Voröld - 22.10.1918, Síða 7
Winnipeg 22. október, 1918.
VORÖLD.
Bls. 7.
»>■<
HARÐGEÐJAÐA KONAN
SAGA EFTIR MARGRÉT DELAND.
G. Amason þýddi. |
“það er tízka að hafa þau,” sagði Btair. “Frú
Richie hefir þau, og ég hefi séð þau í beztu hótelum.
Flest fólk borðar annarstaðar en í skrifstofumii, ”
bætti hann við með fyrirlitningar svip.
Meðan hann var að snotra til, laga skeið við
þennan diskinn og vínglas við þann næsta, syngj-
adi eða blístrandi af ánægju kom móðir hans inn.
Hún var kominn í svarta silkikjólinn, sem hún var
í á sunnúdögum, og hafði þar að auk látið á sig
kniplingakraga og skelplötubrjóstnál með upp-
hleyptum myndum. Hún var prjónandi og hafði
stungið ljósrauðum bandhnyklH handarkrikann, og
það var leiðinlegur en samt þoíinmóðlegur gletnis-
svipur á andlitinu á henni. Að hafa kvöldverðinn
klukkan sjö, að kalla það veizlu, og fylla borðið með
alls ltonar dóti, sem ekki væri nein saðning í, og
miklu meira en nokkitr gæti borðað—“svo sem
þetta,” sagði hún og benti með lausa prjóninum á
olíubcrin—að gera þetta, væri auðvitað mesta vit-
leysa. En Blair væri ungur enn þá og hann vendist
af þessari heimsltu, þegflr hann færi að sinna alvar-
legum störfum. pangað til væri bezt að lofa hon-
um að vera heimskur. “Eg' býst við að hann þyk-
ist vera heldur en ekki höfðingi,” sagði hún bros-
andi við sjálfa sig; en upphátt ságði hiin með
óblíðri kæti: ,
“Tii hvers éru öll þessi blóm? Kvöldverðar-
borð er staður fgrrir mat, en ekki f^rir glyngur.
Blair roðnaði. “Sumt fólk, ” sagði hann méð
rödd, sem lýsti niðurbældri gremju og háði- -” sumt
fólk, móðir mín, hugsar um fleira eu það að fylla
magann. ”
Frú Maitland var hætt að horfa á borðið 'g var
farin að virða fyrir sér son sinn frá hvirfli til ilja
Hann var fríður sextán vetra piltur, hár og liðlegur
í nýju fötunum sínum, sem hann bar sig vei í, þótt
hann væri enn ekki orðinn vanur þeim.
])að færðist roði í andlit hennar. “Ég vildi að
faðir hans hefði lifað til að sjá hann nú,” hugsaði
hún með sjálfri sér. “ Snúðu þér við svo að ég geti
séð þig'. ” Hún lagði hendina á öxlina á honum.
“þú kant víst ekki illa við þig í þessum fötumf”
það var auðheyrt á röddinni að hún var upp með
sér af honum, og ef hún hefði vitað, hvernig hún
átti að bera sig' að því, þá hefði hún kyst hann. En
í staðinn fyrir það spurði hún hátt og gleðilega:
“Jæja, sonur sæll, hvar er heiðurssætið við borðið?
Hvar á ég að sit.jaf”
“Mamma!” sagði Blair og fölnaði í framan.
Hann gekk að dálitlu borði, sem hafði verið sett inn
til þess að leggja á diska og annað, tók upp gaffal
með skjálfandi hendi, lagði hann frá sér aftur, snéri
sér við og leit á hana. Jú, hún var sparibúin.
Hann stundi lágt. það komu tár fram í augun á
honum. “Ég hélt,” sagði hann og ræskti sig; “ég
vissi ekki----”
“því læturðu svona?” sagði frú Maitland og
horfði á hann fyrir ofan gleraugun.
“Eg hélt að þú kærðir þig- ekki um að vera
með,” sagði Blair mjög vandræðalega.
“Mér stendur á sama þó að ég verðl dálitla
stund,” sagði hún góðlátléga.
Blair beit á jaxlinn; og Harris, sem kom utan
úr eldhúsinu, og var að láta á sig gríðarstóra hvíta.
glóga—hann minti, að það hefði verið haft svo í
lögreglumanna samsætinu—varð meira en lítið
hverft við, þegar hann sá frú Mgitland, sem var ekki
mjög hughreystandi fyrir Blair.
“Hefirðu nógu mörg sæti, Harrisf” spurði frú
Maitla.nd “Hefirðu nú talið alla, sem von er á,
Blair? Frii Richie og Ferguson koma bæði.”
