil
þörf á regni. Uppskera hlýtur héð-
an af að verða í rýrara lagi yfirleitt
hér í bygð þótt. hér eftir kynni að
breytast til batnpðar. Ormar hafá
auk þess svo að segja gjöreytt mat-
jurta garða á stórum svseðum.
Vinnukraftar er hér af svo skorn-
um skamti að sumstaðar horfir til
vandræða og verða menn þess eftir
því meira varir sem lengur líður.
Skraffinnur.
VERID SPARSAMIR.
Einkaleyfi 1 Canada, Bandaríkj-
vfm og Stórbretlandi.
Hermenn vorir og bandamanna
herinn þurfa á öilu þvl leðurlíkl
að halda sem hægt er aS fá;
haldið saman öllu ieðurllki og
aflið peninga sjálfum yður til
handa.— Látið búa til hjólhringa
sem bæði eru öruggir fyrir sandi
vatni og sprynga ekki, úr tveim-
ur þelrra hjélhringja sem þér
hafið lagt niður.
HID NÝJA HJÓLHRINGA
VERK GAY’S
Vér saumum ekki hjólhringana, I þeim eru engin spor sem raknað
geti; vér setjum þá ekki saman með nöglum sem vaidi ryfum er
sandur og vatn komist inn um. STYKKJAPLöTUR GAY’3 (sem
sýndar eru í myndlnni) eru örugglega settar I áframhaldandl hring;
þær verja algerlega skemdun sem orsakast af steinum, djúpum skorn-
ingum eða krókum. Enginn hætta er á skemdun innri slöngunni vegna
þess að hún hitni á sumrinu; með því að hringarnir eru svo þéttlr að
enginn núningur á sér stað. Allar upplýsingar I té látnar ef óskað er.
The Manitoba Gay Double
Tread Tire Co., Ltd.
134J/2 HIGGINS AVENUE
TALSIMI MAIN 2225
WINNIPEG, MAN.
r
►04
\
TIRE SPECIALS !
I
Berið eftirfarandi verð saman við vanalegt
verð.
Allar g’j.rðir seldar með því skylirði að
kaupandi megi skoða þær. Séu þr ekki
eins og sagt hefir verið þá getið þér sent
þær aftur á vom kostnað.
I
FORD AND CHEVROLET SIZES.
0x3% Sléttar ________________ $15.50
30x3% Non-skid (bárott) _________16.95
30x3 !/2 Með keðju bárum ________17.95
2xx4
32x4
32x4
32x4
ALVEG SÉRSTAKT.
Með keðjubárum
Báróttar ________
Goodrich Sáfety .
“Tractiou Tread”
34x4 Sléttar, tilbúnar í Canada
34x4 Goodrich Safety ............
34x4 Báróttar (Canada) ..........
34x4
34x4
Báróttar, með rauðri briggju
Q. D. Goodrieh Cord ____________
34x4% S.S. Silvertown Cord
$29.50 |
_ 30.00 \
.. 30.50 I
35.80 “
..29.00 Í
_ 34.85 |
_ 39.50 S
_ 39.75 I
_ 54.00 S
$63.50 !
35x4%
35x41/2
35x41/2
35x4y2
S.S. Fisk Non-skid ___________________________$48.75
Q.D. Goodrich, sléttar ..-.................... 45.00
S.S. Nobby og Allwea/her ____________________ 53.60
S.S. Sléttar ___________________________...__ 39.60
" 37x5 S.S. Fisk sléttar
54.75
Breen Motor Co. Ltd.
‘A’ 704 BROADWAY
WINNIPEG - MAN.
Upplýsingar fást á Bank of Toronto hjá Duns og Bradstreets.
t-o-mmommm-ommmmommmommmommmommmommm-o-^^ommmommm-o-t
l
►<t*
t-o-^mmo-^mm-ommmmomi^mo-^mommmo-i
t-ommmommmo-^mmo
TILKYNNING
i Dr. BASIL S. 0’GRADY
i
TANNLÆKNIR
hefir opnað nýja lækningastofu að
í
i
I
i
i 405 1-2 Selkirk Avenue !
~ (Næstu dyr við Union bankann).
\
Dr. Básil S. O’Grady hefir öll nýustu og fullkoriinustu
tæki aðlútandi tannlækníngum.
SERSTÖK KOSTABOD í EINN MÁNUD.
Hver sem keniur með þessa auglýsingu fær Einn Dollars
afslátt .á hverju fimm dollara verki. 20 pró cent afsláttur er
mikill spamaður fyrir alla sem þurfa að láta gera við tennur
sínar.
Reynið mig áður en þið farið eitthvað annað og sparið
yður pemnga.
GOTT VERK ÁBYRGST.
Viðtalstími frá 9 f.h. til 8.30 e.h.
mo-mmmom^mo-mimo-mmo-mrm-o-mmo-mmmo-mmmo-mmmommmo-mmmo-mmm
I
i