BFÖ-blaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 2

BFÖ-blaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 2
Mér fannst að það þyrfti endilega að gefa fólki tækifæri á að skýra frá já- kvæðum viðbrögðum ökumanna, hinu er alltaf frekar haldið á lofti sem miður f er. Hins vegar verð ég að viðurkenna, að undirtektir hlustenda minna í útvarpinu urðu ekki þær, sem ég hafði vænst, þátt- takan varð ekki nógu góð. Ég held, satt að segja, að margir hafi misskilið þetta dálítið og tekið full bókstaflega. Aðalatriðið var auðvitað að hamra á þessu hugtaki um tillitssemina, og nota nýja aðferð til þess. Við fengum 562 ábendingar og höfum nú sent öllum þeim bifreiðaeigendum límmerki í afturrúður bifreiða sinna, sem á stendur "Tillitssemi 1978" og vonumst við að sjálfsögðu til þess, að þeir setji það í bílana og leggi þannig sjálfir áherslu á þennan boðskap í umferðinni." ÞÚ minnist á útvarpið. Þið eruð einmitt nýbyrjuð að senda frá ykkur ábendingar í nýstárlegu formi. Hvað er um það að segja? " í sjálfu sér er það alls ekki nýtt út af fyrir sig, að útvarpið komi á framfæri ábendingum um umferðarmál, það hafa þeir gert. í áraráðir með glöðu geði, þegar leitað hefur verið til þeirra. Það sem er nýtt við þetta núna er það, að nú hafa verið lesnar inn á "band" nokkrir tugir ábendinga og þær innramm- aðar með tónlist og eru um fjölmarga þætti umferðarmála, ekki tíma- eða stað' bundnar nema að takmörkuðu leyti. Þessu verður svo útvarpað í hléum eftir smekk og vilja þula og tækni- manna og á því að koma fólki á óvart hverju sinni. Ég vona að hlustendur taki þessu vel og er raunar viss um, að svo er." NÚ er von á nýrri umferðarmerkjareglu- gerð með vorinu, hvað er að frétta af þeim málum? "Ekkert annað en það, að við erum nú að kanna alla hugsanlega möguleika á kynningu þessarar reglugerðar og þeim nýmælum, sem í henni eru. Til þess þurfum við fjármagn, sem nú er alls ekki til staðar eins og flestir vita, en verðum að vona að úr rætist, því þetta er stórt mál hjá okkur." Eru fjármálin alltaf söm við sig? "Já blessaður vertu, fastir liðir eins og venjulega. Það verður gaman að lifa þegar stjórnvöld hafa komið auga á þá staðreynd, að það fjármagn, sem lagt er í svona fyrirbyggjandi starf skilar sér margfalt til baka. "Sjá dagar koma" sagði skáldið, ég trúi ekki, að framhald þessa vinsæla ljóðs geti átt hér við "ár og aldir líða." ÞAlTTTAICEKlbU'R O G STARFSMENN f LoiCA-ICEP-pm r -U/EEMIS- Axsnc f -KEyiOAvíic 1\. OlCTíÍBE.^. 72> *

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.