Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 2
Rltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl: Arnl Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar: M800-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við ■verfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn. Dansskóli Heióars Ástvaldssonar. jf Afhending skírteina Lækkun kosnhngaaldurs UNGIR jafnaðarmenn halda nú þing á Akur- eyri. Þingið sitja rúmlega 90 fulltrúar frá 14 félög- :um ungra jafnaðarmanna víðsvegar um land. Einn erlendur gestur situr þingið, Sven Hulterström, iritari Norðurlandaráðs ungra jafnaðarmanna, og er sérstök ástæða til að bjóða hann velkominn. Eitt þeirra mála, sem ungir jafnaðarmenn hafa fekið upp og barizt fyrir, er lækkun kosningaald- urs úr 21 ári miður í 18 ár. Hér á landi settu ungir j afnaðarmenn þessa hugmynd fyrstir fram, en nú hafa nær öll æskulýðssamtök annarra stjórnmála- flokka lýst sig fylgjandi lækkun kosningaaldurs. Þeirri skoðun vex nú mjög fylgi í grannlönd- um okkar, að breyttar þjóðfélagsaðstæður geri það að verkum, að unga fólkið eigi fyrr að fá að hafa !hönd í bagga um stjórn lands síns. Þetta er að- eins eðlileg afleiðing aukinnar menntunar og al- mennrar velsældar. i Ungir jafnaðarmenn á íslandi urðu fyrstir til þess að halda því fram, að æskan verðskuldaði þetta traust. Æskan sýnir líka, að hún treystir jafnaðarstefnunni, því starf æskulýðssamtakanna hefur sjaldan verið blómlegra en nú. Það er mikil grózka í starfi ungra jafnaðar- manna um þessar mundir. Um það vitnar bezt hið fjölmenna þing þeirra á Akureyri. Alþýðublaðið árnar þingfulltrúum heilla í starfi og vonar að þingið megi bera ríkulegan ávöxt í þágu jafnaðar- stefnunnar á íslandi. HLEYPIDÖMAR ! LESENDUR dagblaðsins Vísis gætu haldið, að engu væri líkara en flokkar jafnaðarmanna á JÚprðurlöndum væru í dauðateygjunum. Ekki er þó ihægt að leyna þeirri staðreynd, að jafnaðarmenn skiþa nú ríkisstjórn í Noregi, Svíþjóð og Dan- eiörku. Norskir jafnaðarmenn töpuðu að 'vísu nokkru atkvæðamagni í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosn- ingum, en hafa ber það í huga, að kjörsókn var. tmjög léleg og bitnar slíkt að sjálfsögðu mest á stærsta flokknum. Það eru furðulegir hleypidómar hjá ritstjóra Vísis, að Norðmenn séu að hverfa frá fylgi við jafnaðarstefnuna. Slíkar fullyrðingar byggjast fremur á óskhyggju en skynsemi. Öllum er enn í fersku minni bvernig hægri mönnum í Noregi fókst að halda um stjómartaumana í fyrra sumar. Ekki er líklegt að slíkt ævintýri verði endurtekið í bráð. Jafnaðarstefnan á traustu og öruggu fylgi að fagna á Norðurlöndum, sem og í ýmsum af hinum aiýfrjálsu ríkjiun, sem bafna kommúnisma og kapí- talisma sem löngu úreltum öfgastefnum. Reykjavík. Skírteini verða afhent í Brautarholti 4 mánudaginn 5. okt. og þriðjudaginn 6. okt. frá kl. 3—8 e.h. báða dagana. Kennsla hefst miðvikudaginn 7. okt. Kópavogur. Skírteini verða afhent í Félagsheimilinu, efri salnum, sunnudaginn 4. okt. frá kl. 3— 7 e.h. Kennsla hefst miðvikudaginn 8. okt. Hafnarfjörður. Kennsla fer fram í Góðtemplarahúsinu og er fyrsti tíminn föstudaginn 9. okt. Böm 4—8 ára mæta kl. 4. Hjón byrjendur kL 8,30 og hjón framhald kl. 10. Skírteini af- hent við innganginn. Kefiavík. Skírteini verða afhent í Ungmennafélagshúsinu mánudaginn 5. október frá kl. 3—7 e. h. Kennsla hefst þriðjudaginn 6. október. BURSTAFELL BYGGINGAVÖRUVERZLUN SELUR MEÐAL ANNARS: Baðkör Koparpípur Skiptilykla Pensla Handlaugar Glerullarhólka Rörtengur Sparslspaða Salerni Gierull í metratali Kranatengur Sandpappír Eldhúsvaska Einangrunarplast Slaghamra Slípisteina Skolvaska Hitamæla Klaufhamra Dúkahnffa Skápa í baðherbergri Þrýstimæla Meitia Strákústa Biöndunartæki Tengikrana Járnbora Kalkkústa Miðstöðvardælur Hamp Demantsbora Kústsköft Renniloka Röráburð Griptengur Einangrunarbönd Ofnkrana, 3/8”, 1/2”, 3/4” Ofnafestingar Járnsagarboga Gluggaiamir Ílníónhné Handlaugarfestingar Sagarblöð Gluggakrækjur Slöngukraíia Saum, sv. og galv. Tommustokka Stormjárn BURSTAFELL BYGGINGAVÖRUVERZLUN ; ’• '•;, . . • ■,v ,•.- . • Réttarholtsvegi 3. — Sími 4-16-40. 2 4- okt. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.