Voröld - 03.09.1918, Side 8
BIs. 8.
VORÖLD
Winnipeg 3. september, 1918.
GIGTVEIKI
Vér læknum öll tilfelli, þar sem
lisirnir eru ekki allareiðu eydd
ir, meö vorum sameinuCu a5-
ferSum.
Taugaveiklun.
Vér höfum verið sérlega hepn-
ir aS lækna ýmsa taugaveikl-
un; mörg tilfelli voru álitin
vonlaus, sem oss hepnaðist aS
bæta og þar meö bæta mörg-
um árum viö æfi þeirra sem
þjáSust af gigtinni.
GylIiniæS
Vér ábyrgjumst aS lækna til
fullnustu öll tilfelli af Gyllini-
æS, án hnífs eSa svæfingar.
Vér bjóSum öllum gestum,
sem til bæjarins koma, aS
heimsækja oss.
Miner al Spr ings
Sanitarium
Winnipeg, Man.
Ef þú getur ekki komiS, þá
skrifa eftir myndabæklingi og
éllum upplýsingum.
NefniS “Voröld” þegar þér fariS
eftir þessari auglýsingu.
Úr JBænum
Ingólfur Goodman fór vestur til
Argyle á laugardaginn til þess að
heimsækja tengdafó.lk sitt, og var
þar um helgina.
Sigrón Hallgrímson, kenslupkona,
fór vestur til Vatnabygða nýlega að
heimsækja frændfólk sitt og vini.
Fór hún um alla bygðina endilánga frá
Foam Lake til Kandahar og vestur
til Saskatoon. Allmikið segir
hún að sé skemt af frosti þar til og
frá, t. d. umhverfis Janson, norður af
Wynyard og í kring um Leslie. Miklu
minna í Kandahar.
Nýlega voru þau gefin saman í
hjónaband að Wynyard: Sigfús
Hallgrímss on og Sigríður Hansson.
þau fóru skemtiferð til Saskatoön
eftir hjónavígsluna og dvöldu þar
vikutíma. J>au setjast að á landi
Hallgrímssonar skamt frá Wynyard.
Húsfrú J. W. Frederickson héðan
úr bænum fór vestur til Kandahar ný-
lega að finna Jónas, son þeirra hjóna;
hann hafði meitt sig talsvert á fæti.
Hreggviður Sigurdson og kona hans
sem hér hafa dvalið um nokkur ár að
undanförnu fluttu alfarin til Wyn-
yard £ vikunni sem leið.
Húsfrú B. Stefánsson sem dvalið
hefir vestur í Wynyard um tíma kom
heim aftur í vikunni sem leið.
Ungfrú Helga Bjamason fór vest.i
til Kandahar í vikunni sem leið og
dvelur þar mánaðartíma hjá þeim IT.
Jónssyni og konu hans, sem er systir
unfrú Bjarnason.
Séra Albert E. Kristjánsson kom
til bæjarins fyrir helgina og fór novð-
ur til Gimli. Hann var að koma með
móður sína sem verið hefir veik.
Friðrik Kristjánsson er nýlega kom-
in utan úr Grunnavatnsbygð þar sem
hann var í nokkra daga.
Svo mikið frost var hér í Winnipeg
aðfaranótt mánudagsins að alt var
hvítt af hélu og þykkur ís á vatni.
Sigmundur Jóhannson, áður bóndi
að Húsabakka í Skagafirði, lést að
heimili sínu í Elfros, Sask., á föstu-
daginn var eftir langvarandi heilsu-
bilun.
Sigurjón Christopherson og fjól-
skylda hans eru flutt til 696 Banning
street. Sigurjón hefir verið veiku/,
eins og Voröld hefir skýrt frá,en er nú
á allgóðum batavegi.
Einar Jónsson, listamaður og kona
hans, fóru út til Grunnavatnsbygðar í
vikunni sem leið að finna ættingja og
vini sem hann á þar. .
ManitobaStores
346 Gumberland Ava
(60 faðma fyrir austan Central
Park).
