Voröld - 22.10.1918, Page 4
I
HCla. 4
YORÖLD.
Winnipeg 22. október, 1918.
kemur út á hverjum þriðjudegi.
Ctgefendur og eigendur: The Voröld Publishing Co., Ltd.
Voröid kostá $2.00 um árið í Canada, Bandaríkjunum
og á íslandi. (Borgist fyrirfram.)
Ritstjóri: Sig. Júl. Jóhannesson
Ráðsmaður: J. G. Hjaltalín.
Skrifstofur: Rialto Block, 482% Main Street—Parmers Advocate
Bldg. (gengið inn frá Langside Street)
Talsími Garry 42 52,
Heimkomnir hermenn
Eitt aðal atriðið í allri starfsemi þeirra manna og kvenna sem
láta sér ant um framtíð þessa lands og þessarar þjóðar hlýtnr að
verða það að vinna að vellíðan heimkominna hermanna. Leiðtogar
þjóðarinnar hafa gengið rösklega fram í því að safna í herinn; þeir
hafa haldið hvellar ræður og háværar nm hinar miklu hetjur þessa
lands; þeir hafa kvatt mennina þegar þeir lögðu af stað til vígvall-
anna—kvatt þá með allskonar fagurmælum og stórum loforðum; þeir
hafa lofað þeim allri aðstoð og umhyggju, virðingu og vellíðan þegar
þeir kæmu heim aftur eftir unninn sigur og drengilega framkomu.
Nú líður að þeim tíma að þeir hafi lokið starfi sínu og hverfi heim
aftur með glöðum hug og háum vonum. Menn sem héðan voru
sendir af yfirvöldum þjóðarinnar og í nafni stjórnarinnar var sagt
að ekkert skyldi of gott hinum frægu hetjum þegar stríðinu væri
lokið; menn sem í þjónustu stjórnarinnar hafa lagt sig í alls konar
lífshættu; menn sem heim hverfa með lamaða krafta; allavega ör-
kumlaðir; handarvana, fótarvana, blindir og alla vega særðir vænta
þess að hinir háu og auðugu menn sem sendu þá og hétu þeim allri
aðstoð, sæmdum virðingu og ríflegum launum þegar þrautirnar
væru á enda, komi hver um annan þveran með opna arma, bros á
andliti og útréttum höndum til þess að bjóða þeim þægilega stöðu
með lífvænlegu viðurværi, þar sem þeir geti eytt því sem eftir er
æfinnar í minningum um það sem þeir hafa lagt í sölumar. Sá sem
viljugur var að fórna lífi sínu á heimting á því þegar hann kemur
aftur að ekki þurfi að hrekjast fyrir honum eða fjölskyldu hans.
Yér búumst við því að enginn þurfi að efast um áhuga þeirra stóru
manna sem gáfu hermönnum vorum flest loforðin og glæsilegust
þegar þeir fóru. En ekki getum vér látið hjá líða að birta hér bréf
frá heimkomnum hermanni sem særst hefir í stríðinu. Vonum vér
að meðferð sú sem hann hefir átt að mæta sé undantekning en ekki
regla, og gæta mega þeir sín hinir háu herrar ef nokkrir eru sem
eins fara að ráði sípu og félagið sem hér er um að ræða.
“Vorum vér að berjast fyrir frelsi eða dauða?”
V. Spencer, hermaður, Nr. 51433, sem verið hefir á þriðja ár í
skotgröfunum skrifar það sem hér fylgir:
“Ég fór fyrst til Frakklands síðari hluta febrúarmánaðar, 1915,
og fékk fyrsta frí til þess að fara til Englands eftir þriggja mánaða
herþjónustu í skotgröfunum. Eg fór aftur til Frakklands og á víg-
vifllinn og var þar þá í skotgröfunum 12 mánuði. pá fékk ég frí í
annað sinn. 1 þriðja skifti fór ég til Frakklands og var þar einn
mánuð, varð veikur og misti heilsuna fyrir fult og alt að nokkru
leyti. Ég fékk mig lausan úr herþjónustu 31. janúar, 1918, og
hvfldi mig eftir allar eldraunirnar þangað til 15. apríl, 1918, þá byrj-
aði ég að vinna hjá Marshall-Wells félaginu fyrir $16.50 á viku.
pegar ég hafði verið þar um tíma féll félaginu svo vel við mig að það
hækkaði kaup mitt upp í $18.00 á viku þangað til að kveldi hins
þrítugast^ september, 1918, að mér var sagt upp vinnu fyrirvara-
laust. Félagið hafði þá heyrt að ég hefði gerst meðlimur í smásala
og stórsala verzlunarþjóna félaginu. Eg hafði unnið þama alt sum-
arið fyrir lágt kaup; hafði orðið að sjá heimili mínu borgið, sem
ekki var stórt, aðeins kona mín, ég sjálfur og ungbam. Og nú er
mér sagt upp vinnu rétt undir veturinn. Eg læt Wiimipegbúa dæma
um það hversu sanngjarnlega þessu félagi hefir farist við mig.
