Voröld - 08.04.1919, Síða 5

Voröld - 08.04.1919, Síða 5
Winnipeg, 8. apríl, 1919 VORÖLD. Bls. 5 Bréf til Voraldar Kæri vinur: Eg var að lesa Voröld og fór að hugsa um málaferli þáu sem ritstjóri Lögbergs hefir byrjað á móti þér. Eg sé ekki betur en sú aðferð sé líkust þýzka hervaldinu að geta ekki rætt og rökrætt mál sín án þess að grípa til lögsókna og málaferla. íslendingar hafa átt í ritdeilum fyr og ekki gripið til slíkra úr- ræða. Annars held eg fyrir mitt leyti að eins ráðlegt væri fyrir Voröld að ganga þegjandi fram hjá villukenningum Löghergs og flugufréttum þess bæði um Bolsheviki og fleira, en fara aðeins sínu fram og fræða lesendur sína og flytja sannleikann stöðugt og uppi- haldslaust hvað sem á móti er sagt. Deilurnar taka rúm frá öðru nytsamara og sannleikurinn vinnur sigur um síðir ef honum er rudd braut hvað sem á móti er sagt og hvernig sem hann er ofsóttur. Mín tillaga ér því sú að ritstjóri Voraldar gangi sem mest þegjandi fram hjá þeim staðlausu kenningum sem Lögberg flytur og haldi sínu stryki beint og viðstöðulaust. Eg sem lesandi Voraldar treysti því að hún flytji eins sannar kenningar og nokkurt annað blað. Um ritstjóra blaðanna Lögbergs ug Voraldar vita það allir að Dr- Sig. Júl. Jóhannesson hefir farið meðal manna bætandi og læknandi, en Bildfell hefir ferðast og beitt sér afdráttarlaust í peningabetli fyrir stofnun sem að sumu leyti hefir máske hepnast vel en að öðru ekki. Munu fáir geta hrósað aðferð peningamannanna við séra Jóns Bjarnasonar skóla; ættu þeir að breyta til og bæta og gera kennara skólns hægara starfið og viðfeldn- ara; því þar hafa þeir sannan mann sem er gæddur íslenzku dreng- lyndi og hugrekki sem mammon hefir ekki spilt né saurgað. Hina, sem æfinlega fylgja öllu því er peningum einum tilheyrir get eg ekki kallað sanna íslendinga. Mér finst þáð dreifa kröftum voram að hafa mörg járnin í eldinum í einu; nú er það svo margt sem verið er að vinna að mér finst við ættum að hugsa okkur vel um áður en við förum langt út í minnisvarðamálið. Væri það ekki bezti minnisvarðinn sem við gætum haft að gera Jóns Bjarnsonar slióla þannig úr garði að hann yrði sem fullkomnastur og okkar heimkomn- ír hermenn gætu notið þar góðrar fræðslu. Mér finst minningu þeirra sem fórnuðu lífi sínu bezt haldið á lofti með því að hlynna sem full- komnast að þeim sem lifa og þess þarfnast. þeir sem komu heim aftur fórnuðu líka lífi sínu og ættum við bæði að gleðjast yfir heim- komu þeirra og veita þeim alla mögulega aðstoð. Jóns Bjarnasonar skóli var stofnaður í góðu skyni, en því miður hefir hann ekki náð fullum tilgangi eftir því sem mér skilst. Með því að við íslendingar rekum burt sundrungarandann og tökum sam- an höridum um þennan skóla eða eitthvað annað nytsamt og nauð- synlegt þá getum við sameinað þar öll okkar lielztu mál í eitt. Skól- inn gæti orðið merk og nytsöm stofnun og það mun hafa verið til- gangur þess er nefn hans er tengt við og var einn okkar allra fremsti og merkasti maður. Skiftingin sem nú á sér stað þar sem hver smáflokkurinn er að rogast með sitt málefnið hver verður okkur til vansæmda. petta eru aðeins fáeinar lauslegar athugasemdir sem eg vildi biðja Voröld að flytja. S. J. Sveinbjönisson Minnisvardamálið Eins og auglýst var í síðustu vikublöðunum var almennur fundur haldinn hér á fimtudagskveldið var, 3. þ.m. til þess að ræða um minnisvarðamálið skýra stefnu félagsins í því og veita almenningi þær upplýsingar um hinn fyrirhugaða varða sem félagið átti frekast kost á að gera. Á fundinum komu um 150 manns og var hann settur af Dr. B. J. Brandson með