Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 10
EF Ný Kjarvatsbók #í 1» SSIi 1 -. , i^.^- 1 -* m FYRSTA JÓLABÓKIN 1964 I>að er fyrir löngu sjálfsagður hlutur að dásama manninn og snillinginn ðÓHÁNNES KJARVAL og drekka í sig list hans. Svo erum við annað veifið minnt á það hressilega í erlendum tolöð um, að á meðal okkar búi einn af höfuðsnillingum norrænnar myndlistar. Það fylgir því ekk- ert sérstakt yfirlæti lengur er við fullyrðum án hiks, að ís- land eigi £ dag annan höfuð- snilling heimslistarinnar, Jóhannes Sveinsson Kjarval. Kyrsta jóiabók Helgafells er að koma út, ný Kjarvalsbók, prýdd um 100 myndum þar af 20 lit- myndasíður, frá ýmsum tím- um ævi " listamannsins, þessa stórbrotna og sérstæða lista- manns og volduga persónuleika, fæpð í litríkt og töfrum magn- að mál eins okkar færasta rit- höfundar, Thors Vilhjálmssqnar, Höfum nú fyrirliggjandi 15 af fegurstu málverkum Kjarvals í eftirprentunum. HELGAFELL, Unuhúsi, VEGHÚSASTÍG 7. rws-Twwm i«.wc.2L«aá félag ora- Islands (Framhald af 4. síðn). málastjómar, að falleinkunn verði niður felld á barnaprófi. 11. Fundurinn skorar á foreldra og löggæzlumenn um land allt, að herða sem mest eftirlit með útivist barna og unglinga á síð kvöldum og vinna ötullega að því, að lög og reglugerðarávæði þar um verði eigi brotin. Telur fundurinn, að orsakir afbrota, agaleysis og margra annarra meina þjóðfélagsins liggi í því, hve mál þessi eru tekin lausum tökum hér á landi. 12. Fundurinn telur ámælisvert, hve margir skólar á landinu eru fátæklega, búnir að áhöldum og tækjum. Sérstaklega bendir fundurinn á aðstöðumun til náms og kennslu, sem þetta skapar nemendum og kennur- um dreifbýlisins, ofan á allt of stuttan námstíma árlega. Skor ar fundurinn á . fræðslumála- stjóra að láta t. d. námsstjóra athuga nú þegar ástand skól- anna í þe,ssum efnum og gera viðunandi ráðstafanir til úr- bóta. Fundurinn skorar á menntamálaráðherra, að boða alla skólanefndarformenn lands ins til funda t. d. á Akureyri og Reykjavík til þess að ræða þann þátt, er að sveitarfélögum snýr í sambandi við rekstur skóla, og verði þeim þá sýndir skólar búnir nauðsynlegum tækjum og áhöldum, svo að þeim gef- ist tækifæri til þess að kynna sér hvaða kröfur séu almennt gerðar í þessum efnum. 13. Fundurinn telur, að óeðlilegt sé og næsta vafasamt að miða laun skólastjóra við tölu fastra kennara, og felur stjórninni að vinna að breytingu i þá átt, að laun skólastjóra verði miðuð við tölu nemenda skólans. 14. Fundurinn telur, að réttur skóla til kennara skuli miðaður við kennslustundafjölda vik- unnar en ekki tölu nemenda en jafnframt verði gefnar út reglur um það, hvenær skipta skuli bekkjardeild (þ.e. um há markstölu nemenda). 15. Fundurinn áréttar fyrri kröf- ur um, að skólastjóri sé tal- inn með í tölu kennara, þegar skólastjórum er skipað niður 1 launaflokka. Ennfremur undir- strikar fundurinn fyrri kröfur um að reglum um kennslu skyldu skólastjóra verði breytt á þann veg, að lækkuð verði til muna kennsluskylda skóla- stjóra, einlcum í stærri skól- um landsins. Fundurinn áréttar og endur- tekur fyrri tillögur félagsins um: 16. Að námsskrá skyldunámsins og gagnfræðastigsins verði tek- in til gaumgæfilegrar athugun ar hið allra fyrsta. Að þar til sú endurskoðun hefur farið fram, verði náms- kröfur og próf samræmd þann ig um land allt, að þeir, er ungl ingaprófi hafa lokið með tilskil inni lágmarkseinkunn, ákveð- inni af fræðslustjórn, geti geng ið hindrunarlaust upp i 3. bekk gagnfræðaskóla og héraðsskóla. 17. Að landsbyggðinni verði sem fyrst séð fyrir sálfræðilegri þjónustu. Meðan sú skipan kemst ekki á, verði sálfræðing ar látnir ferðast milli skóla landsins til athugana og ráð- legginga. 18. Að unnið sé að því, að upp verði komið hið bráðasta eigi færrj en 7 fræðsluskrifstofum utan Reykjavíkur og yfir þær settir fræðslustjórar með svip uðu verksviði og nú gildir um Reykjavík. vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif> enda í þessum hverfum: Högunum Barónsstíg Lönguhlíð Framnesveg Bræðraborgarstíg Laufásveg Afgreiðsla Alþýðuhiaðsins Sími 14 900. Duglegir sendisveinar ÓSKAS-T. Afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900. 110 4- okt, 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ WESH&l v 19. Að endurskoðuð verði ákvæði um kjör ráðskvenna í heima- vistarskólum og jafnframt kveð ið á um starfssvið þeirra og menntun. Þetta verði gert í samráði við samtök heimavist- arskólastjóra og kennara. 