Alþýðublaðið - 04.10.1964, Side 11

Alþýðublaðið - 04.10.1964, Side 11
. • ■ ■ , i mm mm&mm &— : ; ' lÍilfe,. ’ %mP9k tSEJJw .11 ■■ -•• • • -.5» 'X*Vv?Æ5*5*v<öw.j,v't».®?í/ v •.•',•• ' glSÍlltp KíiaSSSsSÆÉiSM -:::SS JiÉÉÍÉÉÍiÉ —SSfCSS’T*-* Hverjir sigra i frjálsum íþróttum í Tokyo? Bandaríkjamenn verða sigur- sæ//Y / spretthlaupunum HVERJIR sigra í Tokyo? Hvaða þjóð lilýtur flest verðlaun? Hvaða þjóð fær flest stig í hinni óopin- beru stigakenni Olympíuleikj- anna? íþróttaunnendur um heim allan ræða þessar spurningar af kappi þessa dagana og ekki eru all ir á eitt sáttir í spádómum sínum. íþróttasíða Alþýðublaðsns hefur komið með sína spádóma, þegar framundan eru Olympíuleikar eða Evrópumeistaramót og við ætlum ekki að bregða út af van- anum í þetta sinn, þó að höfuð- verkur sé töluverður í sambandi við spádómana. í dag munum við : ræða og spá pm i spretthlaupum og millivegalengd um. ★ 100 m. hlaup. Ekki er minnsti vafi á því, að Bandaríkjamenn munu koma j mest við sögu í spretthlaupunum, 100, 200 og 400 m. eins og á fyrri Olympíuleikum. Sá, sem flestir spá þó sigri í 100 m. hlaupi, Bob Hayes, USA er ekki fremstur á heimsskránni, enda hlaupa Banda ríkjamenn mest 100 yds, hann er einn af 10, sém hlaupið hafa á 10,2 sek. Það er mikið úrval á heimsskránni, Eesteves, Venezu- ela er þar beztur með 10 sek. rétt ar, og sex hafa hlaupið á 10,1 sek, svo segja verður, að mai-gir koma til greina. Fáir trúa á tíma Vene- zuelamannsins, en ýmsir álíta, að lágvaxni Japaninn Iijima, sem hlaupið hefur á 10,1 sek. geti komið á óvart. Ekki má heldur gleyma Figuerola frá Kúbu og heimsmethafanum Jérome frá Kanada, sem þó hefur þann slæma veikleika að vera mjög taugaóstyrkur. Roberts frá Trinidad er einnig líklegur verð- launahafi, en hann hefur hlaupið á 10,1 sek. Ekki er líklegt, að Ev- rópubúar komi mikið við sögu í 100 m., nú er enginn Hary eða Radford. Spá í 100 m. hlaupi: Hayes, USA Jerome, Kanada, Iijima, Japan. / ★ 200 m. hlaup. Baráttan er ekki eins hörð á toppnum í 200 m. eins og 100 m. Henry Carr USA er þar langbezt- ur með 20,2 sek. í 220 yds., sem Peter Snell, Nýja-Sjálandi. samsvarar 20,1 sek. í 200 m. Á síðara úrtökumóti Bandaríkja- manna varð Carr þó aðeins þriðji. Næsti maður, Drayton, USA er með 20.4 og auk hans hafa Ott- olina, Ítalíu, Róberts, Trinidad og Hayes, sem ekki hleypur 200 m. á leikunum fengið 20,4 sek. Þriðji maður Bandaríkjanna er Stebbins sem hlaupið hefur á 20,5 sek. Trú legt er að þessir berjist um verð- launin, en Herrera, Venezuela gæti blandað sér í það stríð, en hann hefur hlaupið á 20,5 sek. Spá: Carr, USA, Drayton, USA RobertS', Trinidad. ★ 400 m. hlaup. Þó að' Mike Larrabee hafi jafn- að heimsmetið í 400 m. fyrir nokkr um vikum, og hlaupið á 44,9 sek. er alls ekki víst, að hann sigri í 400 m. Larrabee var í keppnis- ferð í Evrópu í sumar og hann tapaði þar fyrir evrópskum 400 m. hlaupurum, eins og t. d. pólska hlauparanum Badenski, sem hlaup íð hefur á 45,7 sek. og hinum harð skeytta brezka hlaupara Brigth- well, sem á bezt 46,0 sek. Auk Larrabee hlaupa Cassell og Ulis Williams fyrir USA, en þeir hafa náð bezt 45,9 sek. Líklegastir í verðlaunasæti, auk áðurnefndra, eru Trousil, Tékkóslóvakíu, 45,7 bezt, Bernhard, Trinidad, 45,7 og Mottley, Trinidad sem á bezt 45,8 sek. Spá: Williams, USA, Larra- bee, USA, Mottley, Trinidad. * 800 m. hlaup. Flestir sérfræðingar hafa óbif- anlega trú á Ný-Sjálendingnum Peter Snell. Þó að hann sé aðeins 20. á afrekaskránni í 800 m. Ulis Williams, USA hlaupi. Snell er geysisterkur hlaup ari og keppnismaður með afbrigð um. Hann er heimsmethafi 1:44,3 og hefur lýst því yfir, að hann muni sigra öðru sinni, en það verður ekki auðvelt. Bandaríkja- mennirnir Groth 1.45,7 mín., Sie- bert 1.46,8 mín. og Farrell 1.47,5 min. ásamt ýmsum fleiri góðum hlaupurum verða harðir keppi- nautar. Hver veit nema George Kerr, sem margir höfðu trú á fyrir Rómarleikana, sigri nú? Landi hans Myton er einnig frá- bær hlaupari, 1.47,5 mín. og ekki má gleyma hinum lágvaxna en knáa Japana Morimoto, 1.47,4 mín. Rússanum, Bulysihew 1.46,9, Bret anum Boulter 1.47,5 og ýmsum fleiri. Spá: Snell, Nýja-Sjá- landi, Groth, USA, Kerr Jamaica. ★ U500 m. hlaup. Við höfum mikla trú á banda- risku 1500 m. hlaupurunum Bur- leson 3.38,1 mín. og Tom Ol Hara 3.38,8, en ekki er líklegt að hinn 17 ára gamli Ryun geti blandað sér í stríðið um verðlaunin að þessu sinni, hann ætti aftur á móti geta orðið góður í Mexico 1968 að öllu forfallalausu. Ekki má gleyma Snell og hinum snjöllu evrópsku hlaupurum Baran, Pól- landi 3.39,8, sem setti Evrópumet í míluhlaupi í sumar og Bretanum Henry Carr, USA. Simpson, 3.39,1. Heyrzt hefur að Jazy muni leggja aðaláherzluna á 5000 m. hlaupið. — Spá: Burleson USA, Snell, Nýja-Sjálandi, Simp- son, Englandi. Dyrol Burleson, USA. i BELTI og BELTAHLUTIR Berco belti og beltahlutir á allar beltavélar i Höfum á lager og pöntum til skjótrar afgreiðslu hin viðurkenndu BERCO belti og beltahluti, svo sem KEÐJUR, SKO, RULLUR, DRIFHJÓL, FRAMHJÓL OG FLEIRA. BERCO belti og beltahlutir er viður- kennd úrvalsvara, sem hefur sannað ágæti sitt við íslenzk- ar 'aðstæður imdanfarin 4 ár. EINKAUMBOÐ á íslandi fyrir Bertoni & Colti verksmiðjurnar Almenna verzlunarfélagið h/f Laugavegi 168. Símar 10199 & 10101. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 4. okt. 1964 ^

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.