Voröld - 22.10.1918, Qupperneq 1
Þórður Vigfússon Þórðarsson
Hann er fæddur í Áskoti í Melasveit í Borgarfjarðarsýslu 31 ágúst;
1897. ölst hann þar upp með foreldrum sinum þangað til þau fluttu
vestur um haí 1901; dvöldu þau um hríð í Winnipeg, en tóku siðan
heimilisréttarland í Grunnavatnsbygð og var pórður heima hjá for-
eldrum sinum alla tíð unz hann var kallaður í herinn 11. júní 1918, þá
tvítugur að aldri, en 25. júlí lagði hann af stað til Englands.
Foreldrar pórðar eru þau Vigfús, sonur pórðar óðalsbónda frá
Leirá í Borgarfirði, sem var sannnefndur héraðshöfðingi um eitt skeið,
og Kristín ólafsdóttir frá Sturlureykjum, systir Jóns kaupmanns
ólafssonar að Leslie. pórður er efnilegur piltur og vel gefin eins og
hann á kyn til í báðar ættir. TJtanáskrift hans er: Pte. Th. V.
Thordarson 3347292 31st draft, lst O.B., Man. Reg. 18th Reserve Batt.,
care of Army P.O. London, England.
Kaupið sigurSánsbréf hérna megin til þess að sigra hinu megin hafsins ’
VOLTAIC ELECTRIC INSOLES
pægilegir og heilnæmir, varna kulda
og kvefi; lækna gigtarþrautir, halda
fótunum mátulega heitum, bæði sumar
og vetur og örfa blóðrásina. Allir ættu
að hafa þá.
Verð fyrir beztu tegund 50 cent parið
Skýrið frá því hvaða stærð þér þurfið.
PEOPLE’S SPECIALTIES CO., LTD.
P.O. Box 1836 Uept. 23 Winnipeg
1. ÁRGANGUR
NÚMER 37.
HEY! HEY!
Sendið heyið ykkar til íslenzku hey-
kaupmannanna, og fáið hæðsta verð,
einnig fljóta afgreiðslu. Peningar lán-
aðir á “kör“ send beint til okkar.
Vér ábyrgjumst að gera yður á-
nægða.
THE NORTHERN HAY CO.
408 Chambers of Commerce
Talsími G. 2209. Nætur talsími S. 3247
Winnipeg, - Man.
✓
WINNIPEG, MANITO±5A, 22. OKTÓBER, 1918.
^■^^■n-mmt-ii-mmm-omm-u-m^-ii'mam-omms-
Guðni Bjarni Jónsson
Sæsíminn bilaði alvarlega 15. ágúst
en var kominn í samt ]ag aftur 29.
ágúst.
Verð á Canadiska dollarnum er nú
ekki nema 3.20 kr. eða var 29. ágúst.
Vantraustsyfirlýsing var borin fram
í sameinuðu þingi 8. september gegn
atvinnumálaráðherranum Sigurði Jóns-
syni og áskorun um að hann segði taf-
arlaust af sér embætti. Tillöguna bar
fram séra Sigurður Stefánsson; en
Halldór Steinsson, læknir, studdi. Séra
Sigurður Stefánsson bar einnig upp
samskonar tillögu gegn Sigurði Egg-
erz fjármálaráðherra.
Ribsber hafa vaxið ágæ|]ega í
Reykjavík í sumar. pað hefði þót:.
fyrirsögn í gamla daga.
Flyðra veiddist á bát frá Reykjavík
nýlega sem vóg skippuníd (160 kg.).
Árið 1904 veiddist flyðra I Flatey svo
jetór að höfuðið af henni vóg 110 pund.
j Eggert ólafsson getur um flyðru í
j ferðabók sinni 9 feta langa og 5% feta
! breiða.
Hann var sonur þeirra hjóna Jóns Guðmundssonar og Steinunnar
Magnúsdóttur, konu hans, sem búa í Hnausabýgð í Nýja íslandi. Var
hann fæddur þar og ólst upp hjá foreldrum sínum. Guðni eál. gekk i
223 herdeildina 13. marz, 1916, og var við æfingar í þeirri deild þangað
ttl hann lagði af stað frá Winnipeg 22 apríl 1917. Eftir tæpra
tveggja mánaða dvöl á Englandi veiktist hann af liðagigt og lá hann
þar á sjúkrahúsi í 5 vikur. Áður en hann kom þaðan út aftur var
deild hans skift og nokkuð af henni sent til Frakklands; varð hann
því viðskila við félaga sína. Hann var við heræfingar á Englandl
þangað til í november, 1917, þá var hann sendur til Frakklands með
78. herdeildinni. í þeirri deild var liann eftir það og oftast í skot-
gröfunum í næstu 10 mánuði. pá særðist hann og dó af sárum nokkru
síðar.
