Voröld


Voröld - 19.11.1918, Blaðsíða 1

Voröld - 19.11.1918, Blaðsíða 1
VOLTAIC ELECTRIC INSOLES pægilegir og heilnæmir, varna kulda og kvefi; lækna gigtarþrautir, halda fótunum mátulega heitum, bæði sumar og vetur og örfa blóðrásina. Allir ættu að hafa þá. Verð fyrir beztu tegund 50 cent parið Skýrið frá því hvaða stærð þér þurfið. PEOPLE’S SPECIALTIES CO., LTD. P.O. Box 1836 Dept. 23 Winnipeg HEY! HEY! Sendið heyið ykkar til íslenzku h«y- kaupmannanna, og fáið hæðsta verS, einnig fljóta afgreiðslu. Peningar lán- aðir á “kör“ send beint til okkar. Vér ábyrgjumst að gera yður á- nægða. THE NORTHERN HAY CO. 408 Chambers of Commerce Talsími G. 2209. Naetur talsími S. 3247 Winnipeg, - Man. 1. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOUA, 19. NÓVEMBER, 1918 NÓMER 41- E. ROBINSON ALMENNAR FRETTIR. 24. júlí í sumar var í Jerusalem, með hátíðlegri viðhöfn lagður horn- steinn að nýrri háskóla byggingu, sem Gyðingar reisa, og sérstaklega er ætl- að mönnum af þeirra þjóðflokki. Há- skólinn á að standa austanvert í Skópus-hæðinni, og er þaðah útsýni yfir Jordan dalinn þar sem áin fellur í Dauðahafið. Við þetta voru, meðal annara, helztu embættisriienn banda- manna þar eystra, en þeir hafa nú, svo sem kunnugt er, yfirráðin þar i útlendum blöðum segir að Shackleton, heimskautafari, hafi um rniðjan ágúst síðastliðinn ætlað til Spitzbergen frá Tromsö, í Noregi, til þeSs að rannsaka járnnámur þar. 1 alþýðu skólum Bandaríkjanna er nú byrjað að kenna undirstöðu atriði iðnaðar- og atvinnumála. petta er spor í rétta átt. Uppvaxandi kynslóð- in eru framtíðar borgarar landsins; því fyr sem hægt er að vekja áhuga fyrir þeim málum því betra. í Nýja Sjálandi er nú mikill undir- búningur undir atkvæðagreiðslu um al- gert vínbann. þar eru tveir menn hér frá Canada að vinna fyrir vínbanns hreifinguna. peir eru James Simpson frá Toronto og W. D. Bayley frá Win- nipeg. Er það þakkað áhrifum þeirra að verkamenn eru nú óðum að hallast á sveifina með vínbannsmönnum. Er skrifari á Trades and Labor Council. Hann hefir í sjö ár átt heima í Ward 4 og er er mjög velþektur maður, sérstaklega af verka- mannahrejfingunni. trann hefir tekið mikinn og góðan þátt í Öd.um velferðamálum 'bæjarins á undanförnum árum, og er óhræddu- við að berjast fyrir þjóðþrifa málum á móti auðvaldi og afturhaldí. Kjósendur í Ward 4: Munið eftir mönnunum sem starfa dyggi- lega í yðar þjónustu. Maður að nafni A. Sacks var tekinn fastur fyrir vínbannslagabrot s.l. föstu- dag. Hann hafði 18 flöskur af 50 áia gömlu skosku brennivíni undir sæt- inu í vagni sínum. pegar kom fyrir dómarann kvaðst hann hafa ætlað að halda hátíðlega minningu stríðslok- anna. Ekki vildi dómarinn taka þá af- sökun gilda, og sektaði manninn um 300 dali. Ef friður kemst á minkar árlegur kostnaður bandarikjanna meir en sex biljónir dollara. í Bandar. er búið að fá fjögur sigurlán og er búist við þvi fimta í vor. Verið er að gjöra Austurriki að sjálf- stæðu ríki. 420,000 franskir fangar verða látnir lausir bráðlega. Á fundi er verkamenn héldu i Lon- don húrruðu þeir fyrir jafnaðarmönn- um og Bolshevistum. I Clemenceau, stjórnarformaðtu' á Frakklandi hefir leyft ritfrelsi í Frakk-' landi. Segir hann að þar eð stríðið sé á enda, sé engin þörf á að halda ueinu leyndu og megi því hvert blað nú rita hvað þvi lýst. Heimkominn hermaður, sem A. Hay heitir, var rekinn úr vinnu frá C.P.R. félaginu fyrir þá sök, að hann baðst fyrir eitthvað á þessa leið: “Eg þakka guði fyrir það að hann varðveitti mig frá að reynast félögum mínum ótrúr meðan á verkfallinu stóð.” Eins og menn muna var ætlast til að allir, gerðu bæn sína kl. 12 á hádegi, dag hvern, síðast liðnu viku, en aðallega mun hafa verið til þess ætlast að menn bæði guð um frið og farsælleg endalok stríðsins. LagiS Eg syng- þaS