Nú horfist ég í augu við langan og kaldan vetur með veikburða
konu og ungt barn. Kolaeinokunin heldur sitt strik, en mig brestur
peninga til þess að kaupa eldivið. En auðmaður sá sem svifti mig
vinnu hefir nægar kola byrgðir. Hann og aðrir hans líkar geta ver-
ið hlýir, fullir og feitir í skrautlegum híbýlum; kuldagómar Mani-
toba vetrarins má þeim ekki þótt þjónar þeirra séu berskjaldaðir fyrir
öflum harðindanna. petta eru mennimir sem halda verkalýðnum
í ánauð, og því lengui' sem þeim tekst að troða þá undir jámhælum
þeini um meira fé græða þeir.
Mig langar til að vekja Winnipegbúa til meðvitundar um það
að stríðið teknr einhvem tíma enda. Svo er að sjá sem stóra menn-
imir hugsi sér að þegar drengirnir komi heim þá geri þeir sér gott af
dillu, en þar ætti þeim að skjátlast. Nú, einmitt nú á meðan stríðið
stendur yfir er tíminn til þess að taka saman höndum og mynda fél-
agsskap sér til varnar. pví má ekki gleyma að þetta verður að
gerast áður en stríðið er úti. pað verður of seint sé það látið
hólkast þangað til friður er saminn. Látum oss koma saman tafar-
laust í sameiginlegu vamarfélagi—látum það ekki dragast; ekki einu-
sinni til morguns.
Hvernig haldið þér að sumir þeirra sem vinna hjá Marshall-
Wells félaginu fari að því að komast af með $15.00 til $16.50 á viku
•eins og nú er alt í háu verði ? petta félag borgar lægst kaup allra
félaga í Winnipeg. petta er ekki kaup sem mögulegt sé að draga
fram lífið á sómasamlega. Ög þetta kalla menn bezta land á guðs
:grænni jörðinni!
Verðlaunin sem ég fæ fyrir allar hörmungamar sem ég varð að
þola og líða á Frakklandi era þessi: Heilsa mín er biluð æfilangt;
ég fæ í eftirlaun frá stjóminni $5.00 á mánuði; ég er látinn vinna
hjá auðfélagi fyrir sultarkaup, og rekinn frá því fyrir það að ég
vildi hafa frelsi til þess að heyra til félagi stéttarbræðra minna.
Eftir að ég hafði barist á þriðja ár erlendis fyrir frelsi, eftir því
sem mér var sagt, og ég trúði; er mér í mínu eigin landi synjað um |
það frelsi að tilheyra ærlegum félagsskap til þess að bæta kjör mín |
og sjá borgið konu minni og bömum. Marshall-Wells félagið hótar
því eins og fleiri hrokafull okurfélög, að loka dyram ef starfsmenn
þess bindast samtökum til þess að bæta hag sinn; það hótar að hætta
starfi í heilt ár. Auðvitað býst ég við að þeir geti framfylgt þeirri
hótun og staðið eins uppréttir eftir sem áður; þeir standa á meðan á
þeim gamla merg sem þeir hafa sogið úr beinum verkafólksins sem
hjá þeim hafa unnið fyrir sultar kaup.
pessar aðfarir auðfélaganna ættu að verða til þess að vrkja
verkamenn og sameina þá í fjölmennan og öflugan félagsskap svo
auðfélögin finni til.
Menn sem stjóma félagsskap eins og þeim sem hér hefir verið lýst
koma því til leiðar að ekki er líft í þessum heimi. Ég liefi reyrd að
gera mitt bezta síðan ég kom heim úr stríðinu en þegar um annað
eins ofurefli og annan eins órétt er að ræða og hér á sér stað er
ekki mögulegt að ná rétti sínum. Vér verðum því að taka til þeirra
ráða sem ein gagna—það eru almenn og sterk samtök í varnarskyni.
