Voröld - 14.01.1919, Qupperneq 6
BIs. 6
VORÖLD.
Winnipeg, 14. janúar, 1919
Islenzkar bækur
LJÓÐABÆKUR.
Kvistir, eftir Sig. Júl. Jó-
hannesson, í skrantbandi.$1.50
Óbnndnir............... 1-00
Sjöfn—Ágúst H. Bjamason.
Bnndin ................
Óbnndin...... —........
Drottningin í Álgeirsborg—
Sigfús Blöndabl. Bnndin......
Óbundin ............—
Crt nm Völl og Velli—Krist-
inn Stefánsson. Bundin 1.75
.55
.30
1.80
1.40
SKÁLDSÖGUR.
Sálin Vaknar—Einar Hjör-
leifsson Kvaran. Bundin .. 1.50
Sambýli—Einar Hjörleifsson
Kvaran. Bundin ....... 2.50
Óbnndin ........-...... 2.00
Tvær Gamlar Sögnr (Sýður
á Keypum og Krossinn
Helgi á Kaldaðamesi) Jón
Trausti. Óbnndin..... 1-20
Bessi Gamli — Jón Trausti.
Óbundið . .......... 1-50
Ströndin—Gnnnar Gunnars-
son. Bnndin.......... 2.15
Óbnndin ........-......
Vargur í Vjeum—Gunnar
Gunnarsson. Bundin..... 1.80
Morðið—Conan Doyle .........35
Dularfulla Eyjan — Jules
Verne.................. 30
ÝMISLEGT.
Um Berklaveiki og Meðferð
Hennar—Sig. Magnússon .40
Líf og Dauði—Einar Hjör-
leifsson (fyrirlestrar) ..75
Píflar—p. p. porsteinssön....3o
Austur í Blámóðu Fjalla
(ferðasaga)—A. Kristjáns-
son. Bundin.........._— 1-75
Ritsafn Lögréttu, 1. hefti— .40
"Óðinn,” 12-13 og 14 árgang,
árgangurinn kostar .... 1-P0
“Lögrétta.” Argangurinn.... 2.50
BÓKAVERZLUN HJÁLMARS
GfSLASONAR
Telephone St. John 724.
506 Newton Avenue, Winnipeg
Fleiri bækur væntanlegar að
heiman.
1 EINNI SAMSETTRI REIKN- 71-
INGSBÓK lOC
Me&nafninu þrystu í 23 karot gull-
stöfum. Til þess að koma nafni voru
enn þá viðar þekt, jafnframt þvi augn-
armiði að ná í fleiri viðskiftavini ger
, um vér þetta Merkilega
' | tilboð, þar sem vér bjóð
: um falíega leðurbók
|K>eð samsettum reikn-
3 ings eyðublöðum eins og
j g hér er sýnt með nafni
j eigandans þrýstu í 23
' karot gullstöfum. petta
IS er fullkomin samsett
|1 bók sem el nothæf í sjö-
__ földum tilgangi: 1. sera
H-Vtf. stór vasi til þcss að
geyma reikinga; 2. ann-
ar vasi fyrir spjöld og seðla; 3 þriðji
vasi fyrir ávFanir; 4. vasi fyrir ýmis
lcg skjöi; 5. stuttur meðvasi með loku
fyrir frímerki; 6. spjald til einkennis
með plássi íyrir mynd þína eða ástvina
þinna; 7. almanak með mánaðardögum.
Einkennisspjaldið og mánaðardagur-
inn sjást í gegn um gagnsæja hlíf.
Stærð alls 3x3% þuml. Verð 75c.
Nafnið i einni linu, 25c aukaverð fyrir
hverja auka linu. Fæst einnig sérlega
vandað fyrir $1.25. tvær línur $1.5®.
Skrautmunabók og útsæðisskrá ókeyp-
is með iiverri pöntun.
ALVIN SALES CO.
Dept. 90, P. O Box 56, Winnipeg, Man.
LODSKINN
HOÐIR, ULL, SENECA
rætur'.
Sendið ull yðar til okkar, þér get-'
ið reitt yður á samviskusamleg
skil, hæðsta verð og fljóta borgun.
