Þjóðstefna


Þjóðstefna - 20.04.1916, Blaðsíða 4

Þjóðstefna - 20.04.1916, Blaðsíða 4
þJÓÐSTEFNA ráða yfir málum þjóðarinnar, með staðlausum rangfærslum, fláttskap og ýmsu ofbeldi — þá á að verða friður í landinu. þá eiga mótstöðumennirnir að sýna þjóðrækni sína r því, að láta alt heita gott og gilt, og menningar- lausa úrþvættiskenningin um „samkomulag" (!) á grundvelli ranglætis og yfirgangs er básún- uð út til þess að valdhafarnir hafi næði á jötunni. Meinleysi þjóðarinnar hér gagn- vart aiskonar aðförum þeirrat er hafa gjört sér stjórnmálaafskiftiað fjárþúfu og lífeyri fyrir sig 'og sína, er svo ríkt og óslítandi út yfir öll takmörk að óvinum fán- ans blöskraði ekkert í sínu eigin athæfi og þorðu að bjóða al- menningi hvað sem var. En í þessu máli sérstaklega hefir þó kveðið svo ramt að með ófyrir- leitni og hlutdrægni þeirra, er áttu að láta þjóðina sjálfráða um fánagerð sína, að ekki er ólíklegt að straumhvörf verði hér í land- ^ inu og að með þessu sé ef jil vill einmitt lagt það korn til, sem fyllir mælinn. Islendingar vilja ekki og hafa ekki viljað sjá rauða krossinn í fána sínum. þeir sem tefldu honum þar inn og báru ranglega fyrir sig konungs vilja í því efni, einmitt um ieið og konungur sjálfur lét atkvæði landsmanna frjálst, hafa með bífræfni sinni og frekju, er soðin var upp úr fánahatrinu gamla,stofnað til þess, að þjóðin láti rauða krossinn verða ímynd als þess, er fyrst og fremst ber að hreinsa úr almennu þjóðlífi voru, þannig að viðreisn vor í stjórnmálum og löggjöf, frá niðurlægingu og spillingu, stofn- ist og sæki fram með kröfunni um hreinsun fánans. H. • »Með Botníu* (frá útlöndum í gær) var sagt um baeinn að komið hefði frétt um náiægan frið. Til- hæfan var sú, að þetta hafði heyrst áður frá þýzku ræðismannsskrifstof- unni eftir bréfum með »Flóru«. ! Eátækramálið. (Ritgerð sú, sem hér fer á eftir, er framhald af greininni í 48. og 50. tbl. »Ingólfs« 1914, eftir Einar Benediktsson. þar sem vikið er að því fyrst með nokkrum almennum athugasemdum, hverju óréttlæti og tjóni menn verða fyrir á ýmsan hátt, af fátækralöggjöf íslands, einkanlega vegna þess, að minkun og réttinda missir fylgir vítalausri þurfamensku). Til þess að’ gera það ljósara, að hve miklu leyti framkvæm- anlegt er að hrinda fátækramálinu í það horf, að þurfamenn standi í beinu sambandi við þjóðarheildina, er hentugt að liða fyrst skýrt sundur meginorsakir þurfamenzkunnar. Fátækralögin 10. nóv. 19?5, sýna í þessu atriði þegar í byrjun vanhugsun og óglöggleik, þar'sem þau telja „fátækt, vanheilsu eða atvinmuskort", meginástæður sveitarstyrks. „Aðrar orsakir“, sem fyrsta gr. laganna telur síða&t gefa enga bendingu um aðgreining sem bygt verði neitt á. Lögin áttu fyrst og fremst að gera eina meginskifting milli öreiga og nauðstaddra, með öðrum orðum milli viðvarandi fátæktar og stundarskorts. Hitt er beinlínis villandi, að telja fátæktina sem eina af orsökum þurfamenzku, því fátæktin er einmitt það ástand sjálft, sem á að ráða bót á. Hvorki vanheilsa né atvinnuskortur, né neinar aðrar ástæður geta hér komið til greina