GUNNL. J6HANNSON, Verzlua-
arstjóri.
Kjörkaup í þessari viku:
Ostur, ektagóður____________ 30c
Baunir og flesk, 2 könnur___ 25c.
Skó-sverta, 2 könnur .......26c.
Tomato-soup, 2 könnur_______ 25c.
Potted meats, 3 könnur______25c.
Crisco, 3 könnur__ ___ ____$t,10
Kaupið Jam sem allra fyrst.—
paS hækkar.
MAMITOBA 8T0XE8
S Talifcaar: Oarry 8063 og 80C2
Astor Johnston frá Wynyard kcm
til bæjarins á sunnudaginn. Hann
var á heimleið vestan frá Argyle þar
sem hann var að heimsækja systur
sína og tengdabróður, Sigurjón Sig-
mar og konu hans.
Séra Rögnvaldur Pétursson Kom
vestan frá Vatnabygðum á sunnudag-
inn. Hefir fjölskylda hans d/a’ið
þar í sumar og var hann að sækja
hana.
Halldór Jóhannesson og kona hans
fóru norður til Gimli á laugardaginn til
þess að heimsækja Guðir.und Fjtld-
sted bróður hennar.
Fundur var haldinn ; Tialdo llinni
í vikunni sem leið til þess að ræða um
sameiningarmálin. Ta'.ið er liklegt
að sameiningin nái fram að ganga; en
á hvaða grundvelli vita menr. ekki
enn. Álítið er þó líklegt að norður-
kirkjan verði seld og hinn sameinaði
söfnuður flytji í Tjaidbúðina.
R. S. Johnson frá Steep Rock var i
bænum um helgina sem leið.
Safnaðarfundur í únitara kirkjunni
verður haldinn á fimtudagskveldið
næstkomandi, kl. 8. Allir beðnir að
fjölmenna.
Carl Sigurðson frá Riverton, Man.,
kom til bæjarins í vikunni sem leið
var á ferð vestur til Saskatchewan.
Séra Jóhann Sólmundssbn frá Gimli
var í bænum síðastliðna viku.
Forseti kirkjufélagsins, séra B. B.
Jónsson hefir tilkynt skrifara Heima-
trúboðsnefndarinnar að í Skjaldborg
messi cand. theol. S. A. Gíslason, þann
8. sept. n. k. Fólk safnaðarins er
því vinsamlega beðið að fjölmenna
við þessa messugjörð.
Safnaðarnefndin.
Herra ritstjóri.—Viltu gjöra svo vel
og taka áritan sonar mins—2-Lt. A. G.
Oddlafson, 8th London Regt. A. B. III.
Stube 35, Offizier Kriegsgefangenen-
lager, Mainz, Germany—í blaðið svo
vinum hans gefist kostur á að skrifa
honum, því öllum föngum er það
ánægja mesta að fá bréf úr heimahög-
um, því slíkra manna eru skemti-
stundirnar smáar, og fáar. pinn ein-
lægur.
S. Oddlafson.
Skemtistaðir
“ ... WONDERLAND
peir sem unun hafa af því að
horfa á leynlögreglu sýningar ættu að
sækja Wonderland þessa dagana. þar
er einhver stórkostlegasta leynilög-
reglusýning sem nokkru sinni hefir
verið sýnd. Sumar slíkar sýningar
eru ekki sem fínastar, en þessi er tal-
in undantekning að því leyti. Aug-
lýsingin frá Wonderland skýrir sig
sjálf, hún ber það með sér að þar eru
góðar sýningar um þetta leyti.
Næstu viku verður þar ekki síður
til vandað. pá verður sýnt þar “When
a Man Sees Pearl” og “The Auction
Block.”
DOMINION
‘‘Hearts of the World” er leiksýn-
ing sem þar fer fram núna í vikunni;
er það þjóðræknis leikur sem mikið
þykir til koma. par sést eitt hinna
undraverðustu afkvæma mannsandans,
segir maður sem ritar um þessa sýn-
ingu í New York blaði. Sýningin er
þannig að hún vekur alls konar til-
finningar og hrærir hugskot þeirra sem
á horfa til ’alvöru og gleði á víxl.
