Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 9
> góður knattspyrnumaður, verð- ur að leggja hart að sér, því enginn vaknar einn morguninn íullskapaður knattspyrnumað- (ur, án þess að æfa og æfa vel, mörg ár. Menn verða að fórna einhverju, sleppa sveitaböllun- um, en ég er ekki í vafa að menn fá erfiðið margborgað, bæði á vellinum og utan. — Þú hefur reynsluna? , — Þetta er fimmtánda árið, sem ég tek þátt í íslandsmeist- aramótinu og það segi ég alveg eins og er, að ég sé ekki eftir þeim tíma, sem farið hefur í íþróttirnar, né þeim peningum, sem ég hef eytt, því ég tel mig hafa fengið þá greidda til baka í ógleymanlegum ferðum heima og erlendis. Maður hefur kom ið svo víða, til Bandaríkjanna, .Rússlands, allra Norðurland- anna, Frakklands, Belgiu, Hol- lands, Englands, Skotlands, ír- Jands og guð má vita hvað, en ,til þess hefði ég aldrei fengið tækifæri, ef ég hefði ekki stúnd .áð knattspyrnu og sennilega hefði ég aldrei komið út fyrir landsteinana. Þetta hefur vitanlega kostað mig bæði tíma og peninga, beint og óbeint, en það er bara hlutur, sem maður getur alls ekki séð eftir. Mér finnst ekki hægt að meta þetta til fjár og þegar maður hættir, á maður góðar endurminningar, um góða félaga og skemmtilegar stund- ir. Svo á ég allar blaðaúrklipp- ur um þá knattspyrnuleiki, sem ég hef tekið þátt í, síðan ég byrjaði að spila. — Þú ert nú ekki hættur í markinu? — Ég veit ekki, ég hef verið latur við æfingar í sumar. Mað- ur er búinn að spila svo lengi og hefur aldrei fengið frí í markinu, enginn verið til að leysa af. Ég hafði ákveðið að hætta í haust, en ég þori ekki að segja neitt ákveðið um það, maður veit ekki hvort tekst að standast freistinguna, þegar fer að vora aftur. — Hvenær byrjið þið að æfa? — Venjulega eftir áramótin, seinnipartinn í janúar. Við höf- um sérstaklega góða aðstöðu hérna, við höfum nefnilega Langasandinn, en hann er al- veg eins og gras og ekki festir á honum snjó. — Og leikið þið þar? — Þar getum við náð fullri vallarstærð. Það hefur verið okkur ómetanlegt að hafa Langasandinn, og var sérstak- lega hérna á árunum, áður en við fengum nýja völlinn. Þar er nú komin góð aðstaða, en vantar ennþá hús fyrir bún- ingsherbergi og böð, en það stendur til bóta. Miðað við sambærileg bæjar félög stöndum við vel að vígi Framliald á síðu 13. Texti: Ragnar Lár. — Ljósm.: Jóh. Vilberg. Ungbdrndfatnaður Verð frá kr. 32,00 Verð frá kr. 18,00 Verð frá kr. 22,00 Verð frá kr. 35,00 Verð frá kr. 52,00 UNGBARNABOLIR ........... UNGBARNATREYJUR, BLEYJUR, TVÍOFNAR ..... BLEYJUBUXUR ............. SOKKABUXUR ............. PEYSUR í ÚRVALI......... TVÍSKIPTIR ÚTIGALLAR MEÍ) HETTU .............. Verð frá kr. 475,00 Ný sending af þýzkum og enskum ungbarna- fatnaði til sængurgjafa. t f Laugavegi 70 $0/ Sími 14625 Framleiðendur athugið: Önnumst sölu og dreifingu innlendra framleiðsluvara. Sími 18560 Verzlanasambandið h.f. Skipholti 37. Berklavörn Reykjavík Eins og að undanförnu, verður kaffisala i Breiðfirðinga- búð á Berklavarnadaginn, í dag, sunnudagjnn 4. október frá kl. 3 til kl. 6 e. h. Þær konur, sem hugsa sér að gefa kökur, vinsamlega hringi í síma 20343, Fríða Helgadóttir; eða 32044, Laufey Þórðardóttir; eða þá á skrifstofu S.Í.B.S., sími 22150. NEFNDIN. SKOLATÖSKUR STÍLABÆKUR KÚLUPENNAR LITIR ALBUM SPIL DÚKKULÍSUR LITABÆKUR Blöð, innlend og erlend — Tízkublöð ★ íslenzkar og erlendar bækur. T*T O l< H L. A A N w_<1 1__X X,—X X X 4 Laugavegi 47. — Sími 16031. ALÞÝBUBLAÐIÐ — 4. okt. 1964 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.