B. Levinson & Brrs.
281—283 Alexxander Ave. Winnipeg
Voröld vill ráð'eggja öllum þeim
sem veikir eru af gigt, taugasjúkdóm-
um eða gyllinæð að cnúa sér til Min-
eral Springs Sanitarium. pað er al-
kunn og mjög vel þekt stofnun.
f--------------------------~\
Wheat City
Tannery, Ltd.
BRANDON, man.
Eltiskinns idnadur
Láttu elta nauta og hrossahúð-
imar yðar fyrir Feldi "RawWde”
eða “Lace Leather” hjá “WHEAT
CITY TANNERY” félaginu.
Elsta og stærsta eltiskinns iðnað-
ar framleiðflu félag I Vestur-
Canada. Kaupa húðir og loðskinn
með hæðsta verðo. Góð skil.
Spyrjið eftir verðlista Utaná-
skrift vor er Brandon, Man.
SORGIR
Sólin skein á gluggann í litla kofanum og inn í fátæklegu hvíluna
þar sem þórlaug lá.-—Já, hún þórlaug, hver var hún ?
Hún var íslenzk ekkja. Maðurinn hcnnar og hún höfðu flutt
til Canada rétt eftir að þau giftust. þeim hafði verið sagt að þar
væru allir vegir færir; þar væri algert persónu frelsi, alfrjráls þjóð
sem réði sjálf með atkvæðum sínum hverjir stjóma skyldu; þar væri
paradís tækifæranna til þess að koma börnum til manns.
Já, sólin skein inn nm gluggann og teygði vermandi geislafing-
uma alla leið inn í rúmið þar sem þórlaug lá.
* * #
Fyrir einni viku hafði hún fætt son fagrah og mannvænlegan, en
maðurinn hennar hafði slasast við skógarhögg og dáið fyrir fjórum
mánuðum. þau hjónih höfðu numið land og bygt sér hús—já, hús,
en fátæklegt var það. Og þó var eins og þeim fyndist að svona
hlyti Eden að hafa verið.
Og svo dreymdu ‘þau um framtíðina og enginn nema þau vissi
um allar hallirnar sem _þar vorn reistar.
En þórlaug var orðin ekkja; vonin sem alveg sýndist hverfa við
ástvinarlátið vaknaði aftur við sonarfæðinguna. Og sólin skein á
litla bjarta kollinn í fanginu á henni. Og hún byrjaði að byggja upp
aftur framtíðarhallirnar sem hrunið höfðu, þótt þær yrðu nú öðruvísi
en áður. Og enginn nema hún ein sá alt það sem hixn sá.
Sólin skein inn um gluggann á reisulegu húsi á sama stað 22 árum
seinna — hún hafði ekki altaf skinið stöðugt öll þessi ár — skin og
skuggar höfðu skifst á og skuggarnir höfðu oft verið iangir og skin-
ið stundum stutt.
^En sólin hafði unnið signr.—Enginn reikningur hafði verið hald-
inn yfir andvöku næturnar eða þreytstundinnar sem móðirin hafði
lagt inn í búið, en sigurinn var nnninn og sólin skein sigrihrósandi á
sælubústaðinn og þrengdist þar inn í hvern krók og kyma. Og hug-
arhiminn þórlaugar var nú eins heiður og bjartasti Manit.oba himin
getur verið og vonarsólin eins heit í hjarta hennar og Canada sólskin-
ið alþekta.
# # •# *
Sólin skein enn eftir tvö ár á staðinn þar sem sorg hafði verið
breytt í sælu, erfiðleikar yfirunnir og vonirnar fæðst og þroskast.
En lengst austur í Evrópu hafði mönnum lent saman í áflogum
þar sem þeir tóku líf hvers annars í miljónatali og stjómin sagði þór-
laugu að hún yrði að senda drenginn hennar þangað til þess að vcrja
þetta land og þessa þjóð. þórlaug skildi það ekki. En hvað um það,
stjórnin bjó til lög og svo tók' hún drenginn hennar samkvæmt þeim
og sendi hann austur í Evrópu. Og enn var það sem fyri að engin
skýrsla var haldin yfir andvökunætur né sorgartár þórlaugar. Hvað
varðaði heiminn um það þótt litli himininn hennar hrapaði á svip-
stundn ? Alt gat svo sem gengið sína réttu leið þótt þessi gamla kona
nöldraði.