Frú Richie!” þrátt fyrir vonbrigðin gladdist
Blair snöggvast. Hann hafði mjög mikið dálæti
á mömmu Dav-íðs; og það var þó bót í máli, að hún
mundi sjá, að hann kynni að taka á móti gestum.
En svo braust reiðin fram. Ég bauð henni ekki, ”
. sagði hann, og röddin skalf.
“Hvenær verður farið að borða?” spurði móðir
hans. “Eg er farin að verða svöng.” Hún settist
við annan endann á borðinu og sat ofurlítið skáhalt
og brá öðrum fætinum aftur fyrir stólfótinn. Hún
horfði í kring um sig óþolinmóðlega og sló hægt á
borðið með flatri hendinni. Hendin var altaf
falleg, og í þetta skifti var hún hrein. “En sú vit-
leysa að hafa þetta svona seint. ”
“þetta er veizla en ekki vanalegur kvöldmat-
ur, ” sagði Blair; “og—” Lengra komst hann ekki,
því dyrabjallan hringdi. Harris hafði í fáti
hrökklast fram í eldhús, og frú Maitland benti Blair
að fara til dyranna. “Hlauptu og ljúktu upp fyrir
vinum þínum,” sagði hún.
Blair hljóp ekki, en hann fór samt; og hefði
hann getað stungið þessa, sem fyrstir komu, í gegn
með augnaráðinu, þá hefði hann gert það. En frú
Maitland, full af ánægjú yfir því að taka þátt í gleði
sonar síns, labbaði þungstíg fram fyrir til að heilsa
þeim, sem komnir voru. það voru tveir unglings
pilta'r, sefn ekki vissu hvað þeir áttu að gera af sér,
þegar þeir sáu hana. Hún tók á rnóti öllum gest-
unum og bauð unglingana, sem voru feimnir, vel-
komna; og þeir svöruðii henni eins og þcir héldu að
bezt ætti við við svona tækifæri.
‘“Komdu sæl, Elízabet. Nei, hvað er þetta!
Komin í síð pils. þú ert svei mér orðin stór stúlka!
Og komdu sæll, Davíð. þú ert líka kominn í
frakka? Gott kvöld, frú Riehie. Gott að þér kom-
uðt Hver er þetta? Harry Knight? En hvað þú
ert orðinn stór piltur, Harry? Ég þekti stjúpu þína,
þegar hún hét Molly Wharton og var ekki nærri
eins gömul og þú ert nú. ”
Harry, sem gat tekið spaugi, hló, Davíð varð
rauður í framan af vonsku, Elízabet snéri upp á sig,
og Blair varð enn þá hvítari í framan.
Borðhaldi.ð fór fram nokkurn veginn slysalaust.
Frú Maitland settist niður á undan öllum öðrum.
“Fáið þið ykkur sæti,” sagði hún, og byrjaði borð-
bænina meðan aðrir voru a setjast niður; og óðar
en hún var búin að segja “amen, ” spurgði hún frú
Bichie, hvort hún vildi súpu. Svo jós hún súpunni
á diskana; og Harris dembdi öllu á borðið í einu svo
að hún hafði nóg að gera að skera og láta á diska
og biðja gestina um að borða meira, sem hún gerði
svikalaust. Blair sat við hinn endan á borðinu og
sagði ekki orð. Einu sinni leil hann þakklætis
augum til frú Richie, eins og barinn hvolpur, seri
sleikir hendur þess,,sem hjálpar honum. T'Vú Richie,
sem fann vel hvernig í öllu lá reyndi að hjálpa hon
um með því að forðast að líta á hann og spjalla við
unga fólkið sem sat næst henni. Elízabet reyudi
að gera sitt með því að setja á sig uppgcrða •• yngis-
meyjar svip, þótt henni yrði það stundum á að
skotra augúnum leynilega til Davíðs; ef övritvíd
hefði staðið á, hefði Blair ekki getað, varist bví að
brosa að henni. Jafnvel Ferguson, þott hann væri
naumast búinn að ná sér aftur eftir koss fræ.é'U
sinnar, hjálpaði það sem hann gat—hann sá vind-
ræði Blairs, eins og aðrir—með því að tala við frú
Maitland, sem gerði þó áð minsta kosti það að*verk-
um, að Blair fanst, að hún talaði minna.