Ég spurði herra Chandler formann félagsins, hver væri ástæðan
fyrir því að ég væri rekinn. Hann svaraði því brosandi á þessa leið:
‘Ástæðan? Við verðum altaf að gera þetta öðru hvoru.’—Já, hann
sagði þetta með kæruleysis brosi.
Einn maður var þar sem unnið hafði í 15 ár hjá félaginu. Heyrst
hafði hann tala um verkamannafélag og halda taum þess; einhver
sagði félagsstjóranum frá því; var hann kallaður fyrir varaformann
félagsins sem ávarpaði hann þessum kurteislegu orðum:
‘Farðu héðan til helvítis! Ég læt loka þessum stað fyr en ég
samþykki að verkamannafélög hafi þar griðastað.’ ”
Á það má'fólk reiða sig að verkamannafélag verður stofnað
meðal þeirra sem vinna hjá Marshall-Wells félaginu. Til þess þarf
talsverðan tíma, en baráttan er byrjuð.
(Labor News 4. október, 1918).
Verkíall og stjóraarákvæði
Eins og frá var skýrt í síðasta blaði hefir stjómin í Ottaiva
samþykt ákvæði sem leggur $1,000 sekt og sex mánaða fangelsi við því
að gera verkfall (fyrir hvom einstakling).
Um þetta ákvæði hefir verið farið mörgum orðum og misjöfnum
af hálfu verkamanna og fleiri.
pegar skipunin var ný útgefin gerðu mörg hundruð manns í Cal-
gary verkfall og kváðust alls ekki skeyta banni stjómarinnar. peir
kváðust hafa úrskurð Robertsons verkmálaráðherra fyrir því að
verkfall væri með öllu löglegt samkvæmt brezkum reglum og rééttar-
fari. pað sem hér fer á eftir birtist í Tribune á miðvikudaginn:
“Moore mótmælir atferli stjómarinnar þar sem hún bannar verk-
iöll. Hann lýsir því yfir aS verkamenn séu ákveðnir í því aS vinna
stríðiS og áhugi þeirra í því efni sé lagður í stórkostlega hættu.
Tom Moore, forseti hinna sameinuðu verkamannafélaga í Can-
ada sagði í mótmælum sínum gegn ákvæði stjórnarinnar á móti verk-
föllum: ‘Með klunnalegu yfirvarpi þess að stríð standi yfir sem
þess krefjist ætti stjórnin að varast að eyðileggja áhuga verkamanna
til þess að vinna stríðið með því að beita þá slíkri meðferð sem þeirri
er hér er átt við og sá þannig sæði iðnaðarstríðs sem geri það að
verkum að erfiðara verði að koma málefnum þjóðarinnar í samt lag
aftur.’
1 byrjun ávarp síns segir herra Moore að rétturinn til þess að
gera verkfall sé grandvöllurinn undir brezku iðnaðarfrelsi og hann
segir enn fremur að verkamennirnir yfir höfuð hafi notað þetta frelsi
sanngjamlega. Hann bendir á að verkamáladeild sambandsstjórn-
arinnar hafi birt yfirlýsingar sem sýni að í Canada hafi verið færri
verkföll og séu enn færri en í nokkru öðru landi sem í stríðinu sé.
pegnhollusta verkamanna sé sönnuð með þeirri dæmalausu þolin-
mæði sem þeir sýni; en stjómin ætti að gæta hinna alvarlegu teikna
iðnaðar óeirða sem yfir vofi og leggja niður eitthvað af hinu sýni-
lega ranglæti, áður en það sé orðið um seinan. ”
(Tribune, 10 bls. 16 okt. 1918).
Verkamenn æfir yfir þeirri hótun að taka verkfallsmenn í her-
inn. Staðhæfing Carvells veldur mörgum ámælum af munni verka-
manna í Winnipeg.
Verkamenn í Winnipeg hafa tekið staðhæfingu Frank Car-
vells, ráðherra, um það að verkfallsmenn yrðu teknir með valdi og
færðir í herföt sem beina áskoran til mótstöðu. Sumir leiðtogárnir
tala um þetta með háði, aðrir skoða það sem blekking sem hafi engin
áhrif.