Guðni sál. var góður sonur foreldra sinna; og ástríkur bróðir syst-
kina sinna, var vonin og tilhlökkunin sæl að fá að sjá hann aftur, og
þá bjargföstu trú hafði hann að hann ætti afturkvæmt til foreldra.
húsanna. En vonbrigðin urðu sár þegar sorgarfréttin barst um frá
fall hans. Hann var 26 ára þegar hann lézt; hinn mannvænlegasti
maður og drengur hinn bezti; þrekmikill og kappsamur við skyldu-
störf sín öll. Hann tók mikinn þátt í félagsmálum og er þvi sárt
saknað af mörgum í bygðinni.
Auk hinna saknandi foreldra syrgja liann einnig 5 systkini, 3
bræður og 2 systur. Bæði foreldrarnir og systkinin biðja blöðin að
flytja séra Jóhanni Bjarnasyni þakklæti fyrir hina ágætu minningar-
ræðu sem hann flutti í Hnausa kirkju 6 október. Sömuleiðis þakka
þau öllum þeim er með bréfum og sendingum vörpuðu ljósi á leiðir
hans í fjarlægðinni.
Hans Ellefsen, útgerðamaður
aðist i Ncregi 6. ágúst.
and-
Allur síldarafli á íslandi í surnar
\oru aðeins 55,000 tunnur.
Garðar Gíslason hefir geftð 3,000 kr.
í Radiumsjóð.
pinginu var slitið 10. aoph'moer
eftir 9 daga starfa. pað er itvzta
þing í sögu landsins.
Bjöm Kristjánsson hefir sagt af
sér bankastjórastöðunni.
Vantraustsyfirlýsingarnar gegn ráð-
herrunum voru drepnar ineð rök-
studdri dagskrá frá Guðmundi Björns-
syni, sem samþykt var með 20 aikv.
gegn 12.
ISLANDS FRETTIR
Eftir því sem Vísir segir er mikið
gert að því á íslandi að safna sölvum
til matardrýginda eins og gert var í
fyrri daga.
Verið er að undirbúa stofnun á hæli
fyrir berklaveikt fólk á Akureyri. Mun
vera hugmyndin að koma á þesskonar
stofnun í öllum helztu stöðum lands-
lns.
24. ágúst var haldið hátíðlegt hund-
rag ára afmæli landsbókasafnsins I
Reykjavík. Jón Jakobsson, yfirbóka-
vörður flutti þá langa ræðu í tveimur
köflum, en sungin voru minningarljóð
eftir porstein Gíslason, ritstjóra er
birtast í næsta blaði.
Landsverzlunin er að setja upp þrjú
útibú; á Akureyri, ísafirði, og Seyðis-
firði. '
Sigurður I. heitir skip sem nýlega
er farið að ganga milli Reykjavíkur og
Borgarness.
Bruni mikill varð á fsafirði 2. sept-
ember, kviknaði í húsi ElígSar Pálsson
ar Cg Jóns Edwalds kaupmanna; það
var afarstprt hús og í þvi bæði íbúðir,
verzlanir og vinnustofur. Húsið brann
til kaldra kola á hálfri klukkustund. í
húsinu bjó Guðmundur Jónssota, gjald-
keri landsbankans; át(i hann þar mik-
ið bókasafn og vandað sem hann misti
alt. Hann var einnig gjaldkeri bæj-
arins og brunnu þar bæjar bækurnar.
Nokkrir slösuðust við.el(linn: Jóhann-
es Jensson fótbrotnaði, Helgi Eiriks-
son brendist á höndum og fleiri slys
urðu. Tvö önnur hús Irunnu einnig
til stórra muna.
“Útilega” heitir ný bók sem gefin er
út heima. Er hún um það hvern-
ig menn skuli búa sig í ferðir og haga
ferðum sínum; gagnleg bók og góð.