Frú Maitland vissi náttúrlega ekkert af því að
aðrir væru að reyna að koma í veg fyrir það að hún
talaði; henni fanst þetta ekki vera neitt óvenjulega
hátíðleg athöfn, og hún var furðu þo\inmóð yfir
öllum þessum hégórga og heimsku. Einu sinni
hringdi hún bjöllunni, sern hún hafði skipað Harris
að sækja yfir í skrifstofuna, og sagði hátt: “Flýttu
þér, Harris, flýttu þér! Hvað á þessi dráttur að
þýða?” Drátturinn þýddi ekki aniiað en það, að
Harris gat ómögulega munað hvenær hann átti að
bera inn “þessi ílát,” sem Blair hafði verið að tala
urn.
“Eiga þau að koma nú?” hvíslaði hann að Blair
og nuddaði þumalfingrinum eftiir buxnaskálminni.
“Fleygðu þeim út um gluggann, ” kvíslaði Blair
aftur að honum. "Hann var búinn að fá meira en
nóg af öllu saman.
“Eg er búinn að steingleyma því,” sagði Harris
vandræðalega. “Vertu nú góður Blair. Eiga þau
að koma með þessum tómateplum eða, með eftir-
matnum ? ’ ’
“Farðu til fjandans!” sagði Blair í hálfum
hljóðum; og skálarnar með fingraþvottavatninu
komu með salatinu.
“Hvað á þetta að þýða?” spurði frú Maitland :
svo tók liún litlu glersltálina upp og horfði á hana
með skringilegu augnaráði. “Skárri er það nú
viðhöfnin Blair,” sagði hún hátt.
Blair lét sem hann lieyrði ekki. Hann talaði
ekki orð við nokkurn mann, og jafnvel ekki við
Elízabet. sem sat rétt lijá honum í nýja, hvíta kjóln-
um sínurh. Ilárið á henni var eins og silkiþræðir
í birtunni frá stóra Ijósahjálminum fyrir ofan hana.
Business and Professional Cards
Allir sem í þessum dálkum auglýsa eru velþektir og áreiðanlegir menn—peir bestu sem völ er á hver I
sinni grein.
LÆKNAR.
Dagtals St.J. 474. Næturt. St. J. 866
Kalli sint á nótt og degi.
DR. B. GERZABEK,
M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frá
London, M.R.C.P. og M.R.C.S. frá
Manitoba. Fyrverandi aðstoðarlæknir
við iiospítal í Vínarborg, Prag, og
Berlin og fleiri hospítöl.
Skrifstofutími i æigin liospítali, 415
—417 Prit.chard Ave., Winnipeg, Man.
Ski'ifstofutími frá 9—12 f.h.; 3—4
og 7—9 e.h.
Dr. B. Gerzabeks eigið hospítal
415—417 Pritcliard Ave.
Stundun og lækning valdra sjúk-
linga, sem þjást af brjóstveiki, hjart-
veiki, magasjúkdómum, innýflaveild,
kvensjúkdómum, karlmannasjúkdóm-
um, taugaveiklun.
HEILBRIGDI8 STOFNANIR
DR. M. B. HALLDORSSON
401 BOYD BUILDING
Taisími M. 3083 Cor. Portage &Edm
Stundar sérstaklega berklaveiki og
aðra lungnasjúkdóma. Er að finna
á skrifstofu sinni kl. 11 tll 12 f.m.
og ltl. 2 til 4 e.m.—Heimili að 46
AJlotvay Ave. Talsími Sh. 3158.
Keep in Perfect
Health
Phone G. 868
Turner’s Turklsh
Baths.
Turkish Baths
with sleeping ac-
commodation.
Plain Baths.
Massage and
Chiropody.
Cor. King and Bannatyne
Travellers Building Winnipeg
LÖGFRÆDINGAR.
ADAMSON & LINDSAY
%
Lögfræöingar.
806 McArthur Buildmg
Winnipeg.
BLÓMpURSALAR
Talsími M. 3142 ')
G. A. AXFORD
! LögfræSingui'
503 Paris Bldg. Winnipeg
V. _
J
DR. J. STEFÁNSSON
401 BOYD BUILDiNG
Horni Portage Ave og Edmonton St
Stundar eingöngu augna, eyrna, nef,
og kverka-sjúkdóma. Er að hitta
frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 5 e.h.
Taisími IVIain 3088
Ileimili 105 Olivia St. Tals. G. 2316
W. D. HARDING
BLÓMSALA
of
Giftinga-blómvendir
sveigír sérstaldega.
sorgar-
374J/2 Portage Ave.
Símar: M. 4737
Heiraiii G. 1054
4 -----------------------^
J. K. SIGURDSON, L.L.B.
Lögfræðingur.