lag í sæld og neyð, —um sumarbjarta daga. Er sólin blessuð lý. ir leið, nnd lima fögrnm skógarmeið sem áðnr útum haya. Eg syng það eitm ineð létta lund, við litla rós á bala— Er vaknar glöð af værum blund þá vorið svífur yfir grund og vekur vin ár dvala. Eg raula það í rökkri fár, á reki’ í tímans straumi— —það lægir storma, læknar sár og lífs hin beisku þerrar tár er lauga vanga í laumi. Og ekkert sælla mundi mér en mega á söng þann hlýða— —þá yfir brúna dauðinn ber, það burtu sem að andans er, og endar stríðið stríða. þótt heimsins fegurst lærði’ eg lög, það lag mun hjartað geyma; —þótt engla heyrði’ eg hörpu slög, eg heyra mundi aðeins lög sem lærði’ eg lítill heima. J. G. Hjaltalin. Mjólkur skortur sýnist nú vera alt- tilfinnanlegur hér í bænum. Stærsta mjólkurgölu félagið, Crescent Cream- ery félagið fcllir nú úr einn dag í viku en sumir ætla að þetta muni þó meira stafa af því að félagið vilji moð því herða á yfirvöldunum að gefa leyfi til hækkunar á verðinu. Hefir það fyrir nokkru sótt um leyfi slíkrar hækkunar Ekki er 'samt svo að skilja að félagið ætli að græða á þeirri hælrkun, heidur á að hækka innkaups verðið sem þvi svarar, og með því að örva framleiðsl- una, og forða bæjarbúum þannig frá yfirvofandi mjólkur -skorti. ötaf þessu er nú all niikið umtal um að bforinn taki að sér mjólkursölu og framleiðslu, og er búist við að það muni verða lagt undir alþýðu atkvæði við næstu bæjan tjórnar kosningar. Mjög margir Indíánar eru sagðir. veikir og dánir úr Spönsku veikinni. Einnig eru margir fiskimenn sagðir veikir af henni, og er óðum verið að flytja þá inn. Wilson, forseti, hefir verið beðinn að koma á friðarþingið, en hefir enn ekki afráðið hvað hann gjörir. Jarðskjálftar í ítalíu eyðilögðu ný- lega miklar eignir. Margir mistu lífið Rúmenar kváðu vera búnir að segja pjóðverjum stríð á hendur. þótt ekki séu kallaðir út herskildaú- ir menn nú sem stendur, ættu allir er nú hafa undanþágur og æskja fram- lengingjar á þeim g biðja um það sem fyrst, segir hermála deildin í Winnipeg 35,000 konur og börn koma frá Eng- landi til Canada eins fljótt og óhult verður að ferðast yfir hafið. Skipanir hafa verið sendir út frá Ottawa um að hætta að búa til sprengi kúlur eða sprengiefni; því áframhald á því væri aðeins tíma- og peninga eyðsla. Um 50,000 manns vinna að þvi nú. Uppliæð níunda sigurlánsins í pýzka landi nemur 10,000,000,000 marks. Hsstt verður að kalla út herskyldaða menji. peim er ekki hafa gengt kall- inu . crður hengt.. Er búist við að kosninga réttur þeirra verði tekinn burt fyrir nokkur ár. Búið er að dæma nokkra, en þó eru enn eftir nokkrar þúsundir er bráðlega verður litið til. Kona fyrri fylkisstjórans í Quebec, Sir Joseph A. Chapleau dó nýlega og eftirskildi fasteignir er námu $468.094 2,000 manns er unnið hafa fyrir her- máladeildina í Canada munu hætra vinnu bráðlega. pjóðverjar leyfa öllum í landinu fult frjálsræði. Nokkrir menn í Di'umheller, Alta tóku sig saman og fóru milli þjóðverja þar og neyddu þá til að kaupa sigur- lánsbréf. Skrifuðu þeir allir sig fyrir láni nema einn maður að nafni Albert Arnold. Skaut hann til bana Tip. Blaine, einn af mönnunum. Arnold er nú í fangelsi að bíða dóms sins. E>- hann mjög vel kyntui' meðal nágranna sinna. f New Bedford Mass. var öllum baðm ullar verksmiðjum lokað á fimtudaginn var og verkamenn gengu burt og neit- uðu að vinna það sem eftir var vik- unnar. Kváðust þeir ekki hafa’ fengið jneina frídaga síðan Bandaríkin fóru í stríðið, og þar sem stríðið væri nú á enda fanst þeim þeir mega taka sér hvíld. Socíaiistar í Frakldandi heimta kosn ingar. Segja þeir að fólkið, en ekki herinn, eigi- riú að ráða. Vilja þeir að verkalýðurinn sendi fulltrúa á friðar- þingið. i I Sagt er að Ernest Robinson, ritari fyrir Trades and Labor Council