Félagið “Framtíðin” á Seyðisfirði
hefir gefið 1,000 kr. í radíum sjóðinn
til minningar um Jón Jónsson frá
Múla.
peir bræður Andrés og Sigurður
Fjeldsted frá Hvítárvöllum hafa gefið
Náttúrugripasafninu í Reykjavík út-
sel sem þeir veiddu.
Jón Helgason biskup hefir verið í
yfirreiðarferð um Vestur Skaptafells-
sýslu, Suður Skaptafellssýslu og Suð-
ur Múlasýslu í sumar. Með honum
var Hálfdán sonur hans guðfræöis-
neml.
Jón Sigmundsson sem heim fór til ís
lands með Sveini Oddsyni, virðist ætla
að vinna landinu gagn og gróða. Hann
er nú hættur að stýra bifreiðum og
hefir sett up verkstofu þar sem hjirui
gerir við bifreiðar. Segir Vísir að
hann hafi mikið að gera. Hann hefir
og byrjað á því að setja saman drátt-
plóga og kenna notkun þeirra; er það
fyrsta skifti sem þeir hafa verið not-
aðir á Islandi og reynast ágætlega vel.
Vísir flytur alllanga grein um þetta og
um starf Jóns, 29. ágúst.
Maður sem porbergur Jónsson hét
hvarf úr báti af Akureyrarpolli 5.
ágúst. Fanst bátur hans með segl-
um uppi en mannlaus; haldið er að
hann hafi drulcknað, og er sagt að
hann hafi ekki verið hraustur á geðs.
munum.
Reykjavík hefir bygt 1,200 liesta
hlöðu austan við skólavörðr. hultið
hjá hinni svokölluðu Hringbraut.
pessa þingvísu f.v.ur Vísir:
Sjálfstæðis þeir si\ngu vers,
svo að þaut í grönum:
að því loknu langs og þvers
lágu þeir fyrir D"num.
Allir greiddu atkvæði með sambands-
laga frumvarpinu í efri deild Alþingis,
nema Magnús Torfason, hann var á
móti og B. Sveinsson I neðri deild.
Einar Helgason heíir skrifað leið-
arvísi um geymslu garðávaxta.
Aflstöð er verið að undirbúa við
Elliðaaámar sem áætlað er að kostl
alls og alls 1,767,400.00 kr. Áætlunin
birtist í næsta blaði.
85 fjölskyldur voru liúsnæðis’ausai
í Reykjavík I byrjun septembei.
Steingrímur Matthíassou, læknir,
var skorinn upp Við bot ilangabf igu 10.
september af Guðmundi lækni Magn-
ússyni.
Rafmagnstöðvar eru nú koumai víða
í Reykjavík.
Skyrsla um störf landssímans árið
1917 er nýkomin út. Samkvæn.t
lienni voru tekjur símans yfir áiið
496,362.65 kr„ cn gjöld 213,880.88 kr ;
tekju afgangur því 282,472.77 kr.;
kemur það ekki vel heim við reikn-
ing, þeirra sem sögðu að landráða-
maðurinn Hannes Hafstein hefði með
símanum lagt grundvöllinn að gjald-
þroti Islands.
Loftskeytastöðin er nú tekin til
starfa á íslandi og reynist allvel; eru
fluttar fréttir frá henni í blöðunum
daglega.
Raflýsing er nú komin á ■■ ið
Reykjavíkur höfn.
Sigurður Sigurðsson Eirdtssonar
(regluboða) varð fyrir byssvskoti ný-
iega og beið bana af. Hann var
hinn efnilegasti maður og mannvæn-
legasti.
Seladauði hefir átt sér stað við
strendur íslands í sumav; er talið að
einhver óþekt pest og óvenjuleg hafi
komið upp sem sýki selinn og deyði.
(Pessar fréttir oru eftir Vísi).
ALMENNAR FRETTIR.
.Stórkostlegur eldur kom upp í Win-
nipeg á fimtudaginn; kviknaði frá
öskuhaug við verksmiðju manns er
Gray heitir og býr til vagna, og brann
verkstæðið til kaldra kola. Skaðinn
er metinn á $408,000.
Walter Scott, fyrverandi forsætis-
ráðherra í Saskatchewan var á ferð í
Winnipeg í vikunni sem leið. Hann
er gamall blaðamaður og var það starf
hans áður en hann byrjaði stjórnmál.