því að allir sungu Brezka þjóðsöngin “God Save the King” Flutti þá doktorinn inngangsræðu sina um þýðingu minnisvarða-málsins og stefnu félagsins í því. Syndi hve ókleyft það væri að sameina í nokkurt eitt ákveðið form þann fjölda margbreyti- legra skoðana sem fram hefðu komið, og þær margvíslegu tillögur sem félaginu liefði borist um'mynd þá sem minnisvarðinn ætti að taka, Kvað hann það einatt liafa verið áform félagsins að fá minnisvarða reistan í því formi sem það vissi hugljúfast meirihluti þeirra sem von- að væri að fúsir yrðu til þess af frjálsum vilja að leggja fram fé til þess að heiðra minningu vorra föllnu hermanna. Og þó að félagið væri einhuga þeirrar skoðanar; að allra hluta vegna og að nákvæmlega íhuguðum öllum rögsemdum sem fram hafa komið í málinu. pá væri stein- cg málmvarð- það eina sem til halds gæti komið sem viðeigandi og varanlegt minnismerki. pá lcvað hann þó félagið við því búið að hlíta útskurði þess fundar um mynd og lögun varðans. Sagði hann myndir hins fyrirhugaða varða nú verða syndar svo að fólki gæfist kostur á að gera sér fyrir því hvernig Herra Einar Jónsson — sem nú væri viðstaddur hér á fundinum — hefði hugsað sér hann. bað hann þá þann er myndirnar syndi að slá þeym á tjaldið, og mundi Séra Björn B. Jónsson skýra þíðingu þeirra. Séra Björn flutti þá ræðu um gildi listarinnar á öllum sviðum ag nauðsynina til að viðhalda henni. Og glæða með því, að uppörfa og aðstoða þá sem helguðu henni alla lífskrafta sína. Síndi hann hvern % mannkynið frá fyrstu menningar-dögum þess hefði nálega eingöngu n°tað stein- og málmvarð* til þess að heiðra með þeim, og víðfrægja Þau mikilmenni meðal þjóðanna sem mestu hefðu orkað til þroskunar Þeim til blessunar. Sömulciðis hefðu listaverlc úr steini og málmi jafnan verið álitin hæfilegust til þess að halda varanlegri í meðvitund mannkynsins minn nigu um þá sögulegu stórviðburði sem mest áhrif hafa haft á þjóðirn- ar’ kugarstefnu þeirra og andlegan þroska. Nú væri hin íslenzka þjóð svo heppin að eiga einn atgerfismikinn listamann. Einar Jónsson sem hér væri viðstaddur og sem gert 'nefði varða-form það sem myndirnar yrðu syndar af. Sagði hann það álit sitt að Einar væri áreiðanlega andríkastur allra núlifandi listamanna og það væri því jafnt lán vort og sómi að eiga nú kost á að þyggja árangurinn af hugviti hans og starfi til þess að fá því skylduverki voru framkvæmt að varðinn. eins og hann hefði hugsað sér hann verði smíðaður. pá var sjö myndum af hinum fyrirhugaða varða slegið á hvítt tjald er til þess hafði verið reist, og lögun hans og form þannig sýnt frá ýmsum hliðum, en séra Björn skýrði táknan hverar myndar meðan þær stóðu á tjaldinu. Kvaðst liann að endingu vona að fundurinn og alþjóð Islendinga í þessari heimsálfu, sem eiga skyldu kost á að sjá þessar myndir lieiina í héruðum sínum, áður en margir mánuðir liðu, mundi sannfærast um það þrent: 1.—að varðinn væri hugsaður af miklu andríki; 2—að hann væri mikilfenglegur að lögun og útliti og 3—að hann væri aðdáanlega viðeigandi til þess að heiðra og gera ódauðlega minningu þeirrar miklu fórnar sem vorir látnu hermenn í þessari heimsálfu hefðu lagt á frelsis altari síns nýja fóst- urlands. Herra Arngrímur Jónson bar þá fram þá tillögu að fundurinn samþykki með atkvæðagreiðslu að lianri aðhyllist minnisvarða stefnu félagsins í því formi sem hún hefir skírð verið og sýnd á þessum fundi- Á móti uppástungunni mælti aðeins einn maður lítillega, en tók það þó jafnframt fram að hann bæði engan að greiða atkvæði móti henni, og var hún þarnæst samþykt með 114 atkvæðum gegn 14. Um 30 manns