Næstu viku verður ekki minna um
að vera á Dominion: ‘“Bound in
Morocco” heitir leiksýning sem þar fer
fram.
ORPHEUM
par byrja nýjar leiksýningar á mánu
daginn, 9 þ.m. Fara þar samtímis
fram allskonar skrautdansar undir
umsjón dansmeyjar sem ekkert annað
hefir stundað frá barnæsku.
“A Treat in Travesty” verður sýn-
ing á Orpheum sem þess er verð að
hún sé sótt. Er þar dregið naprasta
liáð að öllu nútíðar félagslífi. petta
ættu allir landar að sjá.
Mac’s Theatre
á Ellice og Sherbrook Str.
Miðvikudag og fimtudag
HARRY MOREY
í sýningunni
“BACHELORS CHILDREN”
Föstudag og laugardag
PAULINE FREDERICK
I sýningunni
“LA TOSCA”
“‘A FIGHT FOR MILLIONS”, No. 3
og góður skopleikur
Mánudag og þriðjudag, 9-10
ELSIE FERGUSON
i sýnlngunni
“THE LIFE”
Opið 4.15 til 11.00 e.h., og kl 1 til
11 e.h. á laugardögum og helgidögum.
WONDERLANrv
THEATRE I 9
Miðvikudag og fimtudag
Irene Castle
I leiknum
uSylvia of the
Secret Service
7 kafli úr sýningunni THE HOUSE
OF HATE.
Föstudag og laugardag
Ethel Clayton
í leiknum
** Stolen Hours ”
Týnd börn
Kona sem T. H. Allan heitir héðan
frá Winnipeg fór nýlega f kynnisför til
Balmoral í Manitoba. Með henni var
þriggja ára gömul dóttir hennar sem
Mary hét. Litla stúlkan var úti með
frænda sínum fjögra ára gömlum,
Leonard að nafni og týndust þau bæði,
höfðu ráfað eitthvað í burt og vilst.
Loksins kom pilturinn, aðfram kominn
af þreytu og hræðslu en gat ekkert
sagt um stúlkuna. Sporhundar voru
fengnir að leita hennar, en á mánu-
dagskveldið hafði það engan árangur
haft. Fólkið á heima að 1626 Ross
avenue.
í vikunni sem leið voru þrjú börn
að leika sér saman skamt frá Higg-
ins stræti rétt við ána; 6 ára gamall
piltur, sem Mike Boychuk hét, var
einn þeirra, og hvarf hann án þess að
hin bömin vissu nokkuð hvað um
hann varð. En á laugardaginn fanst
hann í ánni; hafði dottið I hana og
druknað. Börnunum sem með hon-
um voru bar ekki saman, og á að rann-
saka málið.
SKÝRSLA.
Dorcas félagið á Grund í Argyle
bygð var stofnað fyrir tveimur árum
síðan með ellefu meðlimum. Nú eru
meðlimir 26. Aðaltilgangur félags-
ins er að vinna að líknarstarfsemi,
bæði innan safnaðar og utan, og hjálpa
þeim sem bágstaddir eru, eftir megni,
og yfir höfuð að tala að styðja
góð fyrirtæki. En þó sérstaklega á
meðan stríðið stendur yfir, að senda
drengjum bygðarinnar sem komnir eru
yfir hafið þá glaðningu sem hægt er.