Hann varð að segja af sér fyrir sakir
heilsulasleika fyrir tveimur árum, en
hefir nú fengið all góða heilsu aftur.
Hann kveðst ekki hugsa sér að hefja
stjórnmálastarf á ný heldur taka til
aftur við blaðamensku. Sumir halda
þó að hann muni tæplega komast und-
an því að taka þátt í stjórnmálum;
jafnvel er því fleygt að hann muni
verða einn aðalmaðurinn í endurreisn
frjálslynda flokksins undir stjórn Sir
Wilfrid Laurier’s.
“Hello, mamma!” sagði sjötíu og
sex ára gömul dóttir við móður sína
nýlega. Hún heitir Margrét Mac-
Lean og á heima í bænum Sidney I
Nýja Skotlandi; móðir hennar er 101
árs að aldri og á heima í Boston.
Dótturin gekk 15 mílur til þess að
heimsækja móður sína.
í september voru 30 verkföll í Can-
ada; í þeim tóku þátt 7,511 manns og
töpuðust við það 103,233 dagsverk frá
Samkvæmt nýjustu skýrslum hafa
Bretar mist 1,000,000 mannslíf í sam-
bandi við stríðið síðan það hófst.
Dr. Reid, járnbrautaráðherra í Can-
ada lýsti því yfir hér nýlega að stjörn-
in ætlaði að fara að dæmi C.P.R. fél-
agsins og láta smiða gufuskip I sam-
banoi við járnbrautir sínar bæði á
Atlantshafið og Kyrrahafið.
Ungverjaland heiir lýst því yfir að
það sé hér eftir sjálfstætt ríki.
Fylkisstjórinn f Quebec sem Sir Ev-
ariste Leblanc hét, andaðist á föstu-
daginn var, 64 ára gamall.
T. C. Norris, forsætisráðherra, Thos.
H. Johnson, dómsmálastjóri og Val-
entine Winkler, búnaðarráðherra,
komu frá Regina á fimtudaginn. peir
voru þar í nokkra daga á ráðstefnu
með öðrum mönnum frá hinum vestur-
fylkjunum að ræða um innflutninga
mál og meðferð landa.
Jafnaðarmannablað f Vancouver
sem Western Clarion heitir hefir verið
bannfært af stjórninni og er hætt að
koma út.
Jafnaðarmenn í Austurríki gefa út
blað sem heitir Arbeiter Zeitung
(Verkamannatíðindi) 16. þ. m. farast
ritstjóra þess orð á þessa leið: “Lá-
varðarnir og aðalstéttirnar kváðu upp
stríðið en 'fólkið mun kveða það
niður; fólkið mun semja friðinn.”
petta segir blaðið í sambandi við frið-
arboð pjóðverja og svar bandamanna.
“pegar Berchtold greifi, Tisza greifi
og von Hoetzendorf greifi ákváðu að
ráðast á Serbíu,” segir blaðið enn
fremur, “þá hefir þeim ekki komið það
til hugar að þeir væru að leiða hina
fornu Habobcrgar ætt fyrir ætternis-
stapa.”
Nýlega hefir komið skipun frá
Evrópu þess efnis að *allir herforingj-
ar sem hér séu vígfærir í Canada skuli
fara tafarlaust austur um haf í stríð-
ið.
$350,000 virði veiddist af hvítfiski í
Winnipeg vatni I sumar.
Réttið hjálpar hönd. Styrkið sigur
lánið!
Blöðin skýra frá því á fimtudaginn
að þýzkir fangar haldi því fram að
vopnahlé hafi þegar verið samið. pað
sem hér fer á eftir er haft eftir þeim:
“Allar ráðstafanir hafa þegar verið
gerðar fyrir vopnahlé. pannig er
ákveðið að pjóðverjar skuli draga her
sinn til baka um 20 kilometra en
bandamenn sinn her 10 kilometra,
þannig á að vera 30 kilometra svæði
milli hersveitanna; þannig á það að
vera þangað til friður er saminn að
fullu.” Allir pýzkir fangar að und-
anförnu hafa verið glaðir og kátir;
lýsa þeir ánægju sinni yfir þvi að
hætta að berjast. Kváðust þeir alls
ekki fyrirverða sig fyrir það að
pýzkaland hefði orðið að óska vopna-
hdlés og allir voru þeir stoltir af
keisaranum. peir komast þannig að
orði: “pýzkaland er enn ósigrað,
og mesta land í öllum skilningi, sér-
staklega þó að því er snertir menn-
ingu og lærdóm. Sönnun fyrir þvi er
sú að pýzkaland hefir nú verið vilj-
ugt að bjóða vopnahlé til þess að
frelsa heiminn frá frekara blóðbaði.
pað hefir oft talað um frið síðan
þetta strlð hófst.”