greiddu ekki atkvæði. Forseti sagði þá fundi slitið og bað að sungin yrði í annað sinn þjóðsöngur Breta og svo var gert. Taka má það fram að minnisvarða félagið lítur svo á að með þessari atkvæðagreiðslu hafi það í annað sinn, með nálega einróma atkvæðum á almennum fundum hér í borg, fengið ákveðna skipun um að minnisvarði yfir fallna hermenn vora verði gerður úr steini og málmi og að herra Einar Jónsson ráði formi, lögun og stærð hans. þess skal getið að félagið sér sér ekki ennþá fært að segja neitt á- kveðið um stærð eða kostnað varðans þó lauslega liafi hugsað verið að gera hann fullra 40 feta háan og áætlaður kostnaður $50,000.00. Að þessu sinni er ekki rúm til þess að gera grein fyrir þeim hugsjón- um listamannsins sem hann hefir lagt til grundvallar fyrir mynd varðans. En fullyrða má að hann muni koma flestum svo fyrir sjónir að hann beri á sér óafnáanleg merki Islenzks þjóðernis og að hann sé sögulegt tákn frekar en hernaðarlcgt. í einu orði sagt að hann megi skoðast sem gildandi minnismerki ekki aðeins vorra föllnu hermanna, hvar í þessari heimsálfu sem þeir hafa búið heldur feli hann einnig í sér minningu alls ísl. þjóðflokksins í Vesturheimi alt frá landnámi hans hér og í nútíð og framtíð svo lengi sem varðinn varir. Að sjálf- sögðu verður varðinn að bera ártalin 1914 og 1918 sem benda á upp- hafs og endaloka ára hins mikla stríðs. Ef til vill verða ártal þau þá aðal upphrópunartáknið sem varðinn ber um stríðið og þátttöku manna vorrad því, að ógleymdum nöfnum þeirra allra sem fallið hafa og sem að sjálfsögðu verða greipt í varðan. pað langar félagið til að gera Islendingum ljóst að það hefir á- huga fyrir því að merki þetta geti orðið svo myndarlegt að vel megi sæma minningu þeirra sem það byggist á, að öðrum kosti er ákjósan- legast að það sé ógert. Meira í næstu viku. B. L. Baldwinson Athugasemd:—Hér er farið með rangt mál. Ólafur Bjarnason hélt langa ræðu eindregið á móti málinu og lýsti því yfir að ef minn- isvarðinn yrði reistur bannaði liann að hafa á lionum nafn bróður síns sem féll á Frakklandi. Óbrotgjarnt 4 4 úbrótgjam í Bragatúni, ’ ’ eru tvær síðustu hendingarnar í Arinbjarnardrápu Egils Skallagrímssonar. Snillyrði svo óbrotgjarnt að íslenzk börn skilja það, og hafa eftir honum, enn þann dag í dag, og er á ótal takteinum, í ræðu og riti. Stephan G. Óhappamaður: “óhappamaður,” unfortunate man. G. T. Zoega íslenzk-ensk orðabók Rvík-, 1904, bls. 324; dálk 17, línu a., o. Efalaust mætti tína til bein og hjástæð dæmi til þess, svo hundruð- um skifti, úr mæltu máli og íslenzkum bókum. Stærri tappa en þetta, nenni eg ekki að reka, fyrir allar flugurnar sem þú sendir mér í sauðarleggnum þínum í Heimskringlu síðustu, Ottenson minn. Held hann kannske dugi, jafn f jölkunnugur eins og eg veit þú ert þó, síðan þú komst yfir þessi blöð úr Rauðskiimu Dr. Johans Frizners. Svo seiðir hann mann leikinn, kveðandinn hjá þér, á mansöng Ankíesar heitins, og tungurnar umsnúast, þegar þú herðir á með seinustu vísunni, þessari: Ort í stað eg inni það með liraða og öllum sanni á Óðins frú: Að ágætlega byrja eg nú! 30- marz, 1919 vinsamlega, Stephan G. ‘‘Jorden, tyvarr, ar af qvinnar full, Miste du en sta dig tusen ater. Vill du, sa hemtar jag dig af det kram Hastigt en laddning fran glödande Söder Röda som rosar ock spaka som lam, Sen dra vi lott eller dela som bröder. ’ ’ Svo kvað nú Tegnér heitinn í Friðþjófssögu, og með sama gletnis- glotti yfir spaugilegum öfgum, sá eg fyrir mörgum mánuðum síðan, blað að heiman, fyrst flytja ánvænu af því, að eitthvað líkt því hefði verið lögleitt af