Elding - 03.02.1901, Page 2
ELDING .
Bjarni Sæmundsson cand. mag.:
Hafið.
Þórh. Bjarnarson: Hvað má gera
til að prýða Keykjavík?
Einar Benediktsson: Siðalög og
réttur.
Dr. J. Jónassen: Líkamshitinn.
Haldór Jónsson : Ferð erlendis.
Þórh. Bjarnarson: Páfinn á vorum
dögum.
Eiríkur Briem: Sólkerfið.
Jón Jakobsson bókavörður:
Mælska.
1897— 98.
Guðm. Björnsson: Um berkla.
Yilhjálmur Jónsson cand phil.: Um
skáldskap Hannesar Hafsteins.
Jón ólafsson : Um verzlunarfrelsi
og verndartolla.
Indriði Einarsson : Um nokkrar
breytingar á landshögum.
Bjarni Jónsson cand. mag.: Verði
ljós.
Hjálmar Sigurðsson kennari: Um
ljósaskiftin miklu.
1898— 99.
MyDdir sögul. og landfræðil. með
skýringum.
Ólafía Jóhannsdóttir: Frægust
kona þessarar aldar.
Guðm. Björnsson: Áfengi.
Guðm. Magnússon prentari: Um
sjónleiki.
Jón Olafsson: Dýrasegulmagn og
dáleiðsla.
Friðrik Friðriksson stud. theol.:
Færeyjar og Færeyingar.
Magnús Magnússon B. A.: Há-
skólalíf í Cambridge.
Dr. Jón Dorkelsson yngri: Ymis-
legt úr sögu íslands.
Myndir sögul. og landfræðil. með
skýringum.
J 899—1900.
Helgi Pétursson cand. mag.: Um
náttúrufræði.
Þórh. Bjarnarson: Landið helga.
Sig. Pétursson verkfræðingur: Um
neyzluvatn og fráræzlu.
Jón Jakobsson : Um EgyptalaDd.
Þórh. Bjarnarson: Staðamál og
Staða-Árni.
Sig. Sigurðsson búfr.: Sveitalíf í
Danmörku og Noregi.
Viihjálmur Jónsson: Vilhjálmur
keisari H.
Einar Helgason garðyrkjumaður:
ísland að blása upp.
Sig. Thoroddsen: Um vegi.
Aðsóknin að fyrirlestrunum var
náttúrlega mest framan af, meðan
nýjabrumið var á. Fyrsta árið
komu að jafnaði 200 manns á
kvöldi, og annað árið í kring um
150. Síðari árin komu færri. Þó
getur varla leikið neinn vafi á
því, að slíkir fyrirlestrar yrðu vel
sóttir framvegis, ef nefndinni
tækist að fá góða menn til að
! halda þá. Væri það ef til vill
bezt að fá eina 3 menn til að
halda fleiri fyrirlestra hvern um
eitthvert takmarkað efni, en það
er svo sem sjálfsagt, að til þess
þyrfti nefndin að hafa eitthvert
fé milli handa. Tekjurnar af
fyrirlestrunum hafa hingað til
gengið í kostnað (húsaleigu, aug-
lýsingar, skuggamyndavél og
skuggamyndir).
Utan úr heimi.
Nýjársnótt í Höfn. Á nýjársnótt
var svo að segja hvert mannsbarn á
kreiki í Höfn. Strætin voru troðfull
af fólki og ysinn, hávaðinn og gaura-
gangurinn svo mikill, aðkeyrðifram
úr öllu hófi. Elugeldaskotin dundu
við í sífellu og púðurkerlingarnar
fuðruðu í hverju spori, og um morg-
uninn óðu menn pappírsumbúðirnar
í hrönnum á helztu torgunum og
strætunum. Lögregluliðið skifti sér
ekki af neiuu, enda var gauragang-
urinn svo mikill, að ekki var hægt
við neitt að ráða.
Lát. Á nýjársdag andaðist rithöf-
undurinn dr. Sophus Schandorph.
Hafði fengið slag í marzmánuði í
fyrra og aldrei náð sér til fulls eft-
ir það. Hann var einn með helstu
skáldum Dana, og hafði haft tölu-
verð kynni af íslendingum í Höfn.
Hann var hverjum manni kátari og
skemtilegri í umgengni.
Húa-ófriðnum heldur áfram enn,
og eru Englendingar nú aftur farnir
að senda lið suður til að skakka
leikinn. I Englandi fer sá fiokknr-
inn, sem fyrir hvern mun æskir frið-
ar, dagvaxandi, og nokkur af helztu
blöðunum eru farin að fylla hann.
Segja þau að stjórnin hafi í haust
kallað Roberts og liðið heim aftur
aðeins til að blekkja menn og afla
sér atkvæða við kosningar þær, sem
þá fóru í hönd, og gengu henni í
vil af því hún lét svo borginmann-
lega yfir leikslokunum við Búa. Þeg-
ar íioberts kom heim aftur, sótti
hann fund Victoriu drotningar og
gerði hún hann að jarli og gafhon-
um sokkabandsorðuna fyrir fram-
göngu sína.
Kínaófriðurinn. Stórveldin eru
stöðugt að þinga um friðarkostina
við Kínverja, og strandar samkomu-
lagið aðallega á því, að stórveldin
heimta hörðum refsingum beitt við
svo marga af æðstu höfðingjum Kín-
verja, en þeir eru tregir til. Eru.
sumir þessara höfðingja af keisara-
ættinni eða nátengdir henni.
Uppreistartilraun. Eregnir hafa
borist um það, að Mílan, sem einu
sinni var Búlgarakonungur, hafi
samið pjesa, er skorar á Búlgaralýð
að gera uppreist á móti syni hans
og ráðaneytinu, og brjóta af sér
yfirráð þeirra. Gef'ur hann þar í
skyn, að Nikita, furstinn i Monte-
negro, og Bússakeisari hafi stjórn-
ina í vasanum og muni ætla sér að
undiroka Búlgara að fullu og öllu.
100,000 eintök af pjesa þessum
hafa verið send til Búlgaríu, en
stjórninni hefur tekist að stemma
stigu fyrir útbreiðslu ritsins.
Heimskautsfór. Til Gautaborgar í
Svíþjóð kom nýlega maður nokkur
frá Vesturheimi, Evelyn B. Bald-
win að nafni. Hann er í undirbún-
ingi með nýja heimskautsför og kom
til Svíþjóðar til að tala sig saman
við ættingja Andrées um eftirgrensl-
anir viðvikjandi afdrifum hans. —
Þessi maður er 35 ára og hafði
tekið þátt í Peary-förinni 1893—94,
og einnig viljað komast ineð Audrée,
en ekki fengið. Hann er búinn að
kaupa sér skip til fararinnar, er
heitir „America“, og kostaði 30þús.
doll. Ætlar hann að taka 30manns
með og leggja upp frá Eranz Jósefs
landi. Eerðina kostar auðmaður
nokkur í New-York, William Ziegler
að nafni. Þessi auðmaður hefur
altaf haft lánið og lukkuna með
sér í öllu, sem hann hefur ráðist í,
og býst við að svo fari enn. Hann
býðst til að leggja fram 2 mill.
dollara, en krefst aftur á móti að
Baldwin reisi stjörnufánann (merki
Bandaríkjanna) á norðurheimskaut-
inu. Geri hann það ekki, er svo
um samið með þeim, að Baldkín
komi ekki framar fyrir augu hans.
Arfleiðsluskrá Andrées heimskauts-
fara. Arfleiðsluskrá Andrées var
nýlega opnuð og lesin í viðurvist
beggja systkyna hans og nokkurra