Þjóðhvellur - 29.06.1907, Qupperneq 2
42
Þjóðhvellur
Úrsmiðavinnustofa Carls Bartels,
Laugaveg 5. Telefón 137.
cago selt áfengi fyrir meira en ioo milj.
dollara; um 115 milj. hyggur hann að
láti mjög nærri. Að eins ein verslunar-
grein í borginni var meiri en þessi, það
var matvöruverslunin. Tvöfalt meiri íjár-
upphæð var þar 1 veltunni, en hins vegar
voru knæpurnar miklu fleiri en matvöru-
búðir í borginni. 7300 knæpur höfðu þar
vínsöluleyfi, og auk þeirra voru um þús-
und krár, er seldu áfengi leyfislaust; en
um 5200 matvörubúðir eru í allri borg-
inni, ef smásölubúðir eru að eins taldar.
Ölgerðarhúsin telur hann aðal-bakhjarl
áfengisverslunarinnar, og segir þau valda
því, að öldrykkja fer stöðugt vaxandi.
Þau eru svo mörg og stór orðin hér 1
landi, að miklu meira öl er bruggað en
selst með góðu móti. Þess vegna hafa
þau úti allar klær, til þess að ná í skifta-
vini og koma út sem mestu af vöru sinni.
Þess vegna hafa ölgerðarfélögin mestan
hluta áfengisverslunar í hendi sér, og
eiga flestar knæpurnar. Þau leggjaalt til
þeirra; ef einhver vill gerast vínsali, þarf
hann ekki annað fyrir að hafa en láta
eitthvert ölgerðarfélag verða þess áskynja,
þá kaupir það fyrir hann leyfisbréf, borgar
húsaleigu og færir honum nægar vöru-
birgðir, sjálfur þarf hann að leggja til
eina 200 dollara, til þess að kaupa brenni-
vín og vindla fyrir knæpu sína, og hann
verður að heita því, að selja þar ekkert
öl annað en það, sem það ölgerðarhús
bruggar, er á knæpu hans. Ölgerðarfé-
lögin sjá um það, að knæpur séu hvar-
vetna í borginni, fleiri en vel geta þrifist,
því að það eykur samkepnina og hver
veitingamaður reynir þeim mun betur að
koma út vöru sinni, sem fleiri er við að
keppa, og allur fjöldi veitingamanna hefur
ekki meiri verslun en svo, að hann verður
að hafa sig allan við að verjast því, að
fara á höfuðið, og þó eru þeir margir,
sem verða að gefast upp og loka knæpum
sínum. En með þessari aðferð er ölinu
haldið fast að almenningi og það erþeim,
sem brugga það, fyrir öllu öðru.
Næst knæpunum telur hann skækju-
húsin hinar helstu stofnanir á glæpa-
markaði borgarinnar. Þau eru mörg í
sambandi við knæpurnar, og flestar eða
allar stærstu og fjölsóttustu knæpurnar
eru í samlögum við skækjuhús eða spila-
hús og sumar hafa hvorttveggja. Turner
segir, að í borginni séu að minsta kosti
tíu þúsund opinberar skækjur, sem hver
fái að meðaltali um tvö þúsund dollara
á ári. Mestan hluta þess fjár fá reyndar
húsbændur þeirra, sem eru flestir í einu
félagi, og tekjur þeirra félaga voru árið
Lifsábyrgðarfélagið »Standard«,
Itlapparstig 1. Reykjavik.
1906 yfir tuttugu miljónir dollara. I borg-
inni er markaður mikill fyrir ungar stúlkur,
— leynilegur að vfsu — og þar er verslað
með þær líkt og kvikfénað. Sérstakir
menn — sem flestir munu vera rússneskir
Gyðingar — hafa þá atvinnu að útvega
ungar stúlkur, og ná helst þeim, er vinna
fyrir lágt kaup í verksmiðjum og stór-
búðum, og selja þær félagi þessu fyrir 50
dollara hverja til jafnaðar. I einu kjör-
dæmi í borginni segir hann að séu aldrei
færri en tíu eða 12 ungar stulkur seldar
þannig á hverri viku. Flestar eiga þær
vísan dauða sinn innan tíu ára, eftir að
þær lenda á skækjuhúsunum, en þær,
sem lifa lengur, eru til einskis annars
nýtar en drekka áfengi og eta ópíum, og
þá eru þær enn bestu skiftavinir glæpa-
markaðarins. — „Chicago er söm við sig
í öllum atvinnurekstri, — hún verslar með
ungar stúlkur meðan þær eru útgengi-
legar, og þegar þær eldast um of, selur
hún þeim áfengi og banvæn lyf meðan
þeim endist aldur til. Þar er sömu reglu
fylgt eins ogáhinum miklu sláturhúsum
borgarinnar: engin kjöttægja látin fara
forgörðum".