708 Sterling Bank Bldg.
Sor. Portage and Smith, Winnipeg
Talsími M. 6255.
v-------!___________________ j
MYNDASTOFUR.
j
Talsími Main 5302
J. G. SNIDAL, L.D.S.
Tannlæknir
614 Somerset Block, Winnipeg
DR. 6. STEPHENSEN
Stundar alls konar lælmingar.
Talsími G. 798, 615 Bannatyne
avenue.
Hinir gestirnir sem horfðu hálfhræddir ýmist á Blair
eða á rnóður hans, fylgdu dæmi hans og töluðu «kki
orð. En frú Maitland lét ekki sitt eftir liggja,
eftir því sem henni fanst við eiga; hún spurði spurn-
inga, sem voru hálf' niðurlægjandi fyrir gestina:
kallaði þá börn og lét þá kenna óspart á fyndni
sinni; og svo skaut hún hinu og öðru að Robert
Ferguson um aðstandendur þeirra. “Harry
Knight, sem situr þarna er stjúpsonui' Molly Whar-
tbn: hann er líkur föður sínum. Gamli Knigth er
öldungur í fyrstu presbytera kirkjunni; liann réttir
öðrum hattinn til að láta peninga í—gefur aldrei
neitt sjálfur. Eg kalla konuna hans altaf heimsku
Molly. Er þessi ungi Clayton sonur Tom Claytons ?
Hann lítur út fyrir að vera dálítið skynsamur. Tom
var altaf mikill vinur herra Doesticks...J>ú veizt,
víst það að amma West stráksins þarna var ekki
alveg viss um hver afi hans væri... Hrú Richie er
fríð kona, Ferguson minn; að þú skulir ekki sjá
það.”
þegar þessi hræðilega hálfa klukkustund var
liðin—frú Maitland lét Harris hamast við að koma
af þessu verki, sem Blair liafði undirbúið svo vaud-
lega—þegar búið var að borða, kom frú Richie þv.í
svo fyrir, að unglingarnir losnuðu við frú Mait-
land.
“Eigum við ekki að koma m^ð Ferguson yfir í
herbergið yðar, og lofa unga fólkinu að skemta sér
út af fyrir sig?” spurði hún; og frú Maitland var
svo fljót að samþykkja það, að það var auðséð
að hún var fegin að losna við alla þessa “vitleysu. ”
þegar þau voru farin, létti unga fólkinu fvrii
brjósti. Nanna, sem var nærri því grátandi, !: /ísl-
aði einhverjum athugasemdum að Blair, en hann
snéri við lienni bakinu. “‘Ágætar veitingar. kunn-
ingi,” sagði Davíð hægt og gætilega; og Blair léit
á hann með því augnaráði, að hann þagnaði. Blair
þagði og gaf sig ekkert að hinum, þótt dálítið samtal
væri nú byrjað. Hann óskaði eftir, að hann þyrfti
aldrei framar að sjá eða tala við nokkurn af þeim
sem þar voru. Ilonum var illa við alla; hann hat-
aði—Lengra komst hann ekki, í huganum.
pegar hinir voru búnir að ná sér og Nanna var
sézt við píanóið og einhver hafði stungið upp á því,
að þau skyldu öll syngja sér til skemtunar, og. Elíza
bet hafði bætt við: “Við skulum dansa líka, ” þá
hvarf Blair úr hópnum. Frammi í forstofunni, þar
sem dimmast var, stóð haun einn með krepta hnefa
og óskaði þess með sjálfum sér, að þau vildu fara
sem fyrst. “Ég er orðinn dauð leiður á þessu öllu
saman. Eg vildi að allir færu strax heim,” sagði
hann við sjálfan sig.
(Framhald)
J. J SWANSON & CO. .
Verzla meö fasteignir. Sjá
um leigu á húsum. Annast
lán og eldsábyrgSir o. fl.
504 The Kensington, C®r.
Portage & Smith
Phone Main 2597
Talsími Main 3775
Dag og nótt og sunnudaga.
THE “KING” FLORIST
Gullfiskar, Fuglar
NotiS hraSskeyta samband vit5
oss; blóm send hvert sem er.
VandaSasta blómgerð er
sérfræSi vor.
270 Hargrave St., Winnipeg.
Talsími Garry 3286
RELIANCE ART STL'DIO
616 Main Street
Vandvirkir MyndasmiSir.
Skrautleg mynd gefin ókeypis
bverjum eim er kemur með
þessa auglýsingu.
