Alþýðublaðið - 14.06.1964, Blaðsíða 1
Aðaerðarlevsii
45. árg.
— Sunnuáagur 14. júní 1964 — 132. tbl-
FOR-
SÍÐU
LEIÐ-
ARI
FÓRNIR á altari umferðarinnar eru orðnar ískyggilega tíðar hér á landi. Bif-
reiðum landsmanna hefur fjölgað örar undanfarin tvö ár en dæmf eru til áður.
Aukin umferð hefur skapað aukið öngþ veiti, því ökurými hefur ekki aukizt, né
umferðarmenning batnað í hlutfallil við fjölgun bifrdiða.
Ástandið í þessum efnum er nú að flestra dlómi orðið ískyggillegt; svo í-,
skyggilegt, að ekki má lengur við una. í höfuðborginni eru árekstrar og slys
svo daglegt brauð, að einungis stórslys eða banaslys þykja frétt-
næm. í hverjum árekstri verður tjón á bifreiðum svo tugum, ef
ekki hundruðum þúsundá skiptir. Þegar fólk slasast, hlýzt oft af ævi-
löng örorka og stundum dauði.
Höfum við íslendingar efni á að láta þessa þróun halda áfram
án þess reynt sé að harnla á móti? Tvímælalaust höfum við það ekki.
Það hefur engin þjóð.
Brezkur þingmaður sagði nýlega í blaðagrein, að þær þjóðir.
sem ekki gerðu sitt bezta til að reisa rönd við þessari óhugnanlegu
þróun, gætu vart talizt siðmenntaðar. Hann vildi láta skera upp herör gegn
umferðarslysunum, og það er einmitt verið að gera víða um lönidi um þessar
mundir. En við íslendingar höldum að okkur höndum og höfumst .ekki’ að. Yfir-
völd halda ekki vöku sinni og slysaf jöld inn eykst.
Það er sár sannleikuj', að í Reykjavík, þar sem slys eru tíðust og árekstrar
flestir, hefur síðastliðin ár harlá lítið vebið gert til að gera umferðina örugg-
ari. Umferðarljós voru sett upp á horni MiMubrautar og Lönguhdíðar, þegar þar
höfðu orðið tugir árekstra og slysa. Umferðarljós vantar á fjölmörg gatnamót í
borginni, en ekkert er a§ gert.
Upplýst er, að fjárskortur er ekki orsök framkvæmdaleysisins. Stöðumæla-
sjóður á tvær og hálfá midljón króna, sem geymdar eru á bankabókum í ýms-
um peningastofnunum. Þar er féð haft í útdánum og veltu, meðan ástandið í um-
ferðarmálum borgarinnar hríðversnar með hverri vikunni sem líður. Þetta fé á
skilyrðilsláust að nota til að bæta umferðina í borginni og það án tafar. Það er
óafsakanlegt, að ráðstafa fénu á þennan hátt meðan þörf úrbóta er jafn knýj-
andi og raun ber vitni.
Framhald a 2. siðu.
500 Lóðir hreinsaðar
Á KOSTNAD EIGENDA
Þriðji bðtsfundur
í haug hér a landi
I’atreksfirði, 13. júni. ÁP-GO.
FORNMINJAR hafa fundizt í
Vatnsdal hér í firðinum. Ýta var
að róta í jarðvegi þegar upp komu
ínannabein og haugfé. Þjóðminja-
verði var tafarlaust gert aðvart
um fundinn og sendi hann I>ór
INIagnússon vestur til að gera at-
liuganir í dysinni. í Ijós kom, að
þarna hafa verið dysjaðar 5 mann-
eskjur og nokkurt fé, ennfremur
fundust leifar af báti, sem mun
hafa verið um 24 feta iangur. Lík-
legt er að fólk og fé hafi verið
lagt í hann, en dysin er síðan úr
ramri heiðni, meira en 1000 ára
gömul.
(Framhald á 4. síSu).
Sveinbjörg í Svanavatninu
Fyrir nokkru skýrðum við frá Crankos, sem dansað hefur við
því hér í blaðinu, að 19 ára göm-
ul stúlka úr Reykjavík, Sveinbjörg
Krisún Alexanders, hefði getið
sér mjög góðan orðstír sem ball-
etdansmær í balletflokki John
Stuttgart-óperuna í vetur. Dans-
aði hún sóló í fyrsta sinn í Svana-
vatninu í Stuttgart 4. apríl í vor,
en á ballettvikunni í vor dönsuðu
Frh. á 4. síðu.
Reykjavík, 13. júní. — EG.
Síðastliðnar þrjár vikur hafa
um 500 lóðir í borginni verið
hreinsaðar á kostnað eigenda. 80
bílhræ hafa verið fjarlægð, — og
töluvert á annað hundrað skúrar
hafa verið rifnir. Að þessum
hreinsunum hafa unnið 20 menn
sem hafa haft 3 bíla til umráða
að auki liafa um 80 unglingar
úr unglingavinnu borgarinnar unn
ið að hreinsun á ýmsum opnum
Fréttamönnum var boðið í öku-
ferð um borgina fyrir þremur vik
um og þá sýnt hve viða var þörf.
á róttækum hreinsunaraðgerðum.
í dag buðu borgaryfirvöld í sams
konar ökuferð til að sýna hver
árangur hefði orðið á þessum tíma.
Mjög víða hafði orðið veruleg
breyting á til batnaðar. Strætis-
vagnaskrifli, forljótir skúrar og
annað álíka þokkalegt var nú
horfið af ýmsum lóðum, sem m.
a. hafa verið birtar myndir af hér
í blaðinu.
Páll Líndal, skrifstofustjóri
borgarstjóra, tjáði fréttamönnum
að einkaaðilar hefðu undanfarið
komið með 6000 bílhlöss af rusli
til sorpeyðingarstöðvarinnar, enda
mætti nú víða sjá mun á borginni.
Páll sagði ennfremur, að um þess-
ar mundir væri verið að gera alls
herjar hreinsimarherferð á Rvík-
urflugvelli og ætti flugmálastjóri
frumkvæðið að því. Hann sagði að
undirtektir almennings gagnvart
herferðinni hefðu orðið mjög góð-
ar. Svo virtist sem mönnum væri
nú ekki eins sárt um ruslskúra og
annan ósóma eins og oft áður. —
Því til sönnunar nefndi hann, að
Reykjavíkurborg hefur aðeins ver-
ið hótað málshöfðun vegna
tveggja eða þriggja skúra, sem
rifnir hafa verið. Það væri fjarri
lagi, að hreinsunarherferðina ætti
aðeins að miða við lýðvcldisaf-
mælið sagði Páll að lokum. henni
á að halda áfram eftir bað, og
hafa nokkrir aðilar fengið frest
til 1. júlí til að hreinsa .til.hji sér,.