Inntektir
Ársgjöld meðlima..............$ 43.00
Gjöf frá kvenfélagi Frelsissafn. 10.00
Gjöf frá Mrs. P. Sigtryggson .... 2.00
Gjöf frá ólöfu Sigurðson ........ 2.50
Gjöf frá J. A. Johnson ......... 10.00
Ágóði af samkomum og kaffi-
sölum ...................... 379.00
Fyrir sölu á smávegis sem
hefir gengið af kössunum .... 4.10
Ágóði af “autograph quilt .... .— 239.07
Ágóði af járnruslasölu ........ 262.00
Samtals ...................$951.67
útgjöld
Band ...........................$147.81
Ýmislegt í kassana ............. 197.68
Postgjald á kassana.............. 58.62
íslenzku vikublöðin (23. árg.) 34.65
Kostnaður við samkomur.... .... 24.00
Gjafir til—
Jakobs Johnson, Ninette..... 35.00
Jón Sigurðsonar félagsins .... 46.75
Red Cross..................... 20.00
Efni fyrir Red Cross sauma .... 29.98
Kostnaður við “autograph quilt” 21.77
Svartar slæður fyrir kirkjuna.... 3.00
Borgað E. Smith .................. 2.00
Sjóður í banka fyrir heim-
komna hermenn................ 256.00
í sjóði ......................... 74.41
Samtals .......-..........$951.67
Sokka pör.
Félagið hefir prjónað fyrir Jón
Sigurðssonar félagið ......... 7.9
Félagið hefir gefið Jóns Sigurðs
sonar félaginu ............ 12
Sokkar sendir í kössum til
hermanna....................... H9
Tilbúnir sokkar, ósendir ........ 69
Alls hafa verið prjónuð ...... 279
Pör
Vetlingar sendir I kössum...... 35
Vetlingar ósendir.................. 3
Prjónuð alls ................... 33
Hospítal föt búin til og gefin.... 23
“Surgical” skyrtur búnar til og
gefnar.......................... 12
Saumað fyrir Red Cross í Glen-
boro ......................... 25
Saumað fyrir þjóðræknisfélgið,
Baldur.......................... 39
Saumað alls, stykki......... 99
Safnað fyrir Jóns Sigurðssonar fé!-
agið: —
42 tylftir egg.
17 pund af smjöri.
1 gallón af skyri.
Félagið hefir sent 115 kassa til
hermanna.
Hver kassi hefir að meðaltali kost-
að $3.27 fyrir utan heimatilbúið brauð
sem hefir verið látlð I þá.
Félagið þakkar af alhug öllum þeim
er að einhverju leyti hafa stutt það og
styrkt
Mrs. G. M. Davldasn, Skrifari.
Hjónin sammála
15. ágúst birtist klausa í Heims-
kringlu með fyrirsögninni “Rógburður
Voraldar”. Á það að vera athuga-
semd við örstutta grein i Voröld þar
sem sagt er frá stofnun þriggja nýrra
blaða í Winnipeg. Vér nefndum
greinina “Umbrot í blaðaheiminum” og
skýrðum síðan frá þeim áhrifum sem
jafn stórt spor hlyti að hafa á blaða-
heiminn.
Ritstjórinn segir að greinin fjalli
alls ekki um það efni sem fyrirsögnin
bendi til.
■ Lestu betur, kunningi; sjáðu hverju
spáð er um framtíð þessara þriggja
blaða; fylgdu vel eftir starfi þeirra og
má þá vera að þú sannfærist um að þau
hafi valdið nokkrum umbrotum og
ekki óskyldum þeim er um ræðir í
greininni.
Hún hneykslast á því hún Heims-
kringla gamla að Voröld lítur horn-
auga á þau mál sem gömlu blöðin
fylgja undantekningarlaust, en ungu
blöðin eru á móti. Man hann ólafur
ekki eftir því sem porsteinn Erlings-
son segir:
“Fylgi hún þér einhuga’ hin aldraða
sveit,
þá ertu á vegi til grafar.”
Sjaldan hafa sannari orð verið töl-
uð en þessi; ;gömlu blöðin i landinu
—flest að minsta kosti—fylgja nú
sömu stefnu—afturhaldstefnunni og
það sannar hann Heimskringlu ólafur
ef hann lifir lengi að sú stefna er á
vegi til grafar, en stefna nýju blað-
anna verður eins og unglingurinn, sem
gamla fólkinu þykir uppvöðslumikill,
hún verður tímans herra. Um það
er óþarft fyrir oss að deila við ólaf;
vér vonum að okkur endist báðum
aldur til þess að lifa þá tíð.