KomiS og finnið
oss sem fyrst.
Winnipeg, _Manitoba
G. J. GOODMUNDSON
Selur fasteignir.
Leigir hús og lönd.
Otvegar peninga lán.
Veitlr áreiðanlegar eldsábyrgðlr
blllega.
Garry 2205. 696 Simcoe Str.
,New Tires and Tubes
CENTRAL VULCANIZING
H. A. Fraser, Prop.
Expert Tire Repairing
Fljót afgreiðsla óbyrgst.
543 Portage Avenue Winnipeg
Til að fá góöar myndir,
komiö til okkar.
OQ
Cb
3
N
X"
g BURNS PHOTO STUDIO ^
§ g
.—4
m C
576 Main Street
=«
44
SÉRFRÆDINGUR
VID
PHONOGRAPHS, ALLAR MAL-
VÉLAR
Eg geri ekkert annað en að gera
við hverslags málvélar sem er.
Brotnar fjaðrir, málberann og plöt-
urnar, eg geri við pað alt.
Eg sendi aðeins færa menn þeg-
ar viðgerðirnar eru gerðar heima í
húsinu.
Alt verk ábyrgst.
W. E. GORDON
Elevator to 4th Floor, 168 Market E
4 dyr frá Pantages. Phone M. 93
VOROLD
er
LANG BESTA
FJÖLLESNASTA
og
SKEMTILEGASTA
BLAÐ
VESTUR-ÍSLENDIN G A
Phone Sh. 2151 Heimili S. 2765
AUTO SUPPLY & ELECTRIC
CO., Ltd.
Starting & Lighting Batteries
Charged, Stored and Repaired
Speedometers of all makes
Tested and Repaired.
Tire Vuncalizing.
W. N. MacNeil, Ráðsmaöur
469 Portage Ave., Winnipeg
ELGIN MOTOR SALES CO.,
Ltd.
Elgin and Brisco Cars
KomiS og taliö 'við oss eCa
skrifið oss og biöjið um verð-
skrár með myndum.
Talsimi Main 1J20
417 Portage Ave., Winnipeg.
1
CHICAGO ART CO.
543 Main Street, Cor. James St
Myndir teknar af vönduðustu
tegund.
Films og Plates framkallaðar
og myndir prentaðar.
Eigandi: FINNUR JONSSON
A. S. BARDAL
843 Sherbrooke Street
Selur líkkistur og annast um
útfarir. Allur útbunaður hinn
bezti. Ennfremur selur hann
allskonar minnisvarða og leg-
steina.
Heimilis Tals - Garry 2151
Skrifstofu Tals. G. 300, 375
Simi: M. 4963 Heimili S. 3328
A. C. JOHNSON
Legir hús, selur fasteignir,
útvegar eldsábyrgðir.
528 Union Bank Bldg.
Lloyd’s Auto Express
(áður Central Auto Express)
Fluttir böglar og flutningur.
Srstakt verð fyrir heildsolu
flutning.
Talsimi Garry 3676
H. Lloyd, eigandi
Skrifstofa: 44 Adelaide, Str.
Winnipeg
Einkaleyfi, Vörumerki
Utgáfuréttindi
FETHERSTONHAUGH & Co
36-37 Canada Life Bldg.
Phone M. 4439 Winnipeg
Kaupið Voröld
Vér getum hiklaust mælt með Feth-
erstonhaug & Co. pekkjum ísleend-
inga sem hafa treeyst þeim fyrir hug-
myndum sínum og hafa þeir f alia
staði reynst þeim vel og áreiðanlegir.
LANDAR GÓDIR f
Skiftið við fyrtu. íslelnsltu
rakarabúðina sem stjórnað er
samkvæmt fullkomnum heil-
brigðisreglum. Hún er alveg
nýhyrjuð í Iroquoié hótelinu,
beint á móti bæjarráðsstof-
nnni. Talsími M. 1044.
Sími G. 1626 Heimili S. 4211
McLEAN & CO. '
Electrícal and Mechanical
Engineers
We repair: Elevators, Motors,
Engines, Pumps and all other
kinds of Machinery
and all kinds of Machine Work
Acytelene Welding
54 Princess Street, Winnipeg
Ingimar Einarson.
IDEAL PLUMBING CO.
Cor. Notre Dame & Marvland
Plumbing, Gasfittihg, Steam
and Hot Water Heating
Viðgerðir fljótlega af hendi
leystar; sanngjarnt verð.
G. K. Stephenson, Garry 3493
J. G. Hinriksson, í hernum.