# # #
Sólin skín í heiði lengst suður á Frakklandi, enn þá mildari og
enn þá hlýrri en Canadasólin. Og hún sýnist brosa þar sérstaklega
yfir einu leiði—já, brosa—þegar sorgin vill snerta sem allra dýpst
gerir hún það jafnvel ekki með tárum, heldur með brosi—undir viss-
um kringumstæðum.
# # #
Og þórlaug skilur ej»i ekki hvernig stóð á því að drengurinn
hennar var tekinn frá henni—tekinn eftir alla sársælu baráttuna og
frá öllum hálffytu vonunum—Nei, hún skilur það ekki.
—Hörður Höggvandi.
Ur bréfum til Voraldar
Voröld líkt og sögurnar segja að Köls-
ki gamli hræðist saltarann. Eru líklega
hræddir um að hin andlegu glámsaugu
þeirra sem ekki þola birtun sannleik-
ans spillist aí því sem stendur í dálk-
um Voraldar.”
porsteinn Guðmundsson (Leslie)
Enska blaðið
Eins og lesendur Voraldar vita var
byrjað á að gefa út enskt frjálslynt
blað I haust, sem nefndist “Westem
Star” (Vesturstjarnan)
petta blað kom út vikulega í 3 mán-
uði og var prentað hjá Hecla Press.
pótt reynslu timinn væri stuttur duld-
ist það ekki að blaðið hafði afarmikil
áhrif á Manitobabúa, sérstaklega bænd
ur.
pegar flokksþingið var haldið hér I
Winnipeg, 19. og 20. þ.m. var það ein-
huga ósk og krafa bændanna sem mætt
ir voru úr öllum ltjördæmum nema einu
að blaðið héldi áfram og fylgdi sömu
stefnu og það hafði gjört; (þess má
geta að stefna þess og Voraldar er sú
sama).
Maður sem Dangerfield heitir tók að
sér að útvega mann til þess að fara um
hvert kjördæmi fyrir sig og safna fé
fyrir blaðið á ásama grundvelli og Vor-
aldarmenn hafa gert fyrir sitt hlað
($10 hlutum) Hefir hann unnið svo
vel að því að undrun sætir og sýna
undirtektir manna hvílík þörf er á
frjálslyndu blaði og hversu sárt fólkið
er farið að finna til þeirrar þarfar.
Fundur var haldinn á fimtudaginn til
þess að ræða þetta mál og var ákveðið
að blaðið byrji aftur að koma út innan
skamms og haldi síðan áfram viku-
lega með því að nú er full trygg-
ing fengin fyrir fjárhag þess fram-
vegis. í framkvæmdarnefnd til þess
að sjá um útgáfu blaðsins og ritstjórn,
voru þessir kosnir:
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson, (formaður
nefndainnar)
Cutler, lögmaður.
Davis Philip féhirðir frjálslynda
flokksins í Manitoba.
Frederick Hamilton, þingmannsefni
fyrir Marquette. \
John Knott, vara formaður frjáls-
lynda flokksins í Manitoba.
J. O. Lewis, fasteignasali (skrifari
nefndarinnar)
Patterson, þingmannsefni fyrir
| Brandon.
! Horace Chevrier, kaupmaður og
Fisher, lögmaður.
Nefndin kom sér saman um að ráða
J. O. Lewis fyrir aðalritstjóra blaðsins
fyrst um sinn og mann austur í Otta-
wa til þess að skrifa f það stjórnmála
greinar vikulega.
“Hér með sendi eg þér $2.00 fyrir
næsta árgang Voraldar, því án hennar
má eg ómögnlega vera; mér hefir líkað
hún mjög vel frá byrjun.”
F. G. Nordal (Holar)
“pökk fyrjr jólablaðið og jólaræð-
una. Vel má séra B. B. Jónssyni tak-
ast að leggja út af faðir vorinu í
Fyrstu lútersku kirkjunni ef hann gjör-
ir það betur en þú í jólablaðinu.”
