Alþýðublaðið - 04.10.1964, Page 1

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Page 1
STARF ÆSKUNNAR QMET- ANLEQT FYRIR FLOKKINN Þing SSÍ sett í Reykjavík í gær Reykjavík, 3. okt. — GO. ÞING Sjómannasambands . ís- lands var sett í Iðnó í dag að við- stöddum 28 þingfuíltrimm, cn 29 fulltrúar höfðu verið kjörnir til setu á þingipu, flrá Reykjjavík, Akranesi, Keflavik, Grindavík og Hafnarfirði. Einn fuUtrúi var ekki viðstaddur setninguna. Auk hinna kjörnu fulltrúa v-oiu mættir 3 stjórnarmenn sjómannafclaga, en þeir éiga seturétt, en ekki atkvæð isrétt. Eftir að Jón Sigurðsson, for- maður sambandsins, hafði ávarpað þingið' nokkrum orðum voru kjör brcf öll samþykkt einróma og gengið til kosninga embættis- manna þingsins. Þeir voru ailir kjömir með samhljóða atkvæðum og eru þessir: Björn Guðmundsson frá Sjómannafélagi Reykjavikur er 1. þingforseti, en Ólafur Ólafs- Framhald á síðu 6. 44. árg. — Sunnudagur 4. október 1964 — 226. tbl. þýðuflokknum og stjórn hans. Síð | an raktj hann stofnun Sambands j ungra jafnaðarmanna, stjórnmál- baráttuna fyrr og síðar og þátt unghreyfingarinnar í henni. Hann sagði, að unga fólkið og samtök þess hefðu haft mjög þýðingar- miklu hlutverki að gegna, svo þýðingarmiklu, að starf þess hefði á ýmsan hátt haft afgerandi þýð- ingu fyrir flokkinn. „Við höfum jafnan verið fáliðaðir á Alþingi“, sagði Guðmundur, „en þó hefur | barátta og málflutningur flokks ! okkar borið mikinn og góðan á- vöxt í íslenzku þjóðlífi. Andstæð- ingar okkar hafa stig af stigi lát- ið undan, þegar þeir hafa séð, að málflutningur okkar átti hljóm- grunn með þjóðinni og andstaða var þeim hættuleg og líkleg til fylgistaps. Áhrif Alþýðuflokks- ins hafa þannig veríð og eru enn í dag miklu meiri og ríkari með Framhald á síðu 6. sagði Guðmundur í. Guðmundsson við setn- ingu 20. þings SUJ 20. Þing Sambands ungra jafn- aðarmanna var sett í félagsheimil inu Bjargi á Akureyri í gær kl. 11 fyrir hádégi. Formaður SUJ Sig- urður Guðmundsson setti þingið með ræðu. Þá tók til máls utan- ríkisráðherra Guðmundur í Guð- Næðingurinn feykir haustlaufunum í hrúgur, sem safnast fyrir gangstéttunum og einnig á götunum. Það hefur verið haustlegt liöfuðborginni okkar að undanförnu, þótt vcðrið hafi verið þungbúið og lítið farið fyrir hauststillunum. Myndin er tekin af J. V, mundsson, varaformaður Alþýðu- flokksins og fluttj hann snjalla ræðu. í upphafi máls síns flutti Guð- mundur í. Guðmundsson þinginu kveðjur og árnaðaróskir frá Al- MMHHHHMMMmWMMMM Allir fórusi með frönsku flugvélinni PARÍS, 3. október. (NTB-R.). Flak frönsku áætlunarflugvél- ariunar, sem hvarf í gær á leið frá París til Máritaníu, er fundið í Sierra Nevada-f jöllum á Suður- Spáni, sagði formælandi franskra yfirvalda í dag. Formælandi lögreglunnar í Granada segir, að enginn hafi komizt lífs af úr flugslysinu. Í París er sagt, að hugsanlegt sé, að í vélinni hafi verið innan við 80 manns. Fyrri fregnir herma að í vélinni hafi verið 73 farþeg- ar og sjö manna áhöfn. Fjögurra manna fjölskylda mun hafa hætt við að fara á síðustu stundu. Meðal farþega í vélinni voru 20 börn, þar af fimm ungbörn. í morgun hermdu ffegnir, að 20 manns hefði verið bjargað úr flaki flugvéiarinnar, en þær stöfuðu af misskiiningi. Flugvélar og skip höfðu hafið umfangsraikla leit að flakinu á Miðjarðarhafi. Sokolov -hjónum vísað úr landi Neiv York, 3. okt. (NTB-R). Rússnesku Sokolov-hjónin, sem staðin hafa verið að njósnum í Bandaríkjunum, voru liandtekin á ný skömmu eftir að þeim hafði verið sleppt úr haldi í gær, og verður visað úr landi eins fljótt og unnt er, að því er tilkynnt var í New York í gær. Njósnaréttarhöldin gegn hjón- unum vorn látin niður falla að beiðni bandarisku stjórnarinnar í gær og kom þessi ákvörðun mjög á óvart. Áreiðanlegar heimildir hermdu, að réttarhöldin mundu valda alvarlegum erfiðleikum fyr- ir bandarískar gagnnjósnir í fram tíðinni. Réttarhöldin gegn Sokolov-hjón unum hófust á mánudaginri, og var sagt áður en þau hófust, að þetta yrðu ef til vill stórkostleg- ustu njósnaréttarhöldin um margra ára skeið. Ef hin ákærðu hefðu verið fundin sek, kynnu þau að hafa verið dæmd til dauða. Dómarinn í málinu, John Dool- ing, sagði í réttarsalnum í gær: — Þessum réttarhöldum verður ekki haldið áfram, því að sam- kvæmt stjórnarskrá okkar eiga hin ákærðu kröfu á opinberum réttar höldum til að kynnast ákærunni á hendur þeim og sjá vitni sækjand- ans. Með tilliti til öryggis þjóðár- innar er þetta ekki hægt sagði dómarinn. Rvík, 3. okt. — OTJ. RÚMLEGA 200 úipum frá Belgjagerðinni hf. var skipað um borð í Dronning Alexandr- ine í morguu, cn Drottningin flytur þær til Færeyja. Það eru nú liðin ein fimm ár frá því, að Bclgjagerðin byrj- aði að flytja út, og nú er svo komið, að hún fær ekki annað allri eftirspurn. Þau lönd sem aðallega er flutt til, eru Dan- mörk, Svíþjóð og England. Það er dálítið kyndugt, að á sama ! tíma og menn hér eyða þús- undum króna í að skreppa : inn kaupaferðir til London, og kaupa þar m. a. úlpur og aðr- ar yfirhafnir skuli Lundúna- mæður, og Lundúnaunglingar, kaupa íslenzkar gæruskinnsúlp ur I stórum stil. T. d. voru í fyrra fluttar út úlpur fyrir S milljónir króna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.