20. Fundurinn liarmar alveg sér- staklega hve seinlega gengur með afgreiðslu og athugun á tillögum og ábendingum skóla manna yfirleitt hjá fræðsluyfir völdunum og bendir á hversu seinlega gangi þróun kennslu- og skólamála í landinu, ef áfram er haldið á þeirri braut. Treystir fundur- inn menntamálaráðherra tU þess að hlutast til um að breyt ing verði hér á hið fyrsta. Fundurinn kaus þriggja manna nefnd til þess að gera tillögur um launamál skólastjóra og vera stjórninni til aðstoðar í samninga umræðum er varða kjör félags- manna. Félagið festi á árinu kaup á sumarbústað Kjartans Thors í landi Hagavíkur við Þingvalla- vatn og rak sumarbúðir þar í sum ar fyrir skólastjóra og fjölskyld- ur þeirra. Þarna geta dvalizt 10- 15 manns í senn. Fullskipað var i Bakkaseji í sumár, og komust færri að en vildu. Vinnur stjórn félagsins áfram að lausn sumar búðamálsins, og mun félagið færa út kvíarnar, eftir því, sem þörf krefur. Samþykkt var að innheimta árs- gjöld félagsmanna með póstkröfu. Þá samþykkti fundurinn að efnt skyldi til skólastjóramóts árið 1966. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa: Hans Jörg enson Rvík. form., Páll Guð- mundsson Seltjarnarnesi, gjald- keri og Vilbergur Júlíusson Silfur túni, ritari. Varamenn eru: Her- mann Eiríksson Keflavík og Sig urbjörn Ketilsson Ytri Njarðvík. Fundurinn sendi forseta ís- lands herra Ásgeiri Ásgeirssyni samúðarkveðjur vegna andláts for setafrúarinnar Dóru Þórhalldsdótt ur. Svarfur sauður (Framhald af 4. sfSu). á enda. Hann hafðj verið rit- stjóri hins opinbera biaðs Borba einkaritari í utanríkisráðuneyt- inu, forstjóri áróðursskrifstof unnar og meðlimur í sendi- nefnd Júgóslavíu hjá Samen- uðu þjóðunum. Hann missti þingsæti sitt í marz árið 1955. Þegar Djiias var aftur tek- inn höndum haustið (1956 sner ist dr. Dedijer enn til varnar 'fyrir hann og skrifaði glæsi- legt opið bréf til Tito forseta, þar sem hann hvatti hann til að gefa Ðjilas frelsi, en án árangurs. Dr. Dedijer hefur verið hædd ur í júgöslavneskum blöðum og tryggir fylgismenn flokksins litu á hann sem svikara, en allt um það fékk hann að lifa ein- földu og kyrrlátu lífi í Belgrad. Fyrir nokkrum árum fór liann til Englands, þar sem hann kenndi við iiáskólann í- Mancli- ester og á St. Anthony's Coll- ege i Oxford. Hann hefur oft farið í heim- sókn til Belgrad til þess að vitja um hruma móður sína. Undanfarið hefur hann verið niðursokkinn í rannsóknir á þeim atburðum, sem leiddu til morðsins á Franz Ferdinand erkihertoga í Serajebo fyrir 50 árum. Fyrstu bók sína, sem fjallar um andspyrnuhreyfing- una, kallaði hann „Dagbók“. BA. Fagra veröld Framhald af síðu 7. og General Dynamics Electric Boat Division smíðuðu í samein- ingu, var hleypt af stokkunum lagði forstjóri Reynolds-fyrirtæk isins áherzlu á nauðsyn alþjóð- legra samninga um, hvernig skipta skuli réttindum til hagnýtingar á Ef ekki yrðu gerðir alþjóðlegir samningar um hagnýtingu á auð- legðum hafsbotnsins kynnu að skapast deilur, sem hafa gætu al- varlegar afleiðingar. Tilrunaferðir kafbátsins hefj- ast innan skamms og ekki er bú- izt við að hann kafi á 5 km. dýpi fyrr en í vor. Fyrir þrem árum sagði prófess or nokkur við Kaliforníu-háskóla að næsta áratug mundi fjölda margt koma mönnum á óvart í sambandi við rannsóknir á hafs- dýpinu. „Aluminaut" mun aðstoða þennan prófessor og starfsbræður hans við að komast til botns í vandamálum þeim, er þeir glíma við. Kafbáturinn er ef til vill fyrsta skref þróunar, sem bandarískir vísindamenn fullyrða að leiða muni til þess einn góðan veður- dag að .mcnn geti komið á fót „fiskibúum" neðansjávar, seni gefa mundu af sér fimm sinnum meirf „uppskeru" árlega en fisk- veiðar okkar nú, Sótt málma svo nemur milljörðum króna frá hafs,- botni, framleitt rafmagn með hag- nýtingu kröftugra og djúpra hafs strauma, barizt gegn fellibyljum með því að koma á fót neðansjáv- arstöð, sem getur beint köldu vatnsmagni upp á yfirborðið, flutt farma og farþega í geysistórum kafbátum og tekið sér frí í neðan sjávarbæjum. Fé það, sem varið hefur verið til smíði „Aluminaut" getur vel orðið ein mikilvægasta fjárfesting, sem lagt hefur verið út í á þessai'i öld og haft miklu jákvæðari ár- angur fyrir mannkynið en hin gíf urlega kostnaðarsama könnun geimsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.