Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 8
EINS og lesendur blaðsins hafa eflaust veitt athygli, eru frétta- •klausur frá Akranesi oftast ein- kenndar með stöfunum Hdan. :Ekki veit ég hversu margir vita ■að eigandi þessa einkennis er iHelgi Daníeisson, sá landskunni Iknattspyrnumaður. i I Þegar ég átti leið um Akra- ines s.l. mánudag leít ég inn til Helga, þar sem hann var á vakt í lögregluvarðstofunni, en hann hefur gegnt lögreglustarfi á Skaganum frá því í maí í vor Helgi hafði tekið áf sér ein- kennishúfuna og farið úr jakk- anum, enda var hlýtt í stof- ’unni, og kveikt sér í pípu. — Ykkur gekk vel í leikn- |um gegn KR í gær, Helgi. i — Já, leikar stóðu eitt núll .f hálfleik, og snemma í seinni ^hálfleik skoruðum við annað 'mark, en þá gerðu KR-ingar eitt mark og eru svo alveg við að skora mínútu seinna, en þá bjargaði bakvörðurinn hjá okk- ur á línu, upp í þverslána og Þaðan langt út á völl. Við bættum tveimur við og fjórða markið kom á síðustu imínútu leiksins. — Hver setti mörkin ykkar? — Eyleifur setti tvö og Björn Lárusson tvo. — Hvar var Rikki? — Ríkharður spilaði haff, en fór út af fljótlega í fyrri hálf- leik, meiddist, en Þórður Jóns son bróðir hans kom inn á. Þórður fór á vinstri kantinn, en við settum vinstri kant- mannmn sem haff, en hann hef ur aldrei spilað þá stöðu áður Hann heitir Guðjón Guðmunds son, nýliði, mjög skemmtilegur spilari og hefur góða knattmeð ferð. Ekki er ég í nokkrum vafa um það, og ég get sagt það hvar sem er, að Akranesliðið er lang bezta liðið í fyrstu deild. — Jæja? — Já —. Einu leikirnir, sem við töpuðum, voru á móti Fram og móti Keflvíkingum hér upp á Akranesi og ef við hefðum átt að vinna nokkra leiki, þá eru það leikirnir, sem við átt- um að vinna. En við töpuðum fyrir Keflvíkingum í Keflavík og það var leikur, sem við átt- um að taoa, eini leikurinn sem við áttum að tapa í sumar en í hinum höfðum við haft yfir- burði. — Það er ánægjulegt að tvö efstu liðin skuli vera utanbæj- arlið, eins og sagt er? — Já. og í þessum leik í gær unnum við annað, sem við höfum h=!dið undanfarin ár, en Eyleifur varð markahæstur í fyrstu deild, og það kallast vel af sér vikið hjá 17 ára gömlum nýliða. Skúli varð hæstur í fyrra og Ingvar Elíasson árið fyrir hitteðfyrra, — Hvað .skoraði Eyleifur mörg mörk? — Hann skoraði 10 mörk. hafði skorað 8 fyrir þennan leik. Þróttari var hæstur fyrir m MAÐUR VERÐUR AÐ FÖRNA EN FÆR ÞAÐ MARGFÁLT BOI þennan leik, Haukur Þorvalds- son held ég hann heiti. Leikurinn í gær var skemmti legur, Björn Lárusson var sent- ir. Eyleifur og Skúli innherjar, Donni á hægri kantinum og Guðjón Guðmundsson á vinstrl kantinum, við vorum sem sagt með fjóra unga menn í fram- línunni. Svo var Kristinn sent- ir haff, Ríkharður hliðarhaff og Sveinn Teitsson, en Jón Leós- son var ekki með, hann var meiddur. Bakverðir voru Pétur Jóhannesson og Bogi. Þetta var svolítil uppreisn æru okkar og þegar bezti kost- urinn er ekki fyrir hendi, þá tel ég að þetta hafi verið sá næstbezti, að Keflavík skyldi vinna og við vera í öðru sæti. — Akureyri hefði þurft að verða í þriðja sæti. — A þeim fimmtán árum, sem liðin eru síðan Akranes- liðið komst upp af botninum, en þar var það oftast ásamt Víkingi og Akureyri, þá hefur liðið tvisvar sinnum lent í þriðja sæti, en annars alltaf í fyrsta og öðru sæti, öll árin. Sex sinnum íslandsmeistari, sjö sinnum í öðru sæti og tvisvar í þriðja sæti. Þetta. tel ég mjög snyrtilega frammistöðu hjá ekki stærra bæjarfélagi, en nú er alltaf ver ið að tala um að við séum að dala, nú séum við að verða bún- ir að vera, en alltaf spjörum við okkur. Og síðan Akranes- liðið varð íslandsmeistarar í fyrsta sinn, hefur liðið verið endurnýjað að mestu leyti og þeir einu, sem eftir eru og þá léku með, voru þeir Ríkharður, Donnj og Sveinn. — Það er þá nóg af mann- skap? — Okkur hefur alltaf tekizt að ná í nýja menn. — Er Guðjón Finnbogason þjálfari hjá ykkur? — Já, Guðjón er þjálfari og okkur líkar mjög vel við hann. Hann er sérstaklega samvizku- samur og duglegur og sérlega þæg.'legur í umgengni. Ég held við eigum ekki völ á betri manni. — Þú ert þá ekki hræddur um liðið? — Nei, ég held að okkur tak- ist án efa að fylla þau skörð, sem myndazt, en ég tel að óviða sé jafn almennur áhugi fyrir knattspyrnu og hér á Akranesi. Hér á árunum var verið að gutla í mörgum íþróttagrein- um, en árangur varð lélegúr. Svo var far>ð út í það að snúa sér eingöngu að knattspyrn- unni. Um bær ráðstafanir eru að siálfsögðu skiptar skoðanir, en bærinn var ekki það stór að hann þvldi sð mennirnir skiptu sér á milli íþróttagrejna. Hér var svo ekki hugsað né talað um annað en knattspyrnu, eins og maður segir, en þá náð- ist árangur. Nú tel ég hins vegar, að svo góður grundvöllur hafi verið lagður að þessari íþrótt, auk þess sem bærinn hefur stækk- að að mun og fólkinu fjölgað eftir því, að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að lyfta undir aðrar íþróttagreinar. En sá, sem ætlar sér að verða g 4. okt. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.