Ekki þarf að bregða henni Heims-
kringlu gömlu um það að hún sé ekki
trygg bónda sínum, þótt hvorugs-
kyns sé: hún tekur trúlega málstað
hans en segir þó óvart að hann fylgi
leigustefnunni; sé til uppboðs og sölu
við hverjar kosningar. Eða svo
skilst oss þar sem hún heldur þvi
fram að vér höfum eggjað Vestur-ís-
lendinga á að segja upp Lögbergi og
Free Press • en einu blöðin sem vér
eggjuðum landa vora á að segja upp
voru leigustefnublöðin—undarlegt að
sami strengurinn skuli vera snortinn
I samvizku heggja hjónanna þegar tal-
öll |að er um kaup og sölu við kosningar.
Hann ólafur vandræðast yfir því að
Voröld sé ekki nógu mikið blað
fólksins. Látum fólkið sjálft dæma
um það hvort nær sé hugsun þess
stefna Voraldar eða Heimskringlu.
Nýgifta frúin er langorð um það að
bondi sinn hafi haft ágætt tækifæri
til þess að græða áður en hún kyntist
honum, á meðan frjálslyndi flokkur-
inn hafi setið að völdum; þá hafi hann
getað keypt stór svæði af heimilis-
réttarlöndum fyrir einn dollar ekruna
og selt það fyrir 6-8 dollara ekruna.
pá hafi hann getað fengið stór svæði
af stórskógum fyrir mjög litla borg-
un, og stórvötnin hafi hann getað haft
í sinni hendi til veiða fyrir $10 um
árið og lægra.
Auðvitað veit hóndi frúarinnar
hvert þetta er satt, og er honum trú-
andi til þess að leiðrétta það ef orð-
um er aukið. Samkvæmt skoðun
frúarinnar sjálfrar er henni ekki lá-
andi þótt hún líti núverandi bónda
sinn hýru auga; það er svo algengt
að giftast fyrir auð í þessu hag-
kvæmninnar landi. pað þyklr líka
einkennilegt að Lögberg skuli þegja
við þessum staðhæfingum sem 'ætti þó
öllum öðrum betur að vita hvort þær
eru sannar eða ekki. En svo er það
nú reyndar virðingarvert að vilja
ekki styggja konuna sína, jafnvel þót.t
hún kynni að verða dálitið tungu-
löng—bara það haldist.
BRÉF FRA NATIONAL CITY
Sandeigo, Cal., 23. ágúst, 1918.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson, kæri
herra,—Ég sendi þér nú nokkrar linur,
ekki sem frétta grein heldur sem prí-
vat bréf, en þyki þér einhver partur
af því þess virði að setja í Voröld, þá
banna ég það ekki, en aðal ástæðan
fyrir mér með þessum línum er að
ná sambandi við þig að einhverju
leyti. Ég las fyrsta blað Voraldar á
næstliðnum vetri í Blaine, Wash., en
svo 1. maí n. 1. fór ég ferð til San-
deigo, Califomia. Gjörði ég það
vegna bilaðrar heilsu, ef ske kynni að
bót væri fáanleg. Nú nýlega barst.
mér fyrir sjónir eitt eintak af Vor-
öld og kom hún austan frá Utah, svo
kannað hefi hún ókunna stigu, en
vel var hún hress og leit vel út eftir
þessa löngu ferð, og þess vegna gat
ég náð utanáskrift til þín, sem ég
vona að sé rétt.
Við hér erum útundan öllu því Is-
lenzka nema ef við getum náð í ís-
lenzkt blað sem við svo gleipum í
okkur, og marg lesum svo þar til það
er alt skráð gullnu letri á minnis-
spjald þankans, sem svo geymir það
hulið fyrir allra augum.
pó min feili frægðin oft,
flytja sögu er lýðir unna;
hér er heilnæmt lífsins loft;
Ijómar fögur morgun sunna.