byltingamönnum, í einni sveit í Rússlandi. Að löng- um tíma liðnum, baru ensku blöðin þessi lög út um allai’ jarðir, eins og maður sæi yfir útdeilingu, og síðasta eftirætan er Heimsk. gamla, eins og við var að búast. Ekki veit eg hver flugufótur fyrir þessu er, en “Fairplay” kanadískt blað enskt og enginn bolshevika-vinur, held- ur æst hermannablað, að svo miklu leyti sem ritstjóri þess ræðir þau mál, segir nú svo frá: “Ef til vill, rekur saga frú Raissa Lomonssoff frá Pétursborg, (sem nii er stödd í Chieago) um það livernig in margtugða fréttin um þjóðeign á 50,000,000 kvenna er til orðin, skröþið ofaní háls þeim, sem enn eru að breiða þetta út. Hún skýrir þetta svona: í Rússlandi er skopblað til, sem kallar sig “Mueka,” svipað eins og “Puck” eða “Judge” ykkar, og orðið þýðir húsfluga. pegar múgamanna-ráðið —Soviet stjórnin—breytti hjónabandslögunum svo, að þau vernda stranglegar dygð konunnar heldur en áður átti sér stað, sáu stjórn- leysingjar—c. anarkistar—sér færi, að æsa rússnesku kirkjuna gegi bolshevikum, en bæði þeir og hún eru andstæðingar stjórnleysingja. Stjórnleysingjar báru það á bolshevika, að lögin innleiddu óbundnar ástir. Skopblaðið “Muclia” sá sér leik á borði, að gera sér gaman, endurtók ið hlægilega úr hrópi stjórnleysingjanna og jók við. Ein- tök af því komust í hendur Englendinga og Ameríkumanna, sem þýddu það svo í römmustu alvöru. í millibilinu sá rússiieska ríkis- kirkjan það sem var, hún liafði mist spón úr aski sínum, með nýju lögleiðingunni, mist einkarétt sinn til giftinga, varð óánægð út af því, notaði sér áhrif skopsögunnar, og setti út um veröldina þetta himinhróp. Frá þessu segi eg “Voröld” að gamni mínu, af því eg er, sjálf- sagt af langri sambúð við Bretann, ögn snortinn af því sem hann nefnir góðleikni (fairplay) sína, og hefi lært formála hans við kvið- dóma: “Ef þið efist um, að sakborningur sé að sök sannur, er það skylda ykkar að láta hann njóta þess.” Stephan G. Keisarinn í Columbia (niðurlag frá 4. síðu) ið, þegar horft var á það með köldu blóði að Tyrkir brytjuðu niður Armeníumenn og keisaravaldið Rússneska skaut niður verkamennina fyrir framan keisara höllina, og annað því um líkt. En batnandi mönnum er bezt að lifa. —“Að það sé skoðun mín að Canada eigi að vista hungursneyð, eyðilegging og dauða.”-------- pessi orð leggur ritstjórinn mér í munn og eru þau jafn ósönn eins og þau eru ódrengileg. Eg hefi áður sagt í sambandi við þessi mál að eg hefði þá skoðun að verkamenn í landi hér mundu á einn eða annan hátt taka í sínar hendur eignarrétt og umráð yfir arðinum af vinnu sinni. En eg vonaðist eftir að það yrði gert á annan hátt en orðið hefir á Rússlandi. Og sú von er á því bygð að eg treysti menningargildi þjóðarinnar. Treysti því að alþjóðin sé upp úr því vaxin að láta leiðast af þeim hinum sömu, sem Lögberg hangir í stretinum á. Hvað íslenzkri alþýðu viðkemur, þori eg að fullyrða að hiin horfir með fyrirlitningu á söguburðinn. Jafnvel þó ritstjórarnir leggi sig eftir kenningum spekinganna í “Bandarisku tímariti” sem hugsa sér að flytja liugsanir burtu úr landinu, og setja svo strangar skorður að þær fái ekki læðst inn aftur- Er þetta ekki uppbyggileg og dásamleg speki ? Munu ekki flestir íslendingar vera svo viti bornir að þeir sjá að skoðanir verða hvorki handsamaðar eða fluttar úr landi burt. Róm- verska keisaravaldið var nógu öflugt til að handsama kristna menn og brenna þá á báli. En voru það samt ekki hugsjónirnar sem kristin- dóminum fylgdu sem urðu því að falli. Páfavaldið gat sett Luther í fangelsi en samt voru það lians hugsjónir sem gáfu því