gagnvart þeim sem á efni — nema um stundarskort sé að ræða og við hann er alls ekki átt í upptalningu styrksorsakanna í 1 gr. þeir sem vilja komast að skynsamlegri niðurstöðu, um það, hvað réttlátt er í fátækralöggjöf, verða vandlega að athuga, hinn mikla mismun orsakanna til fátæktarinnar. En óhætt er að segja, að hin nýja fátækralöggjöf vor, ríður í þessú efni svo illa og flausturslega úr hlaði, sem unt er að hugsa sér. Menn kunna í fljótu bragði að álíta, að fyrirmælin sjálf um skyldu og rétt þjarfa o. s. frv., geti verið hagkvæm og viturleg, þó sundurliðunin sé ekki fullkomin í upphafi laganna, en þegar betur er aðgætt, þá munu menn komast að raun um, að sá löggjafi, sem ekki kann að nefna ástand né þarf- ir fátækra réttu nafni, getur ekki séð réttri sjón, hvernig bæta á úr þörfinni. Nauðs faddir menn eiga heimting á hjálp þjóðfélagsins, þó þeir séu vel efnaðir, ef þeir geta ekki notið efna sinna til lífsframfærslu, hjúkrunar eða annara nauðsynlegrar hjálpar. ÍJtlendingar eða ferða- menn, sem verða fyrir farartálma, slysum ö. s. frv., eiga rétt til framlags til bráðabyrgða og þarf ekki að fara út í það hér, að öðru leyti en því, að hin næstu stjórnarvöld eiga auðvitað að veíta slíka hjálp fyrir þjóðfélagsins hönd. Hinn annar flokkur hjáíparþurfanna, sem sé öreigarnir, skiftir máli hér, og er þá að líta á, hvernig félagsvaldið stendur gagnvart hinum ýmsu orsökum fátæktarinnarjTen sjálf verður fátæktin ekki talin þar sem orsök, eins og þegar “er. sagt. það er hugmynda- bringlun sem átti ekki að þurfa að koma fram í lögum vorra síð- ustu tíma, er samin höfðu verið með svo miklum kostnaði og undir- búningi. Méginorsök fátæktarinnar, aldurinn (æska og elli) er ekki talin í 1. gr. laganna. þar næst mun mega telja hér á landi vanheilsuna og síðan sjálfsvítin. En seinast af almennustu orsökum fátæktar- innar mun mega telja atvinnuskortinn hér í landi, því það mun fá- gætt að fullvinnandi heilbrigður maðúr eða kona, sem vill vinna geti ekki aflað sér viðurværis á íslandi. Að vísu eru margir þeir, sem óvanir eru likamlegum störfum og aTHir hafa verið upp til em- bætta eða andlegra starfa einatt bágstaddir hér, vegna þess að þeim TUXHAM-motora Og beztu smurningsolíurnar selur LEMENTZ & CO Þingholtsstræti 5. Reykjavík. Skrifstofutími 10—2 og 5—7. Sími 575. Ff 1 þykir minkun að því að ganga til algengrar vinnu, en frá laganna sjónarmiði verður það naumast tekið til greina. Allar aðrar orsakir fátæktarinnar heldur en sjálfsvíti, eiga eftir reglum mannúðarinnar að veita öreigum hjálparheimild, án þess að hann missi að neinu leyti virðing eða mannrétt í þjóðfélaginu. Með hinni óljósu og vanhugsuðu sundurliðun í 1. gr. gildandi fátækra- laga er svo að segja dregin slæða yfir þessa grundvallarsetning, og veldur það ranglæti gegnum lögin endilög, sem þingmenn hafa sam- ið án þess að skilja, hvað þeir voru að gjöra. Frh. Pjóðstefnan. Frh. frá 1. síðu. Vér viljum afnema aurasýting- inn um kostnaðinn við löggjöfina. Slíkt er til sannarlegs niðurdreps. Vér viljum að þingið sitji hér svo lengi sem hagsmunir lands- i n s