Frá Califoraíu likar mörgum að
heyra fregnir, og er það eðlilegt, því
fúrðu fáir íslendingar kynna sér
þetta hérað; en hvað mun ég máttár-
naumur mega þar standast við. Ég
er að eins húinn að vera hér fjóra
mánuði, og á þeim getur maður litlu
lýst af því sem hér gerist. Sumar er
alstaðar sumar, og er því engin und-
arlega fögur eða merkileg sögn þó
sagt sé fagurt sumar hér. Ég hefi
verið mörg sumur í N. Dakóta, einnig
í Argyle, Man, og suður I Utah og 6
sumur í Blaine, Wash., og hvergi hefir
hitin verið eins léttur að sumrinu og
hér, og þó heíir hann komist í 90 stig
um nokkra daga hér við hafið; en
blærinn er hér mest allan daginn af
hafi og tekur hitann frá, en uppi i
landinu er hitinn mikill—100 og 110
stig; varla lifandi fyrir óvana, ehda
margt fólk frá heitu plássunum, svo
sem Mexico, suður Ameríku, Indlandi,
o. s. víðar
Ég er búinn að kynnast landhúnað-
inum að nokkru, og er hann marg-
breytilegur ogól ikur því sem við
venjumst eystra, því hér er alstaðar
áveitu vatn, og er útbúnaður að þvi
mjög mikill. Ég hefi talað við þá sem
rækta hér alfalfa og hafa þeir slegið
sjö sinnum um árið og var grasið
aldrei styttra en 2 fet; slá vanalega
eftir hverjar 6 vikur, en þetta er að
eins þar sem áveituvatn er. pví hér
er aldrei regn sem færir jörðinni næg-
an vökva nema helzt seinni part vet-
rar, og er það vist notað eftir mætti.
September og október eru bezt til
fallnir fyrir sáning, því þá fer nætur
dögg að koma og heldur von um skúr,
en þeir sem hafa áveitu vatnið sá í
jörðina hvenær sem þeim hezt líkar.
Aldini vara hér af mörgum tegundum
Mest stundaðf óraníu epli, lemons,
grapefruit, gráfíkjur, svo eru mestu
feikn af berjum og ýmsu sem of
langt væri að nafngreina, enn ekki
vex hér blessað kaffið.
Atvinna er hér margbreytileg, og
víða vöntun á fólki, hvað helzt að
land vinnu. Skipakvi er nú verið að
byrja á hér og gefur það mikla vinnu,
og vérði skipin smíðuð hér, eins og
útlit er nú til að verði, verður mikil
Vinna, og óefað er þetta bezti staður-
inn fyrir verkalýðin, því hvergi er
ákjósanlegri veðrátta, vetur og sumar,
nótt og dag, og hvergi mun verða
betri staður fyrir skip þau sem bygð
eru úr steinsteypu en hér, því einlægt
má fá nógan hita og þurk á steypuna.
pað er í ráði að byggja hér þrjár teg-
undir skipa—það er, úr steinsteypu,
timbri og stáli. Skipakví þá sem
verið er að byggja nú er um landa-
mæri bæjanna, Sandeigo og National
City, og er vonast eftir að nú sé að
færast nær meira líf og gott útlit að
National City byggist bráðlega meir;
hann er enn ungur og strjálbygður,
en héraðið fagurt.
Mig l’urðar stórlega á því að íslend-
ingar skuli ekki hafa sótt hingað að
leita gæfunnar í þetta fagra land, að
sama hlutfalli og til annara staða
þessa lands. pað er eins og öllum
ógni vegalengdin, eða áliti þetta ekki
hvítra manna hæli. Komið á haust-
in og dveljið hér vetrarlangt, þá mun-
uð þið álíta að þið séuð flutt í annan
heim, sem má líka til sanns færa í
sumu tilefni. Hér er maður kominn
vel á veg inn í hita beltið, og breyt-
ingin hefir mikil áhrif á manninn. Hér
er á sama breiddar stigi og syðst á
Frakklandi.
peir sem vilja stunda fiskiveiði
geta það hér, enn það þarf nokkuð
mikla peninga að byrja það. pað
veiðist hér lúða og 3 tegundir af
öðrum fiski sem ég hefi ekki þekt
áður. Mestur er fiskurinn sóttur
suður í Mexico sjó, og verða þeir sem
fiska að horga toll af þeirri veiði, er
flutt er norður hingað.