A. E. Kristjánsson, (Lundar)
“Eg er þér þakklátur fyrir jólablaðið
pú lagðir vel út af foðirvorinu. par er
svo skýr og glögg mynd af því sem á
að vera og hinu sem ekki á að vera að
flestir dáðuust að. pað gleður mig að
Voröld er farin að opna augun á fólk-
inu, og það verður erfiðara að blinda
það aftur. Allir tala um hinar alþýð-
legu og vekjandi ritgerðir i Voröld, en
Lögberg og líeimskringlu er lítið minst
“Hér með sendi eg áskriftargjald
tnitt fyrir næsta árgang Voraldar. Eg
þakka innilega fyrir jólablaðið og lýsi
ánægju minni yfir stefnu og velgengni
Voraldar og Sótaldar, sem eg vona að
verði frjáls og vjðfleyg hér eftir sem
'hingað til.”
Guðmundur Sigurðsson (Stony Hill)
“Hér með sendi eg þér áskriftargjald
jmitt fyrir næsta árgang Voraldar, því
án hennar má mitt heimili ekkx vera
j og eg er þér hjartanlega þakklátur fyr-
ir þá stefnu sem þú hefir haldjð fram”
Helgi Bjóla (Leslie)
!
Eg legg hér innan í $2.00 fyrir næsta
árgang Voralda,r með beztu óskum á
næsta ári og mörg ókominn ár, og að
þín njóti sem lengst sem ritstjóra Vor-
aldar og leiðtoga fólksins.”
John Sigurðsson (Ericksdale)
á”
S. G. Johnson (Cypress River)
“Mér finst eg vex-ðj að láta í ljósi
þakklæti mitt fyrir margt sem eg hefi
haft ánægju af að lesa í Voröld, bæði
i ritstjórnargreinum og aðsendum. pað
er verulega heilbrigð hugsun í sögunni
eftir hermanninn sem lætur gamla
manninn sýna myndir frá 20. öldinnj.
Svo er alt eftir p. p. p. ágætt, bæði
frumort og útlagt. En um ekkert hef-
ir mér þótt vænna en um athugasemd-
ina um sleggudóm Sameiningunnar um
“Ströndina” hans Gunnars. pað var
orð í tíma talað. En hvað finst fóiki
um andlegu ströndina okkar Vestur-
íslendinga? / Er hún ekki býsna gróð-
urlítil? Og sumstaðar kaljn? Sá sem
mest lagði á sig við að vökva og hlúa
að nýgræðingum hlaut að ganga til
hvíldar að verlýnu aðeins rúmiega byrj
uðu. pað fór fyrir honum eins og flest-
um sem mestu ljósi og yl hafa varpað
inn í samtíð sína að einstæðingsskap-
urinn hefir orðjð þeim “ofurefli” peir
eru svo iðnir þessir fóthvötu þjónar
sem skjótast út úr skugganúm aðeins
til þess að kasta steinum. Sir Oliver
Lodge segir í fyrirlestri sem hann
flutti um sálarfræði í Lundúnaborg:—
“Ef Jesús kæml tjl Lundúnaborgar
þá yrði hann vitanlega ekki tekinn af
lífi, því lög landsins leyfa það ekki. En
leyfið mér að segja ykkur eitt: Hann
yrði dreginn fyrir dónxstólana og sak-
aður um vantrú og það að Sétja slg «pp
á móti kirkjunnj.”
“Efa”
“Við óskum þér og Voröld allrar
; hamjngju og blessunar á næstkomandi
j ári og væntum þess að hún megi halda
áfram að tala máli hins fátæka starfs-
jmanns.”
T. Böðvarsson (Geysir)
j “Eg sendi þér ‘ áskriftargjaid fyfir
^Einar Brynjólfsson sem kaupanda Vor-
aldar. Hann er eins og þú sérð, nýr
kaupandi og lét mig segja upp Lög-
bergi í fyrradag sem hann hefir keypt
lengi. Góða þökk fyrir hjð ágæta jóla
blað Voraldar. Hugvekjan um faðir-
vorið var t.d. sérstaklega góð og fögur.
J. A. J. Lindal (VáHconver)
“Eg þakka sem bezt fyrir jólablað
iVoraldar; líkaði það afbragðs vel.”