heimta. Málefni vor eru í kalda koli. Nýtt þing með nýj- um mönnum getur gjört Islandi þann arð með einu lagaboði sniönu eftir þörfum landsins að kostn- aðurinn við margra ára stöðuga þingsetu væri ekki nefnandi. Um afstöðu Islands nú eins og er til annara lánda viljum vér þegar taka það sérstaklega fram, að vér álítum hvern þann sýna fjandskap við Island sem leggur til að snúast nú að skilnaðar- stefnu frá Danmörku. þá merking á þjóðstefna ekki að hafa. Vér viljum halda vin- áttu og samvinnu við Dani og sýna konungi vorum hollustu í öllum greinum. — En að því vilj- um vér að þjóðin stefni, að vinna almannafylgi meðal Dana fyrir Iþví, að Island megi með fúsu samþykki þeirra stig afstigi vaxa svo að þjóð vor geti staðið sem mest straum af málefnum sín- um. Hyggjum vér það að sá dagur sé heldur ekki fjarlægur er Dan- ir sjálfir ó s k i þessa og kemst þá fyrst eðlileg rás á framsókn lslendinga til menningar jafnhliða samþegnum vorum, Dönum. Blaðið mun gjöra nánar grein fyrir stefnu sinni í öðrum meg- inmálefnum landsins í næstu tölu- blöðum. . Þjóðstef na“ eign félags í Reykjavík, kemur út viku- lega á fimtudögum. Verð fyrir áskrif- endur og lausasölu hið sama (5 aur. tölubl.) - Qjaldagi fyrir áskrifendur ákveðst af félagsstjórn. Þó verður al- drei krafist borgunar tyrirfram fyrir neinn liluta árgangs, Þeir sem vilja geta án verðhækkunar fengið blaðið sent heim til sín innan og utan Reykja- víkur, Adr. »Þjóðstefna« Reykjavík. Box 374. Sími 546. Abyrgðarmaður: Páll Jónsson, yfirdómslögm. PretUsm. Þ. Þ. Clemenlz — 1916 4 undir kveld hlaðnir af fiski og hvorugur mintist neítt á það sem borið hafði við í bátnum á fiskiróðrinum. Jóni var boðið til sætis í baðstofunni í Hlíð með vinnufólkinu. Meira var ekki haft við hann. En öll- um þótti gaman að honum þegar hann vildi vera kátur. þetta kvöld var hann fremur þögull og yrti ekki á neinn að fyrrabragði. Heimasætan í Hlíð, Helga þórðardóttir, var fegursta mærin í —firði. þó Hlíð stæði nokkurn spöl fyrir ofan bæinn sjálfan gengu heimamenn þaðan stöóuglega um kaupstaðinn og allir dáðust að Helgu, hvar sem hún fór. Hún var há og grönn og fremur fölleit en hraustleg og hafði þetta mjúka snið í fasi og göngu- lagi sem kemur fram af náttúrlegu jafnvægi allra lima. „Hvernig stendur á því að hann Jón er svona þögull í kvöld“, sagði hún, svo hann heyrði, við föður sinn, sem sat og gjörði við skipsblökk á einum rúmstokkn- um. Helga leit með hálfgerðum alvörusvip á gestinn, eins og hún hefði talað til hans sjálfs. „Góða Helga mín, þú veist að eg er ekki altaf jafn kátur“, sagaði Jón, áður en bóndinn gat svarað. „Manstu ekki þegar eg var að leika mér með þér stundum, áður en þú varðst stór stúlka, hvað þú kvart- aðir oft yfir því að eg væri leiðinlegur ?