Alþýðublaðið - 04.10.1964, Qupperneq 14
Ja, þessi lijónabönd nú ð
ðögum. Ég hitti ungan vin
minn og hann var að flýta sér
heim til að búa til matinn. —
Er konan veik, spurði ég. —
Nei, en hún er orðin svöng,
svaraði hann...
Borgarbókasafnið.
AOalsafniB Þingholtsstrætl 29a,
símt 12308. — Útlánsdeildin opin
alla virka daga kl. 2-10, laugar-
daga kl. 1-4. Lesstofan opin virka
daga kl. 10-10. Laugardaga kl. 10-
4. Lokað sunnudaga.
ÚtibúiO Hólmgarðl 34. Opið kl.
5-7 alla virka daga nema laugar-
nema laugardaga.
Útibúið Hofsvallagötu 16. Opið
kl. 5-7 alla virka daga nema laug
ardaga.
Lista6afn Einars Jónssonar er
opið á sunnudögum og miðviku-
dögum kl. 1.30 - 3.30.
Óháði söfnuðurinn . Spiluð verð
ur félagsvist í Kirkjubæ, laugar
daginn 3. þ.m. kl. 8.30 Fjölmennið
og takið með ykkur gesti.
„Svífur að haustið og svalviðrið gnýr“.
Síld veiðist ennþá, en þorskurinn flýr.
Skattarnir aukast, og verðbólgan vex.
Vandlátir nota hið útlenda kex.
Brátt senda Danirnir handritin heim,
þá höldum við svolítið fagnaðar-geim.
KANKVÍS.
HVER ER MAÐURINN!
Á ÞESSUM stað gefst lesendum Dagstund-
ar framvegis tækifæri til þess að reyna
hæfni sína í „mannþekkingu“. Svarið er
að finna hverju sinni einhvers staðar ó
næstu blaðsíðu.
UR VISNABOKINNI
Unga fólkið iðkar dans
unun þetta vekur.
Alveg upp að mitti manns
menntun þessi tekur.
Magnús Einarsson,
Aumt er að vera eins og svín
eða þorstlát belja —
og vilja feginn fyrir vín
frelsið aftur selja.
Skagfirzkur hagyrðingur,
I
Niðri á sandl Nástrandar
nepja er blandin hita.
Hvort að landar þrífast þar
það má fjandinn vita.
Káinn,
Hann er plága ölltrni á
eignast fáa vini,
bogið strá með bælda þrá,
brot af háu kynL
Guðmundur E. Geirdal.
Sunnudagur 4. október
8.30 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir og útdráttur úr forustugreinum dag-
blaðanna.
9.20 Morguntónleikar. — (10.10 Veðurfregnir).
11.00 Messa í hátíðarsal Sjómannaskólans.
Prestur; Séra Arngrímur Jónsson.
Organleikari: Gunnar Sigurgeirsson.
12.15 Hádegisútvarp. — 12.25 Fréttjr, veðurfregrt-
ír og tilkynningar.
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Sunnudagskonsert frá útvarpinu
Miinchen.
b) Frá Alþjóðakeppni Elísabetar Belgíu-
drottningar í píanóleik.
15.30 Sunnudagslögin.
16.15 Skátadagur j Reykjavík: Dagskrá til kynn-
ingar á skátalífinu í starfi og leik,
Stella Gísladóttir og Örn Arason sjá um
dagskrána. — (16.30 Veðurfregnir).
17.30 Barnatími (Anna Snorradóttir).
18.30 „Þess bera menn sár“: Gömlu lögin sungin
og leikin.
18.55 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir,
19.30 Fréttir.
20.00 Ástarsöngvar úr öllum áttum í útsetningu
Arne Dörumsgaard.
Ýmsir söngvarar syngja.
20.20 „Við fjallavötnin fagurblá“:
Guðmundur Jósafatsson frá Brandsstöðum
talar um helztu vötn á Auðkúluheiði.
20.40 „Einmitt fyrir yður“:
Hljómsveit Eric Bobinson leikur vinsæl
hljómsveitarlög.