Páll S. Jakobsson (Mikley)
“Eg þakka þér innjlega fyrir alt
gamalt og gott,, og svo fyrir þína á-
gætu Voröld.” /
Sigurður Sigurðsson, ráðanautur
(Reykjavík)
“Okkur hér líkar Voröld Ijómándi
vel sérstaklega nú í seinni tíð, og von-
um að hún haldi þeirri stefnu drengi-
I lega sem hún var stofnuð til að fylgja,
j sem sé að berjast fyrjr sönnu þjóð-
j frelsi, en segja öllu auðkýfingavaldi
| ærlega til syndanna og færa meira ljós
og víðsýni inn í huga lesandanna. Eg
held að hér í kring hætti enginn við
Voröld sem einu sinni hefir keypt hana
—og þeir eru nú flestjr—þó finnast hér
örfáar náttuglur sem virðast hræðast
Orðfsem aldreí deyja
Allar þjóðir eiga málshætti og spak-
mæli, en það höfum vér fyrir satt að
íslendingar séu ríkari af sannarlegum
spakmælum en nokkur önnur þjóð í
heimi, hlutfallslega. Voi'öld hefir safn-
að allmiklu af spakælum og mun bjrta
þau framvegis undir nafninu “Orð sem
aldrei deyja”
Viljum vér biðja alla góða menn og
fróða að senda Voröld öll þau spak-
mæli sem þeir kunna að mxxna; ætti
slíkt að geta orðið merkiiegt safn og
skemtilegt og hefir Voröld í hyggju að
séi’prenta það síðar.
1. Fár veit hverju fagna skal.
2. Margt smátt gerir ejtt stórt.
3. Kornið fyllir mælirinn.
4. pegar ein báran rís er önnur vís.
5. Sjaldan er ein báran stök.
6. pangað vill féð sem féð er fyrir.
7. Ekki er alt sem sýnist.
88. Ekki er alt gull sem glóir.
9. Hugui’inn ber mann hálfa leið.
10. Frændur eru frændum verstir.
11. Engjnn er spámaður í sínu eigin
föðurlandi.
13. Fail er fararheill.
Ljóð sem lifa
íslendingar eiga ágrynni af vísum
sem eru þess eðlis að áliir læra pæF;
öll þjóðin kann þær mannsaldur eftir
mannsaldur. Voröltl flytur hér eftir
nokkrar slíkar vísur í hverri viku og
væntir þess að vel verði þegnar. Vilj-
úm vér bjðja alla þá sem kunna eða
muna vísur af því tagi að senda Vor-
öld þær.
1— Enginn grætur fslending
einan, sér og dáinn,
þegar alt er komið í kring
kyssir torfa nálinn.
2— Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt eg sveima;
nú er mér horfið Norðurland,
nú á eg hvergi heima.
3— Loftjð rauðri litar glóð
ljóminn sunnu skæri;
fagurt væri ef banablóð
böðla Fróns það væri.
4— Blessuð sólin elskar alt,
alt með kossi vekur,
hauðrið þítt og hjamið kalt
hennar ástum tekur.
FUNDARB0Ð.
Séi’a Björn B. Jónsson hefir afhent okkur undirrituðum
peninga að upphæð eitt hundrað tuttugu og fimm dollara,
Með bréfi frá 25. júní 1918 hefir hann útnefnt okkur sem for-
ráðendur sjóðs þessa, með þeim fyrirmælum, að sjóðurinn skúli
vera byi’jun samskota í almennan sjóð, er safnað skuli til
meðal íslenzks almennings í Ameríku, án tillits til flokka eða
félaga, sem nokkur önnur mál hafa með höudum, nema að þ v.í
leyti, sem einstök félög kunni að gefa í sjóðinn á sama hátt og
einstaklingar. Skal sjóði þessum varið til þess eins að koma
upp sæmilegu minnismerki yfir þá hermenn íslenzka eða af
íslenzkum ættum, hvort heldur er í her Canada eða Bandarík j-
unum, sem lagt hafa líf sitt í sölur fyrir frelsi mannkynsins I
styrjöldinni miklu, sem nú er til lykta leidd.