Eins hlægilegt og þetta virðist vera,
tala þeir um það með alvöru og ígrund-
un sem eru nógu skynsamir til þess að
hugsa nokkuð um það á annað borð.
(pýtt úr Telegram , 9 bls. 17. okt.)
Meþódista kirkjuþingið hafði til um-
ræðu að leyfa konum prestsembætti;
var rætt um það lengi af allmiklum
hita og síðast samþykt að fresta mál-
inu í fjögur ár. Einkennilegt var það
að Dr. Bland, sem þykist. vera fram-
sóknar- og umbótamaður gerði frest-
unartillöguna; er það honum stór van-
vlrða frá voru sjónarmiði.
Réttið hjálpar hönd. Styrkið sigur
lánið!
Sporvagnafélagið fer fram á að
hækka fargjald til þess að mæta aukn-
um útgjöldum. Sé gróði félagsins
ekki meiri en svo og hafi ekki verið t.
d. í síðastliðin 5—10 ár að því sé hægt
að mæta útgjöldum án þessara úr-
ræða, þá eru þau sanngjörn. En fél-
agið ætti fyrst að sýna almenningi
greinilega skýrslu um tekjur sinar og
gjöld um nokkur ár að undanförnu.
pá en ekki fyr er hægt að dæma um
sannglrnlna.
225 fjölskyldur í Winnipeg lifa á
styrk úr bæjarsjóði vcgna fátæktar,
samkvæmt síðustu skyrslum.
W. Garland Foster, herforingi sem
um eitt skeið var ritstjóri blaðsins
Daily News í Nelson, B.C., er sagður
fallinn í striðinu.
Fjórar konur voru kosnar 1 neðrl
deild þingsins í Danmörku nýlega og
fimm 1 efri deildina.
Átta daga gamalt barn fanst inni í tal-
símastöðlnni í Eatons búðinni á föstu-
daginn. Ein kona eða stúlka vel-
klædd hafði sést fara lnn í stöðina
með barnið; hefir það að líkindum
verið móðir þess, en hún hefir hvergi.
fundist síðan. Farið var með barniði
á heimilið í Tuxedo.
Maður sem hét Charles Grozat Con-
verse andaðist í New Jersey á laugar-
daginn, háaldraður. pessi maður var
flestum fjölhæfari; hann var lögmað-
ur, upptyndingamaður, ljóðskáld og
tðnskáld. Kunnastur er hann sem
höfundur sálmsins: “ó þá náð að eiga
Jesúm,” er Matth. Jochumson hefir
þýtt.
Jóhann S. Austmann sem verið hefir
herfangi á pýzkalandi um langan tima
er nú kominn til Hollands.
Alþýðuskólinn í Gladstone í Mani-
toba brann til kaldra kola 8. þ.m., og
er skaðinn metinn á $18,000.
SORGIR.
Kona sem Ellen Neilson hét og
heima átti að Juniper avenue I Toron-
to, hafði vakað svo að segja nótt og
dag yfir manni sínum er lá veikur í
lungnabólgu. Á miðvikudaginn var
kom kona þar inn í eldhúsið og sá þá
sorgarsjón að húsmóðirin og tvö
börn hennar lágu þar öll örend. Hafði
konan auðsjáanlega orðið skyndilega
brjá’uð af vökum og þreytu. Hún
hafði farið með vatnsbala inn I eld-
húsið, helt í hann talsverðu af vatni,
tekið tvö börnin er þau hjón áttu, látið
höfuðin á þeim ofan í vatnið og haldið
þeim þar þangað til þau voru örend,
farið síðan með höfuðið ofan í vatnið
sjálf og haldið því þar þangað til hún
var dáin. Börnin voru eins og
tveggja ára gömul. Maðurinn sem lá
veikur I húsinu var leyndur þessu og
fluttur tafarlaust á sjúkrahúsið.
SPARIÐ SVO ÞÉR
GETIÐ LÁNAÐ