21.00 Með æskufjöri:
Andrés Indriðason og Ragnheiður Heiðreks-
dóttir sjá um þáttinn.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög (valin af Heiðari Ástvaldssyni dans-
kennara).
23.30 Dagskrárlok.
MESSUR
Elliheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl. 10 f. h. — Séra
Magnús Rúnólfsson prédikar. —
Heimilisprosturinn,
Neskirkja,
Barnasamkoma kl. 10 f. h. —
Séra Frank M. Halldórsson,
Messa kl. 2. e. h. — Séra Bjarni
Jónsson víxlubiskup.
Grensásprestakall,
Breiðagerðisskóli,
Sunnudagaskóli kl. 10.30 f. h.
Messa kl. 2 e. h. — Felix Ólafsson.
Ásprestakall.
Barnaguðsþjónusta í Laugarás
bíói kl. 10 f. h. — Almenn guðs-
þjónusta kl. 11 e. h. sama dag. —
Séra Grímur Grímsson,
Fríkirkjan í Reykjavík.
Messa kl. 2. — Séra Þorsteinn
Björnsson.
Háteigsprestakall.
Messa í hátíðarsal Sjómanna-
skólans kl. 11 f. li. — Séra Arn-
grímur Jónsson.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2 e. h. (athugið breytt
an messutíma). — Barnaguðsþjón
usta kl. 10.15 f. h. — Séra Garðar
Svavarsson.
Hallgrímskirkja.
Barnasamkoma kl. 10. — Messa
kl. 11. Ræðuefni: Hjúkrunarskort
ur. Séra Jakob Jónsson. — Messa
og altarisganga kl. 5. Séra Sigur-
jón Þ. Árnson,
Fríkirkjan i Hafnarfirði.
Messa kl. 2 e. h. — Séra Krist-
inn Stefánsson.
Skátadagur
Framhald á 14. síðu
verða útsýnis- og merkjaturnar, og
keppt í ýmiskonar skátaíþróttum.
Á sýningunni verður sérstök upp-
lýsingadeild, þar sem fólk getur
leitað upplýsinga um starfsemi
skátafélaganna í Reykjavík og ann-
að viðvíkjandi sjálfu skátastarf-
inu. Tvö stór hlið verða reist,
svipuð þeim, sem tíðkast á skáta-
mótum.
Þá verður almennur skátavarð-
eldur á svæðinu kl. 4.15. Setning
Skátadagsins 1964 fer fram á sér-
stöku hátíðarsvæði, sem er á
miðju sýningarsvæðinu. Áætlað er,
að sýningin standi yfir til kl. 5.30.
Sérstök dagskrá verður í Ríkis-
útvarpinu í tilefni daglsins og
hefst hún kl. 3.45. Dagskráin stend
ur yfir í 85 mín. og samanstendur
hún einkum af söng, gamanþátt-
um og viðtölum.
Það er Skátasamband Reykja-
víkur, sem gengst fyrir Skáta-
deginum 1964, og er þetta eitt
af fyrstu verkefnum sambands-
ins, en það var stofnað sl. vor.
Skátasambandið vill færa þeim
fjölmörgu aðilum, er aðstoðað
hafa skátana við undirbúning
dagsins bestu þakkir.
Berklavörn Reykjavík. Munið
kaffisöluna í Breiðfirðingabúð á
berklavarnardaginn, sirnnud. 4.
október. Vinsamlega tilkynnið
kökugjafir í síma 20383, 32044
og 22150.
Sunnan stinningskaldi og skúrir. í gæv var suð-
læg átt um land allt, rigning sunnanlands, en skúr-
jr austanland. í Reykjavík. var sunnan kaldi, þoku
móða, hiti 10 stig.
\
Var nú dragsúgur í
skráargatinu, sagði Sigga
systir, þegar kellingin
kvartaði yfir því, að ann
að augað í sér væri bólg
ið...
4. okt. 1964 - ALÞÝ^UBLAÐIÐ