rotliögg, svo það raknar aldrei við aftur. Keisaravaldið þýzka gat þröngvað Len- ine til friðar og sett Liebneckt í fangelsi en það voru hugsjónir þeirra sem þögguðu niður í fallbyssum keisarans og veltu honum af stóli mörgum mánuðum og ef til vill árum áður en nokkrar líkur voru til að sameinaður her bandamanna gæti það. Sigur eða fall sócíalismans er ekki undir því komið hvei’su mjög er baiúst á móti honum, heldur því hve rnikið eða lítið hann hefir af sannleik og réttlæti í sér fólgið. Socíalisminn er ekki aðeins hag- fræðis kenning, heldur flytur liann einnig siðgæðis boðskap sem rétt ir hörid mannixðar og bróðurhuga út yfir landamæri og höf. Á því byggist sigurvonin. pað ér því ekki að furða þó kenningin sé liötuð af þeim sem fita sig á svita og blóði meðbi’æði’a sinna, og að þeir hræðist hana sem svo eru orðnir fjötrunum vanir að þeir vita ekki anriað en hlekkirnir séu partur af sínu holdi og blóði. Eg býst nú við að kunningi minn á Lögbergi segi að hann liafi verið að tala um “bölvaða Bolshevika” eins og Snjólfur segir. En það skiftir hér engu máli, það er nú orðið ljóst að orðið “Bolshevism” er notað af blöðunum til blekkingar, vegna þess að þau héldu að hægra væri að sverta hreifinguna undir því nafni. Stjói’nirnar skilja vel um hvað er að ræða. Er það auðséð á þeim ofsóknum sem socíal- istar verða íxú fyrir, og það í þeim löndum, sem mest stæra sig af frelsiixu. Hér í Oanada eru bækur socíalista undir banni, fundarhöld þeirra hindruð og sv. frv. í Bandaríkjunum var foringi þeirra dæmd- ur til tíu ára fangelsisvistar fyrir ræðu sem hann hélt á móti stríðinu. pað þykir athugavert að keisaravaldið þýzka dærndi Leibneckt í fjögra ára fangelsi og á Englandi var mður að nefni Bertrand Russ- ell dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að tala á móti stríði- En sagt er að ræður þessara manna væru báðar mun harðari en ræða Bandaríkja mannsins (Eugene Debs) Svo eftir því að dæma er hugsana frelsið og umburðax’lyndið ekki eins mikið hér eins og það var undir hand- arjaði’i keisarans. Hjálmar Gíslason. Lög alsherjar-félags íslendinga í Vesturheimi (Niðui’lag frá 1. síðu) janúarmánuð ár hvert, svo að yfirskoðun liafi náð fram að fara fyrir aðalfund félagsins- 2. gi*. Félagsmenn skal kalla til fundar með auglýsingum, er birtar skulu í öllum íslenzku vikublöðunum í Wiixnipeg, með mánaðar fyrirvara, þagar um aðalfund ræðir, en með þriggja vikna fyrirvara, ef um aukafund er að ræða, og skal í þeirn skýrt aðalefni þeirra mála er forseti ber upp fyrir fundi. 3. gr. Aðalfxxndi skal félagið eiga í febrúarmáixuði ár hvert, á þeim tíma, er félagsstjórnin hefir ákveðið. par skulu lagðar fram þær skýrslur og kosið í þau embætti, senx lög þessi fyrix*skipa. Á fxxndunum skal alt fara fram á íslenzku; þó skal útlendum mönnum eða aukafélögum svarað á þá tungxx, er þeir skilja. pá er lögmætur fundui’, þegar 25 eru á fundi, þeirra, sem atkvæði eiga. 4. gr. Forseti kveðxxr menn til aukafunda, þegar hann álítur anuðsyn til bera; en skyldur er hann til þess, þegar tíu eður fleiri telagsmenn krefjast þess. 5. gr. Afl skal í’áða úrslitum nxeð félagsnxönnum, þar sem eigi er öðru vísi ákveðið með atkvæðagreiðslu; forseti ræður á hvern hátt atkvæði sé gefin; atkvæði forseta sker úr, þegar jafnmargir eru saman 6. gr. Breytingxx má gjöra á lögunx þessum á hverjum aðalfundi félagsins, með því að breytingin hafi vei’ið borin upp og rædd á aðal- fxxndi félagsiixs árið áður. NB.—Breyting verður á íxafixi félagsins ef meiri hlxxti fulltrúa samþykkir.

x

Voröld

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.