Yið skoðum það skyldn okkar, þar sem stríðið er nú búi'ö,
að leita almennings álits á þessu máli, sem þannig hefir veríS
lagt í hendur okkar, og leyfum okkur hér með að boða til fujid-
ar í Good-Templara húsinu í Winnipeg, þriöjudaginn 14. janútia’
1919, kl. 8 e.h. Við skorúm á almenning að sækja vel fundinn,
Við óskum þess að úr sem flestum bygðum mæti einliverjir á
fundinum. Einkum vonnmst við eftir því, að sem flestir þeir,
sem verið hafa í herþjónustu, komi á fundinn, því þeim mrai
óefað manna annast um heiður sinna föllnu félaga.
Winnipeg, á gamlársdag, 1918
B. J. BRANDSON,
THOS. H. JOHNSON
ORPHEUM LEIKHUSID
Byrjar mánudaginn 13. þ. m. og heldur áfram alla vikuna
að sýna
pJÓÐLEIKI ÍSLANDS
JOHANNES JOSEPHSSON
Jóhannes Josephkson sýnir þar frumlegar íslenzkar
glímur.
Hann er frægur maður orðinn fyrir hinar íslenzku sjálfe
varnar aðferðir-
Síðdegissýning (á hverjum degi nema laugardag)
25c fyrir heztu sæti
Kveldsýningar: 15c 25c 35c 50c 75c og $1.00
GILLINIÆÐAR
VALDA MöRGUM SJÚKD6MUM
pú getur helt oían í þig öllum
ineðölum sem hægt er að kaupa;
—eða þú getur látið skera þig og
tæta allan í sundur eins og þér sýn-
ist—
—Og samt losnar þú aldrei við þá
sjúkdóma sem af gilliniæðum stafa
FYR EN pÆR ERU LÆKNAÐAR.
(Sönnunin fyrir þessu er sú að
ekkert sem þú hefir reynt hefir
læknað þig til fulls)
ER ANNARS NOKKUR pöRF A
AÐ SEGJA p£R pETTA
VÉR LÆKNUM til fulls hvern ein-
asta mann sem hefir GILLINIÆÐ
og til vor leitar hvort sem veikin er
í láu stigi eða lagi langvarandi eða
skainmvinn. Vér læknum með
VEIKUM RAFMAGNSSTRAUMUM
eða ef þér læknist ekki þá þui’fið
þér ekki að borga eitt einasta cent.
Aðrir sjúkdómar eru einnig Iknaðir
án meðala.
Ef þér getið ekki komið þá skrifið.
Axli sem vaxa af útkynjaðri gilliiu'
æð þegar þær blæða ekki eru þæ.r
kallaðar blindar gilliniæðar; þegar
þær blæða öðruhvoru, eru þær kall-
aðar blæðandi eða opnar.
—Orðabók Websetrs
DRS. AXTELL & THQMAS
503 McGreevy Block
Winnipeg, Man,
Komið til vor þegar þér hafið las-
leika í augunum. Hin langa reyns'ia
vor og hinir mörgu ánægðu viðskirta-
vinir vorir eru ábyrgð þín fyrir hinni
lioztu og óbrigðulustu þjónustu.
Fowler Optical Co. Ltd
307 PORTAGE AVENUE
Royal Optical Co.
Phone Main 7286.
KAUPIÐ SÓLÖLD!
Ástkæra, ylhýra málið,
allri rödd fegra.
—Jónas Hallgrímsson.
Mæður og feður eru bömin ýkkar að glata föðurarfinum—móð-
urmálinu? Er þeim að deyja á vörum ástkæra, ylhýra málið, allri
rödd fegra.
Og hverjum er um að kenna?
Er það ekki náttúrunnar eðli að barnið mæli það mál sem það
nærist við af vörum foreldra sinna—sem því þykir fagurt-? Og
hvað er fegurra en sumar gömlu, góðu vísui’nar íslenzku sem þú sjálf-
ur lærðir á móðurknjám---? Sólöld mun leytast við að vekja cin-
mitt þetta, löngun og fegurðar tilfinningu barna og unglinga gagn-
vart helgidómi þeirra—móður málinu, föður arfinum.
Sólöld mun koma eins og bjartur geisli inn í heimilið—tvisvar
í mánuði.
Skrifa þig fyrir Sólöld í dag. Aðeins $1.00 á ári.