Margt mætti upptelja sem manni
finst aðdáanlegt. Eitt er með aldin-
in. “Lemons” vaxa alt árið, og eru
trén í sífeldu erviði; þegar þessi upp-
skeran er full sprottin er önnur hálf-
sprottin og þriðja að springa út, svo
“lemons” er það arðmesta hér. ór-
aníu epli vex að eins einu sinni, en
tvær tegundir; önnur er fullsprottin
í maí og júní, en hin í janúar og feb-
rúar; álíka er með fleira.
Útsýni er hér fagurt, og læt ég
fylgja uppdrátt af lögun fjarðarins
eða höfninni, og er plássið furðanlegt
á að líta.
i Ég vona að Voröld komi fljúgandi
suður. Býst við að ég setjist hér að;
vona að landar fjölgi hér.
Með vinsemd og virðingu,
Mag. Melsted.
/--------------------'N
Notaðarritvélartilsölu
1 REMINGTON NR. 10
1 L. C. SMITH NR. 2
pessar vélar eru alveg fullkomn-
ar og smaa sem nýjar.
THE OLIVER TYPEWRITER
AGENCY
737 Somerset Block
Winnipeg
v_____________________y
(---------------------s
Halldor
Methusalems
Er eini Islendingur í Winnipeg
sem selur Columbia hljómvél-
ar og hljómplötur (records),
hefur nú til sölu íslenska,
Enska, Danska, Norska og
Svenska söngva. Skrifið eftir
verðlistum.
Swan Mfg. Co.
676 Sargent Ave.
Sími Sh. 971, Winnipeg.
r
OSKAD ER
eftir tveimur fiskimönnum. Hæsta
kaup borgað.
Einnig er óskað eftir manni til að
hirða gripi. Æskilegt væri að hann
hefði þroskaðann ungling með sér.
Báðum yrði borgað gott kaup. pað
væri ekki frágangssök þó maðurinn
væri giftur, þvi fjölskyldan gæti
fengið ókeypis súsnæði og hita.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
Voralda,r.
* ..... .......
BÚJÖRD TIL SÖLU
160 EKRUR í SASKATCHEWAN TIL SÖLU.
pessi jörð liggur Z/2 mílur frá Turtleford. Mjög stutt til skóla,
og eins pósthúss.
Hérumbil enginn skógur á landinu, en nægur þar í nánd sem má
fá leyfi til að nota endurgjaldlaust.
Land þetta er mjög gott fyrir korn og griparækt.
SANNGJARNT VERD. GÓDIR SKILMALAR
Upplýsingar á skrifstofu Voraldar og hjá
Thorleifi I. Hallgrimssyni
Hecla, Man.
j
\
BÖRN 0G UNGLINGAR!
SÓLÖLD er eina barna og unglinga blaðíð sem gefið er út á
meðal Vestur íslendinga.
SÓLÖLD verður skemtileg, gagnleg og fræðandi.
SÓLÖLD verður með 3-5 myndum í hvert skifti.
SÓLÖLD kemur út tvisvar í mánuði.
SÓLÖLD vill verða vinur þinn. Vilt þú ei vingast við blaðið,
sem er gefið út eingöngu fyrir þig.
SÓLÖLD vill gjaman fá þig til að senda sér línu við og við.
SÓLÖLD kostar að eins $1.00 nm árið- það borgar sig að
gefa $1.00 fyrir Sólöld,
77LL ÚT MIDAKN f DAG SVO ))Ú PAIB NJB8TXJ
SÓLÖLD.