Einn þeirra, sem bitrasta mótstöðu veita þessari uppástungu er
séra William Ivens, ritstjóri verkamanna blaðsins; honum farast orð
þannig:
“Stjórnarákvæðið frá Ottawa viðvíkjandi verkfallsmönnum og
ofbeldi gegn þeim, er beint brot á brezkri stjómarskrá.
peð er bein áskoran til verkamanna um mótstöðu, en verkamenn
bíta ekki á öngulinn. Verkamannasamböndin ættu að kalla þing og
skipa alment verkfall um alla Canada þangað til þessi stjómar á-
kvörðun verður tekin aftur, og verkamanna þingið ætti að setja þrjá
fulltrúa í stríðsstjómina, sem útnefndir væru af verkamönnum sjálf-
um til þess að koma í veg fyrir að hagur Verkamanna væri fyrirlitinn
framvegis.
pá sem guðirnir ætla sér að eyðileggja gera þeir fyrst frávita.
Á allar hliðar koma fram merki um andlega flogaveiki og hugsunar-
lausar athafnir af hálfu þeirrar stjómar sem náði'meirihluta kjósenda
með skríls aðferð og sem framkvæmir vilja sinn með því að beita
bareflum.”
Verkamenn hjá jámbrautarfélaginu lýsa því yfir að þeir séu ó-
hræddir. pví var lýst yfir af verkamönnum í dag að verkfall það
sem verkamannabræðrafélagið hefði hótað hefði ekki verið fullkom-
lega afturkallað. peir sögðu að 8,000 manns eystra og vestra gerðu
verkfall ef þeir fengju ekki kröfum sínum framgengt og víðsamlegir
samningar fáist í Montreal í dag á fundi við stríðsnefndina.
Verkfall það sem verkamannabræðrafélagið hótaði er alt annað
en almenna verkfallið sem hótað er í Vestur-Canada til samhygðar
við flutningsmennina sem verkfall gerðu. Verkamennirnir í Calgary
frestuðu á þriðjudaginn hinn almenna verkfalli allra ver^kamanna-
félaga þar og ákváðu að bíða í 24 klukkustundir aamkvæmt bciðni
bæjarstjórnarinnar á meðan ágreiningsmálin eru rædd við Frank B.
Carvell verkamálaráðherra og J. D. Reid, járnbrautaráðherra, (sern
báðir eru staddir í Calgary í dag.
pessir tveir ráðherrar lýstu því yfir í Calgary að þeir ætluðu sér
að standa stöðugir með stjómarákvæðinu með það að beita valdi við
verkfallsmennina.
Skeyti frá Ottawa segir að undirbúningur sé í þá átt nú þegar
að framfylgja stjórnarákvæðinu með valdi.
(Tribune, 5. bls. 16. okt. 1918)
Gott í eðli sínu
Heimspekingar allra alda hafa deilt um það hvort fólkið yfir
liöfuð væri gott eða.flt í eðli sínu-. Margar sannanir eða líkur hafa
hvorirtveggja fært fram máli sínu til stuðnings. Flestum mun þó
hafa fundist sem misskilningur, blandinn blekkingu væri aðal orsök
þess þegar almennings álitið liallaðist á ranga sveif eða styrkti ilt
mál, fremur en að það væri af meðfæddum vilja til þess áð styrkja
hið illa og ranga.
Vér höfum ávalt haft tröllatrú á fólkinú yfir höfuð. Oss hefir
fundist það öruggari dómari ef það fengi að vera blekkingalaust, en
þeir fáu inenn sem oft hafa náð áhrifavaldi hafa oft getað misbeitt
því þannig að fólkið líti skakt á í svipinn og breytti þess vegna rangt
óafvitandi, eða væri með hnefarétti hrætt og þvingað til þess að
íylg.ja einhverju sem það í raun réttri hefði andstygð á.
Aldrei höfum vér betur sannfærst um heilbrigði fólksins yfir
höfuð en þennan stutta tíma sem Voröld hefir átt í vök að verjast.
Aldrei hefir íslenzk alþýða tekið saman höndum eins alment og eins
afdráttarlaust. Ef til vill er sú barátta sem blað vort á í algerlega
einstæð í sinni röð. Fáeinir leiðandi menn og auðmenn í öllum
flokkum beita öllum ráðum mögulegum á móti blaðinu, ep öll alþýða
—fólkið yfir höfuð—í öllum flokkum hefir stutt það og styður með
meiri samúð og alvöru en dæmi séu til.
Voröld fylgir engri trúmálastefnu hér lijá oss, o£ lætur trúmál
með öllu afskiftalaus, án þess að ritstjóri hennar fari í nokkrar felur
með sínar eigin skoðanir í því máli. Einlægustu menn kirkjufél-
agsins, ákveðnustu unitarar og heitustu nýguðfræðistrúarmenn
styrkja blaðið jöfnum höndum. peir finna til þess að hér er aðc'ns
um -stjórnarfarlslegt ofríki að ræða sem lífsnauðsyn er öllum aö
berjast gegn ef kúgunin á ekki að setjast í hásæti. peir finna til
þess og hafa sannfærst um það að Voröld hefir farið með rétt mál
og vill tala máli alþýðunnar.