bjóði ; sig nú fram fyrir bæjarráðsmann í 4. kjördeild á móti Jóni Vopna. W. R. Simpson, einnig úr flokki verkamanna býður sig frarn í 7. kjördeild. pað er full þörf á að fjölga fulltrúum verka- manna í bæjarstjórninni. Og fram- koma þeirra vcrkamanna fulltrúa sem nú eiga þar sæti ætti að hjálpa til þess að þessir nýju umsækjendur næði kosningu. Um bæjarstjóra emhættið sækir yfirbæjarráðsmaður C. H. Gray móti núverandi bæjarstjóra. Bandaríkin hafa hætt við að kalla út menn frá 18 til 46 ára. Hon. Thos. H. Johnson, Hon. T. C. Norris og Hon. Ed. Brown leggja af stað til Ottawa í næstu viku til að taka þátt í ráðstöfunum fyrir uppleysing hersins og vinnulrraft í framtíðinni. Sir Robert Borden, Sir George Fost- er, Hon. C. J. Doherty og Hon A. L. Sifton fara til Evrópu til að setja á íriðarþinginu. Hvað skyldu skattarn- ir hæklia við það? Hoover, matvæla umsjónarmaður Bandaríkjanna fór til Evrópu á laugar- daginn var til að leiðbeina þeim sem eru að útbýta inatvælum til bágstaddra þar. Með sama bát 'fer Dr. Masaryk, frseti Szecho-Slovah lýðveldisins. Stjórnin er búin að afturkallr lög þau er fyrirbuðu verkföll. Segir liún að þeirra þurfi ekki með þegar stríðið er búið. Aum stjórn er það, sem yerð- ur að eta aftur jafnóðum lög þau er hún semur. SPURNING. Nokkrir menn ganga í félag til að reyna að eyðileggja aðra menn og mál- efni þeirra, en mistekst, og hafa ekki nerna skömm af öllu saman. Er það rétt að láta alla skömmina lenda á eir, um manninum ?—Fáfróður. Svar:—Nei! pann 5. þ. m. var Col. Paul Johnson kosinn fyrir þingmann fyrir Pembina CÍjiunty, N. Dakota við ríkislcosning- arhar. Voru sex aðrir í vali, en Col. Johnson bar sigur úr býtum. Sorgarheimili. Fred Stephenson, að 694 Victor Str., starfsœað- ur “Hecla Press” félagsins og kona hans urðu fyrir þeirri miklu sorg- &ð missa dóttir sína, póru Stephen son, sunnudags nóttina var, úr Spönsku sýkinn*. Fröken Stephenson var á blómaskeiði lífsins, mjög vel gefin og efnileg; er því söknuðurinn og missinn en átakanlegri. Sá harmur bættist við að móðir hra. Stephen- sonar, Guðríður Gísladóttir Stephenson dó einnig sömu nóttina úr hjartabilun; hún var háöldruð kona og mjög vel látin af öllum sem hana þektu. Voröld samhryggist einlæglega hjónunum sem sorgin hefir þannig snögglega lamað. peirra mun nánar getið síðar. í I Eugene Debs “And there’s ’Gene Debs, a man ’at stands And holds right out in his two hands As big a heart as ever beat Betwixt here and the Judgment Seat.” James Whitcomb Riley. “It will come right in God’s good time.” Eugene Debs. I. Loks gat meinráð megnað því, Leng-ur en væri lífs að vona Leifum fjörs á aldri svona: Dýflissu þær dæmdust í — pennan vininn veslinganna, Vandlætara rangindanna. Lengi hefir lymskan elt hann! Loks á þessu bragði felt hann — Honum þó á kné hún kæmi Keypt er það að skammgóðs dæmi. II. Sjá þann hetju hjarta yl Hann er brosir vina til, —aumingjanna er eftir hýma — Sæll að gera, og salinn rýma Sannleikanum síðstu skil: “Hér er ei efni í ófögnuð! Réttlætið inn góði guð Geymir í hönd síns henta tíma.” III. Sonur Mannsins, sjáðu manninn! Sjálfur varstu leikinn þanninn — Hann hefir friðlaus, fyr og nú, Aumkvað tárum sömu sorgar Sinnar þjóðar höfuðborgar Afhöfðanir, eins og þú. Setinn um og svefns-einmani Sveizt með þér í Getsemane, Fyrir sigri í sömu trú. pinna vegna þungir draumar pjáðu konu Pílatusar, Kvíði um mál þitt, Mannsins son. Samvizkan í þámi þusar pessara háu í Washington: Fyrir-hefnda hugboðs-straumar. IV. Ef að virðist tvísýat tíða Tafl: hvort lömbin sigri refinn, Öll er myrkvast efa og kvíða Ameríka—-Debs skal kveða Inn í tímann vilja og von. Enn er sú ei yfirgefin Er á skálmöld hróka og peða Á svo hugum-háan son! Stephan G. Stephansson.

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.