Hina þriðju mestu atvinnugrein siðspill-
ingarinnar þar í borginni telur Turner
veðjanir, spilamennsku og öll þau fjár-
glæfrabrögð, er því eru samfara. Þann
starfa reka einnig sérstök glæpamanna-
félög, sem hafa algerða einokun þar í
borginni og eru öll f bandalagi. Ef ein-
hver vill koma þar upp spilahúsi á eig-
in spýtur, og ekki hafa neitt við félag
þetta saman að sælda, þá má hann eiga
það víst, að lögregluliðið brjótist inn til
hans eitthvert kvöld, þegar alt erí besta
gengi við spilaborðin, og geri alt upp-
tækt, sem þar er innanstokks, en flytji
hann sjálfan og skiftavini hans á næstu
lögreglustöðvar. Spilamannafélagið þolir
enga samkepni, og lætur ekkert þess
háttar við gangast, enda eru tekjur þess
þar í borginni freklega 15 milj. dollara
á hverju meðal-ári.
Allar þær atvinnugreinar, sem hér eru
taldar, eru að öllu leyti glæpsamlegar, en
hver annari tengdar, og eiga sammerkt
í þvf, að þeim er mest undir því kom-
ið, að brjóta lög að ósekju. Þess vegna
er sjálfsagt tilveruskilyrði þeirra það, að
hafa nægilegt vald 1 pólitík borgarinnar
til þess að enginn geti ónáðað þau. Og
það hafa þau. I nokkrum helstu kjör-
dæmum borgarinnar hafa veitingamenn
öll pólitisk völd, og ráða algerlega kosn-
ingum. Við hverja kosningu safna þeir
saman öllum þeim flækingum, sem þeir
Klaeðaverzlun Guðmundar Sigurðssonar.
Reykjavík. Telefón 77.
geta náð til og kosningarrétt hafa. Þeir
halda þá á knæpum sfnum í nokkra
daga og gefa þeim eitthvað að eta og
nóg að drekka, svo eiga þeir víst at-
kvæði þeirra kosningadaginn".
Orustan í Bárubúð
;'i laugard. var.
Hún var ekkert »húmbúkk«, orustan sú„
— enda voru liðsmenn allir og forvígis-
men fullir af fjöri og eldmóði, eins og
gjarnast vill verða, þegar pólitiskar púð-
urkerlingar springa innan í mönnum og
stfga tilheilans. — Höfuðstaðurinn stend-
ur líka best að vígi í þessu efni, því
þar eiga heima langflest pólitisk tund-
urdufl.
Foringjar okkar Víkverja, sem fyrir
okkar hönd berjast á þingi, höfðu efnt
til þessarar frægu orustu. Voru þar því
samankomnar allar deildir vors póli-
tiska »Magasíns« : Landvarnardeildin,
báðar heimastjórnardeildirnar : »ekta« og
»óekta«, þjóðræðis- og framsóknardeild-
in, ásamt Valtýingum og miðlunarmönn-
um, er engin sýnileg merki báru, er
sýnt gætu, að þeir væru herdeildir út
af fyrir sig. Þar voru og ýmsir sjálf-
boðaliðar, svona til vara. — Skjald-
sveinar— alveg sérstakrar tegundar —
voru þar einnig, á að giska i—2 í
nverri deild. Verkahringur þeirra var
aðallega sá, að standa að baki foringj-
um sínum, nudda sér upp við þá, sækja
þeim vatn, binda skóþvengi þeirra, og
gera svona eins og gengur ýms smá-
handarvik; sömuleiðis voru þeir hafðir
til að reka upp hljóð, er svo bar undir,
og særa og glepja fyrir mótstöðumann-
inum, er hann kvað sér hljóðs til að
mæla í heyranda hljóði; — gerðuskjald-
sveinar þessir svo óþægilegan usla, að
foringjar úr óvinaliðinu vildu jafnvel
handleika þá við og við, en það tókst
afarböngulega vegna þess, að skjald-
sveinar voru öllum köttum knálegri í
því, að hlaupa að baki foringum sínum
og fela sig annaðhvort milli fóta þeirra,
eða þá undir brynjulafinu; en þar var
þeim vitanlega vel borgið og gátu ó-
hultir haldið áfram að leika sitt hlut-
verk, sem hvorki var valið né vanda-
samt — og illa borgað sjálfsagt, þvf van-