“ „Jú, eg man það vel. Eg man svo margt og margt sem að þú hefir sagt mér og sem þú hefir gjört. Mér finst oft að þú sért einsog utan við heiminn®. „Já, þá ættu menn nú ekki að treysta því vel, að eg sé eftirtektarlaus, þegar erég í því horninu“, sagði Jóa og hálfbrosti við. 5 Helga þagnaði við og leit á sjóinn, gegnum stór- an giugga á baðstofugaflinum. Höfnin blasti við og kvöldgeislarnir lituðu allan voginn í blóði og glóð. Fá- ein þiiskip stóðu grafkyr eins og steingjörðir nökkvar - blæjalogninu. En einn og einn smábátur iðaði á leg- unni. það var þögn á öllum í baðstofunni. — Skugg- i nn af sviplegum atburði, sem gat ekki gleymst, læddist ósýnilegur milli alls þessa fólks sem fyrir stundu hafði talað saman frá rúmi til rúms. Helga dró andann djúpt og leit til þorbjarnar, sem hnýtti þveng á annan fótinn og laut niður fyrir sig. Augu hennar glömpuðu, líkast því sem henni lægi við að tárast. Sve leit hún snögt á Jón og mætti augum hans; hann stóð upp og gekk út, yfir pallinn og nið- ur stiga sem lá fram í bæjargöngin. Jón Vaski hafði fyrir langa löngu fengið viður- nefni sitt. Hann var þá hálfiærður húsasmiður í Reykja- vík og var að reisa grind að allstóru húsi í efri bæn- um. Hann var vanur að hlaupa yfir bita á annari hæð og klifra það sem aðrir hlííðu sér við að fara, og þetta sinn gekk hann út á einn af efri bitunum og lét sig detta beint niður, en brá um leið öxinni á bitann, hékk á henni og vó sig síðan upp aftur. „þetta var vasklega gjört“, sagði yfirmaðurinn, meistari Jóns, rámur og rangeygður karl, sem margir gárungar meðal trésmiða hermdu eftir. Upp frá þessum degi fylgdi auknefnið Jóni jafnan. En hann gekk úr náminu áður en hann hafði lokið því að fullu. Hafdýrðin dró Jón út undan þökunum. Hann gekk spölkorn austur frá bænum; þar hækkaði landið 6 nokkuð á kafla og myndaði höfða sem skýldi höfninnl á einn veg. Jón lagðist niður í brekkunni rétt frammi við hamrana og var einn með sínum eigin hugsunum. þannig lá hann lengi með höndurnar spentar aftur fyrir hnakkann. Stundum lokaði hann augunum — stundum lét hann þau hvíla á kveldloftinu sem var óðum að verða purpurarautt á fjallshlíðinni fyrir ofan kaupstaðinn. Minningarnar sóttu á hann nú sem oftar og hann varð þá ómannblendinn og fór sfnar egin leiðir. Ör- skamt skólaskeið á lærða veginum hafði veitt honum ofmikla þekkingu til þess að vera ánægður jafningi þeirra sem hann átti daglega að sælda saman við. En hann hafði ekki náð því stigi að líta niður á þekking- una og meta hjartalagið mest. Og þó var Jón að upplagi einmitt einn af þeim sem eru hneygðir til að sjá það sanna, mannlega gildi undir lánsfjöðrum þess lærdóms sem hefir ekki sam- lagast insta eðli mannsins. Hann var vafalaust einn af þeim sem mundu kall- ast ólánssamir á almanna tungu. Hann eirði, illa lang- dvölum á sama stað. Hann var nokkuð mislyndur og eignaðist aldrei vini heldur aðeins kunningja og fjand- menn. Hann var fljóttekinn í ytra viðmóti en of seinn til þess sjálfur að gefa neinum vinfengi sitt. Yfirleitt var hann að mörgu ógóður sínum eigin hugsunum, bæði andlega og efnalega. Jón var bláfátækur. Fé festist aldrei við hann og hann var mjög óstöðugur að fastri vinnu. þó var hann listfengur á alt sem hann lagði hönd að, hagur bæði x

x

Þjóðstefna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðstefna
https://timarit.is/publication/224

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.