Fólkið hefir alment sýnt það» í þessu að því má trúa og treysta
þegar ekki er annaðhvort hægt að kúga það eð(t villa því sjónir.
Fyrir alla þá aðstoð sem vestur-íslendingar hafa veitt þessu
fyrirtæki; fyrir alla þá einlægni sem oss hefir verið sýnd; fyrir þau
dæmafáu samtök og þá styrkjandi samhygð sem oss hefir verið veitt
látum vér blað vort flytja öllum löndum vorum hugheitar þakkir
Vér skulum ekki telja hér upp allar þær tilraunir sem til þess hafa
verið gerðar að blekkja fólk og sverta oss; vér skulum einungis láta
þess getið að þegar ársafmælissaga Yoraldar verður skráð þá verður
margs að minnast og margt að þakka.
Hefði það ekki verið fyrir frábært drenglyndi vestur-íslenzkrar
alþýðu—og sérstaklega vestur-íslenzkra bænda—þá hefði, ef til vill,
tekist að koma blaði voru fyrir kattamef, en sigurinn er þegar uimin
að því leyti að ekkert getur heft né hindrað framtíð blaðsins.
Fá orð í fullri meiningu
i —
Sir Thomas Whit.e kom til Saskatoon á fimtudaginn var í sérstök-
um jámbrautarvagni, og um leið og hann byrjaði sigurlánsræðuna
sagði hann fólkinu að kaupa sigurlánsbréf þangað til það meiddi—
keisarann.
petta var nú góð og blessuð athugasemd. En mættum vér í
allri auðmýkt og undirgefni stinga upp á því að Sir Thomas slepti
uglunni framan af nafninu sínu til þess að verða sjálfur nær fólkinu
og seldi þenna sérstaka járnbrautarvagn sinn fyrir sigurlánið?—
Wynyard Advanre.
Kæri Dr. Sig. Jöl. Jóhannes.—Ég sá
í Lögbergi sem út kom 26. september,
1918, spádóm um það livenær stríðið
muni enda. Spádómurinn ^r bygður
á tölum, sem sína fæðingar ár, aidur,
hvenær komið til valda, hvað lengi
verið við völö; á þeim töhim sem út
koma byggir spámaðurinn endalok
stríðsins, og af því það eru alt stór-
höfðingjar sem þar eru til teknir datt
mér í huga að sonda þér þennan við-
auka sem fylgir:
Lögberg fæddist ............... 1887
Giftist Heimskringlu........... 1917
Hefir lifað með henni, sem næst,
eitt ár......................... 1
Er þrjátíu og eins árs gamalt.... 31
3836
Ef þessari tölu cr deilt með 2
verður útkoman............... 1918
og Lögberg komið í höfðingja töluna
og að líkindum stríðið endi 1918.
Gamall Spámaður í Grunnvatnsbygð.
pað komst upp í réttinum á fimtu-
daginn að Páll Reykdal var einn
þeirra sem kært höfðu Hecla Press.
Bréf kom fram við rannsóknina sem
hann hafði skrifað stjórninni. Nán-
ari fréítir síðar
i
Pessi vísa datt manni í hug í réttar-
salnum á fimtudaginn:
“Ritstjórinn um Reykháf blés,
rógi að Júlíusi,
hendur rétti Heródes
honum Pllatusi.”
Sagt er að Carl Thorson hafi dregið
upp mynd af ritstjóra Lögbergs og
Páli Reykdal—ágæta I sinni röð.
Hjálpið drengjunum með því að
styrkja sigur lánið.
p Reiknaðu
| Kostnaðin
M ú fötum þínum um mánuðinn
IJjj eða um arið ekki eftir verð-
jjjj inu: Hobberlin fötin eru
jjj þau sem hagkvæmast er að
K kaupa. Gæði efnisins er það
! ■ sem lengi er haft í minni eft-
B ir að verðið er gleymt.
Búin til af skraddara
eftir máli.
$30 til $75
H THE HOUSE OF HOBBERLIN
LTD.
r 1 T ailors to the Canadian Gentleman
350 Portage Ave.
BITAR
i
STYRKID SIGURLÁNID TIL þESS AD FRELSID MEGI LIFA!